Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 1991.
Fréttir
i>v
Togarinn Viðey sigldi á tvö varðskip 1 Reykjavikurhöfn:
Vél togarans setti allt í
einu á fulla ferð áfram
- óþægilegt að vera í stjómlausu skipi í miðri höfn, segir Olafur Om Jónsson skipstjóri
„Við vorum að snúa skipinu í bak til
þess að fara fara út úr höfninni við
Norðurgarð og setjum á ferð áfram.
Þá gerist eitthvað í skrúfubúnaðin-
um sem setur hann á fulla ferð áfram
og festir hann þar. Þegar við sláum
af með skrúfustiUingunni svarar
skrúfan ekki og helst í fullri ferð
áfram og véhn keyrir á sama hraða.
Skipiö tekur kipp áfram og snýst
hratt á bakborða. Véhn er stöðvuð
með neyðarrofa en þá er ferðin orðin
það mikil á skipinu að dráttarbátur-
inn Magni nær ekki að stöðva okkur
og við rekumst á varðskipin," segir
Ólafur Örn Jónsson, skipstjóri á Við-
ey sem rakst á danska varðskipið
Hvítabjörninn og varðskipið Tý
klukkan 10.30 á jóladagskvöld þar
sem þau lágu hhð við hlið utan á
Óðni við Ingólfsgarð.
Viðey var að halda til veiða þegar
óhappið varð og seinkaði um nokkr-
ar klukkustundir meðan viðgerð fór
fram. Skemmdir voru óverulegar á
Viðey en þyrlupallurinn á Hvítabim-
inum laskaðist töluvert og skuturinn
stjómboðsmegin á Tý. Engar
skemmdir urðu á varðskipinu Óðni.
Ólafur Örn sagði að Magni hefði
ekki verið í neinni hættu að lenda á
miUi því hann væri lipur og snögg-
ur. Skipstjórinn á Magna gaf hljóð-
merki til að aðvara mennina um borð
í Hvítabirninum sem vom að halda
sín jól í rólegheitum þegar Viðey
bankaði svona hressilega upp á.
„Höggið var ekki mikið því skipiö
var á 2 mílna ferö í mesta lagi. Við
runnum með stefniö á milh skipanna
og það dró úr högginu að kaðallinn
á milli þeirra var fyrir og við slitum
hann. Annars hefðu orðið miklu
meiri skemmdir á okkur og öðru
hvoru varðskipanna," segir Ólafur
Örn. „Við þetta skemmdist skutur-
inn á báðum skipunum en við lentum
á þyrlupalhnum á Hvítabiminum.
Hann lá fyrir utan og við fáum hann
á stjómborðskinnung en Tý á bak-
borðskinnung og slitum Hvítabjörn-
inn lausan frá Tý aö aftan. Það kom
smárifa á hvalbak Viðeyjar á stjórn-
borða og síðan 20 cm gat bakborðs-
megin á svokallaðri lappaloku. í það
var soðin lítil plata. Alhr menn um
borð hjá okkur vom uppi í við-
bragðsstöðu því það er óeðlilegt að
drepið sé á vél í hasti,“ segir Ólafur
Örn. „Það er ákaflega óþægileg til-
finning að vera um borð í stjórnlausu
skipi inni í miðri höfn og ráða ekki
við neitt. En þetta er eins og hvert
annað óhapp og ekki ósvipað því þeg-
ar bremsubúnaður fer í bU. Þetta er
hálffornfálegur búnaður aö hafa ekki
gír th að kúpla beint frá heldur verð-
ur að drepa á öhu ef á að stoppa
skrúfu og öðmvísi en á flestum skip-
whkbbm
Styttur og rekkverkið bakborðsmegin á Hvítabirninum lagðist saman þegar Viðey sigidi á skipið að kvöldi jóladags.
Tjónið vel á aðra milljón
- segir Ingvar Kristjánsson, eftirlitsmaður hjá Gæslunni
„Viðgerðir hefjast strax í fyrramál-
ið og verður væntanlega lokið í byrj-
un janúar, þann þriðja eða fjórða ef
allt gengur að óskum. Við reiknum
með því að þetta sé svona fimm til
sex daga vinna,“ sagði Ingvar Kristj-
ánsson, skipaeftirhtsmaður Land-
helgissgæslunnar í gær, eftir aö hann
hafði metið skemmdimar á Tý. „Það
er ekki gott að segja til um heildar-
kostnað að svo komnu máh en reikna
má með að þetta verði vel á aðra
milljón með efni og launum."
Að sögn Ingvars eru skemmdir á
stjórnborðshomi Týs og fjóra metra
fram stjómborðsmegin. Einnig
skemmdist þyrlupahurinn stjórn-
borösmegin og þar eyðilögðust um
fjórir metrar af rekkverki. Þar viö
bætast 11 metrar af rekkverki fram-
an th á skipinu.
„Það gerðist þannig að þegar Viðey
lenti á milli skipanna shtnaði Hvíta-
bjöminn frá að aftan og lagöist að
aö framan og braut inn rekkverkið á
Tý. Hvítabjöminn skemmdist hins
vegar ekkert að framan viö þetta því
að síðan er það sterk miðað við rekk-
verkið á Tý,“ segir Ingvar. Eins og
áöur sagði verður strax hafist handa
við viðgerðir en að sögn Ingvars
verður að brenna skemmdu hlutana
burtu og sjóða nýjar plötur, smíða
nýjar styttur og setja ný bönd á rekk-
verkið að framan og á þyrlupalU.
