Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1991, Side 23
MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1991. 35 Sviðsljós BUNDHÆÐ A JIUMFEROW Rokkað í Neskaupstað pakka-tilboð Hjörvar Siguijónsson, DV, Neskaupstað: Hótel Egilsbúð í Neskaupstað og norðflrskir hljómlistarmenn buöu fyrir nokkru til rokkveislu í Nes- kaupstað. Þetta er þriðja árið í röð sem efnt er til tónlistardagskrár af þessu tági og má því segja að rokkveislurnar séu búnar að skapa sér fastan sess í austfirsku skemmtanalífi. Að þessu sinni voru íslenskri dæg- urtónlist frá árunum 1950-1975 gerð góð skil. Tónlistin var fiutt af átta hljóðfæraleikurum og sjö söngvur- um og er skemmst frá því að segja að undirtektir Austfirðinga voru frá- bærar. Húsfyllir var á öllum sýningunum og hafa því á milli sjö og átta hundr- uð manns notið rokkveislunnar. Stórir hópar frá nágrannabyggð- unum fjölmennu og allir virtust sam- mála um gæði tónlistarinnar og ekki síður matarins sem borinn var fram. Framkvæmdastjóri rokkveislunn- ar var Þröstur Rafnsson og á hann þakkir skildar fyrir mikið og ósér- hlífið starf. Glæsilegt útlit og góð tæknileg hönnun á verði sem er ævintýri líkast. MEIRIHÁTTAR ELTA-myndbandstæki og 20" Adison litasjónvarpstæki með fjarstýringu á meiriháttar tilboðsverði aðeins kr. 58.700 /“ st8r- Gamla kempan, eða Bubbi, brást ekki frekar en fyrri daginn. Megas var í banastuði og var vel fagnað af áhorfendum. DV-myndir GVA Sveinn Rúnar Hauksson læknir skipulagði tónleikana til styrktar Samtökum herstöðvaandstæðinga. Fjórir helstu trúbadorar íslands, þeir Bjartmar, Bubbi, Megas og Hörður, héldu sameiginlega tónleika á mánudags- kvöldið og slógu rækilega i gegn. Fjögur stærstu trúbadornöfnin á íslandi, þeir Bubbi Morthens, Bjart- mar Guðlaugsson, Megas og Hörður Torfason, héldu sameiginlega tón- leika í Borgarleikhúsinu á mánu- dagskvöldið fyrir troðfullu húsi. Slegist var um miðana og þurftu um 300 manns frá að hverfa. „Ég skipulagði þessa tónleika í samvinnu við listamennina og þeir voru haldnir til styrktar Samtökum herstöðvaandstæðinga,“ sagði Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og félagi í samtökunum. Heiti tónleikanna var „Hafið, fjöli- in og hugarfarið“ og Sveinn sagði að nafnið vísaði á umhverfisvernd því að tilgangurinn hefði verið að beina augum fólks að mengun af völdum herstöðva, hér á landi sem annars staðar. „Þetta er svona rétt að byija að koma upp á yfirborðið, eins og t.d. fréttirnar af Heiðarfjalli þar sem eit- urefni hafa komið í ljós sem talið er að muni síast niður í grunnvatnið á örfáum árum,“ sagði Sveinn og nefndi fleiri dæmi. „Við skiljum ekkert í því að núna þegar kalda stríðið er búið og óvinur- inn hefur gufað upp tala sumir um að það hafi aldrei verið meiri þörf á herstöðvum. Okkur líst ekkert á það og við ætlum því að herða barátt- una.“ Þetta var í fyrsta sinn sem trúbad- orarnir komu fram allir saman og Sveinn sagði að það hefði ekki reynst erfitt að ná þeim saman fyrir þennan málstað. „Þetta voru stórkostlegir tónleikar og þeir voru líka svo ánægðir með þetta, strákamir. Þeir voru alveg upp á sitt besta og undirtektirnar voru alveg hreint stórkostlegar," sagði Sveinn. Gæði á góðu verði Svelna María Mánadóttlr söng sig lnn í hug og hjörtu Austfirðinga í rokk- ðc OOf ð imi2 JT EfGgiulasV veislunni I Neskaupsfað á dögunum. DV-myndir Hjörvar Sig. Trúbadorar í banastuði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.