Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992. 3 Fréttir Hollenskt ráðgjafarfyrirtæki mælti gegn sameiningu Borgarspítala og Landakots: Sóun fjármuna og lakari þjónusta við sameiningu „Sameining Borgarspítalans og Landakotsspítala gengur gjörsam- lega á skjön viö tillögur hollensku rekstrarráðgjafanna frá því sumar. Þeir mæltu gegn tveimur jafnstórum sjúkrahúsum þar sem um sam- keppni mundi veröa að ræða um starfsfólk, fjármagn og jafnvel sjúkl- inga. Þessi sameining, sem nú er verið að ræða, er að mínu mati ekki góður kostur. Afleiðingin gæti orðið sú að kostnaðurinn við heilbrigðis- þjónustuna ykist á ný,“ segir Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri stjóm- unarsviðs Ríkisspítalanna. Síðasthöið sumar skilaði hollenska rekstrarráögjafarfyrirtækið Moret Emst & Young skýrslu til stjórnenda Ríkisspítalanna um framtíöarstöðu Landspítalans. Skýrslan tók einkum á æskilegri samsöfnun og dreifingu sjúkrahússþjónustu á höfuðborgar- svæðinu. Meginniðurstaðan var sú að rétt væri að sameina Landspítal- ann og Borgarspítalann í eitt stórt hátæknisjúkrahús til að koma í veg fyrir óþarfa samkeppni mn fjármagn og bæta þjónustuna á sem ódýrastan hátt. Að sama skapi var lagst gegn sameiningu Landakotsspítala - og Borgarspítala. Versti kosturinn valinn Að sögn Péturs vora stjórnendur Ríkisspítalanna mjög sáttir viö efni skýrslunnar enda rökstuðningur rekstrarráðgjafanna gildur. í ljós kom hins vegar að af hálfu Borgar- spítalans var mikil andstaða gegn sameiningu við Ríkisspítalana. Þrátt fyrir rökstutt álit hollensku rekstrarráðgjafanna, sem allir hafa viðamikla reynslu af skipulagningu heilbrigðisþjónustu, virðist Sighvat- ur Björgvinsson heilbrigðisráðherra hafa valið að hunsa skýrslu þeirra. Yfirlýst stefna hans er að sameina Borgarspítalann og Landakotsspítal- ann þrátt fyrir þau vamaðarorð hol- lensku sérfræðinganna að kostnað- urinn kunni að aukast. Formlegar samningaviðræður standa nú yfir milh stjómenda Borg- arspítalans og Landakots um sam- einingu. Til að auðvelda ákvörðunar- tökuna hefur hehbrigðisráðherra skorið rekstrarframlög til Landakots stórlega niður en boðið aukna fjár- muni náist samkomulag. Gangi sam- einingin eftir verða starfandi í Reykjavík tveir næstum jafnstórir hátæknispítalar sem óhjákvæmilega munu lenda í samkeppni, samkvæmt skýrslu rekstrarráðgjafa Emst & Young. Megintillaga Hollendinganna MegintiUaga Emest & Young felur í sér að með samrana Ríkisspítal- anna og Borgarspítalans náist sam- söfnun þverfaglegrar, óalgengfar, mjög sérfræöilegrar og hátæknilegr- ar bráðaþjónustu á einn th tvo staði. Að auki geti samruninn leitt til al- mennrar dreifingar einsfaglegrar, algengrar, fremur almennrar, lág- tæknilegrar og valfijálsrar þjónustu. Kostimir við samsöfnun sérhæfðr- ar sjúkrahússþjónustu era að mati Emest & Young betri nýting sjúkra- deilda vegna stærðar, auknir mögu- leikar á frekari sérhæfingu lækna, minni stjómunarkostnaður, auknir möguleikar á menntun og rannsókn- um. Að auki gæfist læknum og hjúkrunarfólki betra svigrúm til að bera saman og ræða meðferðar- mynstur. Hvað varðar aðra almenna heil- brigðisþjónustu er það mat hol- lensku ráðgjafanna að dreifing henn- ar sé af hinu góða. Hún geti leitt til kostnaðaraðhalds sem komi skatt- greiðendum