Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Qupperneq 23
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 1991.
35
Fréttir
Valþór Hlöðversson, bæjarfulltrúi 1 Kópavogi:
Röng fjárfestingarpólitík
hjá meirihlutanum
- segir 2,6 milljónir flúka daglega út um gluggann 1 auknar skuldir
„Ný og endurskoöuö fjárhagsáætlun
meirihlutans er ekkert annað en ósk-
hyggja. Hann telur sig geta lækkað
skuidastööuna um hátt í fjögur
hundruö milljónir með lóðaúthlutun
á tveimur síðustu mánuðum ársins.
Þessir stjórnarherrar virðast ekki
átta sig á að byggingarbransinn er
stopp og að fram undan er lítið annað
en svartnætti. En þeir sigla á mið
lóðaúthlutana rétt eins og um bull-
andi góðæri sé að ræða. Ég kalla það
gott ef skuldimar aukast ekki enn
frekar," segir Valþór Hlöðversson,
bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Valþór bendir á að fyrstu níu mán-
uði ársins hafi einungis fengist 170
milljónir fyrir úthlutaðar lóðir. Því
sé fráleitt að ætla að hægt verði að
lækka 2,7 milljarða skuld bæjarins
niður í 2,3 milljarða fyrir árslok.
Hann segir skuldir bæjarins hafa
aukist jafnt og þétt frá því nýr meiri-
hluti Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks tók við vorið 1990.
„Samkvæmt úttekt meirihlutans
vora skuldimar 1403 milljónir þegar
hann tók við. í árslok 1990 voru þær
orðnar 1850 milljónir og nú eru þær
um 2,7 milljarðar. Á raunvirði hafa
skuldimar því aukist að meðaltali
um 70 milljónir á mánuði þá 16 mán-
uði sem meirihlutinn hefur verið við
völd. Þetta þýðir að á hverjum degi
fjúka 2,6 miUjónir út um gluggann.“
Að sögn Valþórs hefur minnihlut-
inn lagt á þaö áherslu í málflutningi
sínum að fjárfestingarpólitík meiri-
hlutans sé röng. Ekki hafi verið þörf
á að fjárfesta í nýju landi til bygg-
ingaframkvæmda. Fyrir hafi bærinn
átt skipulagðar og tilbúnar lóðir und-
ir mörg þúsund manna byggð.
„Kaupin á Nónhæðinni í Kópa-
vogsdal kostuðu bæinn 200 milljónir.
Vemlegir fjármunir hafa farið í að
skipuleggja þetta land og að auki
mun það kosta hátt í 200 núlljónir
að gera lóðirnar byggingarhæfar.
Þessi fjárfesting mun ekki skila sér
tíl baka fyrr en eftir mörg ár. Á sama
tíma mun hún hlaða upp vöxtum og
öðrum kostnaði," segir Valþór.
-kaa
Siguröur Geirdal, bæjarstjóri 1 Kópavogi:
Lögðum mikið undir
en vorum heppnir
„Minnihlutamenn hafa gaman af
því að tala um bágborna fjárhags-
stöðu Kópavogs. Þeir eru að benda á
stöðuna samkvæmt einhveijum
milUuppgjörum. Þeir virðast ekki
gera sér grein fyrir því að skuldimar
hoppa upp og niður eftir því hvenær
ársins uppgjörin em gerð. Þær eru
hvað hæstar núna en lækka fram að
áramótum. Við erum að úthluta lóð-
um þessa dagana sem við erum bún-
ir aö kosta miklu til og að auki eigum
við von á útsvarstekjum," segir Sig-
urður Geirdal, bæjarstjóri í Kópa-
vogi.
Fjárhagsáætlun Kópavogs var end-
urskoðuð fyrir skömmu og kom þá í
ljós að skuldir bæjarins em um 2,7
milljarðar. Það samsvarar þvi að
hver fjögurra manna fjölskylda í
bænum skuldi hátt í 700 þúsund. Um
síðustu áramót vom skuldir bæjar-
ins 1.853 milljónir. Miðað við stöðuna
hafa því skuldir aukist um 46 pró-
serit.
