Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Blaðsíða 40
48
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991.
Andlát
Ragna Einarsdóttir andaöist í Borg-
arspítalanum 25. desember.
Kolfmna Jóhannesdóttir, Egilsgötu
8, Borgarnesi, fyrrum húsfreyja í
Krossnesi, Áiftaneshreppi, lést 25.
desember.
Eyjólfur Runólfsson lést aö Skjól-
garði, Höfn, Hornafirði, á jóladag.
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir frá
Syðsta-Bæ lést á Hombrekku, Ólafs-
flrði, annan dag jóla.
Steinunn Kristinsdóttir, áður til
heimilis að Ránargötu 32, lést að
Hjúkrunarheimilinu Skjóli að kvöldi
jóladags.
Eggert B. Pétursson, fyrrverandi
póstafgreiðslumaður, andaðist á
Hrafnistu, Reykjavík, þriðjudaginn
24. desember.
Siggeir Gunnarsson, Hátúni 12, lést
24. desember.
Magnús Þórðarson, 2. götu 6 við
Rauðavatn, lést á Borgarspítalanum
25. desember.
Anna Berglind Jóhannesdóttir Bo-
uvier lést á heimili sínu í París að
morgni 24. desember.
Ellert Hannesson, Grænukinn 12,
Hafnarfirði, lést á heimili sínu 23.
desember.
Jóna Guðrún Jónsdóttir, Skjóli við
Kleppsveg, lést að morgni 26. des-
ember.
Bjarney Samúelsdóttir hjúkrunar-
kona andaðist í Borgarspítalanum
23. desember.
Davíð Sigurjónsson lést á dvalar-
heimilinu Nausti, Þórshöfn, að
morgni 26. desember.
Símon Egill Sigmundsson lést í
Sjúkradeild DAS, Hafnarfirði, 26.
desember.
Tapað-fimdið
Peningabudda tapaðist
í Hraunbæ
Svört peningabudda með 24 þúsund
krónum og sex þúsund króna ávísun tap-
aðist í byrjun des. á planinu fyrir utan
Hraunbæ 56-76. Finnandi vinsamlegast
hringi í Margréti Helgadóttur i síma
671243.
í MYRKRI OG REGNI
eykst áhættan verulega!
Um það bil þriðja hvert slys í umferðinni
verður í myrkri. Mörg þeirra í rigningu
og á blautum vegum.
RÚÐUR
ÞURFA AÐ VERA HREINAR.
UMFERÐAR
Tónleikar
Einsöngstónleikar
Aðalsteinn Einarsson bassi heldur tón-
leika í Njarðvíkurkirkju 2. janúar og í
Hafnarborg, Hafnarfirði, 3. janúar. Báðir
tónleikarnir heflast kl. 20.30. Miðar verða
seldir við innganginn og miðaverð er kr.
700 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir nem-
endur. Á efnisskránni eru þýsk ljóð, is-
lensk sönglög og aríur úr óperum eftir
Mozart og Verdi. Undirleikari er Ólafur
Vignir Albertsson.
Tilkynrungar
Félag eldri borgara
Göngu-Hróifar heimsækja Hana-nú hóp-
inn í Kópavogi laugardaginn 29. desem-
ber. Farið frá Risinu kl. 10.
Kvenfélag Óháða
safnaðarins
Jólatrésskemmtun barna verður í dag,
laugardag, kl. 15 í Kirkjubæ.
Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti slitið
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti var slit-
ið 20. desember sl. í Fella- og Hólakirkju.
Á haustönn stunduðu 1500 nemendur
nám í dagskólanum á sjö sviðum skólans
og rúmlega 1000 nemendur stunduðu
margvíslegt nám, m.a. réttindanám í
kvöldskólanum. 149 kennarar eru við
skólann. Að þessu sinni útskrifuðust 72
stúdentar, 60 úr dagskóla og 12 úr kvöld-
skóla. Hæstu einkunn hlaut Kristín
Hrönn Þorbjörnsdóttir af náttúrufræði-
braut dagskólans. Skólameistari Fjöl-
brautaskólans í breiðholti er Kristín Am-
alds. Skólinn hóf göngu sína 1975 og var
fyrsti fjölbrautaskóli landsins.
