Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1991, Side 29
LAUGARDAGUR 28. DRSEMBER 1991 37 Trimm Landsbankafólk í líkamsrækt: Byggir upp umfram- orku og vinnudagur- inn verður léttari „Þeir sem mæta hingað í leikfimina eru í góðu formi en ég veit auðvitaö ekkert um hina starfsmenn Lands- bankans sem sitja heima. Það voru margir sem byrjuðu í haust og komu í 4-5 vikur en hættu en svo hefur líka einn og einn verið að slæðast inn aftur. Mætingin er auö- vitað misjöfn en mest hafa um tutt- ugu manns mætt á einu kvöldi," sagði Ásta Sigríður Guðmundsdótt- ir sjúkraþjálfari í samtali við DV. Áhersla á hálsog herðar í kjallara útibús Landsbankans í Mjóddinni í Breiðholti er lík^ms- ræktarsalur ætlaður starfsfólki bankans og er hann opinn sex daga vikunnar en þó mislengi á hveijum degi. Trimmsíðunni lék hugur á að kynnast starfseminni örlítið nánar og gerði sér því ferð í Breiðholtið rétt fyrir jólin. Bankamenn hafa sennilega verið, líkt og aðrir lands- menn, á kafi í jólaundirbúningi því fáir voru í salnum þetta kvöld sem Ásta Sigríður var við leiðbeiningu en þær sem mættar voru létu slæ- lega mætingu ekki á sig fá og tóku á af fullri alvöru. „Ég er með þolfimi og styrktaræf- ingar þar sem áherslan er lögð á háls og herðar því þetta fólk vinnur mikla kyrrstöðuvinnu. Ég liðka axlirnar og eins nudda þær hver aðra, þá er teygt vel og reynt að auka þolið. Ég læt þær líka gera styrktaræfingar og tek einnig fyrir grindarbotninn og svo erum við líka með slökun," segir Ásta við blaðamanninn þegar þau hafa komið sér fyrir í litlum en ágætlega útbúnum tækjasal. Flestirbeita sérrétt Bankamenn eins og margar aðrar stéttir eyða megninu af vinnudeg- inum fyrir framan skrifborðið þar sem setið er daglangt en sjúkra- þjálfarinn segir að það sé ekki tek- ið fyrir sérstaklega í Íeikfiminni hvernig sitja eigi rétt við skrifborð- ið. Hún segist taka fyrir hvernig' fólk eigi að bera sig að þegar það er að lyfta hlutum en annar sjúkra- þjálfari hafi tekið fyrir þáttinn sem komið var inn á og flestir kunni nú að beita sér rétt í þeim efnum. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég leið- beini en ég er tiltölulega nýútskrif- uð. Mér finnst þetta ágætt en það mætti auðvitað vera betri mæting. Það er yfirleitt dauður punktur á milli sjö og fram undir átta en svo getur maður líka lent í því að kenna þolfimi í þijár klukkustundir sam- fleytt og það er of mikið.“ Lands- bankafólk líkt og aðrir fer í líkams- ræktina að afloknum vinnudegi en hveiju svarar Ásta Sigríður því að þá sé fólk of þreytt til að fara aö taka á. Gottframtak hjá bankanum „Nei, vegna þess að ef þú byggir þig upp og ferð alltaf eftir vinnu «MNtM Viðkomandi á líða vel eftir tima í líkamsrækt og hlakka til þess næsta, segir Ásta Sigríður. Fólk er alltaf að verða meðvitaðra um likamann og öll fræðsla í þeim efnum hefur stóraukist. Hafa ber í huga að líkamsrækt á að skapa velliðan en ekki vanliðan. ' ■ w< ; Þær gáfu sér tíma frá jólaundirbúningnum til að mæta i líkamsræktina. Frá vinstri: Kristín Gunnarsdóttir, Svana Samúelsdóttir og Hulda Árnadóttir. Þær stöllur segjast mæta að jafnaði tvisvar i viku og lofuðu jafn- framt mjög framtak fyrirtækisins og sögðu einnig að þetta væri ágætis launauppbót. DV-myndir Sveinn þá verður þú ekki eins þreyttur. Þú færð meira þol og verður hress- ari að aíloknum vinnudegi. Þú byggir upp umframorku og vinnu- dagurinn verður líka léttari og þér líöur betur. Framtakiö hjá bankan- um í þessum efnum er líka mjög gott og þaö ættu fleiri vinnustaðir að fylgja fordæmi þeirra." Ásta Sigríður segir aö fólk sé allt- af að verða meðvitaöra um líkam- ann og öll fræðsla í þeim efnum hafi stóraukist. Það sé lika meira áberandi hvað fólk sé farið að hreyfa sig meira en áður en hafa ber í huga að líkamsræktin á að skapa vellíðan en ekki vanliðan. Púlsinn á að hækka ákveðiö mikið og honum á að halda í tuttugu mín- útur, vera milli 60 og 80 af há- markspúls, tvisvar í viku er fint, en ekki að titra og skjálfa þegar komið er út úr líkamsræktartímum eins og því miður vill koma fyrir. Viðkomandi á að líða vel eftir tím- ann og hlakka til þess næsta. Spurning um forgangsröð „Fólk verður að gefa sér tíma þegar líkamsræktin er annars veg- ar. Auðvitað eru margir sem koma hingað sem eru jafnvel farnir að huga að kvöldmatnum áður en tíminn er búinn og stundum hugs- ar maður svona sjálfur. En það er samt alveg hægt að hagræða tím- anum og breyta aðeins til. T.d. að elda tvöfalt daginn áður og hita bara upp eða borða eitthvaö kalt það kvöldið. Annars er þetta bara spurning um forgangsröð og hvað maður lætur ganga fyrir,“ sagði Ásta Sigríður að lokum. -GRS AEROBIC Skráningarstaðir: Reykjavík: Suzuki bílai hf„ Gym 80, Stúdíó Jónínu og Ágústu, Ræktin og World Class. Kópavogur: Alheimskraftur Hafnarfjörður: Hress Keflavík: Líkamsrækt Önnu Leu og Bróa, Æfingastúdíó og Perlan Akureyri: Dansstúdió Alice ísafjörður: Studio Dan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.