Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991. Fréttir H valveiðar þó ekki haf nar við svo búið - segirÞorsteinnPálssonsjávarútvegsráðherra „Úrsögn íslands úr ráöinu þýöir ekki að hvalveiðar verði hafnar að nýju við svo búið. Fram undan er að leita eftir alþjóðlegu samstarfi um vemdun og nýtingu hvalastofna. í því sambandi munum við halda áfram þeim viðræðum sem við höf- um átt við þjóðir sem hagsmuna eiga að gæta í þessu sambandi," segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra. Eins og DV spáði í gær ákvað ríkis- stjómin á fundi sínum í hádeginu að „Við höfum alltaf verið með í jóla- getraun DV en aldrei dottið í lukku- pottinn. Nú ákváðum við að nota nafn dóttur okkar í von um að hún veitti okkur lukku og það má svo sannarlega segja að hún hafi gert það. Við verðum að launa henni þetta einhvern tíma seinna en ég er ansi hrædd um að tölvan komi henni ekki að miklum notum alveg á næstunni. Hún fékk hins vegar leikfangaritvél í jólagjöf og hamast alsæl á henni,“ sagði Ásdís Hafsteinsdóttir, móðir Iðunnar Ó. Grétarsdóttur, tveggja ára hnátu úr Kópavogi, þegar hún tók við fyrsta vinningi í jólgetraun DV á ritstjórn blaðsins í gær. Nafn Iðunnar Ó. Grétarsdóttur, Fagrahjalla 1, Kópavogi, kom upp þegar dregið var um Macintosh Classic einkatölvu frá Apple-umboð- inu, að verðmæti 99.980 krónur, í jólagetraun DV. Þátttaka í jólget- rauninni hefur sjaldan verið meiri en þúsundir lausna bárust alls staðar af landinu. Önnur verðlaun, Panasonic Gl myndbandstökuyél frá Japis, að verðmæti 59.950 krónur, hlaut Aðal- heiður Þórarinsdóttir, Nestúni 21, Hellu. Þriðju verðlaun, sambyggt úf- varps- og segulbandstæki með geisla- spilara frá Japis, að verðmæti 23.900 segja upp aðild að Alþjóða hvalveið- iráðinu þar sem það sé ekki lengur raunhæfur vettvangur fyrir alþjóð- legt samstarf um verndun og hagnýt- ingu hvalastofna við Norður-Atlants- haf. Eftir sem áður mun ríkisstjórnin virða alþjóðlegar skuldbindingar sínar og virða markmið og tilgang hafréttarsamnings Sameinuðu þjóð- anna varðandi samstarf ríkja um stjórnun hvalveiða. Samstaða var í ríkisstjórninni um þessa ákvörðun. Að sögn Þorsteins Pálssonar er það krónur, hlaut Ragnheiður Svein- þórsdóttir, Engjaseli 33, Reykjavík. 4.-6. verðlaun, Nasa leikjatölvur frá Radíóbúðinni, að verðmæti 14.900 krónur hver, hlutu: Katrín Anna Eyvindardóttir, Hest- hömrum 19, Reykjavík. Jónína Ósk Kristjánsdóttir, Njarðar- grund 2, Garðabæ. Ingunn Sighvatsdóttir, Tunprýði, Stokkseyri. 6.-12. verðlaun, Sony kassettutæki frá Japis með hljóðnema, að verð- mæti 6.950 krónur hvert, hlutu: Jóhanna Bjamadóttir, Meistaravöll- um 7, Reykjavík. Helga og Höður, Nönnugötu 7, Þórs- höfn. Elsa Hrönn Búadóttir, Nönnugötu 12, Reykjavík. Símon Rúnarsson, Víðigrund 16, Sauðárkróki. Sverrir Friðbjömsson, Staðar- hvammi 1, Hafnarfirði. Sigurður Bogason, Kjartansgötu 15, Borgarnesi. Fyrstu þrír vinningarnir hafa verið sóttir en vinningar 4-12 verða sendir vinningshöfum í pósti við fyrsta tækifæri. DV þakkar þeim þúsundum sem tóku þátt