Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1991. 21 Fréttir Fiskmarkaðurinn í Ólafsvik: „Bjartsýnn á framhaldið" ÞórhaBur V. Einarsson, DV, Ólafevík; Fyrsta uppboð á fiski hjá Fisk- markaði Snæfellsness hf., sem stofn- aður var fyrir skömmu, fór fram 9. nóv. og annað þann tólfta. í fyrra skiptið voru boðin upp rúm 5 tonn af fiski, mest þorskur og ýsa, og var hann allur seldur suður. Hæsta verð á þorski var 94 kr. kg. Bjóðendur voru 2 frá Ólafsvík og nokkrir frá öðrum stöðum. Markaðurinn er tölvutengdur beint við fiskmarkað Suðumesja og þar með er hægt að bjóða í fisk í Ólafsvík frá Qölmörgum stöðum, allt frá ísafirði til Vest- mannaeyja, og Ólafsvíkingar geta gert shkt hið sama. Á öðru uppboð- inu var fiskur frá vinnslustöðvum í Ólafsvík, mest keila og ýsa. Hann fór einnig suður. í samtali við Ágúst Sigurðsson, einn stofnenda, kom fram að hluthaf- ar í Fiskmarkaði Snæfellsness hf. eru orðnir 60, flestir úr Ólafsvík en einn- ig frá Amarstapa og Neshreppi utan Ennis. Fiskmarkaðurinn hefur mjög gott 800 m2 húsnæði og segja mats- menn að þetta sé best búni fiskmark- aðurinn á landinu, með kæliklefa og eigin ísframleiðslu. Óljóst er með stofnun annarra markaða hér vestra. Viðræður vom í gangi um stofnun sameiginlegs markaðar fyrir allt Snæfellsnes sem hefði aðalstöðvar í Ólafsvík og upp- boðsgólf á hinum stöðunum. Upp úr þeim viðræðum slitnaði. Ágúst Sig- urðsson telur að slíkt fyrirtæki yrði allt of stórt og þungt í vöfum. Álítur hann að heimamenn á hverjum stað eigi aö sjá um stjórn og sölu síns fisks. Frá upphafi hafi það verið ætl- un þeirra hjá Fiskmarkaði Snæfells- ness hf. að styðja við bakið á öðmm og aðstoða við að koma á markaði þegar séð væri hvernig best yrði að þessum málum staðið og hvernig markaðurinn gengi í Ólafsvík. „Eg er annars ánægður og bjart- sýnn á framhaldið og vona að eining og friður haldist um þennan markað, byggðunum til heilla," sagði Ágúst. Olafsvík - myndin var tekin fyrir nokkrum dögum DV-mynd Þórhallur Úrfjárbúskapí skógræktog ferðaþjónustu Heimir Kiistiiisson, DV, Dalvílc Bóndinn í Syðrihaga á Árskógs- strönd, Armann Rögnvaldsson, sem hefur verið með fjárbúskap síðan hann keypti jörðina 1970 - mest 350 fjár - skar í haust niður megnið af fjárstofni sínum og seldi framleiðslu- réttinn á 244 ærgildum. Ármann ætl- ar nú alfarið ásamt fjölskyldu sinni að snúa sér að ferðaþjónustu, sem hann hefur haft sem aukabúgrein um árabfi, og skógrækt. Ármann sagði að undanfarið hefði veriö þrengt aö bændum og hann sæi lítið jákvætt í búvörusamningnum nýja. Hann hélt þó eftir 10 kindum, sér og fjölskyldunni til ánægju og heimihsnota. Hann hefur verið að byggja upp ferðaþjónustu undanfarin ár, er með tvö sumarhús á jörð sinni, Götu, sem leigð eru út, auk tveggja herbergja í íbúðarhúsinu í Syðrihaga. Hann er einnig með hestaleigu. Fjölskyldan hefur stundað skóg- rækt í 10 ár í Götulandi