Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1991, Síða 44
F R ÉTTAS KOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
I DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
MÁNUDAGUR 2. DESEMBER 1991.
Skoðanakönnunln:
Glæsileg útkoma
- segirÓlafurRagnar
„Þetta er mjög glæsileg útkoma
fyrir Alþýðubandalagið, sú besta
sem við höfum fengið frá sigurárinu
mikla 1978. Ég met mjög mikils hið
mikla og vaxandi traust sem flokkur-
inn nýtur nú með þjóðinni. Það er
líka mjög athyghsvert að Alþýðu-
bandalagið og Framsóknarflokkur-
, inn séu orðnir svo sterkir að þeir séu
næstum komnir með hreinan meiri-
hluta á Alþingi," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, um niðurstöður skoðana-
könnunar DV.
„í sjálfu sér kemur mér þessi nið-
urstaða skoðunarkönnunar nú ekki
á óvart. Viö erum að vinna að mjög
erfiðum aðgerðum. Stjórnarflokk-
arnir gjaldi þess í svona skoðana-
könnun að erflðleikar standa yfir,“
sagði Sighvatur Björgvinssson heil-
brigðisráðherra.
„Þetta er kannski of mikið fylgi til
að hægt sé að trúa því. Við höfum
verið með málefnalega stjómarand-
stöðu og gert okkar besta til að veita
ríkisstjórninni þá leiðsögn sem þörf
hefur verið á. Fólk metur það að
verðleikum," sagði Steingrímur Her-
mannsson, formaður Framsóknar-
flokksins.
„Við verðum auðvitað fyrir von-
brigðum með þessar niðurstöður
^ vegna þess að við höfum fyrst og
- fremst haldið mjög málefnalega á
öllum málum,“ sagði Jóna Valgeröur
Kristjánsdóttir, þingmaður Kvenna-
listans.
„Ég hygg að svona skoðanakönnun
endurspegli erfiðleikana í þjóðfélag-
inu. Niðurstaða skoðanakönnunar-
innar er mótsagnakennd. Stjórnar-
flokkamir tapa fylgi en ríkisstjórnin
vinnur á,“ sagði Geir H. Haarde,
formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins. -hlh -S.dór
LOKI
Loksins, loksinsfengum
við að sjá almennilegan
bumbuslátt!
Atta tíma hrakningar
á leið á sjúkrahúsið
Tveir sjúklingar, sem slösuðust
í bílslysi í Stykkishólmi um klukk-
an 22.30 í gærkvöldi, komu með
þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF, U1 Reylgavíkur um klukkan
hálfsjö í morgun eftir mikla hrakn-
inga.
Slysið varð með þeim hætti að
bíll lenti harkalega á Ijósastaur á
götu í Stykkishólmi. Mikil hálka
vará götumbæjarins. Tveir slösuö-
ust illa en sá þriðji slapp við meiðsl.
Ákveðið var aö kalla á þyrluna
TF-SIF. Þar sem veöur var mjög
slæmt komst þyrlan ekki yflr fjall-
garðinn á Snæfellsnesl Þar er oft
mikið niðurstreymi. Var sjúkling-
unum því ekið áleiðís yfir Kerling-
arskarð til móts við þyrluna.
Ekki vildi betur til en að stór
flutningabíll sem stóð þversum á
veginum og lokaði skarðinu. Snjó-
ruðningsbíll frá vegagerðinni
fylgdi sjúkrabilnum og dró flutn-
ingabílinn þá í burtu. Við þetta
urðu tafir. Að sögn lögreglunnar í
Stykkishólmi var vitlaust veður á
leiöinni og sóttist ferðin seint.
Ákveðið var að fara með sjúkling-
ana tfi Borgarness þar sem þyrlan
haföi lent og var í biðstöðu. Þangað
kom sjúkrabillinn klukkan 5.45.
Þyrlan lenti í Reykjavík 50 minút-
umsíðar. -ÓTT
Veðriö á morgun:
Hæg breyti'
legátt
Á morgun verður breytileg átt,
víðast fremur hæg. Dálítil rigning
eða slydda verður um landið
sunnan- og vestanvert en þurrt
norðaustanlands. Hiti 2-4 stig í
vætunni en vægt frost á Norður-
og Suðurlandi.
Samtals um þúsund manns voru viðstaddir jarðarför þriggja Grindvíkinga sem fórust þegar Eldhamar GK strand-
aði við Grindavík. Fullsetið var i Grindavíkurkirkju og safnaðarheimilinu. Nokkur hundruð manns voru i félagsheim-
ilinu Festi en þar var hægt að fylgjast með jarðarförinni á sjónvarpsskjá. Á myndinni er kista eins skipverjanna
borin úr kirkju. Stýrimaðurinn, sem bjargaðist úr slysinu við Hópsnes, Eyþór Björnsson, er næstfremstur í röð-
inni nær. í baksýn standa félagar úr björgunarsveitinni í Grindavík heiðursvörð. Fjölmenni var einnig viðstatt
þegar einn skipverjanna var jarðsunginn frá Blönduóskirkju á laugardag. Fimmti skipverjinn, sem fóst i slysinu,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag. DV-mynd ÆMK
Egilsstaðir:
Fimmásjúkrahús
ogfimmíhaldi
Mjög erilsamt var hjá lögreglunni
á Egilsstöðum aðfaranótt laugar-
dagsins vegna dansleiks sem haldinn
var í Valaskjálf. Svokallað 1. desemb-
erball var haldið og var aldurstak-
mark 16 ár. Fimm voru fluttir sárir
á sjúkrahús - dyravörður, tveir ung-
ir menn og tvær stúlkur.
Önnur stúlkan var tekin stífu
kverkataki og þurfti hún á læknis-
hjálp að halda. Sauma þurfti ungan
mann sem hafði farið sér að voða
þegar hann braut tvær rúður í húsinu
með hnefunum. Þriðja rúðan brotn-
aði einnig þegar kastað var flösku í
hana. Lögreglan tók fimm manns úr
umferð. Varð að geyma fólkið á tíma-
bili inni í lögreglubifreið þar sem lög-
reglan á Egilsstöðum hefur ekki yfir
fangageýmslum að ráða. Næstu
fangageymslur eru á Eskifirði í 50
kílómetra fjarlægð, en mikil hálka
varáFagradalumnóttina. -ÓTT
Misstiannanfótinn
66 ára starfsmaður álversins í
Straumsvík slasaðist illa á fæti við
vinnu sína á fostudagskvöldið. Mað-
urinn varð fyrir svokallaðri áltöku-
bifreið og ldemmdist annar fótur
hans á milli. Meiðslin voru svo alvar-
leg að taka þurfti fótinn af fyrir neð-
anhné. -ÓTT
ÖRYGGISSIMINN
Fyrir þig - og þá sem þér þykir vænt um
Sala - teiga - Þjónusta