Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Síða 2
reer ínv 5f;3'?c íctjr a«i lím/ i/>
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 1991.
Fréttir
Skoöanakönnun DV um fylgi flokkanna:
Alþýðubandalag og
Framsókn enn í sókn
Enn dregur úr fylgi stjómarflokk-
anna samkvæmt skoöanakönnun,
sem DV gerði nú um helgina. Al-
þýðubandalagið og Framsóknar-
flokkurinn sækja 1 sig veðrið. Stjóm-
arflokkarnir mundu missa þing-
meirihlutann, ef kosið yrði nú.
Kvennalistinn tapar fylgi.
Þetta er útkoman úr kosningaspá
DV, sem hefur verið reiknuð út frá
skoðanakönnuninni. Alþýðuflokk-
urinn fengi samkvæmt kosninga-
spánni 10,7 prósent fylgi, sem er 0,2
prósentustigum undir fylgi sam-
kvæmt DV-könnun í september.
Breytingin þar er lítil, en Alþýðu-
flokkurinn fengi nú 4,8 prósentustig-
um minna en hann haíði í kosning-
unum í fyrravor. Skekkjufrávik em
hjá Alþýðuflokknum 1,3 prósentustig
í plús eða mínus.
Framsókn hlýtur nú 28,7 prósent
samkvæmt kosningaspánni, sem er
aukning um 2,9 prósentustig síðan í
september og 9,8 prósentustigum
meira en flokkurinn hafði í kosning-
unum. Skekkjumörk hjá Framsókn
em 1,8 prósentustig.
Sjáifstæðisflokkurinn fengi nú 32
prósent, sem er 2,8 prósentustigum
minna en í september og 6,6 pró-
sentustigum minna en í kosningun-
um. Skekkjumörk eru hjá Sjálfstæð-
isflokknum 2,6 prósentustig í plús
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar (í %):
Kosn. Sept. Nú
Alþýðufiokkui 15.6 10,9 10,7
Framsóknarflokkur 18,9 25,8 28,7
SjálfstæÖBflokkur 38,6 34,8 32,0
Alþýðubandalag 14,4 17,1 20,9
KvennaSsti 8,3 9,5 6,5
Þ-listinn 1,8 1,5 0,8
Stærstu stjórnarandstöðuflokkarnir græða.
Ef þingsætum er skipt í réttu hlutfalli
við úrsiit skoðanakönnunarinnar verða niöurstöður þessar.
Til samanburðar er staðan í þinginu nú:
Kosn. Sept. Nú
Alþýðuflokkur 10 7 7_J
Framsóknarflokkur 13 17 18
Sjálfstæðisflokkur 26 22 21 1
Alþýðubandalag 9 11 13
Kvennaltsti 5 6 4 I
Fylgi þingflokkanna
— miðað við síöustu kosningar —
] Kosningar
pTH Kosningaspá í sept.
■ Kosningaspá nú
Alþý&ufl. SJálfstæ&isfl. Kvennalisll „ _
Framsoknaril. Alþý&ubl. g
''j
-...:.....• ... - ...............ÆoaM
eða mínus.
Aiþýðubandalagið hlyti 20,9 pró-
sent, sem er aukning um 3,8 pró-
sentustig frá september og aukning
rnn 6,5 prósentustig frá kosningun-
um. Skekkjufrávik hjá Alþýðu-
bandalaginu em 2,1 prósentustig.
Kvennalistinn fengi aðeins 6,5 pró-
sent, sem er 3 prósentustigum minna
en í september-könnuninni og 1,8
prósentustigum minna en í kosning-
unum. Skekkjufrávik hjá Kvenna-
listanum era þó 1,5 prósentustig á
annan hvom veginn.
Ifiks fengi Þ-listinn, Þjóðarflokks
og' Flokks mannsins, 0,8 prósent.
Hann hafði 1,8 prósent í kosningun-
um. „Öfgasinnaðir jafnaðarmenn"
komast á blað með 0,3 prósent.
Þessi kosningaspá er, eins og gert
var í september, reiknuð út frá
reynslu DV-kannana pg fundin með
hjálp stærðfræðinga. Úrtakið í könn-
uninni vom 600 manns. Jafnt var
skipt milli kynja og jafnt milli
Reykjavikursvæðisins og lands-
byggðarinnar. Spurt var: Hvaða lista
mundir þú kíósa, ef þingkosningar
fæm fram nú?
Fallinn meirihluti
Af öllu úrtakinu í skoðanakönnun-
inni fær Alþýðuflokkurinn 6,2 pró-
sent. Framsókn fær 16,5 prósent.
Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur 23,7
prósent alls úrtaksins. Alþýðu-
bandalagiö fær 11,2 prósent úrtaks-
ins. Kvennalistinn fær 3,8 prósent
úrtaksins. Þ-listinn er með 0,6 pró-
sent. Óákveðnir em nú 33,2 prósent
alls úrtaksins, svipað og áður. Þeir,
sem ekki vilja svara spumingunni,
em 4,7 prósent, álíka og áður.