-JJ
um.“
Viðgerð á Viðey stóö frá klukkan
12 til klukkan 5 að morgni annars
dags jóla. Það þurfti að hafa hraðar
hendur því Viðey er bundin af sölu-
degi þann 13. janúar. Samkvæmt
reglunum hefði skipið átt að fara út
fyrir hádegi á Þorláksmessu en
áhöfnin var á undanþágu til að ná
helsta jólahaldinu. Það er tahnn hálf-
gerður happdrættisvinningur að ná
fyrstu sölum eftir áramót, segir Ólaf-
ur, en um borð eru sautján manns
af fastaáhöfn skipsins.
Þegar DV hafði samband við Ólaf
Öm í gær var áhöfnin að karfaveið-
um suður af Reykjanesi í ágætu veðri
og vonaðist Ólafur til að ná minnst
150 til 200 tonnum af karfa fyrir söl-
una þrátt fyrir að túrinn hefði ekki
verið áfaUalaus í upphafi.
-JJ
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLÁN ÚVERÐTRYGGD
Sparisjóðsbækur óbundnar 2,5-3 Landsbanki
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 2,25-5 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 3,25-6 Sparisjóöirnir
Tékkareikningar, almennir 1 Allir
Sértékkareikningar 2,5-3 Landsbanki
VlSITÖLUBUNDNIR REIKNINGAR
6 mánaða uppsögn 3 Allir
1 5-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisbundnir reikningar í SDR 6,25-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsb., Búnaðarb.
ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-3,5 Búnb., Landsb.
överðtryggð kjör, hreyföir 3,25-3,5 Búnb.,Landsb.
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR
Vísitölubundnir reikningar 2,5-6 Búnaðarbanki
Gengisbundir reikningar 2,5-6 Búnaðarbanki
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki
óverðtryggð kjör 7-8,25 Sparisjóöir
INNLENDIR GJALDEVRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 3,25-3,75 Islandsbanki
Sterlingspund 8,5-9 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 7,5-8 Sparisjóðirnir
Danskar krónur 7,25-7,8 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) * lægst
útlAn óverðtryggð
Almennir víxlar (forvextir) 15-15,5 Búnaðarbanki
Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi
Almenn skuldabréf 15,75-16,5 Búnaðarbanki
Viöskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdráttur) 17,75-18,75 Islandsbanki
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
Almenn skuldabréf 9,75 10,25 Búnaðarbanki
AFURÐALÁN
Islenskar krónur _ 15,25-16,5 Allir nema Lb
SDR 8,5-9,25 Landsbanki
Bandaríkjadalir 6,75-7,5 Landsbanki
Sterlingspund 12,4-1 2,75 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 11-11,5 Búnaðarbanki
Húsnæðlslán 4,ð
Ufeyrissjóðsién 6-9
Dráttarvextir 26,0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf desember 17,9
Verðtryggð lán september 10,0
VÍSITÖLUR
Lánskjáravísitala janúar 31 96 stig
Lánskjaravísitala desember 31 98 stig
Byggingavísitala desember 599stig
Byggingavísitala desember 1 87,4 stig
Framfærsluvísitala desember 1 59,8 stig
Húsaleiguvísitala 1,1% lækkun 1. janúar
VERDBRÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF
Gengi bréfa veröbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Einingabréf 1 6,037 Sjóvá-Almennar hf. 5,05 5,15
Einingabréf 2 3,209 Armannsfell hf. 2,15 2,40
Einingabréf 3 3,968 Eimskip 5,53 5,95
Skammtímabréf 2,012 Flugleiöir 2,03 2,20
Kjarabréf 5,672 Hampiðjan 1.72 1,90
Markbréf 3,047 Haraldur Böðvarsson 2,95 3,10
Tekjubréf 2,149 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 1,10
Skyndibréf 1,762 Hlutabréfasjóðurinn 1,63 1,73
Sjóðsbréf 1 2,895 islandsbanki hf. 1,61 1,74
Sjóðsbréf 2 1,931 Eignfél. Alþýðub. 1,58 1,71
Sjóðsbréf 3 2,002 Eignfél. Iðnaðarb. 2,12 2,29
Sjóðsbréf 4 1,748' Eignfél. Verslb. 1,41 1,53
Sjóðsbréf 5 1,200 Grandi hf. 2,60 2,80
Vaxtarbréf 2,0400 Olíufélagið hf. 4,50 5,05
Valbréf 1,9120 Olís 2,10 2,28
Islandsbréf 1,264 Skeljungur hf. 4,87 5,45
Fjóröungsbréf 1,147 Skagstrendingur hf. 4,65 5,05
Þingbréf 1,260 Sæplast 7,28 7,60
öndvegisbréf 1,244 Tollvörugeymslan hf. 1,07 1,12
Sýslubréf 1,284 Útgerðarfélag Ak. 4,50 4,85
Reiöubréf 1,227 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42
Launabréf 1,014 Almenni hlutabréfasj. 1,10 1,15
Heimsbréf 1,073 Auölindarbréf 1,03 1,08
Islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20
Slldarvinnslan, Neskaup. 3,30 3,50
1 Við kaup á viðskiptavixlum og viöskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast í DV á fimmtudögum.