Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 17
íþróttir Norræn tvíkeppni: Vinna Frakkar í fyrsta sinn? - Fransmaðurinn Fabrice Guy með góða stöðu Fabrice Guy frá Frakklandi á mikia möguleika á að verða fyrsti Frakkinn til að sigra í norrænni grein á ólympíuleikum. Hann stend- ur vel að vígi í norrænni tvíkeppni eftir að hafa náð þriðja sæti í fyrri greininni, skíðastökki af 90 metra palli, en seinni hlutinn, 15 kílómetra ganga, fer fram í dag. Guy leyndi ekki fógnuöi sínum eft- ir árangurinn í stökkinu en á undan honrnn þar voru Klaus Ofner frá Austurríki, sem stökk lengst, og Rei- ichi Mikata frá Japan. „Þeir ættu ekki að valda mér neinum vandræð- um í göngunni," sagði Guy sem er mjög góður göngumaður. „Ég hef aldrei vitað aðra eins áhorfendur, þeir fleyttu mér áfram,“ bætti hann við en hann er frá einu fjallaþorp- anna í nágrenni Albertville. Frakkinn byrjar með forskot á tvo skæðustu keppinauta sína í göngmmi því Klaus Sulzenbacher frá Austurríki, silfurverðlaunahafi á síðustu leikum, varð fjórði í stökkinu og heimsmeistarinn, Fred-Börre Lundberg frá Noregi, varð níundi. -VS MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992. MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992. Samveldin Austurríki Þýskaland Noregur Ítalía Bandaríkin Finnland Kína Frakkland Sviss Kanada Natalia Mlshkutlenok og Artur Dmltrlev, frá Samveldi sjálfstæðra rikja, sigr- uðu I parakeppnl i listdansi á skautum á ólympiuleikunum f gær. Þau sýndu glæsileg tilþrif og voru virkilega vel að sigrinum komin. Símamynd/Reuter ALBERTVILLE 92. Q5£P Úrslit Einstaklingskeppni ásleðum-konur Keppni hálfnuð: 1. Doris Neuner, Austurríki .1:33,35 2. Angelika Neuner, Aust.1:33,53 3. Andrea Tagwerker, Aust ..1:33,78 Norræn tvíkeppni Fyrri hluti - skíðastökk: 1. Klaus Ofher, Austurríki.228,5 2. Reiichi Mikata, Japan...226,1 3. Fabrice Guy, Frakk......222,1 Íshokkí A-riðill: Finnland - Pólland...........9-1 Bandaríkin - Þýskaland.......2-0 Sviþjóð-Ítalía............. 7-3 Finnland......2 2 0 0 14-2 4 Svíþjóð.......2 2 0 0 14-5 4 Bandar........2 2 0 0 8-3.4 Þýskal........2 0 0 2 1-7 0 Ítalía........2 0 0 2 6-Í3 0 Pólland.......2 0 0 2 3-16 0 Skíðaskotfimi kvenna 7,5 km 1. Anfissa Restzova, SSR.24:29,2 2. Antje Misersky, Þýskal.24:45,1 3. ElenaBelova, SSR.......24:50,8 Svig í alpatvíkeppni 1. Ole C. Furuseth, Noregi ....1:41,04 2. SteveLocher, Sviss.....1:41,44 3. Kiminobu, Kimura, Japanl:41,55 4. Jean Luc Cretier, Frakkl...l:42,09 5. Josef Polig, Ítalíu....1:42,16 Úrslit í tvíkeppninni 1. Josef Polig, ítaliu......14,58 2. Gianfranco Martin Ítalíu.14,90 3. SteveLocher, Sviss......18,16 4. Jean Luc Cretier, Frakkl.18,97 5. Markus Wasmeier, Þýskal. .32,77 Listdans á skautum parakeppni 1. Mishkutieenok/Dmitriev..SSR 2. Bechke/Petrov.............SSR 3. Braseur/Eisler.........Kanada Sjónvarpið í dag Sjónvarpið gerir ólympíuleikun- um í Albertville góð skil. Alla daga eru beinar útsendingar og upptök- ur frá helstu viöburðum dagsins eru sýndar seinni part dags og í lok dagskrá. kl. 8.20-10.30 ......10 km skíðaskotfimi - beint kl. 19.00-19.30 ........helstuviðburðirdagsins kl. 23.10-23.40 .........helstuviðburðirdagsins ítalir kærðir Alþjóða skíðasambandið hefur sent kæru til ólympíunefndarinn- ar vegna búninga italska skiða- landsliösins. ítalamir eru með auglýsingar á keppnisbúningum sínum og telur alþjóða skíðasam- bandið þær vera of stórar. Norðmaður rekinn heim Norska skíðasambandið ákvaö í gær aö senda Orjan Lovdahl, einn af leikmönnum norska íshokki- landsliösins, heim. Lovdahl mæti ekki á æfingar og gat ekki gefiö skýringar á fjarveru sinni. Ginther flutt á sjúkrahús Ein af bestu brunkonum Austur- ríkis, Sabine Ginther, slasaðist á æfingu í gær og veröur í dag flutt á sjúkrahús í Innsbruch í Austur- ríki. Ginther er því væntanlega úr leik en hún var talin eiga góða möguleika á sigri í bruni. Fisher líka úr leik Önnur brunkona slasaðist einnig á æfingu í gær. Þaö var bandaríska stúikan Wendy Fisher. Fisher féll harkalega í brekkunni og við þaö brotnaði þumalfingur auk þess sem hún tognaði illa á hné. Glæsileg tilþrif í listdansinum íþróttir ALBERTVILLE92. 