Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1991, Side 32
52 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 1991. Afmæli Myndgáta Guðbrandur Yigfússon Guöbrandur Vigfússon, Bústaöa- vegi 105, Reykjavík, er áttatíu og flmmáraídag. Starfsferill Guðbrandur er fæddur að Kálfár- völlum í Staðarsveit og ólst þar upp til sjö ára aldurs. Hann vann við almenn sveitastörf sem unglingur og var síðar vinnumaður á Búöum 1925-27. Guðbrandur starfaði hjá Finnboga G. Lárussyni í Ólafsvík 1927-31 en keypti þá trillu í félagi við annan og starfaði sem vélamað- ur næstu tíu árin. Guðbrandur var starfsm. Vélsmiðju Ólafsvíkur 1941-62 og næstu fjögur árin þar á eftir hjá Olafsvíkurhreppi en 1966 fluttist hann til Reykjavíkur. Guð- brandur var við viðhald á vélum og tækjum í tæp þrjú ár hjá Agh Vil- hjálmssyni og starfaði síðan á Borg- arspítalanum 1968-60er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Guðbrandur var hreppsnefndar- maður í Ólafsvíkurhreppi í yflr 20 ár og þar af oddviti í tvígang, 1954-58 og 1962-66. Hann átti einnig sæti í stjórn Sparisjóðs Ólafsvíkur og Verkalýðsfélagsins Jökuls. Fjölskylda Guðbrandur kvæntist 8.10.1932 Elínu Snæbjörnsdóttur, f. 30.11. 1913, húsmóður. Foreldrar hennar: Snæbjörn Eyjólfsson sjómaður og Guðmunda Jónatansdóttir. Dóttir Guðbrands og Elínar er Guðrún Hildur, f. 15.2.1934, starfsm. á Landspítalanum í Reykjavík, maki Guttormur Þormar, f. 7.10.1925, verkfræðingur, fyrri maður Guð- rúnar var Jóhann Kristinn Ólason, f. 17.2.1931, d. 30.5.1969, rafvirki. Alsystkini Guðbrands voru tíu en eftirlifirÞorbjörg,f. 11.7.1905. Guð- brandur átti einn hálfbróðir, sam- mæðra, en hann lést ungur. Foreldrar Guðbrands: Vigfús Jón Vigfússon, f. 6.3.1860, d. 22.9.1923, bóndiíLandakotiogsíðarKálfár- . vöhum í Staðarsveit, og Sólveig Bjarnadóttir, f. 5.6.1858, d. 23.9.1912, ljósmóðir í Staðarsveitarumdæmi Guðbrandur Vigfússon. 1886-90. Guöbrandur mun ekki taka á móti gestum á afmælinu en ætlar að láta andvirði góðrar afmælisveislu renna til slysavamadeildarinnar í Ólafsvík sem ráðstafi síðan pening- unum í þyrlusjóð. Guðbrandur ósk- ar að láta þess getið við þá sem vildu heiðra hann með gjöfum á afmæhnu að þeir láti andvirðið renna í þyrlu- sjóð. Andlát Guðbjörg Pétursdóttir frá Höfn í Grindavík, lést á Hrafnistu, Hafnar- firði, að kvöldi 21. desember. Ólafur Þ. Jónatansson lést í Land- spítalanum 21. desember. Garðar Bjarnason, Snælandi 8, lést í Landspítalanum 22. desember. Guðrún Valgerður Oddsdóttir, Vest- urgötu 123, Akranesi, er látin. Sigrún Torfadóttir Kajiko lést í sjúkrahúsi í Toronto 21. desember. Kjartan B. Aðalsteinsson lyfsali, Urðarbraut 6, Blönduósi, andaöist laugardaginn 21. desember. Guðbjörg Pétursdóttir frá Höfn í Grindavík, lést á Hrafnistu í Hafnar- firði að kvöldi 21. desember. Jarðarfarir Toyota gefur Krabba- meinsfélaginu bíl Umboðsaðili Toyota á íslandi, P. Samú- elsson hf., hefur geflð Krabbameinsfélag- inu sendibifreið að gerðinni Toyota Hi Ace en verðmæti hennar er á aðra millj- ón króna. Bifreiðin, sem er hvít að Ut, hefur verið merkt Krabbameinsfélaginu. Páll Samúelsson, stjórnarformaður P. Samúelsson hf., afhenti Almari