Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1991, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1991, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991. Uflönd Útigangsböm í Rio de Janeiro mótinæla morðum lögreglu og glæpamanna: Hafa myrt 2000 börn - eina helgina fundust sex böm myrt í einu af úthverfum borgarinnar Þúsundir bama í Rio de Janeiro í Brasilíu gengu í gær um götur borg- arinnar og mótmæltu morðum á úti- gangsbörnum. Lögreglan liggur und- ir gmn um að myrða böm af handa- hóíi og eiturlyíjasalar hafa orðið uppvísir að morðum á bömum sem selja eiturlyf á götunum. ■ Svo rammt kveður að þessum morðum að fyrir nokkm fundust sex börn og unglingar á aldrinum frá níu til sautján ára myrt í einu úthverfa borgarinnar. Höfðu þau öll verið skotin en ekkert er vitað hverjir voru þar að verki. Talið er að um 2.000 böm hafi ver- ið myrt í Brasilíu á síðustu fjómm ámm. Flest eru þetta útigangsbörn sem lifa af beth, vændi og eiturlyfja- sölu á strætum borga þar. Bama- vemdarsamtök segja að nú séu átta milljón böm á vergangi í Brasiliu. Mörg þeirra deyja á unga aldri úr sjúkdómum og hungri fyrir utan þau sem em myrt. Dómsyfirvöld hafa ekkert getað gert til að stemma stigu við morðöld- unni í landinu. Því er einnig haldið fram að yfirvöld hafi takmarkaðan áhuga á málinu og láti sér í léttu rúmi hggja þótt eitthvað fækki í röð- um útigangsbama. Lögreglan hefur þó neyðst til að láta rannsaka framferði lögreglu- þjóna í Rio eftir að rökstuddur grun- ur vaknaði um að þeir hefðu myrt börn. Þá náði ljósmyndari í Río mynd af lögreglumanni þar sem hann mundaði skammbyssu við höfuð ungs drengs. Eftir mikh mótmæh var lögreglumaöurinn loks settur af. Rannsókninni er ólokið og óttast barnavemdarsamtök að henni ljúki aldrei. Reuter Þúsundir barna gengu um götur Rio de Janeiro í Brasilíu í gær til að mótmæla morðum lögreglu og glæpamanna á útigangsbörnum í borgum landsins. Talið er að 2000 þúsund börn hafi verið myrt í Brasilíu á siðustu fjórum árum. Símamynd Reuter PARKEl lOTTU HELGI 68x120 cm Kr. 1995 nítján hundruð nítíu og fimm. Valdarán í Togó Hermenn í Vestur-Afríkuríkinu Togó fyrirskipuðu útgöngubann í landinu í nótt eftir að þeir hrifsuðu völdin af Joseph Kokou Koffigoh, forsætisráðherra bráðabirgðastj órn- ar landsins, í gær. Hermennirnir lögðu undir sig útvarps- og sjón- varpsstöðvar í höfuðborginni Lomé og sendu út kröfur um að Eyadema forseti, sem missti mestöll völd í ágúst, skipaði nýja stjórn. Þeir kröfðust þess einnig að flokk- ur forsetans sem þráðabirgðastjórn landsins bannaði á sunnudag yrði leyfður að nýju. „Annars verður borgin brennd til grunna,“ sagði í yfirlýsingu her- mannanna. Eyadema og Kofíigoh hittust í gær th að reyna að komast að samkomu- lagi en ekki er vitað um árangur fundarins. Heimildir herma að milh 17 og 50 manns hafi falhð í valdaráninu. Júgóslavía: Vonir glæðast umvopnahlé Bardagar lágu að mestu niðri í Júgóslavíu í gær og vonir manna um að vopnahléið, sem var komið á fyrir fjórum dögum, muni halda hafa glæðst. Perez de Cuehar, framkvæmda- stjóri SÞ, hefur sagt að samtökin muni aðeins senda friðargæslusveit- ir th Júgóslavíu ef vopnahléið verður virt. Hann sagði í gær að hann gæti mælt með því