Alþýðuflokkurinn hlýtur því 9,9
prósent af þeim sem afstöðu taka,
áður en kosningaspáin er reiknuð.
Framsókn fær 26,5 prósent. Sjálf-
stæðisflokkurinn fær 38,1 prósent.
Alþýðubandalagið er með 18 prósent,
áður en kosningaspáin er reiknuð.
Kvennalistinn fær 6,2 prósent.
Ef þingsætunum 63 er skipt í hlut-
falli við fylgi samkvæmt kosninga-
spánni, fær Alþýðuflokkurinn 7,
lYamsókn 18, Sjálfstæðisflokkurinn
21, Alþýðubandalagið 13 og Kvenna-
listinn bara 4.
Skoðanakönnunin var gerð um helg-
ina, frá fóstudagskvöldi til sunnu-
dags. -HH
„Nú eru jólin að nálgast og ég
verð aö segja eins og er að stjórn-
málamennimir minna mig einna
helstá jólasveina núna. Ég get ekki
kosið neinn flokk núna,“ sagði karl
í Reykjavik. „Ég kýs Sjálfstæðis-
flokkinn þótt ég sé ekki alveg sátt
viö hann Ðavíð minn þessa dag-
ana,“ sagöi kona í Reykjavik.
„Ætli ég haldi mig ekki áfram við
Alþýöuflokkinn þótt hann hafi ekki
náð markmiðum sínum í þessari
rikisstjórn,“ sagði karl á Vestur-
landi. „Ég vil Framsóknarflokkinn
og Steingrím Hermatmsson aftur
við völd," sagði kona á Norður-
landi. „Það er enginn listi nógu
frambærilegur," sagöi kona á Suö-
urlandi.
„Ég kýs engan, þetta em allt sam-
an menn í sandkassarifrildi,“ sagði
kona í Reykjavík. „Ég hef trú á
Alþýðubandaiaginu um þessar
mundir," sagöi karl í Reykjavík.
„Eg hef alltaf kosið Sjálfstæðis-
•flokkinn en ég er hikandi núna,“
sagöi karl í Reykjavík. „Ég hef kos-
ið Kvennalistann hingað til en eftir
þessar vændisumræður kýs ég
hann aldrei aftur,“ sagöi kona í
Reykjavík. „Það er engum flokki
treystandi núna," sagði karl á
Austurlandi.
-JGH
Llkamsásláttur á kynmngarsamkomu menningarfulltrúa íslands 1 London:
Ég skemmti mér konunglega
- sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra að flutningi loknum
Axma Hildur IQdibrandadóttir, DV, London:
„Ég skemmti mér konunglega
vegna þess að þetta er húmor. Menn
geta grett sig ef þeir vflja en það sem
tríóið flutti var bæði bráðsmellið og
fyndiö,“ sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra eftir aö
hið umdeilda „líkamsásláttartríó"
hafði flutt atriöi sitt við opnun ís-
lenskrar menningarviku Gulbenk-
ina Gallery í London í gær.
„Viðkvæmnin voðalega fyrir aö
Diddi fiðla og félagar hafi orðið landi
og þjóð til skammar er ekkert annað
en þessi eilifa vanmetakennd íslend-
inga,“ sagði Jón Baldvin.
Magnús Magnússon sjónvarps-
maður setti samkomuna, sem vakið
hefur mikið umtal bæði í London og
á íslandi vegna þess uppátækis Jak-
obs Magnússonar, menningarfull-
trúa íslands í London, að kynna lík-
amsásláttinn sem gamlan þjóðlegan
siö. Það var þó leiðrétt á samkom-
unni í gær að áslátturinn er ekki
þjóðlegur heldur tónlistin sem ræður
taktinum. Atriðin vom flutt undir
lögunum Hani, krummi, hundur,
svín og Krummi svaf í klettagjá.
Sigurður Jónsson, öðm nafni Diddi
fiðla, stjómaði flutningunum en með
honum vom söngvaramir Sverrir
Guðjónsson og Ragnhildur Gísladótt-
ir. Um 700 mann fylgdust með lík-
amsáslættinum og komust færri að
í salnum en vildu.
Helgi Ágústsson, sendiherrra ís-
lands í London, var einnig viðstadd-
ur samkonuma. Hann sagðist hafa
haft mjög gaman af og sagði að menn
mættu ekki taka uppákomur af þessu
tagi of alvarlega.
Jakob Magnússon sagði aö hver
yrði að dæma fyrir sig um skemmt-
unina sem boðiö var upp á í gær.
„Sumir hafa gaman af þessu en aðrir
ekki. Það verður bara að vera svo,“
sagði Jakob.
Um framtíð Jakobs í starfi menn
ingarfulltrúa sagöi Jón Baldvin a<
hann væri ráðinn til reynslu í tvi
ár og að þeim tíma loknum yrði aí
sjá hvemig til hefði tekist. „Jakol
hefur unnið gott starf. Ég kem ekk
auga á þann mann sem gæti ger
þetta betur,“ sagði Jón Baldvin.