Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Side 22
42
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 1991.
Fréttir
,
Kirkjur voru yfirfullar yfir hátíöarnar, bæði á aðfangadag og jóladag, og þurftu margir frá að hverfa. Herra Olafur
Skúlason biskup þakkar aðsóknina auknu mikilvægi aðventunnar. DV-mynd Brynjar Gauti
Kirkjur yfirfullarum hátíðamar:
Þakka aðventunni
kirkjusóknina
- segir herra Ólafur Skúlason biskup
„Það var fullt í hverri einustu
kirkju á höfuðborgarsvæðinu á að-
fangadagskvöld og víðar um land
einnig. Eg frétti af því að á Akranesi
hefði kirkjan verið troðfull og safn-
aðarheimilið að auki þannig að mess-
unni var sjónvarpað yfir í safnaðar-
heimilið. Og kirkjur voru ekki bara
fullar á aðfangadag heldur líka á
jóladag. Ég hef þá skýringu á þessari
auknu kirkjusókn að aðventan hefur
vaxið í hugiun fólks,“ segir herra
Ólafur Skúlason biskup.
Víða var svo þétt skipaður kirkju-
bekkurinn að fólk þurfti frá að
hverfa og mynduðust langar biðraðir
sums staöar.
„Það hafa verið aðventuHvöld í
kirkjunum og það hefur tekist að
vekja tilfinningu fólks fyrir aðvent-
unni. Fólk sá þarna möguleika í ann-
ríki hversdagsins, sá friðsæla vin á
sunnudögum og hefur hagnýtt sér
þetta mjög mikið. Og nú er svo kom-
ið að aðventuhátíðin úti um alit land
er orðin einhver mesta hátíðin sem
söfnuðimir bjóða upp á. Fólk þiggur
útrétta hendi kirkjunnar í jólaann-
ríkinu," segir biskupinn.
Lögregla um allt land:
Róleg og tíðindalaus jól
Jólahald landsmanna fór fram þess vegna. á jóladagskvöld.
með mesta friði og spekt sam- Áfengisneysla á Þorláksmessu Margir varðstjórar höfðu orð á
kvæmt upplýsingum hjá lögreglu- var hvergi til vandræöa og fáir því að þessi jól væra með þeim
stöðvum um landið. Veður var alls þurftu að gista fangageymslur. í rólegustu síðustu ár og vonuöust
staöar mjög gott á jólanótt og jóla- Reykjavík voru fangageymslur til að áramótin yrðu jafn friðsæl.
dag og enginn lenti í vandræðum tómarfráaðfangadágsmorgnifram -JJ
Friðarjól í höf uð-
stað Norðurlands
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri.
„Þessir jóladagar hafa verið með
því allra rólegasta sem ég þekki og
er ég þó búinn að vera hérna lengi,“
sagði Matthías Einarsson, varðstjóri
hjá lögreglunni á Akureyri, en jólin
voru ákaflega friðsöm og róleg í höf-
uðstað Norðurlands og reyndar um
allt Norðurland.
Matthías sagði að ekki hefði veriö
mikil umferð í bænum en þó var
nokkur umferð fólks til kirkju hátíð-
isdagana og á milli húsa eins og ger-
ist og gengur. Að öðru leyti var allt
ákaflega rólegt og friðsamt og lög-
reglan þurfti ekki að hafa afskipti af
nokkrum nianni.
Sömu sögu er að segja frá Slökkvi-
liðinu. Þar var aðeins um eitt útkall
að ræða. Það var að Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á aðfangadag. Þar
hafði sprungið hitalögn og gufa, sem
myndaðist, setti af stað aðvörunar-
kerfi.
Það er óhætt að segja að friðaijól
hafi verið á Norðurlandi. Veöur var
ákaflega fallegt, logn og blíða, og hiti
við frostmark. Samgöngur fyrir há-
tíðina gengu mjög vel. Öllu flugi tókst
að ljúka á Norðurlandi nema til
Grímseyjar en þangað tókst ekki að
fara síðustu ferð, m.a. með mjólk og
rjóma. Samgöngur á landi gengu
einnig mjög vel og voru allir vegir
færir. Mikið var af skipum í höfninni
á Akureyri. Voru þau ljósum prýdd
og settu hátíðarsvip á bæinn.
