Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Blaðsíða 38
50 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1991. Afmæli dv Jóhannes Sigmundsson Jóhannes Sigmundsson, kennari viö Flúðaskóla í Hrunamanna- hreppi, til heimilis aö Syðra-Lang- holti í Hrunamannahreppi, er sex- tugurídag. / Starfsferill Jóhannes fæddist í Syðra-Lang- holti og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá ML1954, hefur stundað ýmis kennaranámskeið og stimdaði síðar nám við KHÍ1982-83. Jóhannes var bóndi í Syðra-Lang- holti 1954-80 og hefur verið kennari við Flúðaskóla frá 1961. Jóhannes stundaði félagsmála- fræðslu við Lýðháskólann í Skál- holti 1977-82 og hjá hinum ýmsu félögum. Hann var formaður skóla- nefndar Héraðsskólans á Laugar- vatni 1969-80, formaður Héraðssam- bandsins Skarphéðins 1966-76, sat í stjórn Landverndar frá stofnun 1969-75, sat í stjórn Ungmennafélags Hrunamanna í nokkur ár og í vara- stjóm Ungmennafélags íslands lÐeS-^g, var fulltrúi Ungmennafé- lags ísalnds í stjórn Nordisk Sa- morganation for Ungdomsarbejde 1976-80, var formaður landsmóts- nefndar vegna sextánda landsmóts UMFÍ1978 á Selfossi, formaður Kennarafélags Suðurlands 1980-82, formaður Ferðamálasamtaka Suð- urlands frá 1987, situr í Ferðamála- ráði frá 1989 og situr nú í fram- kvæmdastjórn Ferðamálaráðs auk þess sem hann hefur setið í stjórn og varastjórn Upplýsingamiðstöðv- ar ferðamála frá stofnun 1987-91. Jóhannes var hótelstjóri viö Hótel Flúðir 1985-87, var fyrsti forseti Kiwanisklúbbsins Gullfoss 1985 og var svæðisstjóri Sögusvæðis 1989-90. Hann hlaut gullmerki ÍSÍ 1970, heiðurskross ÍSÍ1976 og var kjörinn heiðursfélagi ÍSÍ1990. Hann hlaut gullmerki FRI1975, guUmerki UMFÍ1981 og heiðursfána Skarp- héðins 1990. Jóhannes hefur stund- að íþróttir frá unglingsaldri og kepptá héraðsmótum Skarphéðins í ýmsum greinum árlega frá 1949. Jóhannes hefur skrifað greinar í blöð og tímarit og var ritstjóri Skarphéðinssíðunnar í landsmála- blaðinu Suðurlandi í nokkur ár. Fjölskylda Jóhannes kvæntist 5.11.1954 Hrafnhildi Svövu Jónsdóttur, f. 5.11. 1934, húsmóður. Hún er dóttir Jóns S. Sigfússonar frá Brekku í Svarfað- ardal, b. í Bjarghúsum og víðar, en lengst af búsettur á Sauðárkróki, og konu hans, Sigurbjargar T. Gutt- ormsdóttur frá Síðu í Víðidal. Börn Jóhannesar og HrafnhUdar Svövu eru Hilmar, f. 18.4.1955, b. í Syðra-Langholti, kvæntur Fanneyju Þórmundsdóttur húsfreyju og eiga þau þrjú börn; Sigmundur, f. 25.9. 1957, b. í Syðra-Langholti, kvæntur Önnu Mary Snorradóttur húsfreyju og eiga þau þrjú börn; Sigurbjörg Jóna, f. 5.1.1959, húsmóðir í Hafnar- firði, gift Ólafi Stephensen og eiga þau þijú böm; Snorri Freyr, f. 11.3. 1965, rafvirki í Syðra-Langholti en sambýliskona hans er Vigdís Furu- seth húsfreyja; Gunnar Þór, f. 30.10. 1967, stúdent frá ML; Anna Lára, f. 17.12.1969, stúdent frá Ármúlaskóla, og nú við frönskunám í París; Ásdís Erla, f. 2.6.1972, nemi við Fjöl- brautaskólann í Ármúla. Systkini Jóhannesar eru Alda Kristjana, f. 16.6.1933, húsfreyja í Dalbæ í Hrunamannahreppi; Sigur- geir Óskar, f. 16.3.1938, kaupmaður í Grund á Flúðum; Sigurður, f. 16.3. 