Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Page 16
16
ALTERNATORAR
STARTARAR
Fólksbíla
Vörubíla
Vlnnuvélar
Bátavólar
Mjög hagstætt verð - Póstsendum
BÍLRAF H/F
BORGARTÚNI 19, S. 24700
Gabriel
HÖGGDEYFAR
NÝ
STÓRSENDING!
í Lóninu á Hótel
MLoftleiðum verður fram:
reitt glaesilegt jólahlaðborð
á aðventunni, frá 29. nóv-
ember -23. desember.
www ■ wv Matreiðslumeistarar
I II hótelsins sjá til þess að
■ /■ i|-j|| hlaðborðið svigni undan
L1 I ■ ljúffengum réttum -
J. JL i-I RmJ bæði í hádeginu og á
W'k f \ fk Éf kvöldin; hvítlauksrist-
■ ■ ■ I 1 | ■ aður smáhumar, síld,
K I 1f ■ reyktur lax, reyksoðin
IV I 1 I I V lundabringa, grísasteik,
reyksteikt lambalæri,
ÍHÁDE6INU 1.395 KR. Á MANN hreindýrabuff, ris á
Á KVÖLDIN 1.980 KR. A MANN l’amande, kanelkrydd-
uð epli og ótal margt fleira.
Allir jólahlaðborðsgestir eru sjálfkrafa þátt-
takendur í glæsilegu ferðahappdrætti. Það fer
vel um þig í Lóninu og þjónarnir okkar leggja
sig alla fram til að stundin verði sem ánægju-
legust.
Borðapantanir í síma 22321.
Þegar matarilmurinn liggur í loftinu
G F
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-81 47 88
LiífsstQl
ppj Haavauao <■ HuoAauMAM
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 1991.
I>V
Töluvert framboð af rjúpu
- kaupmenn halda að sér höndum vegna þess hve verðið er hátt
Það er ekki oalgeng sjón að sjá rjúpur hanga í rjáfri húsa enda gengur
veiðimönnum illa að losa sig við þær til kaupmanna vegna hárrar verðlagn-
ingar. DV-mynd GVA
„Við höfum ekki tekið inn mikið
af ijúpu enn sem komið er en það
hefur mikið veriö hringt hingað. Það
var ekki mikiö um rjúpu í fyrra en
veiðimenn hringja mun meira í ár
heldur en á síðasta ári og það bendir
til þess aö meira sé til af henni nú.
Við höfum í mörgum tilfellum haldið
að okkur höndum vegna þess hve
hátt verð veiðimenn vilja fá fyrir
ijúpuna," sagði Jóhann Víglunds-
son, yfirmaður kjötiðnaðardeildar
Miklagarðs, í samtali við DV.
„Það hefur ekkert af rjúpu farið í
sölu hjá okkur enn, við erum að
Neytendur
safna einhverju af birgðum. Veiði-
menn vilja fara eins ofariega í verði
og þeir geta og þeir hafa verið aö
bjóða ijúpuna á 650-800 krónur
stykkið.
Það virðist vera töluvert um ijúpu
af Vestfjörðum og Austfjörðum en
aftur minna af Norðurlandi. Ef veiði-
menn ætla sér að selja ijúpuna verða
þeir að fara neöar. Ef talað er um
söluverð 650-800 krónur til okkar
bætist ofan á virðisaukaskattur,
vinna vegna hamilettingar og eitt-
hvert álag frá okkar hendi - þá gefur
augaleið að rjúpan er á alltof háu
verði.
Ef verðið lækkar ekki sitja veiði-
menn uppi með ijúpumar án þess
að selja þær. Þú getur ímyndað þér
það að þegar viðskiptavinur æúar
að kaupa til jólanna og þarf að velja
á milli þess að kaupa ijúpu eða ham-
borgarhrygg á svipuðu verði verður
vahð oftast ijúpunni í óhag. Miðað
við hvemig verðið var í fyrra voru
margir sem ætluðu sér að hafa ijúpu
en gengu frá þegar þeir sáu verðlag-
ið. Því er vonlaust dæmi fyrir veiði-
menn að bjóða hana á þessu verði,“
sagði Jóhann.
I Kjötmiðstöðinni Laugalæk feng-
ust þær upplýsingar að þangað heíði
fengist frekar lítið af ijúpu en þaö
sem fékkst hefði verið selt út á 800
krónur stykkið. í Kjöthöllina, Skip-
holti 70, hafði komið eitthvaö af ijúpu
en mest af því verið afgreitt í sérpant-
anir til fastra viðskiptavina.
