Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Side 5
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1991.
5
Fréttir
Uppsagnir yfírmanna á SúlnafeUinu dregnar til baka:
Ég vona að þetta
sé ekki gálgaf restur
- segiroddvitinníHrísey
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég lít svo á aö málið sé í biðstöðu
og þessar aðgerðir KE A séu einungis
til þess gerðar að forsvarsmenn fyr-
irtækisins fái vinnufrið í einhvern
tíma. Ég tel að málin munu ekki
skýrast frekar fyrr en á stjórnar-
fundi KEA sem haldinn verður í vik-
unni,“ segir Smári Thorarensen,
oddviti í Hrísey, um þá ákvörðun
Kaupfélags Eyfirðinga að draga til
baka uppsagnir yfirmanna á Súlna-
fellinu sem gert er út þaðan.
Smári sagðist telja að það sem fyrst
og fremst hefði valdið þeirri ákvörð-
un KEA að draga uppsagnirnar til
baka væri að skipstjóri Súlnafellsins
væri með tilboð um annað starf og
þyrfti að ákveða sig. Það væri hins
vegar ljóst að ef Súlnafellið yrði ekki
gert út nema fram á vor þá færi þessi
maður annað og flytti hurt með sína
fjölskyldu.
„Það má því segja að það hafi ekk-
ert gerst í málinu annað en uppsögn-
unum hefur verið kippt til baka í
bih. Við héldum fund með kaupfé-
lagsstjóra síðastliðið mánudagskvöld
og hann gaf engin ákveðin svör þar
þótt gengið væri á hann.“
- Þú telur sem sagt að hér sé hugsan-
lega einungis um gálgafrest að ræða?
„Eg vona sannarlega að svo sé ekki,
heldur að menn fari að vinna þetta
með breyttum formerkjum. Stjórn-
armenn fyrirtækisins hafa lýst þvi
yfir að sjávarútvegurinn sé eini vaxt-
arbroddurinn í fyrirtækinu. Það er
enginn vaxtarbroddur hvorki í versl-
un eða þjónustu."
Rekstur Súlnafellsins hefur gífur-
lega þýðingu fyrir atvinnulífið í Hrís-
ey en hugmyndir KEA voru að hætta
útgerð skipsins, flytja kvóta þess yfir
á tvö önnur skip félagsins sem gerð
eru út frá Dalvík og flytja síðan afla
til vinnslu til Hríseyjar. Hríseyingar
töldu fyrirsjáanlegt að þeir yrðu und-
ir í þeirri „aflaskiptingu" og óttuðust
að þessar aðgerðir myndu leggja at-
vinnulífið í rúst og stuðla að því að
fólk flytti burt. Forvarsmenn KEA
segja hins vegar að engar endanlegar
ákvarðanir hafi verið teknar í mál-
inu, það sé í skoðun.
Smári Thorarensen sagðist ekki
telja að fólk væri farið að hugsá sér
til hreyfings. Ef skipinu yrði lagt
myndi áhöfnin hins vegar missa
vinnu sína og sjómennirnir fengju
ekki vinnu þar. „Þetta gæti haft
keðjuverkanir hér'í eyjunni en ég er
ekki svo svartsýnn enn að ég sé far-
inn að sjá fyrir mér fólksflótta héð-
an,“ sagði Smári.
Starfsmenn Slippstöðvarinnar voru í óðaönn að sandblása skrokk togarans
Skafta þegar þessi mynd var tekin. DV-mynd gk
Slippstöðin á Akureyri:
Skafti kominn í 20
ára f lokkunarviðgerð
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Togarinn Skafti frá Sauðárkróki er
kominn í 20 ára flokkunarviðgerð hjá
Shppstöðinni á Akureyri og er áætl-
að að viðgerðin taki um fjórar vikur.
Auk venjulegs viðhalds og skoðun-
ar, sem fylgir slíkri flokkunarvið-
gerð, er helsta verkefnið við skipið
að hreinsa allt út af vinnsludekki en
þar á að setja niður nýja vinnsluhnu.
Þá er strandferðaskipið Askja kóm-
in til Shppstöðvarinnar og er helsta
verkefnið við þaö skip að setja á það
skrúfuhring. Sá sem var fyrir brotn-
aði af að hluta og það sem eftir var
af honum var skorið af síðastliðið
vor.
íslandssaga Sögufélagsins:
Villur í forsetatali
- leiðréttaríseinniútgáfum
„Þær vihur, sem við vissum um í
nýju íslandssögimni, voru lagfærðar
strax í 2. prentun. Þar á meðal voru
röng ártöl í forsetatahnu," sagði
Heimir Þorleifsson, forseti Sögufé-
lagsins.
Nokkrar slæmar villur slæddust
inn í fyrstu útgáfu umræddrar ís-
landssögu sem gefin er út af Sögufé-
laginu. Þar á meðal voru röng ártöl
í forsetatið Sveins Bjömssonar og
Ásgeir Ásgeirssonar. Þá var í ís-
landssögunni einnig rangt heiti á
skipi. Þessi atriði hafa öll verið löguð
í 2. prentun bókarinnar.
„Þáð er engin bók villulaus sem
kemur út í veröldinni," sagði Heimir.
„En okkur þykir gott ef fólk, sem
verður vart við vihur, lætur okkur
vita. Nú er að vísu lokið við 3. prent-
un íslandssögunnar. Frekari leið-
réttingar komast því ekki inn í bih.
En það er gott að safna saman leið-
réttingum ef einhverjar eru.“
Heimir sagði enn fremur að fleiri
athugasemdir hefðu borist varðandi
bókina. Væri um aö ræða athuga-
semdir við skoðanir sem þar kæmu
fram varöandi þorskastríðið og fleira
á þeim nótum. Viö slíka hluti væri
erfltt að eiga.
-JSS
7111:
NYLINAI
FLUTNINGA
ÞJÓNUSTU
EIMSKIP hefur opnað nýja upp-
lýsingalínu - 69 71 11 - sem
tryggir skjót svör við öllum
fyrirspurnum viðskiptamanna
félagsins um innflutningsþjón-
ustu.
Hópur reyndra starfsmanna
hefur það meginverkefni að
svara fyrirspurnum þínum um
vöru, flutningsgjöld, skips-
pappíra, taka við athuga-
semdum vegna reikninga, veita
upplýsingar um siglingaáætlun,
ferðir skipa og annað það sem
þú þarft að vita vegna flutninga
þinna og viðskipta.
Hringdu í 69 71 11 !
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM RÉR LEIÐ
’ í 3) U ,V,* 3 k í 3 I * n X ;.;i 1 ;iL* M ÍIBJJ13/
í
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA