Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 28. DESEMBER 1991.
Veiðivon
Stangaveiðifélag Reykjavíkur:
Þessa dagana eru félagar í Stanga-
veiðifélagi Reykjavíkur að spá í spil-
in fyrir næsta sumar, en núna fyrir
jólin fengu þeir hinn árlega jóla-
glaðning frá félaginu. Þetta er reynd-
ar ekki jólapakki í öllum regnbogans
litum, heldur listi yfir veiðiárnar sem
félagið býður upp á næsta sumar og
verðið á þeim. En Stangaveiðifélag
Reykjavíkur býður upp á fjölda
veiðisvæða fyrir sína félagsmenn og
við skulum aðeins kíkja nánar á
þetta mál. Rýna í listann góða.
Þær veiðiár sem boðið er upp á eru
Elliðaárnar, Brynjudaisá, Svínadal-
ur, Laxá í Leirársveit, Hvítá í Borgar-
firði, Langá Fjallið, Gljúfurá, Norð-
urá, Miðá í Dölum, Flekkudalsá,
Tungufljótið, Stóra Laxá í Hreppum,
veiðisvæði í Hvítá í Ámessýslu og
Sogið.
Hálfur dagurinn í Elliðaánum er
seldur á 7200 kr. í Brynjudalsá í Hval-
firði er ódýrasti dagurinn á 5700 kr.
en dýrasti á 13.900 kr. í Selósi í
Svínadal er dagurinn á 6600 allt sum-
arið. í Þverá í Svíndal er ódýrasti
dagurinn á 4900 kr. upp í 9200 kr. í
Laxá í Leirársveit er ódýrasti dagur-
inn á 19.800 kr. en sá dýrasti á 34.900
kr. í Gljúfurá í Borgarfirði er hægt
að komast í ódýrast 8600 kr. en dýr-
ast 18.700 kr. í Norðurá í Borgarfirði
á Flóðatangann er hægt að komast í
laxveiði fyrir 2200 kr., en ofar í Norð-
urá er dýrasti dagurinn á 49.600 kr.
í Langá, á Fjallinu, er ódýrast 5500
kr. en dýrast 21.600 kr. í Miðá í Döl-
um er hægt að komast í veiði fyrir
3200 kr. ódýrast á dag en dýrasti dag-
urinn þar er 13.600 kr. í Flekkudalsá
á Fellsströnd er ódýrasti dagurinn á
11.700 kr en sá dýrasti á 22.400 kr. í
Stóru Laxá í Hreppum er ódýrast
Það er hægt að veiöa viða hjá Stangaveiðifélagi Reykjavikur þetta ár:ð, hvort sem það er í Laxá í Leirársveit
eða Norðurá í Borgarfirði svo fátt eitt sé talið. DV-myndir G.Bender og SÁM
7500 en dýrast 12.100 kr. í Sogið er
hægt að komast ódýrast fyrir 1900
kr. fyrir landi Ásgarðs í silungsveiði
meö laxavon, en dýrast á laxveiöi-
svæði Ásgarðs fyrir 15.100 kr.
Það sést á þessu að veiðimenn
koma ekki að tómum kofunum hjá
Stangaveiðifélaginu þetta árið og er
margt gimilegt í boði. Spumingin er
bara hvað er það rétta og hvar verð-
ur fiskurinn næsta sumar?
Líka eru það veiðiárnar í Borgar-
firðinum sem verða sterkar næsta
sumar, þar eru öll net upp í næstu
þijúárin. -G.Bender
Þjóðar-
spaug DV
Ljótur og lélegur
Steingrimi Eyflörð lækni var
einhverju sinni gefinn steinbitur
á bryggjunni á Akureyri. Ekki
hefur nú Steingrími litist vel á
fiskinn því hann kvað:
Djöfull er hann drullugur
duglega þarf að skaf ann.
Ljótur bæði og lélegur,
likur þeim sem gaf ann.
Aftur í morgun
Eldri hjón utan af landi komu
eitt sinn til Reykjavíkur til að
leita sér iækninga við ýmsum
kvillum og meðal annars kvart-
aði bóndinn um kyndeyfð.
„Og hvenær fór nú aö bera á
kyndeyfðinni?“ spurði læknirinn
alvarlegur.
„í gærkvöldi," svaraði bóndinn.
„Og svo aftur í morgun," gall
konan hans við.
Myrkfælni
Tómas Guðmundsson skáld var
eitt sinn spurður hvort hann
hefði verið myrkfælinn sem
krakki.
„Hvort ég var,“ svaraði Tómas.
„Ég var svo myrkfælinn aö ég
óskaði þess stundum að sjá draug
svo ég yrði ekki einsamall.“
Vörðumar
Hjón frá íslandi fluttu vestur til
Washington. Er þau höíðu búið
þar i skamman tíma kom vinur
þeirra frá Skagaströnd í heim-
sókn. Vildu hjónin endilega sýna
honum borgina og því var sest út
í bíl og ekið af stað. Fljótlega villt-
ist þó eiginmaöurinn af leiö án
þess að vekja athygli hinna á þvi
en er hann hafði hringsólað í
nokkur skipti fram hjá styttu
George Washingtons heyrðist
Skagstrendingurinn muldra í aft-
ursætinu:
„Mikiö svakalega eru vörðum-
ar héma sérkennilegar."
Ófullur
Einar Benediktsson skóld
komst svo aö orði um kunnan
templara:
„Eg veit ekki til að það liggi
annaö eftir hann á lífsleiöinni en
að hann hefur alla ævi veriö að
strita við að vera ófullur."
Margt gimilegt í boði
fyrir veiðigeggjarana
Finnur þú fimm breytingar? 135
Hvers vegna getur þú ekki sleppt þeim stóra eins og allir aörir sport- Nafn:.....
veiöimenn gera?
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heirinlisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: SHARP stereo
ferðaútvarpstæki með kas-
settu að verðmæti kr. 6.380 frá
Hljómbæ, Hverfisg. 103.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.941.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Á elleftu stundu, Falin
markmið, Flugan á veggnum, Leik-
reglur, Sporlaust. Bækumar em
gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 135
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
þrítugustu og þriðju getraun
reyndust vera:
1. Droplaug Pétursdóttir
Skipasundi 19, 104 Reykja-
vík
2. Auður Arna Antonsdóttir
Fossgötu 4, 735 Eskifirði
Vinningarnir verða sendir
heim.