Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Page 15
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 1991. 15 Breytingar á kvótakerf inu Menn agnúast út í kvótakerfið af ýmsum ástæðum en það er oftar en ekki á misskilningi byggt, vilj- andi eða óviljandi. Margir telja réttilega aö núver- andi kerfi leiði til óréttlátrar skipt- ingar þeirrar auðlindar sem við eigiun í hafinu umhverfis landið. Því má breyta með auðlindagjaldi og verður það rætt sérstaklega í síðari grein. Sömuleiðis verður íjaliað um byggðamál síðar. Tveirgallar Einn alvarlegasti gallinn við kvótakerfið er að það getur stuðlað að brottkasti smáfiska, þ.e. smá- fiski er hent frá borði þar sem hann er ekki jafnverðmætur og stærri fiskur. Þetta er ólöglegt en stundað engu að xíður en í hve miklum mæh veit enginn. Við þessu verður að bregðast, en ekki með því að leggja kvótakerfið niður, því önnur fiskiveiðistjómunarkerfi, t.d. sóknarmarkskerfi, hafa mun al- varlegri galla. Annar galh á kvótakerfinu eru undantekningar, en reynslan sýnir að undantekningar eru slæmar. í upphafi vom bátar minni en 10 brl. utan kerfisms og síðan bátar minni en 6 brl. Vegna slæmrar reynslu, sem mátti auðveldlega sjá fyrir, var undantekningunum fækkað, en ennþá em sumir smá- bátar utan kerfisins á krókaleyfi. Sömuleiðis em margar fiskteg- undir enn utan kvóta en eru síðan skyndfiega settar undir hann til ama fyrir þá sem hafa stundað veiðamar. Betra er að setja kvóta Kjallarinn Snjólfur Ólafsson dósent við Háskóla íslands strax á sem flestar tegundir, en þeir sem vilja veiða vannýttar teg- undir geta þá vitanlega fengið aUan þann kvóta sem þeir óska eftir. í stuttu máfi er æskUegast að allar veiðar faUi undir eitt og sama kvótakerfið. Stöðugar breytingar og óviss framtíð kerfisins gerir aðUum í sjávarútvegi, og þjóðinni almennt, erfitt fyrir. Hér þarf tvennt að koma tU. Annars vegar þarf kerfið að verða varanlégt svo útgerðar- menn og aðrir þurfi ekki sífeUt að spá um breytt rekstrarskUyrði. Þess vegna er mikUvægt að þeirri endurskoðun á sjávarútvegsstefn- unni sem nú stendur yfir ljúki með aðgerðum sem sátt næst um. Hins vegar þarf að minnka sveiflur í afla, en hvemig þar tekst tíl fer ekki fyrst og fremst eftir því hvaða fiskveiðistjómunarkerfi er notað heldur hvemig það er notað. Lítilla breytinga þörf Samtök sjómanna hafa lýst sig andvíga kvótakerfinu, sérstaklega sölu á „óveiddum fiski í sjónum“. Ástæðan fyrir því er að þegar kvóti er fluttur miUi skipa hefur það áhrif á laun sjómanna. Þau lækka hjá sjómönnunum á því skipi sem kvótinn er fluttur frá en hækka hjá hinum. Þar sem oft er um úreld- ingu skipa að ræða hafa kvótavið- skipti hækkun á launum sjómanna í for með sér þegai á heUdina er litið. Vegna þessara breytinga og ann- arra þarf að endurskoða launakjör sjómanna frá gnmni. Sjómanna- frádráttinn ætti að leggja af í áfóng- um, t.d. á fjórum ámm, þar sem hann er úrelt fyrirbæri. Frádrátt- urinn er dæmi um afskipti stjórn- valda og á ekki heima í nútíma þjóðfélagi. Hann er einnig dæmi um miðstýringu sem hefur óæski- leg áhrif sem ekki var hugað að í upphafi, en það er eðli miðstýring- ar. Þessi afsláttur stuðlar að þvi að fiskvinnsla flyst út á sjó, í frysti- skip, því fiskvinnslufólk sem kaU- ast sjómenn fær afsláttinn en ekki fiskvinnslufólk í landi. Þaö tíðkast að fyrirtæki