Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1991, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1991, Side 4
FlMMTWÁÍ(5ÍM'rS] DEá'EWÍÍÉ'rt'IMl'. IT 1 3 Fréttir______. ___________________________________ Karfaveiðar skipa Evrópubandalagslanda: Valda verðlækkun á þýskum markaði - segja hagsmunaaðilar í íslenskum sjávarútvegi Hagsmunaaöilar í sjávarútvegi halda því fram að ef skipum Evrópu- bandalagsins verði leyft að veiða 3 þúsund lestir af karfa á íslandsmið- um muni sú viðbót valda verðlækk- un á karfa á þýska flskmarkaðnum þar sem íslendingar selja sinn karfa. I fyrra fluttu íslendingar út 23 þús- und lestir af ísuðum karfa og var meðalverðið um 100 krónur fyrir kílóið. Segja má að íslendingar séu einráðir á karfamarkaðnum í Þýska- landi. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag- fræðingur Landssambands íslenskra útvegsmanna, sagði í samtali við DV aö fiskmarkaðir í Evrópu væru afar viðkvæmir, verðið væri fljótt að lækka ef of mikill fiskur bærist að. Hánn benti á að ef skipum Evrópu- bandalagsins yrði leyft að veiða þessi umræddu 3 þúsund tonn yrði það á einhverju 6 mánaða tímabili ársins. Á þessu sama 6 mánaða tímabili væru íslendingar þá að selja 11.500 lestir á sömu mörkuðum, miðað við það sem selt var allt árið í fyrra. Það væri því alveg ljóst að þessar 3 þús- und lestir myndu hafa áhrif til verð- lækkunar, sérstaklega þegar verðið er hvað allra hæst. Það koma alltaf nokkrir verðtoppar á fiskmörkuðum í Þýskalandi sem tengjast ýmsum siðum svo sem eins og fóstu fyrir jól og páska. Miðað við að meðalverð sé 100 krónur fyrir kílóið af karfa eins og það hefur verið og að seldar séu 23 þúsund lestir árlega er andvirðið 2,3 milljarðar króna. Það þarf ekki mikla verðlækkun til að hún valdi tekjutapi íslenskra karfaseljenda upp á hundruð milljóna króna. -S.dór Raufarhöfn: Gíf uryrðin draga líf skraftinn úr fólki - segir Margrét Óskarsdóttir, kennari Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri; „Þessi lýsing Svövu á ástandinu hér á Raufarhöfn er stórlega ýkt, svo að ekki sé nú meira sagt, að hér sé eitthvað sem heitir hrikalegt ástand. Það hefur e.t.v. oft verið hægt að hafa uppi svona lýsingar á ástandinu á Raufarhöfn en alls ekki núna,“ seg- ir Margrét Óskarsdóttir, kennari á Raufarhöfn. í síðustu viku birtist hér í blaðinu grein undir fyrirsögninni: „Hrikalegt ástand og fólk er þungt og svart- sýnt“ og voru þessi orð höfð eftir Svövu Amadóttur, formanni Verka- lýðsfélags Raufarhafnar, um at- vinnuástandið þar og fólksflótta úr bænum. í sömu grein var talað viö Guðmund Guðmundsson, sveitar- stjóra á staðnum. Hann mælti ekki á móti því að um atvinnuleysi og fólks- flótta væri að ræða en hafði ekki handbærar tölur um þróun íbúa- fjölda á staðnum sl. ár. „Svona gífuryrði, eins pg komu fram í viðtalinu við Svövu Árnadótt- ur, eru ekki til annars en að draga lífskraftinn úr fólki. Fólk hér er hvorki þungt né svartsýnt heldur þvert á móti. Mannlífið hér er í mikl- um blóma og er hægt að nefna margt því til staðfestingar. Kaupfélagið hér var komið á hausinn en heimamenn keyptu það og reka með miklum myndarbrag. I fyrsta skipti