Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 1991. í herkví hárra gjalda Þaö eru ömurleg örlög íslendinga að þurfa aö borga topp-prís (eins og Hemmi flöskukarl hefði oröaö það) fyrir svo til alla hluti. Fatnað- ur, matur, áfengi og meira aö segja rafmagn frá áratugagömlum virkj- unum - alit kostar þetta miklu meira en hjá þjóðum þar sem kaup- iö er tvöfalt hærra en á Fróni. Fyrir nokkrum árum flutti ég tvo sams konar bíla frá Bandaríkjun- um til Evrópu, annan til íslands og hinn til Hollands. Flutnings- gjaldið til íslands var um 150%o hærra en til Hollands. Þaö er miklu dýrara að hringja til útlanda frá íslandi en gengur og gerist meö langlínusamtöl í öðrum löndum. Ekki nóg með það, heldur er líka dýrara að hringja til íslands frá Bandaríkjunum (og kannski víðar) en til annarra Evrópuríkja, og sérstök afsláttargjöld til Evrópu ná einfaldlega ekki til íslands. ísland er fámennt og stjórnendur skipafélaga, svo dæmi sé tekið, geta bent á þá staðreynd að það sé ó- sanngjamt að bera saman flutn- inga á litlum skipum íslendinga og útlénskum risaskipum. En á móti má benda á að t.d. Eimskip var ekki í neinum vandræðum að stór- lækka gjöldin á meðan raunveru- leg samkeppni erlends skipafélags var fyrir hendi. Og þegar við lítum á fargjöld dótturfyrirtækis (eða er það hálfsystir?) Eimskips, Flug- leiða, þá er engin afsökun í sjón- máli. Átthagafjötrar Flugleiðir hafa lengi stundaö þann ljóta leik aö láta íslendinga borga hærri fargjöld en útlendinga fyrir sambærileg ferðalög. Þannig kostar t.d. ódýrasta far á leiðinni Flugleiða) í Bandaríkjunum voru einstök á tímum þegar öðrum flug- félögum var óheimilt að bjóða af- sláttarfargjöld og fengust aðeins vegna þeirrar aðstöðu sem öll ís- lenska þjóðin veitti Bandaríkjaher. Fyrir u.þ.b. tíu árum hallaði mjög undan fæti hjá Flugleiðum og sam- dráttur og fjöldauppsagnir stóðu fyrir dyrum. Stjórnvöld og íslensk- ir skattgreiðendur komu þá til bjargar með ríflegum styrkjum í beinhörðum peningum. íslending- ar hafa síðan haldið áfram að hlaða undir Flugleiðir með því að skapa fyrirtækinu einokun. - Kálfurinn hefur ekki launa ofeldið. Okrinu létti Ef íslendingum er það full alvara að ganga í Efnahagsbandalagið og keppa á jafnréttisgrunvelli við „Fyrirtæki mega aldrei veröa svo öflug að þau stjórni gerðum stjórnvalda. Ein- okun og okur eru tvíburar sem þjóðin getur ekki lengur alið.“ KjaHarinn Jóhannes Björn (Lúðvíksson) rithöfundur New York-Keflavík-Lúxemborg og aftur til baka aðeins um 25.000 kr. og ókeypis bílaleigubíll fylgir með í viku ef tveir ferðast saman. Hægt var að kaupa miða (þegar þetta er skrifað) til London frá New York (meö millilendingu í Keflavík) fyrir 12.000 kr. aðra leiö. Það er ekki eins og Flugleiöir hafi einhveija sérstaka ástæðu til að hefna sín á íslendingum. Lend- ingarleyfi Loftleiða (fyrirrennara gömul stórveldi þá má heldur betur fara að taka til í kotinu og ná kostn- aði niður á jörðina. Til að forðast allan misskilning vil ég taka það fram að ég tel að Flugleiðir og Eimskip séu bæði mjög vel rekin fyrirtæki og fulltrú- ar þess sem íslendingar geta gert best meö hliösjón af legu landsins og alþjóðlegu hyggjuviti eyja- skeggja. íslendingar ættu að snúa sér í fullri alvöru að t.d. fjölþjóða GET THE L0W-D0WN ON EUROPE. Purchase tickets béfore 10/31/91 for spectacular savings. 