Grims- syni, formanni Krabbameinsfélags ís- lands, lykla að bifreiðinni. Almar Gríms- son þakkaði þessa höfðinglegu gjöf. Hann sagði að þetta væri fyrsta bifreiðin sem Krabbameinsfélagið eignaðist og hún mundi örugglega koma að góðum notum í þjónustu við þá fjölþættu starfsemi sem fram fer í húsinu sem þjóðin gaf félaginu og sjálfri sér. Hólmfríður Hjartardóttir frá Skaga- strönd, Grettisgötu 77, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 15. desember. Útfórin fer fram frá Fíladelfíukirkjunni í Reykjavík í dag, 27. desember, kl. 13.30. Tryggvi Kristinn Jónsson, fyrrver- ' andi frystihússtjóri, Dalvík, lést 20. desember. Útförin fer fram frá Dal- víkurkirkju laugardaginn 28. des- ember kl. 13.30. Guðlaug Ólafsdóttir frá Ólafsey, til heimilis á Dalbraut 27, áður Ránar- götu 7A, Reykjavík, lést 12. desember sl. Að ósk hinnar látnu hefur jarðar- förin farið fram í kyrrþey. Valgerður Sigurðardóttir, verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 27. desember kl. 15. Útför Lilju Torfadóttur, Laugarnes- vegi 51, Reykjavík, fer fram frá Ár- bæjarkirkju föstudaginn 27. desemb- er. Baldvin Þorsteinsson skipstjóri, Kot- árgerði 20, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn 28. desember kl. 11. Nýjar bækur frá Islenska Kiljuklúbbnum íslenski Kiljuklúbburinn hefm- sent frá sér þljár nýjar bækur: Málkrókar - þætt- ir um islensku - ambögur, orðfuni og daglegt álitamál eftir Mörð Ámason mál- fræðing hafa að geyma 60 þætti sem tek- ið er á fjölmörgum atriðum daglegs máls. Bókin er 240 bls. Þrúgur reiðinnar er Benjamín Markússon frá Ystu-Görð- um, Kolbeinsstaðahreppi, verður jarðsunginn frá Kolbeinsstaðakirkju laugardaginn 28. desember kl. 14. Bílferð verður frá BSÍ kl. 11. Útför Þorsteins Kristjánssonar, Laugamesvegi 42, fer fram í dag, 27. desember, kl. 16.30 frá Fossvogs- kirkju. Jarðsett verður frá Lágafelli. Arngrímur Bjarnason, fyrrverandi aðalfuUtrúi, Byggðarvegi 84, Akur- eyri, verður jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju í dag, 27. desember, kl. 13.30. Björn Björnsson, Kögurseli 20, verð- ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 27. desember, kl. 15. Ti3kyimingar Hálf milljón í þyrlukaupasjóð Slysavamarfélagi íslands hefur verið af- hent hálf milljón króna sem á að renna frægasta skáldsaga bandaríska rithöf- undarins Johns Steinbeck. Sagan kom út árið 1939 og er baksvið hennar krepp- an í Bandaríkjunum á fjórða áratugnum. Bókin er 522 bls. F - eins og í flótti er ný spennusaga eftir bandaríska höfund- inn Sue Grafton. Sagan fjallar um einka- spæjarann Kinsey Millhone. Bókin er 236 bls. í þyrlukaupasjóð. Þetta er afrakstur af sölu hljómplötunnar Ljóðbrot en frum- kvæði að þessari Uársöfnun átti Ingi Þór Kormáksson tónlistarmaður og hljóm- plötuútgáfan Hrynjandi. 50 af htmdraði af andvirði plötunnar renna í Þyrlu- kaupasjóð. Einherjar verðlaunaðir Hin árlega afhending verðlauna til þeirra kylfmga sem fóm „holu í höggi“ á þessu ári fer fram í dag í Drangeyjarsalnum aö Síðumúla 35 og hefst kl. 17.00. Eitthvað í kringum fjörutíu kylfmgar náðu þeim árangri á þessu ári að fara eina goflholu í einu höggi og er vonast til að þeir verði aUir samankomnir við verðlaunaafhend- inguna í dag. Það er Vangur hf. sem gef- ur öU verðlaunin. Meðferðarstarflö ber árangur 5kipu!