til góða og meiri gæða sem sé sjúklingum hagstætt. Fámenni kallar á samruna Hohensku rekstrarráðgjafarnir segja að samruni Ríkisspítalanna og Borgarspítalans muni leiða til 80 til 100 prósent markaðshlutdehdar á flestum sviðum læknisfræðinnar. Með þeim hætti yrði kostnaðarað- haldið mest og tilkostnaðurinn minnstur. Hvað varðar öflun og nýt- ingu dýrra tækja, nýtingu og gang- kvæma örvun milli fágætra sér- greina og viðhald hagnýtrar kunn- áttu með tilliti th fámennis myndi þéssi kostur leiða th lágmarks tvö- foldunar í hehbrigðisþjónustunni. Á hinn bóginn er það mat ráðgjaf- anna að með samruna Borgarspítal- ans og Landakotsspítala muni ein- Ráöhús Reykjavíkur: Milljónakostnaður vegna f undarborða „Borgarstjómarsalnum í nýja ráð- húsinu svipar mjög th núverandi fundarsalar borgarstjómar. Sæti borgarfuhtrúanna mynda skeifu. Við háborð sitin- fundarstjóri, sem er for- seti borgarstjómar, og borgarstjóri. Þar era og tvö ræðupúlt sem hægt er að hækka og lækka eftir þörfum. Th hhðar við háborðið mun svo fundarritari sitja. Salurinn er fer- kantaður og hann er ekki það stór að það þurfi hátalarakerfi í hann,“ segir Stefán Hermannsson aðstoðar- borgarverkfræðingur. - Fyrst að sölunum svipar svona saman af hverju er þá eklti hægt að nota húsgögnin úr gamla salnum? „Þau passa nú kannski ekki alveg. Það er mjög sterkur htur á parketinu sem notað er í nýja ráðhúsinu og húsgögnin era í sama ht.“ Þessa dagana er unnið að því að kaupa húsgögn í ráðhúsið í Tjöm- inni. Á fjárhagsáætlun borgarinnar er gert ráð fyrir að eyða 135 mihjón- um króna í húshúnað og tækjakaup fyrir ráðhúsið. í þeirri tölu er þyj gert ráð fyrir kostnaði vegna tölvu- kaupa, tölvutenginga og símstöðvar. Það er fyrirtækið Bíró Steinar í Kópavogi sem mun annast smiðina á fundarborðum í borgarstjórnarsal- inn auk tíu annarra fundarborða sem verða víös vegar í ráðhúsinu. Hljóðaði útboðið upp á 21 milljón króna. Kostnaður vegna skrifborða og hihna, sem framleidd verða hjá GKS, en þeir áttu lægsta thboðið í þann hð, og skrifborðsstóla frá Epal, sem ákveðið var að kaupa eftir verðkönn- un, hljóðar upp á um um 30 mihjónir króna. Þá er ótalinn kostnaður vegna stóla sem veröa á biðstofum í ráðhúsinu en þeir era keyptir hjá Sess. Stefán sagðist ekki hafa á reiðum höndum kostnað vegna þeirra. -J.Mar Starfsfólk Landakots fjölmennti á Alþingi í gær. ungis nást 40 th 60 prósent markaðs- hlutdehd í mörgum sérsviðum lækn- isvísindanna. Kostnaður mun hækka, sóun verður í hámarki og gæði þjónustunnar munu minnka. Óþörf tvöfoldun í hehbrigðisþjón- ustunni yrði í hámarki. í skýrslunni kemur fram að þaö þarf ekki að vera slæmur kostur fyr- ir Landakotsspítala þó Borgarspítal- inn og Ríkisspítalamir sameinuðust undir eina yfirstjórn. í stað þess að veita bráðaþjónustu gæti hann veitt svokahaða valþjónustu sem sjúkl- ingar greiddu sjálfir fyrir. DV-mynd GVA -kaa Nokkuð hefur borið á fölsuðum vörum merktum Levi's á markaðnum. Ef þú kaupir föt merkt Levi's í öðrum búðum en í Levi's búðinni áttu á hættu að þau séu svikin og gæðin alls ekki þau sömu. Levi's búðin, Laugavegi 37, er löggild Levi's búð á íslandi (AUTHORIZED LEVI'S DEALER) og því eina búðin þar sem þú getur verið viss um að þú fáir ekta Levi's.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.