199 New Planes - new Services • New Ideas FARE FACTS: Round trip fare plus S18 fees and taxes required. Min. stay 6 days; max. stay 21 days. Stopover ot up to 3 days permitted in Reykjavik on return portion only. Reservations, ticketing and pay- ment must be in one transaction by 10/31/91. Cancellation penalty: 50% of fare paid. Subject to change. Limited availability. Other restrictions may apply. * For free car, you must fly round trip on lcelandair with companion and share car. „Engin afsökun í sjónmáli", segir greinarhöf. og vitnar til auglýsingar sem hann lætur fylgja greininni. bankaþjónustu og alþjóðlegum verðbréfaviðskiptum. Lega lands- ins kostar ekki neitt og tímabeltiö liggur eins og hlekkur á milli Japan og Bandaríkjanna. En það er aldrei hægt að þola ein- okun. Fyrirtæki mega aldrei verða svo öflug að þau stjórni gerðum stjórnvalda. Einokun og okur eru tvíburar sem þjóðin getur ekki lengur ahð. Jóhannes Björn Fare each way based on round trip purchase from New York or Balti- more/Washington to Luxembourg. INCLUDES A FREE KEMWEL RENTALCAR F0R 0NE WEEK, PLUS UNUMITED MILEAOE AND VAT.‘ FOR RESERVATIONS, CALL Y0UR TRAVEL AGENT 0R ICELANDAIR AT1-800-223-5500. LANDAIR Stöndum vörð um sjálfstæðið Stundum leiði ég hugann aö því hvemig ástatt verði fyrir íslensku þjóðinni eftir fjögur ár ef ríkis- stjóm Davíðs Oddssonar verður við völd allan þann tíma. - Hvar verður íslensk menning stödd og áht þjóðarinnar út á við ef menn- ingarfulltrúi íslands í London, sem þar hefir verið að skandalisera að undanfómu, á að fá að stunda þá iðju allan þann tíma og niðurlægja þjóðina. Það er með ólíkindum að annað eins starf og þetta skyldi fundið upp á sama tíma og stjómvöld hafa skorið stórlega niður fjárveitingar til mennta- og menningarmála og öslað yfir allt félagslega kerfið með hnífinn á lofti og skorið niður eins og vitfirringar alls staöar þar sem síst skyldi. Að sjálfsögðu verður líka sá af- glapaháttur sem þarna kann að koma fram að vera smámunir hjá öðm verra. - Því hvaöa mál er það þótt skemmtikraftar skandaliseri og jafnvel verði þjóð sinni til skammar í bih, móts við þaö ef ráðherra verður henni bæði til skaða og skammar? Þjóðhetjur eða? Svo var að heyra þegar „þjóðhefj- urnar" komu heim með EES- samninginn aö mestum árangri hefði það skilað í tvíhliöa viðræð- unum við EB aö vekja vorkunn- semi valdakónganna með „htla ís- landi“ - Að tala oft og mikið um að „htla ísland" hefði haft geysileg áhrif. Nú væri gaman að vita hvaða áht íslenska þjóðin hefur á slíkri samningatækni. Þetta er samning- ur sem hlýtur að skipta sköpum um framtíð íslands. Mikhvægasti samningur sem gerður hefur verið í sögu lýöveldisins. - Utanríkisráð- herra segir reyndar ýmist að hann KjaUarinn Aðalheiður Jónsdóttir verslunarmaður sé sá mikilvægasti eða að hann skipti svo htlu máli að þjóðarat- kvæðagreiðsla um hann komi ekki til greina. Eftir heimkomuna frá Lúxem- burg ferðaðist ráðherrann um landið á kostnað almennings og þóttist vera að kynna samninginn sem þó er kannski einhver allra mesta blekking sem hann hefir boðið þjóðinni - og er þá mikið