Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Síða 20
40 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 1991. Fréttir Istess, Akureyri: Eignaraðilar Laxár ætla að keppa við Skretting Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Eignaraðilar Laxár hf. horfa auð- vitað ekki aðgeröalausir á þetta mál og hafa verið að skoða stöðuna frá ýmsum hliðum," segir Halldór Jóns- son, bæjarstjóri á Akureyri, um hugsanleg viðbrögð eigenda Laxár hf. við tilboði norska fyrirtækisins Skrettings í þrotabú fóðurvörufyrir- tækisins ístess á Akureyri. Laxá hf. er með rekstur þrotabús fyrirtækisins á leigu og hefur gert 30 milljóna króna tilboð í eignir ís- tess. Norska fyrirtækið hefur svarað því með 60 milljóna króna tilboði og verði því tekið flyst starfsemin til Noregs. Eigendur Laxár hf. eru Kaupfélag Eyflrðinga, Akureyrarbær og Hrað- frystistöð Þórshafnar sem eiga 2 milljóna króna hlut, Byggðastofnun á 1,6 milljón og aðrir aðilar rúmlega hálfa milljón. Hluthafar hafa fundað um málið undanfarna daga og mun ákvörðunar varðandi það hvort ann- að tilboð verður gert í Istess að vænta mjög fljótlega. Laxa hf. a Akureyri: Reksturinn gengur alveg þokkalega - segir Guömundur Stefánsson framkvæmdastjóri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: „Rekstur Laxár gengur alveg þokkalega og við erum ekkert að kvarta," segir Guðmundur Stefáns- son, framkvæmdastjóri fóðurvöru- fyrirtækisins Laxár hf. á Akureyri, en það fyrirtæki var stofnað sl. sum- ar á rústum ístess hf. sem þá var lýst gjaldþrota. * Aðaleigendur Laxár hf. eru Kaup- félag Eyfiröinga, Akureyrarbær og Hraðfrystistöð Þórshafnar en aðrir eigendur eru Byggðastofnun, Raf- tákn á Akureyri, Dreki á Akureyri og Hlaðverk hf. í Kópavogi. Guðmundur segir að þrátt fyrir að reksturinn gangi þokkalega þá sé mikið óvissuástand erfitt við að eiga en fyrirtækið framleiðir fyrir fisk- eldisfyrirtæki og fyrirtæki í loðdýra- rækt. „Við sjáum ekki hvað verður í þessum greinum í framtíðinni og melbrosia FYRIR 8REYTINGARALDU RINN NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN Laugavegi 25, simi 10263. Fax 621901 Vinningstölur 1 21. des. 1991 (ÍL faX4)« VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5 af 5 6 445.640 2.4a7!« W 6 77.476 3. 4a(5 532 1.507 4. 3af 5 5.953 314 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.809.662 kr. BIRGIR 'j upplysingar símsvari91-681511 lukkulína991002 það gerir okkur erfitt fyrir. Við erum einnig með á tilraunastigi að auka fjölbreytni í framleiðslunni, t.d. með gæludýrafóðri og öðru skepnufóðri. Það er ætlunin aö reyna að skjóta styrkari stoðum undir fyrirtækið á þann hátt. Við erum einnig að kanna með útflutning en það kostar mikla vinnu og sækist frekar hægt.“ Það sem átti stóran þátt í því hversu erfiðlega gekk hjá ístess á sínum tíma var að fyrirtæki í fiskeldi og loðdýrarækt stóðu ekki í skilum við fyrirtækið en á sínum tíma fengu þessi fyrirtæki fóður hjá fyrirtækinu með greiðslufresti. „Það er langt síð- an slíkum viðskiptum var hætt enda sáu menn að þetta fyrirkomulag gekk ekki. Menn hættu þá að safna skuldum hjá fyrirtækinu og öll við- skipti í dag hafa eðlilegan gang hvað þetta snertir,“ sagði Guðmundur. I Hrísey: bArniil I KOvpiO ■ < á *ms og Ifaborg Valdís Þorstemsdóttir, DV, Hrísey: Mikill jólasvipur er nú yfir eyj- unni okkar - falleg Ijós á jólat- rénu við kirkjuna og ljósasería við kirkjutröppurnar. Kaupfélag Eyfirðina hefur um árabil gefið stórt tré sem staðsett er hjá kirkj- unni. íbúar eru að setja jólaljós utan á hús sín og í garða. Aöventuljós eru nánast í hvetju húsí og nú nálgast það að farið verður aö setja jólaseríur í glugga og þegar hátíðin gengur í garð finnst mér alltaf að þetta litla þorp sé sem falleg álfaborg eins og ég ímynda mér hana. Sú nýbreytni er nú að ljósa- krossar eru á leiöum ástvina og það eru Lionsmenn sem sjá um það. Frábært framtak finnst mér. Síðasti vinnudagur var á laug- ardag í frystihúsi KEA. Það er búin að vera mikil og góð vinna allt þetta ár og því kærkomið frí hjá mörgum. Vinna hefst aftur 13. janúar og vonandi verður næsta ár ekki síðra hvað atvinnu snertir og það sem nú er að líða. Mannlíf er hér ágætt og enginn barlómur í fólki. Því halda hér allir gleðileg jól. Skátar hafa sæmt Landsbankann, Umferðarráð og Umferðarnefnd Reykjavikur viðurkenningu fyrir þátttöku i um- ferðarátakinu „Látum Ijós okkar skína". Á myndinni eru Gunnar Eyjólfsson skátaforingi, Sverrir Hermannsson bankastjóri, Sigurður Helgason fulltrúi og Haraldur Blöndal borgarfulltrúi. DV-mynd Brynjar Gauti Bandalag íslenskra skáta: Heiðrar styrktaraðila í umferðarátaki - 40 böm verðlaunuð fyrir þátttöku í spumingakeppni Bandalag íslenskra skáta veitti nýlega Landsbanka íslands, Umferð- amefnd Reykjavíkur og Umferðar- ráði heiðursskjöl fyrir að hafa styrkt átak í umferðaröryggi bama síðastl- iðið haust. Átakið, sem bar yfirskrift- ina „Látum ljós okkar skína“, var miðað við það að gefa öllum sjö ára börnum á landinu endurskinsborða.-- Jafnframt varfjölskyldum barnanna gefið veglegt fjölskyldurit sem fjallar um öryggi barna heima og að heim- an. í ritinu var samkeppni í formi spurninga og tóku hátt í þúsund börn þátt í heinni. Dregið hefur verið úr réttum lausnum og fá 10 börn senda reiðhjólahjálma í verðlaun og 30 börn fá send bókaverðlaun. -kaa Rausnariega gjöf Lúðvíg Thorberg, DV, Tálknafirði: Grunnskóla Tálknafjarðar var formlega afhent nytsöm og góð gjöf þann 3. desember sl. Hér er um að ræða 5 tölvur og prentara, ásamt jafnmörgum borðum, að verðmæti 425 þúsund krónur. Leitað var til félaga og fyrirtækja hér í þorpinu um fjárstuðning og , brugðust þau svo vel og skjótt við að á einum mánuði náðist saman nægilegt fé til tölvukaupanna. Gef- endur voru 13 fyrirtæki og félaga- samtök. Helga Jónsdóttir annaðist söfnun- ina og afhenti gjöfma fyrir hönd þeirra sem gáfu, en skólastjórinn, Helga Sveinsdóttir, tók við og þakk- aði hina rausnarlegu gjöf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.