og hefur plantað þar um 60 þúsund plöntum af ýmsum tegundum, mest þó lerki. Þessa ræktun á að efla enn frekar og íjölskyldan ætlar að lifa á ferða- þjónustu og skógrækt í framtíðinni. Selfoss: Slátursala aldrei minni Regína Thorarensen, DV, Selfossi; Sumarslátrun stóð yfir hjá Slátur- félagi Suðurlands frá 26. ágúst til 12. september og er það nýlunda að slátrað sé yfir sumarmánuðina. Þá var slátraö 3908 íjár, þar af 148 roll- ur. Sumarsalan var mjög góö. Haustslátrun hófst 17. september og lauk 5. nóvember. Aldrei hefur verið slátrað eins mörgu fé hjá SS - 48.860 dilkum og 10.000 af eldra fé. Þar af voru sjö þúsund sem ríkið kaupir. Samtals var slátrað á þessu sumri og hausti 63.007 fjár. Meðalvigt var 14,1 kíló Sláturhússtjóri er Skúli Jónsson, Selalæk. 130 manns unnu við sl’átr- unina í haust og allt á fríu fæði að sögn Sævars Larsen stöðvarstjóra. Vilborg Magnúsdóttur, sem hefur unnið 16 ár hjá SS á Selfossi, sagði að slátursala hefði aldrei verið eins lítil og á þessu hausti. Steingrímsfíörður: Veiði á rækju bönnuð vegna ýsuseiða og þorsks ÞórhaBur Ásmundsson, DV, NorðurL vestra: Rannsóknarskipið Dröfn kannaði rækjumiðin í Húnaflóa og á Stein- grímsfirði í síðustu viku. Vegna niðurstöðu leiðangursins hefur Hafrannsóknastofnun lagt til að sömu veiðiheimildir verði veittar á svæðinu og á síðustu vertíð, 2000 tonn. Svipuð útkoma var af veiðitil- raunum Drafnar á Húnaflóa og Skagafirði. Minna magn er af rækju en í fyrra en hún heldur stærri en þá. Vegna ýsuseiða og eins árs þorsks verða rækjuveiðar bannaðar á Steingrímsfirði og mun því meira mæða á Húnaflóanum á ✓ , þessari vertið. Rækjukvótinn skiptist þannig milli staða á Húnaflóasvæðinu: Hólmavík fær 50%, Skagaströnd 22%, Hvammstangi 18% og Blönduós 10%. ^^^mVVm»tmVVmVYW»m»mV»V»Wm»»WMWAAW^UAAAAAAAAAAAÁAAAJUt»A»AAA)WWWVV ORYGGISSIMINN ♦ Fyrir þig - og þá sem þér þykir vænt um Hjálparkall með talsambandi með því að þrýsta á einn hnapp á tækinu. Þráðlaus aukahnappur til að senda hjálparkall með talsambandi hvaðan sem er innan íbúðar fylgir. Viðbótar hnappar fáanlegir fyrir sambýli. Hægt að svara hringingu úr fjarlægð hvar sem er innan íbúðar með þráðlausa hnappnum. Sjálfvirkt hjáparkall ef notandi heru.r ekki eðlilega fótavist. Tengist auðveldlega reyk- og innbrotsskynjurum. Hátalarastilling, endurval og beinval fyrir mikið notuð slmanúmer. Styrkstillir fyrir heyrnardaufa og búnaður fyrir þá sem nota heyrnartæki. Hundruðir þúsunda tækja í notkun i Evrópu. Viðurkennt á Islandi af Pósti og síma og Brunamálastofnun ríkisins. Hafðu samband við öryggisráðgjafa okkar og fáðu frekari upplýsinaar. .. ORYGGISSÍMINN Aður óþekkt öryggi og þægindi Sala - Leiga - Þjónusta Öryggissíminn er ótrúlega þægilegur og hnappurinn tryggir að hjálp er alltaf innan spilingar. VARI S 91-29399 ALHLIÐA ÖRYGGISÞJÓNUSTA SÍÐAN 1969 l

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.