ógð íhlutun hjá SÁA H vernig fer meðferð fram? Fjallað um ný lög SÁA SÁÁ blaðið kemur út Desemberhefti SÁÁ blaðsins er komið út. í blaðinu er m.a. sagt frá byggingu hins nýja meðferðarheimiUs Víkur á Kjalamesi. Þá er einnig að frnna í blaðinu grein um árangur meðferðarstarfsins hjá SÁÁ. Viðtal er við ráðgjafa á Vogi um það hvemig meðferð fer fram og fjaliað er um íhlutun sem aðferð til að hjálpa alkóhóUsta sem virðist ekki vUja neina hjálp. Einnig er rætt við nýkjörinn for- mann klúbbs sem SÁÁ hefur stofnað fyr- ir alkóhóUsta sem em 24 ára og yngri. SÁÁ blaðið fæst endurgjaldslaust á skrif- stofu samtakanna við Síðumúla 3-5. Myndgátan hér að ofan lýsir athöfn. Lausn gátu nr. 214: Talarvið matborðið Leikhús ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 11200 RÓMEÓ OG JÚLÍA eftir William Shakespeare Þýðandi: Helgi Hálfdánarson. Dramaturg: Hafliði Arngrimsson. Lýsing: Páll Ragnarsson. Búningar: Stefanía Adolfsdóttir. Leikmynd: Grétar Reynlsson. Leikstjórl: Guðjón Pedersen. Lelkarar: Rómeó - Baltasar Kor- mákur, Julía - Halldóra Björnsdóttir. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Helgi Skúlason, Þór H. Túlinius, Sigurður Skúiason, Anna Kristín Arngríms- dóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Hllmar Jónsson, Róbert Arnfinnsson, Sig- riður Þorvaldsdóttir, Erllngur Gisla- son, Árni Tryggvason, Steinn Ár- mann Magnússon o.fl. 2. sýn. föstud. 27. des. kl. 20.00. 3. sýn. laugard. 28. des. kl. 20.00. 4. sýn. sunnud. 29. des. kl. 20.00. 5. sýn. laugard. 4. jan. kl. 20.00. 6. sýn. sunnud. 5. jan. kl. 20.00. 7. sýn. fimmtud. 9. jan. kl. 20.00. etao lifá eftir Paul Osborn Föstud. 3. jan. kl. 20.00. Laugard. 11. jan. kl. 20.00. Fimmtud. 16. jan. kl. 20.00. Sunnud. 19. jan. kl. 20.00. M. BUTTERFLY eftir David Henry Hwang Föstud. 10. jan.kl. 20.00. Miðvikud. 15. jan. kl. 20.00. Laugard. 18. jan. kl. 20.00. LITLA SVIÐIÐ KÆRA JELENA eftir Ljudmilu Razuumovskaju Fimmtud. 2. jan. kl. 20.30. Uppselt. Föstud. 3. jan. kl. 20.30. Uppselt. Miðvikud. 8. jan. kl. 20.30. Föstud. 10. jan. kl. 20.30. Laugard. 11. jan. kl. 20.30. Miðvikud. 15. jan.kl. 20.30. Fimmtud. 16. jah. kl. 20.30. 50. sýning. Laugard. 18. jan. kl. 20.30. Sunnud. 19. jan. kl. 20.30. ATHUGIÐ AÐ EKKIER UNNT AÐ HLEYPA GESTUM INN í SALINN EFTIR AÐ SÝNING HEFST. BÚKOLLA bamáleikrit eftir Svein Einarsson Laugard. 28. des. kl. 14.00. Sunnud. 29. des. kl. 14.00. Sunnud. 5. jan.kl.14.00. Laugard. 11. jan. kl. 14.00. Sunnud. 12. jan. kl. 14.00. Síðustu sýningar, GJAFAKORT ÞJÓÐLEIKHÚSSINS -ÓDÝR OG FALLEG GJÖF Miðasalan er opin frá kl. 13-18 alla daga nema mánudaga og fram að sýningum sýningar- dagana. Auk þess er tekið á móti pöntunum í síma frá kl. 10 alla virka daga. GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA. GRÆNA LÍNAN 99-6160. Leikhúskjallarinn er opinn öll föstudags- og laugardagskvöld. Frumsýningargestir, sérstakur fjórréttaöur hátíðarmatseðill 2. joladag. Borðapantanir i miðasölu. Leikhúskjallarinn. Gleöileg jól

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.