í mörg ár er læknir búsettur á staðnum, hér er mikið um nám eldra fólks og tóm- stundaiðkun almennings, hér var verið að opna þjónustuíbúðir fyrir aldraða og áfram mætti lengi telja. Um fólksflóttann er það að segja að héðan fóru 27 manns á síðustu 12 mánuöum en hér fæddust eða hingað komu 25 manns. Þetta er nú allur fólksflóttinn," sagði Margrét. Að borða kæsta skötu er gamall, góður og þjóðlegur siður sem löngum hefur verið tengdur Þorláksmessu. Fiskbúðin Sæbjörg á Granda hefur þeg- ar tekið forskot á sæluna og hér andar áhugasamur kaupandi að sér ilmin- um af einum vænum bita. DV-mynd S „Með illu skal illtútreka" Þeir Steingrímur Hermanns- son, formaður Framsóknar- flokksins, og Ólafur Ragnar Grímsson, formaöur Alþýðu- bandalagsins, hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um vaxtamálin. í frumvarpinu er lagt til að við lög um Seðlabanka íslands verði sett til bráðabirgða aö Seölabankinn skuli tryggja að vextir hér á landi veröi á árinu 1992 ekki hærri en aö jafnaði í helstu viðskiptalöndum okkar. Jafnfram skuli Seðlabankinn gera ráðstafanir til að ávöxtun verðbréfasjóða og annarra pen- ingastofhanna verði í samræmi við þá hámarksvexti sem bank- inn ákveður. Þá geri Seölabank- inn tillögur til ríkisstjórnarinnar um hámarksvexti af ríkistryggð- um skuldabréfum og stefnu í pen- ingamálum sem samræmist ákvörðun bankans. Ólafur Ragnar sagði aö þetta frumvarp fæli í sér að í lögum yrði tryggt það sem samtök at- vinnuveganna og samtök launa- fólks hafa verið að krefjast. „Þaö virðist því vera mjög breið samstaða í þjóðfélaginu um nauð- syn þess að tryggja með lögum að vextimir verði lækkaðir. Viö viljum því láta á það reyna hvort meirihluti þingsins er tilbuinn til að standa með samtökum at- vinnulifsins og launafólks um að lækka vexti.“ c ,. 100 milljóna hagnaður ÚA Gylfi Kristjánason, DV, Akureyri: Hagnaður Útgerðarfélags Ak- ureyringa hf. fyrstu 9 mánuöi ársins nemur 105 milljónum króna. Það er nokkuð undir því sem stjórnendur fyrirtækisins höfðu sett sér sem markmið á þessum tíma en markmið þeirra var að fýrirtækið skilaöi 150-160 milljónum króna í hagnaði fyrstu 9 mánuði ársins. „Það sem hefur skekkt þá mynd er aflasamdráttur og flármagns- kostnaðurinn sem hefur vaxið gífurlega," segir Sverrir Leósson, formaður stjórnar fyrirtækisins. í dag mælir Dagfari Hætta á ferðum Nú er til umfjöllunar innan ríkis- stjómarinnar GATT-samkomulag- ið sem er viðskipta- og toOabanda- lag sem íslendingar eiga aðild að. Ríkisstjómin stendur frammi fyrir því aö staðfesta þessa samninga en það hefur í för með sér að takmark- aður innflutningur á landbúnaðar- vörum verður leyfður hingað til lands. Og það sem verra er; þessar landbúnaöarvömr munu fást fyrir mun lægra verð heldur en þær ís- lensku landbúnaðarvörur sem al- menningur kaupir nú og hefur keypt. Hér er iOt í efni og ekki gott fyrir ríkisstjómina aö stöðva þessa óheiOaþróun. Við erum aðOar að GATT og við verðum aö hOta al- þjóðasamningum. Nema þá auðvit- að að segja okkur úr GATT, alveg eins og hvalanefndin hefur mælt með því aö íslendingar segi sig úr Alþjóðahvalveiðiráöinu. Dagfara finnst að vísu