1938, ritstjórnarfulltrúi við tímaritið Eiðfaxa; Sverrir, f. 13.9.1944, vinnu- vélastjóri í Reykjavík. Foreldrar Jóhannesar voru Sig- mundur Sigurðsson, f. 8.3.1903, d. 12.3.1981, Litla-Kálfalæk í Mýra- sýslu, b. oddviti og búnaðarþings- fulltrúi að Syðra-Langholti, og Þur- íður Anna Jóhannesdóttir, f. 24.3. Jóhannes Sigmundsson. 1902, frá Fremri-Fitjum í Miðfirði, húsfreyja. Ætt Sigmundur var sonur Sigurðar, b. í Miklholti í Hraunhreppi, Sig- mundssonar, b. á Litla-Kálfalæk, Ólafssonar, b. í Knarrarnesi, Jóns- sonar, langafa Sigurðar, skálds frá Arnarholti. Þuríður Anna var dóttir Jóhannesar Kristóferssonar á Fremri-Fitjum sem var í Valdarási, bróður Gunnars, langafa Friðriks Sophussonar fjármáiaráðherra. Jóhannes og kona hans era stödd á Flórída um þessar mundir. Jónína Sigurveig Gudmundsdóttir Jónína Sigurveig Guðmundsdótt- ir handavinnukennari, Dalbraut 18, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Jónína er fædd á Víkingavatni í Kelduhverfi, N-Þingeyjarsýslu, og ólst upp þar og á Kópaskeri. Hún var við nám í Héraðsskólanum á Laugarvatni 1934-36, Húsmæðra- skólanum á Laugum í S-Þingeyjar- sýslu 1937-38, Hálgesater Vávskola í Svíþjóð 1939, Industriskolen í Osló 1939-AO og Handarbetets Vánner Semenariet í Stokkhólmi 1946-48. Jónína starfaði við handavinnu- og vefnaðarkennslu í Reykjavík og víðar. Hún kenndi í Húsmæðraskól- anum á ísafirði, Húsmæðraskóla Suðurlands á Laugarvatni og í Verknámi í Reykjavík. Jónína kenndi einnig hjá Náms- flokkum Reykjavíkur og á ýmsum námskeiðum. Fjölskylda Systkini Jónínu: Árni, dó í æsku; Bjöm, f. 29.3.1918, deildarstjóri í Reykjavík, maki Jónína S. Jónas- dóttir, þau eiga flögur börn, Sigur- björgu, Guðmund, Björgu og Sigr- únu Þóru; Guðrún, f. 14.4.1922, aðal- bókari í Reykjavík, hennar maður var Eggert Eggertsson, látinn; Indr- iði, dó í æsku. Hálfsystkini Jónínu, samfeðra: Kristján, bóndi á Núpi í Öxarfirði, dó af slysfórum; Árni Ragnar, f. 14.2 1935, rafmagnseftir- litsmaður í Reykjavík, maki Ste- fanía Helgadóttir, þau eiga þrjú böm, Ragnar, Katrínu Helgu og Árdísi; Björg, f. 20.5.1944, húsfreyja á Núpi í Óxarfirði, maki Jón Ingi- mundarson, þau eiga fjögur böm, Guðrúnu, Ingimund, Arna Björn og Árdísi Hrönn. Fyrri maður Bjargar var Ólafur Sigurpálsson, þau eiga tvo syni, Reyni og Guðmund Sigur- pál. Foreldrar Jónínu: Guðmundur Kristjánsson, f. 1.6.1884, d. 18.12. 1965, bóndi og sparisjóðsstjóri Spari- sjóðs Keldhverfinga og síðar N- Þingeyinga, og Björg Indriðadóttir, f. 18.8.1888, d. 25.1.1925, húsfreyja. Þau bjuggu á Víkingavatni í Keldu- hverfi en Guðmundur bjó-síðar á Kópaskeri og á Núpi. Jónina Sigurveig Guðmundsdóttir. Jónína verður að heiman á afmæl- isdaginn. Brynjar Skarphéðinsson Brynjar Skarphéðinsson fram- kvæmdastjóri, Lögbergsgötu 7, Ak- ureyri, er sextugur í dag. Starfsferill Brynjar fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann stundaði nám í skóg- ræktarfræði og lauk því 1953 en stundaði síðan framhaldsnám í Al- aska 1953 og í Noregi 1955. Hann hóf síðan störf hjá Skógrækt ríkisins og var þar verkstjóri, einkum aö Tumastöðum í Fljótshlíð og að Vögl- umíFnjóskadal. Brynjar lét af störfum hjá Skóg- ræktinni 1956 til að taka þátt í upp- byggingu fyrirtækis föður síns, Amaro