greiði starfsmönnum staðaruppbót, áhættuþóknun og fleira í þeim dúr og um slíkt er að ræða hér og á því að vera samn- ingsatriði milh launþega og vinnu- veitenda. Heyrst hafa þau rök að menn fá- ist ekki á sjóinn ef ekki komi til sjómannafrádráttur. Nú er enginn hörgull á sjómönnum en aftur á móti á kennurum og hjúkrunar- fólki. Því væri rökréttara að taka upp kennarafrádrátt eða hjúkrun- arfrádrátt, ef stjórnvöld vUja á ann- að borð nota skattaafslátt til að hafa áhrif á starfsval fóUcs. í stuttu máU má segja að UtUla breytinga sé þörf á kvótakerfinu. Hins vegar þarf að breyta ýmsum öðrum þáttum sem snerta sjávar- útveginn, meðal annars að afnemá sjómannaafsláttinn. Snjólfur Ólafsson „Sjómannafrádráttinn ætti að leggja af í áföngum, t.d. á Qórum árum, þar sem hann er úrelt fyrirbæri. Frádrátturinn er dæmi um afskipti stjórnvalda, og á ekki heima í nútima þjóðfélagi.“ Hvers virði er hjúkrunarstarfið? Hvers viröi er hjúknmarstarfið? Þessu mætti svara með annarri spumingu. Hvað væri fólk tilbúið að greiða fyrir þjónustu hjúkrun- arfræðinga ef það þyrfti að greiöa fyrir hana fuUt verð á frjálsum þjónustumarkaði svipað og með ýmsa tannlæknaþjónustu í dag? Þau laun sem greidd eru fyrir þau fáu hjúkrunarstörf, sem ekki eru ofurseld opinberri heilbrigðisþjón- ustu, eru ljósasti vottur þess hversu miklu meira virði þessi störf eru en opinberir aðUar skammta hjúkrunarfræðingum í skjóU einokunaraðstöðu sinnar á þessum störfum í dag. Niðurgreidd þjónusta Það mætti orða það svo að þjón- usta hjúkrunarfræöinga sé niður- greidd í tvennum skUningi tíl al- mennings, annars vegar með skött- um og hins vegar með rökum irni að ekki megi hækka skatta. í fyrsta lagi er þjónustan að mestu leyti endurgjaldslaus tU notenda, þó skattgreiðsla komi þar í misjöfnum mæU á móti og í öðru lagi er laun- um hjúkrunarfræðinga haldið niðri með þeim röksemdum að ekki megi hækka álögur á almenning með hærri sköttum. Þá má ekki gleyma aö hjúkrunar- fræðingar greiða að nokkru léyti launin sín sjálfir með margvísleg- um skattgreiðslum. Því hærri laun sem þeir fá, þvi stærri hluta greiða þeir sjálfir fyrir þessi laun. Það gUdir því miður ekki um öU laun á frjálsum markaði. Þrátt fyrir það er milljörðum af almannafé sóað í vanhugsaðar fjár- festingar á \ ; om hins opinbera eða í styrkve.-'near til fyrirtækja eða vegna afskrifta og tapaðra skulda skuldsettra og gjaldþrota fyrirtækja sem greiða oft a.m.k. 150.000 kr. á mánuði fyrir störf með KjaUaiinn Sigurbjörg Björgvinsdóttir hjúkrunarfræðingur meira velferðarkerfi fyrirtækja eða fólksins? Eingöngu útgjöld? Þar eð viðsemjandi vor fjármála- ráðuneytið hefur arðsemissjón- armið iðulega að leiðarljósi og oft í hávegum í skömmtunarhlutverki sínu þá er vert að reyna að víkka sjóndeUdarhring þeirra um störf hjúkrunarfræðinga í þágu fram- leiðslusköpunar í samfélaginu. Vinnuafl er þýðingarmesti fram- leiðsluþáttur í framleiöslusköpun hverrar þjóðar. Þáttur hjúkrunar- fræðinga og annarra heUbrigðis- stétta er að halda þessum fram- leiðsluþætti gangandi frá vöggu til grafar. Hver er kostnaður samfélagsins af fjarveru frá vinnu vegna veik- „Þeir sem annast hjúkrunarstörf í dag eða hugleiða slík störf 1 framtíðinni leita smátt og smátt í betur launuð störf á almennum vinnumarkaði... “ sambærilegar menntunarkröfur og hjúkrunarfræðingar hafa. Mörg