í jólagetraun DV aö þessu sinni og vonar aö þeir verði allir með um næstu jól. -hlh mat ríkisstjómarinnar að hvalveiði- ráðið sé orðið úrelt og óvirk stofnun. Starfshættir þess á undanfornum árum bendi ekki til að breyting verði á afstöðu þess til friöunar hvala og stjórnunar hvalveiða. Þá sé það ófært um að nota nútímaaðferðir við stjórnun sjávarauðlinda. Þorsteinn segist ekki óttast refsiað- gerðir af hálfu friðunarsamtaka vegna þessarar ákvörðunar ríkis- stjórnarinnar enda feli hún sem slík ekki í sér að hvalveiðar verði hafn- ar. Hann útilokar með öllu að hval- veiðar geti hafist næsta sumar hvernig sem mál annars þróist. Að sögn Þorsteins mun ísland starfa áfram innan hvalveiðiráðsins um nokkurra mánaða skeið þrátt fyrir ákvörðun ríkisstjórnarinnar, eða þar til úrsögnin tekur gildi, 30. júní næstkomandi. Því muni fulltrú- ar íslands sitja upphaf næsta árs- fundar. Aðspurður útilokar hann ekki að ísland dragi úrsögn sína til báka breyti ráðið starfsháttum. -kaa Dollarinn endaði um áramótin í fyrra í kringum 55,47 krónur. Eftir miklar sveiflur innan ársins virðist hann ætla að enda á svipuðu róli. Dollarinn í 55,49 kr. Sölugengi dollarans var í gær kom- ið niður í 55,49 krónur. Kaupgengið var 55,33 krónur. Búist er við að doll- arinn lækki enn meira á næstunni vegna hækkandi vaxta í Evrópu og lækkandi vaxta í Bandaríkjunum. Afsögn Gorbatsjovs hafði sáralítil áhrif á dollarann. Dollarinn endar á þessu ári á mjög svipuöu róli og um áramótin í fyrra. 31. desember'í fyrra var sölugengi hans 55,47 krónur. Dollarinn fór niður í um 53,65 krón- úr um miðjan febrúar á þessu ári. Síðan tók hann að hækka hratt í verði og var snemma í júlí kominn upp í um 63,90 krónur. Þau fyrirtæki sem skulda mikið í dollurum eða hafa miklar tekjur í dollurum sýndu eítir þessa hækkun dollarans fremur slæma útkomu í sjö mánaða uppgjörum. Síðan hefur dollarinn lækkað niður í um 55 krónur og við það hefur skuldastaða margra íslenskra fyrir- tækja stórbatnað. Þeir sem flytja út til Bandaríkjanna hafa hins vegar orðiðfyrirtekjutapi. -JGH Búnaðarbankinn: Andstaða við sölu Samkvæmt skoðanakönnun, sem Gallup á íslandi hefur gert fyrir Bún- aöarbanka íslands, er mikU andstaða meðal landsmanna viö sölu bankans. Könnunin var gerð dagana 8.-14. desember. Úrtakið var 1000 einstakl- ingar á aldrinum 15-75 ára. Svör fengust frá 660 eða 66%. Spurt var: Ertu fylgjandi eða and- vig(ur) því að Búnaðarbanki íslands verði seldur? 48,3% þeirra sem tóku þátt í könnuninni voru andvíg sölu á bankanum, 17,6% fylgjandi og 34,2% tóku ekki afstöðu. Af þeim sem tóku afstöðu voru 73,3% andvíg sölu en 26,7% fylgjandi. Dregið úr þúsunum lausna 1 jólagetraun DV: 16 mánaða hnáta f ékk fyrsta vinning - „héldum að hún mundi veita okkur lukku“ Nafn Iðunnar Ó. Grétarsdóttur, 16 mánaða hnátu úr Kópavogi, kom upp þegar fyrsti vinningur, Macintosh einkatölva, var dreginn út í jólgetraun DV. Iðunn var á leið á jólaball þegar hún koma á ritstjórn DV ásamt móð- ur sinni. DV-mynd Hanna Biðraðir mynduðust hjá verðbréfafyrirtækjum