hf. Þar starfaði hann þar óslitið til 1984, fyrstu tuttugu og tvö árin við uppbyggingu heildsölu fyr- irtækisins en frá 1978 var hann í forsvari fyrir smásölu þess. Eftir að Brynjar lét af störfum í Amaro hf. hefur hann sinnt ýmsum stöfum, verið í forsvari fyrir bænda- skógrækt í Eyjafirði, unnið í bygg- ingavinnu og reynt fyrir sér í fram- leiðslu og sölu á plöntubökkum og pottum. Brynjar og kona hans hafa ætíð búið á Akureyri að undaskildum vetrunum 1977-78 og 1978-79 er þau bjuggu í Þýskalandi þar sem hún varvið nám. Brynjar hefur gegnt ýmsum trún- aðarstörfum í félagasamtökum. Hann var einn af stofnendum JC- hreyfingarinnar á Akureyri og fyrsti forseti JC Akureyri. Þá hefur hann sinnt umhverfis- og land- græðslumálum og var um árabil formaður Skógræktarfélags Eyfirð- inga og Garðyrkjufélagsins. Fjölskylda Kona Brynjars er Guðlaug Her- mannsdóttir, f. 15.2.1936, fram- haldsskólakennari. Hún er dóttir Hermanns Einarssonar, sem fórst í sjóslysi 1941, og Ágústu Tómasdótt- ur húsmóður. Börn Brynjars era Harpa Brynj- arsdóttir, f. 5.11.1957, ritari á Ákur- eyri, gift Ævari Austfjörð og eru böm hennar Brynjar Már Magnús- son og Tinna Dögg Magnúsdóttir; Hermann Brynjarsson, f. 15.6.1960, endurskoðandi á Akureyri og er dóttir hans Guðlaug Hermannsdótt- ir; Sigrún María Brynjarsdóttir, f. Brynjar Skarphéðinsson. 27.8.1973, tamningamaöur á Akur- eyri, gift Eiði Guöna Matthíassyni. Systkini Brynjars era Birkir Skarphéöinsson, f. 5.9.1938, fram- kvæmdastjóri á Akureyri, kvæntur Maríu Einarsdóttur og eru böm þeirra Hildur, Laufey, Guðrún Margrét og Skarphéðinn; Kristjáns Skarphéðinsson, f. 21.6.1945, fram- kvæmdastjóri á Akureyri, kvæntur Mörtu Þórðardóttur og era dætur þeirra Jóhanna, Þórdís og Kristín. Foreldrar Brynjars: Skarphéðinn Ásgeirsson, f. 3.3.1907, sem nú er látinn, og Laufey Tryggvadóttir, f. 5.4.1911, húsmóðir. ANITECH6Ö02 HQ rpyndbandstæki Árgerð 1992 30 daga, 8 stöðva upptökuminni, þráðlaus fjarstýring, 21 pinna „Euro Scart“ samtengi, sjálf- virkur stöðvaleitari, klukka + teljari, ísl. leiðarvísir. Sértilboð 26.950 ," stgr. Vönduð verslun 33 Afborgunarskilmálar E) SIMI 688005 Til hamingju með afmælið 18. nóvember 100 ára Hunsína Jóhannesdóttir, Skólastíg 14a, Stykkishólmi. Geitastekk 4, Reykjavík. Helgi Sigfússon, Borgarsíðu 15, Akureyri. 50ára 80ára Rósa Finnsdóttir, Gljúfri, Þorlákshöfn. Gunnar Sigtryggsson, Blesugróf 30, Reykjavik. . ^ 40ára 75ára Þórunn K.M. Arnardóttir, Hverafold 92, Reykjavík. Sigurjón Sigurðsson, Bólstaðarhlíð 68, Reykjavik. Margrét Sveinsdóttir, Eyvindará, Egilsstööum. Guðríður Kristjánsdóttir, Túnhvammi 12, Hafnarfirði. Hermann Páll Jónasson, Hátúni lOa, Reykjavík. Helgi Steinþórsson, Freyjuvöllum 12, Keflavík. 70 ára Sigurður Daníelsson, Fálkakletti7, Borgamesi. Hákon J. Sturluson, Hjallkárseyri, Þingeyri. Halldóra Stefánsdottir, Stekkjarhvarami 48, Hafnarfirði. Kolbrún Jónsdóttir, Þórastíg 8, Njarðvík. 60ára Barðavogi 28, Reykjavík. . Ásdis Petra Kristinsdóttir, Sverrir Bjarnason, Urðarstekk 6, Reykjavlk. Sigrún Kristbjörg Ámadóttir, Lauíbrekku 22, Kópavogi. r á næsta sölustað • Áskriftarsími 62-60-10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.