við SÞ að innan fjög- urra th sex daga yrðu sveitir sendar th Júgóslavíu. Grikkir hafa þegar lýst sig reiðubúna til að taka þátt í fiiðargæslunni. Belgar munu einnig vera réiðubúnir að senda aht að þús- und hermenn. Leiðtogar Þýskalands og Ítalíu voru sammála um það í gær að sem flest ríki Evrópu ættu að viðurkenna sjálf- stæði Króatíu og Slóveníu fyrir jól. Reuter Ofmikilsókná rækjustofninii viðGrænland Fiskifræðingar telja að rækju- stofnarnir við Grænland séu í hættu vegna of mikillar sóknar og þar með sé síðustu aröbæru útflutningsgrein landsins stefnt í voða. Tekjur Grænlendinga af rækjuútflutningi eru um 15 millj- arðar íslcnskra króna á ári. Nýjustu rannsóknir flskifræð- inganna benda th þess aö rækju- stofninn við austurströnd Græn- lands fari mhmkandi. Rækjan þar er farin að skipta um kyn fyrr en áöur og þýðir það að ástandið sé ekkí gott. Við vestur- ströndina er ástand rækjustofn- anna heldur ekki gott þótt nútíma togarar veiði vel. Opinberai* aflatölur sýma ekki hversu mikilli smárækju er hent fyrir borð. Sumir telja að 20 pró- sent aflans sé hent. Aðrir óttast að allt að fimmtíu prósentum þessa mikilvægasta hróefnis Grænlendinga sé hent. Borgaðimetfé fyrirviskrflösku Japanskur bareigandi borgaði um 650 þúsund krónur í gær fyr- ir fágætt 60 ára maltviskí og er það metfé fyrir eina flösku af slík- um drykk. „Ég ætla ekki að drekka það. Ég ætla að hafa ftöskuna til sýnis á barnum rnínum," sagði Yusaku Matsuda sem er frá borginni Os- aka í miðhluta Japans. Matsuda fór th Skotlands tíl að krækja sér i flöskuna sem er frá Macallan brugghúsinuá uppboði. Viskhð var bruggað árið 1926 en ekki tappað á flösku fyrr en 1986. gertað þegja Ðómstóll á Bretlandi fyrirskip- aði í gær að hjón þar í landi verði að þagga niður í páfuglunum sín- um sem hafa haldið vöku fyrir nágrönnunum með háreisti. Hjónin David og Joanne Ing- ham leituðu th dýrasérfræðinga eftir að nágrannarnir fóru að kvarta undan svefnleysi en höfðu ekki erindi sem erfiði. „Mig langar ekki til að láta fugl- ana frá mér. Ég hefði haldið að hægt væri að vera með páfugla úti i sveit,“ sagðí Joanne sem var með fuglana í garðinum hjá sér. Dómarinn skipaði hjónunum að losa sig við fuglana innan viku og greiöa 26 þúsund krónur í málskostnað. Lýsir efHr sjálf- boðaliðumfyrir eyðnibéluefni Franskur prófessor lýsti i gær eftir sjálfboðahðum í thraunir með hugsanlegt bóluefni gegn eyðni og lofaði þeim aö þeir ættu ekki á hættu að fá sjúkdóminn. Jean-Paul Levy, yfirmaður eyðnirannsókna í Frakklandi, sagði í viðtali við franska útvarp- ið að eina hættan væri sú að þátt- takendur í thrauninni gengju út frá þvi sem vísu að bóluefnið vemdaði þá gegn eyðni. „Þeir veröa að skilja að þessar thraunir munu ahs ekki vernda þá gegn sjúkdóminum. Þeir mega ahs ekki komast í tæri viö HIV- veiruna," sagði Levy. Hann þarf aUt aö 60 manns fyr- ir tilraunimar sem eiga að hefjast á næsta ári og mega þátttakendur ekki vera smitaðir af eyðniveir- unni. Þeir verða að vera við góða hehsu ogá aldrinum 18 til 50 ára. Lévý viðurkenndi að eifitt gæti reynst að fá fólk til að taka þátt f thrauninni þar sem þaö mundi ekki hafa neinn ábata af henni. Ritzau og Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.