í gær: Sala hlutabréfa lif naði við Sala hlutabréfa hefur tekið kipp síðustu daga og voru miklar annir hjá verðbréfafyrirtækjunum í gær og mynduðust biðraðir. Flestir kaupenda eru einstaklingar að nýta sér skattafrádráttinn sem fæst með kaupum á hlutabréfum. Mest er selt af bréfum í svonefndum hlutabréfasjóðum. Hámarksskattafrádráttur fæst við kaup á hlutabréfum fyrir um 100 þúsund krónur fyrir einstakl- ing eða 200 þúsund fyrir hjón. Ein- staklingurinn fær við þá upphæð um 40 þúsund króna skattaafslátt. Hjón fá helmingi meira eða um 80 þúsund krónur. Ef bréfm eru end- urseld innan tveggja ára gengur skattafrádrátturinn til,baka. Tilboðsmarkaður Kaupþings tifar glatt Jón Snorri Snorrason, yflrmaður verðbréfaviðskipta Kaupþings, sagði að mikill straumur fólks hefði þegar komið í gærmorgun þegar opnað var og hefði svo verið allan daginn. „Það ætlar að verða góður endasprettur í sölu hlutabréfa og síðustu bréfin í Marel-útboðinu seldust í dag.“ Að sögn Jóns hefur tilboösmark- aður Kaupþings, sem er eini hluta- bréfamarkaðurinn sinnar tegund- ar hérlendis, verið mikiö notaður aö undanfomu. „Á tilboösmarkaði okkar eru núna kaupendur að hlutabréfum í nánast öllum hlutafélögum, sem eru með skráð gengi. Þeir sem eiga hlutabréf og vilja selja þau geta gengiö hér að kaupendum vísum. Söluverð bréfanna ræðst svo af því sem seljendur og kaupendur koma sér saman um.“ Tilboðsmarkaður Kaupþings virkar þannig að sá sem ætlar aö kaupa hlutabréf sér hvaða bréf eru til á markaðnum og á hvaða gengi og gerir kauptilboð í framhaldi af því. í tilboðinu kemur fram hversu mikið magn bréfa hann vilji kaupa og á hvaða gengi. Sami ferill er hjá þeim sem ætlar að selja hlutabréf. Upplýsingar um bæði kaup- og sölutilboð eru síðan sendar daglega til allra þeirra sem eru með tilboð á markaðnum auk margra annarra í fjármálaheiminum, eins og lífeyr- issjóða. Kippur hjá VIB Svanbjörn Thoroddsen, yfirmað- ur verðbréfaviðskipta VÍB, sagði í gær að sala hlutabréfa væri öll að lifna við og hefði salan tekið kipp þegar á Þorláksmessu. VÍB stað- greiðir fyrir hlutabréf í Hlutabréfa- sjóði VÍB og Hlutabréfasjóðnum hf. Gengi bréfa íToll- vörugeymslunni hækka Agnar Jón Ágústsson, yfirmaður verðbréfaviðskipta Fjárfestingar- félagsins, sagði í gær að sala hluta- bréfa hefði aukist verulega í gær. Fjárfestingarfélagið staðgreiðir nú kaup á bréfrnn í fjórum félögum; Almenna hlutabréfasjóðnum, Fjár- festingarfélaginu, Skagstrendingi og Tollvörugeymslunni. „Við höfum hækkað kaupgengið á bréfum í Tollvörugeymslunni þar sem okkur vantar bréf í því fyrir- tæki,“ sagði Agnar. Góð sala Landsbréfa Sigurbjörn Gunnarsson hjá Landsbréfum sagði að sala hluta- bréfa hefði gengið glatt í gær. Landsbréf kaupa hlutabréf í þrem- ur félögum gegn staðgreiðslu; ís- lenska hlutabréfasjóðnum, OUs og Tollvörugeymslunni. Önnur hluta- bréf eru tekin í umboðssölu. Sigur- björn segir að sala bréfa í íslenska hlutabréfasjóðnum sé í desember orðin svipuð og í desember í fyrra. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.