Kolaportið í fríi
til 11. janúar
Fastagestir í Kolaportinu verða að fmna
sér eitthvað annað til skemmtunar tvær
næstu helgar því markaðstorgiö er í jóla-
fríi og byrjar ekki aftur fyrr en 11. jan-
úar. Markaðstorgið verður þriggja ára í
apríl nk. og vinsældir þess hafa stöðugt
farið vaxandi. í Kolaportinu er sífellt
verið að brydda upp á nýjungum og fyrsti
markaðsdagurinn á nýju ári mun örugg-
lega koma gestum þægilega á óvart því
verið er að vinna að ýmsum skemmtileg-
um málum sem koma þá til fram-
kvæmda.
30 ára afmælishátíð SÍNE
Jólaráðstefna SÍNE verður haldin þann
30. desember kl. 15 á Lækjarbrekku
(Komhlöðunni). Að loknum hefðbundn-
um ráðstefnustörfum eða um kl. 16.30
verður haldið upp á 30 ára afmæli SÍNE.
Þema afmælisins verður „Gildi mennt-
unar á erlendri gmnd“. í tilefni þess
flytja Emil Bóasson landfræðingur, Páll
Skúlason prófessor og Magnús S. Magn-
ússon fyrirlestra. Ása Briem píanóleikari
Um leið og ég þakka þeim sem á margvíslegan hátt
sýndu mér vinsemd og virðingu á sjötugsafmæli
mínu þann 18. desember óska ég þeim velfamaðar
á komandi ári.
Snæbjöm Jónasson
Jólagál Munið eft nrDV: ir að skila
inn lai Lesendur eru hér með minntir á isnum glæsileg að vanda. Fyrir jóla-
að dregið verður úr réttum lausn- myndagátuna era FISHER og
gátu DV 10. janúar næstkomandi Sjónvarpsmiðstöðinni hf. í verð-
og því þarf að vera búið að skila laun. Verðlaunin fyrir jólakross-
lausnum fyrir þann tíma. Gátumar gátuna eru INNO-HIT ferða-
voru i sioasia neigaruiaoi. Verðlaunin fyrir þessar gátur eru frá Radíóbæ.
leikur nokkur lög og Guðný Amadóttir
messósópran syngur við undirleik Guð-
rúnar Guðmundsdóttur.
Júlíana segir frá Reykja-
víkurmyndum Jóns Helgason-
ar
í dag, 28. desember, mun Júlíana Gott-
skálksdóttir listfræðingur koma í lista-
salinn Nýhöfn í Hafnarstræti og fræða
gesti um sýningu Árbæjarsafns þar á
málverkum og teikningum Jóns Helga-
sonar biskups. Á sýningunni er úrval af
Reykjavíkurmyndum Jóns úr eigu Ár-
bæjarsafns. Sýningin er opin til 5. jan-
úar, virka daga frá kl. 12-18 og um helgar
kl. 14-18. Aðgangut- er ókeypis og öllum
opinn. Leiðsögn Júlíönu Gottskálksdótt-
ur um sýninguna hefst kl. 15.
Jólaball kvenfélags
Seltjarnar
verður í félagsheimilinu í dag, 28. des-
ember, kl. 15.
Breiðfirðingafélagið
Jólatrésfagnaður verður í Breiðfiröinga-
búð á morgun, 29. desember, og hefst kl.
15.