Að sögn Sigurðar var ekki gert ráð
fyrir að skuldir bæjarins yrðu
greiddar niður á árinu við gerð fjár-
hagsáætlunar síðastliðinn vetur.
Hann segir að samkvæmt endur-
skoðaöri áætlun sé nú gert ráð fyrir
að skuldir aukist að raunvirði um
370 milljónir og veröi 2.368 milljónir
í árslok.
„Það er auðvitað bölvanlegt að
þessar skuldir hækka en það stafar
af því aö á árinu keyptum við mikið
land í Kópavogsdalnum á 200 millj-
ónir. Þaö höfum við síðan verið að
gera byggingarhæft og það hefur
kostað okkur mikla peninga. Úthlut-
un þessara lóða er ekki hafm en við
byrjuðum að auglýsa í vikunni. Við
gerum ráð fyrir að þetta renni allt út
í einum hvelh."
Sigurður segist ekki hafa áhyggjur
af fjárhag Kópavogsbæjar. Hann seg-
ir dæmið hta vel út en játar að við
landakaupin fyrr á árinu hafi mikið
verið lagt undir. Lagt hafi verið út í
mikinn kostnað án þess að nokkur
trygging hafi veriö fyrir því að þær
seldust. Heppnin hafi hins vegar ver-
ið með meirihlutanum því mikil
ásókn væri í lóöirnar.
„Bæjarfélögin em í sjálfu sér ekk-
ert annað en stórfyrirtæki. Þau
starfa aöáhega á sviði þjónustu en
einnig á sviði framleiðslu. Varan sem
við framleiðum er lóðir, hráefnið er
landið sem við kaupum og vinnslu-
stigið er holræsi, götur og vatns-
leiðslur. Því meiri sem lagerinn verð-
ur því hærri eru afurðalánin. Þegar
svo lóðirnar fara út fáum við útgjöld-
in til baka og jafnvel eitthvað að
auki,“ segir Sigurður. -kaa
VINSÆLIR
ÁGÓÐU
SKAUTAR
VERÐI!
Litir: Hvítt eða svart
Verð 30/36, kr. 2.920 stgr.
37/41, kr. 3.888 stgr., 42/45, kr. 4.065 stgr.
Skautaskerpingar á staðnum
ÖRNINN
E
Skeifunni 11, sími 679890
Póstsendum
^^^^^/YYVYVVVVYYYVVVyYYYVVyVVYVVVVVyVVVVVVVVVVVVWAAAAAA/^UAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/VVVV
ORYGGISSIMINN
Fyrir þig - og þá sem þér þykir vænt um
• Hjálparkall með talsambandi með því að þrýsta á
einn hnapp á tækinu.
• Þráðlaus aukahnappur til að senda hjálparkall með
talsambandi hvaðan sem er innan íbúðar fylgir.
• Viðbótar hnappar fáanlegir fyrir sambýli.
Hægt að svara hringingu úr fjarlægð hvar sem er
innan íbúðar með þráðlausa nnappnum.
Sjálfvirkt hjáparkall ef notandi heíur ekki eðlilega
fótavist.
Tengist auðveldlega reyk-og innbrotsskynjurum.
Hátalarastilling, endurval og beinval fyrir mikið
nofuð símanúmer.
• Styrkstillir fyrir heyrnardaufa og búnaður fyrir þá sem
nota heyrnartæki.
• Hundruðir þúsunda tækja í notkun í Evrópu.
• Viðurkennt á Islandi af Pósti og síma og
Brunamálastofnun ríkisins.
Hafðu samband við öryggisráðgjafa okkar og
fáðu frekari upplýsinpar.
ORYGGISSÍMINN
Aður óþekkt öryggi og þægindi
Sala - Leiga - Þjónusta
Öryggissíminn er ótrúlega þægilegur
og hnappurinn tryggir að hjálp
er alltaf innan seilingar.
VARI ‘H1 91-29399
ALHLIÐA ÖRYGGISÞJÓNUSTA SÍÐAN 1969