Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 1991. 13 Merming Svavar Guðnason. Þar sem skáld- skapurinn vakir - Thor skrifar um S vavar Úti í Hellerup í Danmörku situr hugumstór ákafa- maöur af íslenskum ættum, Torstein Blöndal aö nafni, og hefur uppi lofsamlega tilburði til bókaútgáfu um norræna myndlist. Fyrir fimm árum gaf hann út mikla bók um norræna nýlist bæði á ensku og Norðurlanda- málum sem bar heitið „Northern Poles - Breakaways and Breakthroughs in Nordic Painting and Sculp- ture“ og reit ég fyrir hann kaflann um íslenska mynd- list. Leið svo og beið og ekki bólaði á fleiri bókum frá Blöndal fyrr en 1989 að mér barst lítið (20x14 cm) og nett kver um norska 19. aldar málarann Lars Herte- vig eftir Ole Henrik Moe. Þar var þá kominn nýr bóka- flokkur frá Blöndal, Format, þar sem telft var saman ólíkum - og ólíklegustu - höfundum og fágætum nor- rænum listamönnum. Myndhstarmaðurinn Per Kirke- Bókmenntir Aðalsteinn Ingólfsson by hafði til dæmis tekið að sér að skrifa um gamla expressjónistann Edward Weie, íslandsvinurinn Don- ald Judd ætlaði að skrifa um Ofle Bærtling og Georg Baselitz hugðist skrifa um Carl Frederik Hill, hvers verk voru til sýnis í Norræna húsinu fyrir stuttu, og svo framvegis. Atburðir í myndum Þetta er út af fyrir sig skemmtilegt uppátæki, eða „concept" eins og sagt er á máli markaðsfræðinga, þótt ég sé ekki alveg sannfærður um ágæti þess að hafa bækurnar svona litlar í sniðum. Aukinheldur skil ég ekki alveg tilganginn með því að gefa hveija bók einungis út á móðurmáli þeirra flstamanna sem um er fjallað. Tæplega stuðlar það að útbreiðslu þekkingar um þá vítt og breitt um Norður- lönd, hvað þá annars staðar í heiminum. En það er kannski ekki markmið útgefanda. Allt um það hefur Blöndal tekist að koma út sex bókum í þessum flokki og barst mér sú sjötta fyrir einskæra tilviljun nokkrum dögum fyrir jól. Hefði þó verið full ástæða til að koma henni inn á íslenskan jólabókamarkað í tæka tíð og með bravúr því í henni fjallar okkar mesti töframaöur til orðs, Thor Vil- hjálmsson, um helsta seiðmann okkar Islendinga í myndlist, Svavar Guðnason. Þetta eru hvorki fyrstu afskipti Thors af myndlist né af Svavari Guðnasyni. Hann hefur ritað heila bók um Kjarval og fjölda greina um Svavar og aðra myndflstarmenn og er það vel. Enginn íslenskur rithöfundur hefur betra „auga“ fyrir myndflst, það er, meira næmi fyrir útliti hvers mynd- verks. Djarfar fyrir bláfjallarótum Lýsingar Thors eru svo flfandi að þær vekja með manni löngun til að skoða gamalkunnar myndir upp á nýtt. Þegar ég er búinn að lesa yfir mig af þyrrkings- legum hugleiðingum um „formskapandi pensilskrift" „snertigildi litarins" og „umskrift á hughrifum frá náttúrunni" sem er þó ekki „vísun í ákveðið landslag heldur eru áleitnari hugrenningatengsl við í senn hið smágerða og stórbrotna í náttúrunni" verð ég yflr mig glaóur að rekast á eftirfarandi umfjöllun, sem er skynj- un Thors á málverkinu „ísabrot" eftir Svavar: -2- „í hinum abströktu sveiflum þar sem mest ber á bláu og hvítu grillir í landslag úr Hornafirði einsog minning fylgin sér smjúgi í myndina: melar haf og djarfar fyrir bláflallarótum, jafnvel jökli íjærst í sudda. Myndin er stefjahreimur, mest leikur hvítra misstórra fláka, og sumstaðar grisjar í gegn annar litur undir, nokkrir bláir og homhvassir, einn gulur femingur, bleikur annar, það er líka til dökkgrænt og grágrænt í myndinni, flka grátt, og bregður fyrir bláum fleti grönnum; en miskipað er tígli úr rauðum þríhymingi og hinn helmingurinn grænn þríhyrningur, og helm- ingast svo. Þú heyrir ruðninginn, marr þegar jakar skarast, og rymur í djúpi í þessum hvíta myndheimi þar sem annað og meira býr undir“ (bls. 37). Verk og persóna í texta Thors fléttast saman upplifun verkanna og margslungin persónulýsing listamannsins, svo vart verður sagt hvar persónuleikanum sleppir og mynd- listin hefst. Enda er Svavar Guðnason senniiega mest- ur einstaklingur í gjörvallri myndlist okkar. Thor er líka óhræddur við að láta í ljós ákveðnar skoðanir á myndflst Svavars. Hann gefur til að mynda lítið fyrir notkun flestra samferðamanna Svavars á grímu- mótífinu og telur skilning þeirra á Freud næsta yflr- borðslegan. Hann gengur einnig þvert á skoðanir flestra myndlistaráhugamanna á geómetríska tímabifl Svavars. Við listfræðingar tölum yfirleitt ekki vel um þetta tímabil, teljum það útúrdúr á listferfl Svavars. „Það er miklu nær að hann hafi verið að endurmeta afstöðu sína og færa út sitt persónulega listræna land- nám“ segir Thor, og bætir við: „.. .í þessum myndum Svavars er náttúrusambandið aidrei rofið. Þú finnur land, sjó, himin, veður, þyt stormsins, birtu. Náttúru- öflin, vorleysingar, ísabrot, flug, ruðning þegar lífið sprengir sig úr klakaböndum, rökkrið læðist yfir dag- inn. Þetta eru myndir þar sem skáldskapurinn vakir íbygginn og aðsjáfl" (bls. 31). Ljóð á dönsku í þessari litlu bók er einnig að flnna gamlan greinar- stúf/ljóð á dönsku eftir Svavar, fallega kveðju til lista- mannsins eftir Ejler Bille og Utmyndir, 39 að tölu, (yfir- leitt) þokkalega prentaðar. Thor Vilhjálmsson - Svavar, 120 bls. Edltion Blöndal, Kaupmannahöfn 1991 Dreifing á íslandi: löunn Blindrafélagið SAMTÖK BLINDHA OG SJÓNSKERTRA Á ÍSLANDl HAPPDRÆTTI BLINDRAFÉLAGSINS DREGIÐ 17. DESEMBER 1991 VINNINGSNÚMER: 2350 8981 12976 4895 13782 384 6693 2066 2317 2712 4618 7438 9050 9642 11032 11822 12779 13118 13120 892 1174 1486 1936 4272 4812 6556 6895 6967 7192 8395 9536 10803 11851 12804 13728 13859 14239 14560 14928 BLINDRAFÉLAGIÐ, SAMTÖK BLINDRA OG SJÓNSKERTRA: símsvarinn er 38181. _Jil viðskiptamanna. banka og sparisjóða Lokun 2. jjanúar og emdagar víxla. Vegna áramótavinnu verða afgreiðslur banka og sparisjóða lokaðar fimmtudaginn 2. janúar 1992. Leiðbeiningar um eindaga víxla um jól og áramót liggja frammi í afgreiðslum. Reykjavík, 17. desember 1991 Samvinnunefnd banka og sparisjóða' 99 m m ! « -•

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.