sagt. - Eða hefir hann ekki aðallega kynnt hin fleygu orð eins af ráð- herrum EB, sem sagði að íslending- ar hefðu fengið allt fyrir ekkert. Hefði ekki verið eins sigurstrang- legt fyrir utanríkisráðherra að hta ofurlítið stærri augum á land og þjóð og gera sér grein fyrir eigin vandkvæðum. Skilja hverju hann verður að breyta, ef hann á að geta gegnt þessu starfi sómasamlega? Það væri að minnsta kosti betra fyrir þjóðina. Blekkingar og launráð Ýmsir hagsmunahópar og at- vinnurekendur hafa aðhyhst þenn- an samning og gert sér jafnvel von- ir um mhljarðagróða. Nú má vel vera að íslenska auðvaldið (ef við eigum að gefa því shkt nafn í sam- skiptum við EB) græði. En hvað um hina? - Nú eru smátt og smátt aö koma fram margs konar blekk- ingar í þessu máh. - Sagði ekki framkvæmdastjóri SÍF eftir að langhahnn breyttist í karfa í með- fórum utanríkisráðherra, að þeir styddu ekki lengur samninginn? - í viðtah viö Morgunblaðið sagði hann um málflutning ráðherrans: „Þetta er bara buh og kjaftæði og einn andskotans thbúningurinn hjá honum í viðbót“ - Auöheyrt var að af nógu hefur verið að taka. - Samt ekki hægt að afskrifa samn- inginn. Hvað eru þjóðhetjur og hvað eru landráð? - Þessi hugtök hafa víst öðlast nýja merkingu í seinni tíð. Nú heyrir maöur sagt að þeir séu þjóðhetjur sem eru að semja um sölu á fuhveldi, en hinir sembörð- ust fyrir fuhveldi þjóðar sinnar heyri liðna tímanum th. Það séu úrelt sjónarmiö. „Lönd hafi færst saipan og landamæri hverfi." Fullveldisafsal Nú virðist hka svo að EB ætli að takast það sem Hitler mistókst á sínum tíma - að ná yfirráðum í ahri Evrópu. ÖU EFTA-ríkin eru óð og uppvæg að láta af hendi full- veldi í staðinn fyrir tohafríðindi. Skrítið að ekki skuh nægja gagn- kvæm toUafríðindi. Hvers vegna þessi yfirdrottnunarsjónarmið hjá EB? - Eru það leifar frá hðinni tið þegar nýlenduveldin voru og hétu, nýttu sér lönd og auðlindir frum- stæðra þjóða og urðu auðug? Nýjar nýlendur í dálítið breyttú formi geta líka fært yfirþjóðlegu valdi ómældan auð. Mikh hugarfarsbreyting hlýtur að hafa átt sér staö hjá norsku þjóð- inni síðan hún losnaði undan hernámi Hitlers-Þýskalands og refsaði kvislingum ef hún nú vhl láta EB-ríkin ráða sínum málum að stórum hluta. Þetta virðist reyndar áhugamál aUra ríkis- stjórna Norðurlanda. Þó gengur ríkisstjóm Davíðs Oddssonar lengst, sem ekki viU leyfa þjóðarat- kvæðagreiðslu og aðeins einfaldan meirihluta á Alþingi th að fullghda samninginn. - OU hin EFTA ríkin telja fuhveldisafsal það mikið að 2/ hluta atkv. þurfi th að samningur- inn öðhst ghdi. - Ef ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tekst það ætíun- arverk að fela miðstjórnarvaldinu í Brussel forræði þjóðarinnar, mun Evrópuauðvaldið finna óteljandi möguleika th að nýta sér íslenskar auðhndir, þrátt fyrir girðingar ut- anríkisráðherra og þó að Viðeyjar- undriö sjái enga möguleika fyrir íslenskt efnahagslíf aðra en álver og samruna við EES. Aðalheiður Jónsdóttir „Ef ríkisstjórn Davíðs Oddssonar tekst það ætlunarhlutverk að fela miðstjórn- arvaldinu 1 Brussel forræði þjóðarinn- ar mun Evrópuauðvaldið finna ótelj- andi möguleika til að nýta sér íslenskar auðlindir..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.