Rafmagnsbilanir um hátíðamar:
Háspennustrengur
sló út í Kópavogi
- selta á búnaði olli rafmagnsleysi sunnan Skarðsheiðar
Rafmagnslaust varð í Kópavogi á
jóladag og stóð rafmagnsleysið í um
klukkutíma. Aðalháspennustreng-
urinn í Kópavogi bilaði og olli það
því að ekkert rafmagn var í bænum.
Samkvæmt upplýsingum frá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur er orsök
bilunarinnar ekki ljós en líklegt þyk-
ir að um hrörnun á strengnum sé að
ræða.
Þá var rafmagnslaust í sveitunum
sunnan Skarðsheiðar á aðfangsdags-
kvöld. Rafmagnið fór af um klukkan
18 og rafmagnslaust var í um tuttugu
mínútur. Ásgeir Þór Ólafsson, svæð-
israfveitustjóri á Vesturlandi, segir
að ástæðan fyrir rafmagnsleysinu
hafi verið selta á búnaði.
„Við þurftum að færa á milli
spenna á aðveitustöð á Brennimel til
að fá rafmagnið á aftur en þessi selta
hefur verið að valda okkur erflðleik-
um yfir hátíðarnar því að rafmagn
hefur dottið út örskamma stund í
senn nokkrum sinnum. Það er illt
að ráða við þetta og við erum að bíða
eftir að fá dágóða rigningardembu til
að skola seltu af einángrun og bún-
aði,“ segir Ásgeir Þór.
Ekki er ljóst hversu margir bæir
urðu rafmagnslausir en nokkuð stórt
svæði datt út, eða Leirársveit, Mela-
sveit, Hvalfjarðarstrandarhreppur
og Skilmannahreppur. -ns
Hefst verkfall
á miðnætti?
„Viðræðurnar hafa gengið nokk- að verkfall skellur á á miðnætti í
uð vel og samkomulag hefur náðst kvöld. Þetta er spurning um að
um öll atriðin nema eitt. Ég mun mjólkurfræðingar gera kröfu um
væntanlega boða til fundar klukk- að fá launahækkum umfram acra
an þrjú í dag," segir Guðlaugur og á þvi eigum við engan kost. Við
Þorvaldsson ríkissáttasemjari. höfum gengið frá samkomulagi við
Mjólkurfræðingar hafa boðað sex ófaglært starfsfólk í öllum mjólk-
sólarhringa verkfall sem hefst á urbúunum um afkastahvetjandi og
miðnætti í kvöld ef ekki nást samn- framleiöniaukandi launakerfi sem
ingar milli þeiira og Vinnuveit- við vonum að skili öllum árangrl
endasambands íslands og Vinnu- Við höfum boöið mjólkurfræöing-
málasambands sveitarfélaga, urn þátttöku í því og þurfum nátt-
Ef af verkfalli verður munu um úrlega á því að halda en það er
50 mjólkurfræðingar leggja niður engiim vegur til að við getum fall-
störf frá og með miðnætti í kvöld ist á sérstaka launahækkun gagn-
til 2. janúar. Verkfall verður þá hjá vartþessum hópi,“ segir Þórarinn.
Mjólkurbúi Flóamanna, Mjólkurs- Kristján Larsen, formaður
amsölunni, Mjólkursamlagi Borg- Mjólkurfræðingafélags íslands,
flrðinga, Mjólkursamlaginu á segir að krafa mjólkurfræðinga sé
Sauðárkróki, Mjólkursamfagi KEA ekki umfram það sem aðrir hópar
á Akureyri og Miólkursamlagi KÞ hafi fengiö.
á Húsavík. „Við erum að tala um allt aðra
Þórarinn V. Þórarinsson, fram- prósentu í starfsaldurshækkunum
kvæmdastjóri VSÍ, segir að þaö atr- heldur en til dæmis hjá ófaglærðu
iði sem ekki hefúr náðst samkomu- starfsfólki í mjólkurbúunum. Við
lag um sé að miólkurfræðingar vilji teljum að okkar krafa vegi um 4
fá aukahækkun í forroi starfsáld- prósent yfir heildina og við vifjum
urshækkana. Sú hækkun væri ræða þessi mál. Okkarviðsemjend-
umfram það sem ófaglært starfs- ur hafa ekki viljaö ræða neinar
fólk í mjólkurbúum hefur fengið. sérkröfur og við höfum haldíö þess-
„Um þessa hækkun getur ekki ari kröfu á lofti. En við erum til-
orðið aö ræða og viö erum hrein- búnir til að skoða ýmsa hluti.“
lega ekki til viðræðu um þetta atr- -ns
iði. Ég er ekki i nokkrum vafa um