Samkvæmt upplýsingum frá Kjöt-
stöðinni í Glæsibæ er meira framboð
af rjúpu í ár en á síðasta ári. Kaup-
menn þar eiga von á ijúpu í þessari
viku og búast við að verðið verði á
bilinu 800-900 krónur stykkiö, óham-
flett.
-ÍS
Notuð húsgögn upp í ný
Heimilismarkaöurinn í Starmýri
býður upp á nokkuð óvenjulega þjón-
ustu á húsgagnamarkaðnum. Við-
skiptavinir geta látið verðmeta göm-
ul húsgögn hjá sér og látið andvirði
þeirra ganga upp í ný húsgögn. Guð-
rún Jónsdóttir er verslunarstjóri í
Heimilismarkaðnum.
„Við emm nýbúin að opna aftur í
Starmýrinni en viö urðum fyrir því
í sumar að það brann hjá okkur og
við urðum að selja allt hjá okkur á
brunaútsölu. Við opnuðum aftur
þann 10. október. Öll ný húsgögn hjá
okkur em frá Gamla kompaníinu en
síðan emð viö með sölu á notuðum
húsgögnum hjá okkur á neðri hæð
húsnæðisins. Við tökum meðal ann-
ars að okkur umboðssölu á notuðum
húsgögnum og sendum sölumenn
okkar á heimili til aö verðmeta hús-
gögn,“ sagði Guðrún í samtali við Séð inn í húsnæöi Heimilismarkaöarins í Starmýri en sú verslun tekur
DV. -ÍS notuð húsgögn upp i ný. DV-myndGVA
Sendið jólapóstinn tímanlega
Nú fer hver að verða síðastur að
senda jólapóstinn til útlanda. Á
næstu dögum rennur út frestur til
skila á bögglapósti með flugi. Frest-
urinn til að senda bréfapóst er öllu
lengri en þó verður að senda bréf tii
fjarlægari landa fyrir 7. desember
næstkomandi.
Bréfapóstur til Norðurlanda með
flugi þarf ekki að vera kominn á póst-
stöö fyrr en 17. desember, viku fyrir
jól. Ekki skaðar þó að vera tímanlega
í þessu til þess að jafna álagið fyrir
Póst og síma. Það er ekki þægilegt
fyrir afgreiðslumenn Pósts og síma
að fá allar jólapóstsendingar til út-
landa á síðasta degi frestsins.
Allar nánari upplýsingar um frest
til að skila af sér jólapósti sjást á töfl-
unni hér til hliðar. Rétt er að taka
það fram að það er orðið of seint að
senda jólapóst með skipi til útlanda,
með einni undantekningu. Hægt er
að skila bréfapósti með skipi til Norð-
urlanda allt til 2. desember.
-ÍS
Póstafgreiðslur tölvuvæddar
Póstur og sími og Ortölvutækni-
Tölvukaup undirrituðu nýlega
samning um uppsetningu tölvu-
vædds afgreiðslukerfis fimmtán
stærstu póst- og símstöðva á næsta
ári. Með tölvuvæðingunni verða
stöðvamar tengdar gegnum gagna-
net Pósts og síma við önnur tölvu-
kerfi stofnunarinnar, svo sem Póst-
gíróstofuna og Reiknistofu Pósts og
síma. Stefnt er að þvi að sams konar
tölvuvætt afgreiðslukei fi verði kom-
ið á alla níutíu afgreiðslustaði Pósts
og síma á næstu fjórum árum. Allur
hugbúnaður í þessu kerfi verður ís-
lenskur.
Heildarkostnaður við kerfið og
rekstur þess fyrstu þijú árin er ná-
lægt fimmtiu milljónum króna eða
sem svarar 5% af heildarfjárfesting-
arfé Pósts og síma á næsta ári. Ejár-
festingin mun engin áhrif hafa á
gjaldskrá stofnunarinnar.
Sem dæmi um umfang fjármála-
og greiðsluþjónustu Pósts og síma
má nefna að á næsta ári er áætlað
að innstreymi í póstgíró veröi nálægt
tuttugu milljörðum króna. Nærri
lagi lætur að um helmingur þeirra
fjármuna muni fara í gegnum hið
nýja afgreiðslukerfi.
-ÍS