Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 1991.
Utlönd
g^jARNAiy^y
HVAÐA
LEYNDARDOMAR
TENGJAST
STJÖRNUMERKI
ÞÍNU?
Heildsala
MYNDFORM hf.
Júgóslavía:
Vance ætlar
aðkomaá
friðiídag
Cyras Vance, fyrrum utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna og sér-
legur sendimaður Sameinuðu
þjóðanna í Júgóslavíu, reynir í
dag að telja deiluaðila 1 borgara-
stríðinu á að leggja niöur vopn.
Svo á að heita sem vopnahlé sé í
gildi en það hefur verið brotið
aftur og aftur um helgina.
Vance hittir helstu ráðamenn í
Júgóslaviu að máii í dag og á
fundum þeirra verður gerð enn
ein tilraunin til að fá menn til að
semja um framtíð þjóðanna.
Vance sagði I morgun aö það
væru sér vonbrigði að enn hefði
enginn raunveralegur árangur
náðst. Réutfr
Alþjóða eyðnidaguriim haldinn með viðhöfn um heim allan:
Tíu milljónir sýktar af eyðni
- Díana Bretaprinsessa fór milli sjúkrahúsa og heimsótti sjúk böm
Tahð er að allt að tíu milljónir
manna í heiminum hafi sýkst af
eyðni. Heilbrigðisyfirvöld í flestum
löndum viðurkenndu á alþjóða
eyðnideginum í gær að ekki hefði
tekist að hefta útbreiðslu sjúkdóms-
ins eins og vonir stóðu til.
Bæði í Kína og Sovétríkjunum var
viðurkennt að eyðni hefði náð meiri
útbreiðslu en gefið hefur verið upp
til þessa. í Moskvu var smokkum
dreift í gær og Míkhaíl Gorbatsjov
forseti gekk með eyðnisjúkum um
götur borgarinnar til að styðja þá í
baráttunni gegn sjúkdómnum. í Kína
var tilkynnt um opnun fyrstu sjúkra-
deildarinnar þar sem eyðnisjúkum
er sinnt sérstaklega.
í New York var slökkt á öllum ljós-
um í Rockefeller Center til að minn-
ast þeirra sem látist hafa úr sjúk-
dómnum. Þar vestra er eyðni mjög
útbreidd í New York og San Franc-
isco en sjúkdómurinn var fyrst
greindur í Bandaríkjunum.
í Bretlandi bar mest á Díönu prins-
essu en hún hefur um árabil látiö
málefni eyðnisjúkra til sín taka.
Díana fór milli sjúkrahúsa og var
með eyðnisjúkum bömum til að
hugga þau á þessum degi. Að þessu
sinni bar ekkert á gagnrýni Breta á
framkomu verðandi drottningar
sinnar í umgengni við sjúklingana.
i
i
• •
GOÐ GJOF A
GOÐUVERÐI
i
i
i
i
I Japan voru menn síður sáttir við
uppákomur dagsins en þar var hafm
herferð fyrir notkun smokka. Sér-
stök auglýsing, sem gerð var af því
tilefni, vakti hneykslan margra.
Reuter
Díana prinsessa sinnti eyðnisjúkum börnum sérstaklega á alþjóða eyðni-
deginu í gær. Hér má sjá Nicole Gerry, fjögurra ára stúlku sem haldin er
sjúkdómnum, tylla sér á tá til að kyssa prinsessuna. Símamynd Reuter
Þyrluslysið í Nagomo-Karabakh:
Skotsár á líkum
þeirra sem f órust
Rannsókn hefur leitt í ljós að skot-
ið var á þyrluna sem talið var að
hefði verið flogið á fjall í Nagorno-
Karabakh í síðast mánuði. Með þyrl-
unni fórast nokkrir háttsettir leið-
togar Azera en stjómvöld í lýðveld-
inu hafa alla tíð haldið því fram að
þyrlan hefði verið skotin niður af
Armeníumönnum.
Tass-fréttastofan sagði þó í gær að
niöurstöður rannsóknarinnar, sem
sýndi að skotsár væru á líkum þeirra
sem fórast, væra óyggjandi. Þar
sagði aö Rússar væru að rannsaka
máliö aö nýju því Azerar hefðu einir
staðiö fyrir fyrri rannsókninni.
Slæmt veður var þegar þyrlan fóst
og var slæmu skyggni kennt um að
hún brotlenti. Tuttugu menn vora
með þyrlunni og fórust allir. Auk
Azera voru embættismenn frá Rúss-
landi um borð.
Mál þetta hefur orðið til að auka
enn á deilur Azera og Armena um
yfirráð í Nagomo-Karabakh. Skæru-
liðar beggja þjóða hafa barist í hérað-
inu undanfarin ár en sovéski herinn
hefur reynt að halda upp lögum og
reglu síðasta árið.
Eftir því sem rannsóknarnefnd
Azera segir létust flugmenn þyrlunn-
ar af skotsárum. Rannsóknin leiddi
í Ijós aö skotið hefði verið á þyrluna
afvélbySSUm. Reuter
ITSUBISHI farsími
Sérstakt jólatilboð:
Mitsubishi FZ-129 D15 farsími ásamt símtóli, tólfestingu, tólleiðslu (5 m), sleða,
rafmagnsleiðslum, handfrjálsum hljóSnema, loftneti og loftnetsleiðslum. VerS áöur 115.423,-
Verð nú aðeins 89.900,- eða u
SKIPHOLT119
SÍMI 29800