ÁRSRiT SKÓGRÆmRFÉLAGS ÍSI.ANDS
Skógræktarritið er komið út
Meðal efnis í ritinu er fróðleg grein um
reka við ísland þar sem prófessor Ivar
Samset frá Landbúnaðarháskólanum í
Noregi gerir ítarlega grein fyrir könnun
á rekavið á Ströndum. Sumarbústaðir og
sumarbústaðarlóðir nefnist grein eftir
þijá landslagsarkitekta, Snorri Baldurs-
son skrifar um liftækni í skógrækt. Páll
Bergþórsson veðurfræðingur fjallar um
hlut Islands í vemdun skóga og Jóhann
Guðjónsson líffræðikennari segir ffá
notkun tijágróðurs í kennslu. Þórarinn
Benediktz hefur tekið saman forvitnileg-
ar upplýsingar um hæstu og stærstu trén
á íslandi og fyrrverandi skógræktar-
stjóri, Sigurður Blöndal, segir frá mikil-
vægi jarðvinnslu. Margt fleira getur að
líta í ritinu, m.a. fylgir því ffæðslubækl-
ingur um gróðursetningu sem sérstak-
lega verður prentaöur og dreift til grunn-
skóla. Skógræktarritið fæst hjá Skóg-
ræktarfélögum, í bókaverslunum á höf-
uðborgarsvæðinu og á skrifstofu Skóg-
ræktarfélags íslands, Ránargötu 18, Rvk.
Jólablað Húsfreyjunnar
Jólablaö Húsfreyjunnar 1991 er komið
út. Umfjöllunarefni blaðsins að þessu
sinni er samhjálp og skrifar sr. Bernharð-
ur Guðmundsson aðalgreinina um það
efni. Einnig er grein um samhjálp kvenna
og sagt frá starfi slysavamafélagsins að
slysavömum barna. Þá er fjölbreytt jóla-
efni í blaðinu, handavinna, matur, fóndur
og ffásagnir.
Flugeldasýning KR-
flugelda
Árleg flugeldasýning KR-flugelda verður
sunnudaginn 29. desember á KR-svæðinu
við Frostaskjól. Sýningin hefst stundvís-
lega kl. 20.30. Ágæt aðstaða er fyrir áhorf-
endur í stúkunni við knattspymuvöll KR.
KR-flugeldar flytja inn sérstakar sýning-
arvörur, einkum frá Þýskalandi og Ítalíu,
einungis til notkunar á þessari sýningu.
Jóla- og áramófa-
sveifla í Perlunni
Jasstónleikar, hinir fyrstu í Pérlunni,
verða sunnudaginn 29. desember kl. 22.
Á fyrri hluta tónleikanna verða ýmsar
perlur jassbókmentanna teknar fyrir, svo
sem: Spain, Solar, Georgia on my Mind,
og fl. Á síðari hluta tónleikanna verður
þekktum jóla- og áramótalögum sveiflað
með frjálslegum hætti.
Myndgáta
Laugardagsganga Hana nú
Laugardaginn 28. desember koma
Göngu-Hrólfar úr Reykjavík í heimsókn.
Við gefum okkur góðan tíma fyrir bakk-
elsi og kaffi. Og eftir góðra vina fund í
Fannborg 4 verður farið út á Ráöhústorg
Kópavogs og stiginn áramótadans í
kringum jólatré. Allir Kópavogsbúar em
velkomnir í þessa áramótastemmningu
Hana nú og Gönguhrólfa.
1. vinningur; KR. 2.731.313."
211357
2.-11. vinningur, hver vinningur: KR. 163.879.
107635 120615 148233 163510 186441
116449 143043 161859 181423 193280
12.-111. vinningur, hver vinningur: KR. 10.925.
101408 144259 162867 174609 190918 205088
106988 144325 162915 175071 190952 205273
107140 144340 163405 176002 191011 206125
107621 146619 163594 176039 192868 206837
110455 153434 1644Í7 176254 194719 206957
110804 156009 164601 176640 199484 207598
111618 156021 164838 178270 199810 209288
114900 156204 164876 179821 200665 209471
116004 157227 165463 180625 200693 217061
116418 157846 165483 182413 201411 219411
119832 159120 166817 183211 201485 220809
120701 159247 167474 183444 202242 220902
129664 159449 168470 185175 202278 221807
134882 160481 169634 188830 202357 222408
140405 160521 170892 189227 203659 224471
142811 160709 172059 189367 204474
143353 162213 172309 190029 205006
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ISLANDS