skondiö að heyra menn tala um hvalanefnd sem verður ekki skifið öðmvísi en svo aö þetta sé nefnd hvala og hvalim- ir í nefndinni hafi ákveðið að leggja til að íslendingar segi sig úr ráðinu tíl að þeir geti byijað aftur að veiða hvalina. Svo er sagt að hvalir séu vitur dýr! En snúum okkur aftur að land- búnaðinum. Þetta er hið versta mál, eins og fyrr segir. EgiO þing- maður frá SeljavöOum kom fram í sjónvarpsfréttum í fyrrakvöld og talaði þar fyrir hönd landbúnaðar- ins þegar hann sagöi: „Þetta er hið alvarlegasta mál. Ekki aðeins að innflutningur verð- ur leyfður heldur hitt að ég óttast að það hafi í fór með sér verulega lækkun á þessum vörum. Okkur er að visu heimfit að leggja á toOa til mótvægis en það getum við að- eins gert um skamman tíma. Þaö mun því koma að því mjög fljótlega að erlendar landbúnaðarvömr fá- ist hér fyrir mun lægra verö en ís- lenskir bændur geta boðiö. Ég hef miklar áhyggjur af þessari þróun,“ sagði EgiO og andvarpaði mæðu- lega. Nú vitum við vel að þingmenn þjóðarinnar hafa mikla ábyrgð og ennþá meiri ábyrgðartilfinningu. Þeir em að berjast fyrir réttlætis- málum og hagsmunamálum þjóð- arinnar og bera velferð almennings fyrir brjósti. EgOl er einn þessara þingmanna og ef hann hefur áhyggjur af lægra vömverði og ódýrari innkaupum þá hljóta þær áhyggjur að vera á rökum reistar. Það gengur ekki að lækka vöm- verðið og koma þannig aftan að neytendum og bæta lífskjörin svona fyrivaralaust með óábyrgum og vanhugsuðum innflutningi á nauðsynjavörum. Það er alveg makalaust hvað al- þjóðasamningar af þessu tagi geta komiö okkur í koO. Nýlega erum við búnir að gera samkomulag um evrópskt efnahagssvæði sem kippir fótunum undan efnahagnum og sjávarútveginum þegar í ljós kem- ur að Evrópumenn vOja ekki veiða langhala og heimta karfa í staðinn. Þeir krefjast þess aö farið verði eft- ir þehn samningum sem íslending- ar hafa samþykkt. Þetta era óþokk- ar. Og nú er GATT að gera það sama. Heimta aö alþjóðasamkomulagið um viöskipti og fijálsa verslun verði gagnkvæmt og að íslendingar leyfi öðrum aö flytja hingaö tíl lands landbúnaðarvörur af því að við íslendingar megum selja okkar vömr á erlendum mörkuðum. Og þeir vilja meira að segja fá að selja landbúnaðcu*vörumar fyrir lægra verð og ódýrari en íslenskar land- búnaðarvörur. Þetta em óþokkar líka. Þaö var AgO á SeljavöOum líkt að bera umhyggju fyiir íslenskum almenningi og íslenskum neytend- um þegar þeir standa frammi fyrir því áfalh að brátt geti þeir keypt ódýra landbúnaðarvöm. íslending- ar em með öllu óvanir shkum við- skiptum og þaö er óneitanlega ver- ið að koma aftan að þeim með því lúabragði að selja þeim ódýra vöm, Alþingismenn, bændur og neyt- endur verða að sameinast gegn þessari innrás. Við verðum að standa með AgU. Við verðum að deOa með honum áhyggjunum og útskýra það fyrir GATT og ríkis- stjóminni að þetta gangi ekki, að menn þurfi fyrirvaralaust að kaupa ódýrt! Ef ekki viO betur til geta íslend- ingar gert eins og hvalimir í nefnd- inni; að leggja til að við göngum úr þessum alþjóöasamtökum. Landbúnaðarvömr mega ekki lækka í verði. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.