þessara fyrirtækja greiða þó Htla sem enga skatta fyrir aUa þá þjón- ustu sem þau hafa afnot af á vegum hins opinbera. Virðisaukaskattur, afnám að- stöðugjalda, gjaldfærð kaup á töp- um annarra fyrirtækja, útsala op- inberra fýrirtækja o.s.frv. eru með- al velferðaratriða fyrirtækja sem annaðhvort eru komin tíl fram- kvæmda eða stefnt að á næstunni. Á sama tíma er stefnt að þjónustu- gjöldum í stórum stíl, atlögu að líf- eyriskerfi opinberra starfsmanna og hækkun á dagheimUisgjöldum heUbrigðisstétta. Hvort má sín inda eða veikinda sem bera verður á vinnustað fyrst og fremst vegna skorts á hjúkrunarfólki og vannýt- ingar á sjúkrahúsaðstöðu eins og skurðdeUdum? Hvað eru margir á dagpeningum eða öörum trygg- ingabótum sem hægt er að gera ' vinnufæra ef ekki kæmu tíl sumar- lokanir? Hvað með meira og minna óvinnufært fólk sem er á biðlistum sjúkrahúsa eða býr við ófuUnægj- andi þjónustu í heimahúsum? Þetta eru spurningar sem hægt er að bera upp eingöngu vegna núver- andi skorts á hjúkrunarfræðing- um. Hvað þá ef brögð yrðu að frek- ari skorti hjúkrunarfræðinga vegna flótta úr eða ófullnægjandi .Hjúkrunarfræðingar lifa einfaldlega ekki endalaust á hugmyndum ráða- manna og almennings um fórnfýsi og hugsjónahlutverk starfsins... “, segir m.a. í greininni. endumýjunar í stéttinni. Hvers vegna líta ráðmenn ein- göngu á það sem útgjöld aö sinna sjúku fólki eða reka heUbrigðis- stofnanir? Er ekki eitthvað bogið við verðmætamatið í samfélaginu? Hjúkrunarfræðingar lifa einfald- lega ekki endalaust á hugmyndum ráðamanna og almennings um fórnfýsi og hugsjónarhlutverk starfsins í fortíð eða nútíma samfé- lagi. Þeir sem annast hjúkrunar- störf í dag eða hugleiða shk störf í framtíðinni leita smátt og smátt í betur launuð störf á almennum vinnumarkaði ef fram heldur sem horfir í kjaramálum hjúkrunar- fræðinga. Langvarandi ójafnvægi Margoft er búið að sýna fram á í Bandaríkjunum að séu laun hækk- uð koma hjúkrunarfræðingar til starfa. Þar í landi hefur verið í gangi mikU auglýsingaherferð til að vekja áhuga á hjúkrunarstarf- inu og undanfarið hafa oröið mikl- ar launahækkanir hjá hjúkrunar- fræðingum víðast hvar í Banda- ríkjunum vegna mikUlar sam- keppni um að laða að hjúrkrunar- fraeðinga. Í stöðuauglýsingum þar er auk aUt að 50.000 doUara fastra árslauna boðið upp á sveigjanlegan vinnutíma, eingöngu dagvinnu, 10.000 doUara bónus, lengra orlof, frí afnot af bíl og íbúð auk endur- gjaldslausrar endurmenntunar o.fl. Samt sem áður er búist við að það vanti milU 150.000 og 600.000 hjúkr- unarfræðinga í Bandaríkjunum árið 2000 en nemendum í hjúkrun- arfræðum hefur fækkað mikið frá 1983, þó útht sé fyrir að þetta sé að snúast við eftir dýrkeypta reynslu af lélegum launum hjúkrunarfræð- inga þar í lengri tíma. í Danmörku vantar hjúkrunarfræðinga 1 um 12% stöðugilda, en margir danskir hjúkrunarfræðingar hafa einmitt leitað til Bandaríkjanna til að njóta góðs af ósamræminu í framboði og eförspum þar. Er ekki orðið tímabært að hiö opinbera hér á landi bregðist við langvarandi ójafnvægi á eigin vinnumarkaði og bæti kjör þeirra hópa þar sem framboð er ekki í samræmi við eftirspum. Er þaö ekki lögmáUð sem ræður verö- mætamatinu í samfélaginu og flest- ir virðast aðhyUast nú í opinberri umræðu? Sigurbjörg Björgvinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.