05& Huldumenn frá Fidji Keppendur frá Fidjieyjum í Kyrrahafi valda skipuleggjend- um ólympíuleikanna í Albertville miklum heilabrotum því að eng- inn hefur enn heyrt þá eða séð! Fidji-menn eru skráðir til keppni í skíðagöngu en þeir mættu ekki á setningarathöfnina og enginn svarar enn í símann þeirra í ólympíuþorpinu. Við nánari at- hugun hefur komið í ljós að eng- inn veit nöfn keppendanna eða kyn - landið er skráð til leiks og það er allt og sumt! Ætla ekki niður á hausnum núna Jamaíkabúar eru mættir til Al- bertville með íjögurra manna bobbsleðasveit sem einnig keppti í Calgary fyrir flórum árum. Þá vakti hún heimsathygli fyrir að hvolfa sleðanum í miðri braut og renna síöasta spölinn á hausnum! Nú ætla flórmenningamir að gera betur og stefna á að vera í hópi 20 bestu. Mun betur undir- búnir en síðast Hugmyndin að þátttöku Jama- íkamannanna í Calgary fyrir flór- um árum kviknaði sex mánuðum fyrir leikana, „eftir of mörg rommglös“ í Kingston, að sögn Georges Fitch, bandarísks kaup- sýslumanns sem fjármagnar æv- intýrið. Þeir höfðu aðeins farið nokkrar reynsluferðir fyrir ólympíuleikana, héldu „reagge- kvöld“ til aö safna fyrir sleða, og árangurinn var eftir því. Síðan þá hafa þeir tekið íþróttina alvar- legar og keppa nú reglulega á heimsbikarmótum. Stefnt á frekari útbreiðslu á Jamaíka George Fitch hefur lagt um 5 milijónir króna í bobbsleðaævin- týrið á Jamaíka, og segist hafa fengið peningana til baka með auglýsingum og markaðssetn- ingu. Nú ætlar hann að koma af stað einmenningskeppni á sleð- um á sólareynni, í kvennaflokki, og ungfrú Jamaíka 1989, Natasha Lee Marcanik, er sögð hafa mik- inn áhuga á aö spreyta sig í þeirri grein! Fitch segir að Walt Disney fyrirtækið hafi keypt. einkarétt- inn á að gera kvikmynd um sleða- mennina í Karabíska hafinu. Systurfrá Austur- ríki meðforystu Doris Neuner og Angelika Neun- er, systur frá Austurríki, eru í tveimur efstu sætunum í ein- staklingskeppni kvenna á sleðum efdr tvær ferðir af fjórum. Aust- urrísk stúlka er einnig í þriðja sæti þannig að verðlaunahorfur landsins eru góðar fyrir hinar tvær ferðimar í dag. Systurnar kærðar Ekki voru allir jafn ánægðir með frammistöðu systranna og Bandaríkjamenn og ítalir kærðu þær fyrir að vera í skóbúnaöi með oddmjóum tám til aö minnka loft- mótstöðuna. Kærunni var vísað frá. íslendingarnir ganga í fyrramálið íslendingar verða á ný í sviðsljós- inu í Albertville í fyrramálið, en klukkan 10 hefst keppni í 10 kíló- metra göngu. Haukur Eiríksson og Rögnvaldur Ingþórsson eru þar á meðal keppenda. ítalinn Josef Polig, sem sigraði óvænt í tvíkeppninni, er hér á fullri ferð í svigbrautinni. Símamynd Reuter Óvænt úrslit í alpatvlkeppninni í gær: Lítt þekktur Itali hampaði gullinu Lítt þekktur Itali, Josef Polig, hampaði í gær ólympíugullinu í alpatvikeppni - eftir að sigurstranglegri menn höfðu helst úr lestinni einn af öðrum. Polig hefur aidrei náð verðlaunasæti í heimsbikarkeppni og var sjötti eftir brunkeppnina á mánudag en keyrði báð- ar ferðimar í sviginu í gær af öryggi. Hubert Strolz frá Austurríki virtist hafa sigurinn í hendi sér og verða þar með fyrstur í sögunni til að sigra í alpa- tvíkeppni á tvennmn ólympíuleikum í röð. En þegar aöeins fjögur hiiö vom eftir í seinni ferð svigsins í gær keyrði hann út úr brautinni og féll úr keppni. „Ég fór-á taugum, ég hélt að ég væri á eftir efstu mönnum og þyrfd að bæta mig á lokasprettinum," sagði Strolz, daufur í dálkinn, að keppni lokinni. ítalir fognuðu tvöföldum sigri því að Gianfranco Martin náði öðra sætinu og síðan varð Steve Locher frá Sviss þriðji. íslensku göngumennimir keppa á morgun: Tökum enga áhættu - meö smuminguna eins og á mánudag, segir Haukur Göngumennimir Haukur Eiríksson og Rögnvaldur Ingþórsson verða í eldlínunxú á ólympíuleikunum í Albertville á morgun en þá fer keppni fram í 10 kílómetra göngu. Þeir Haukur og Rögnvaldur tóku báðir þátt í 30 kílómetra göngmmi á mánudag, Rögnvaldur varð í 69. sætí en Haukur lauk ekki keppni. Að sögn íslensku göngumannanna snjó- aöi mikið um morguninn áður en keppnin hófst og hitinn var mínus ein gráða. Rétt áður en keppendur vora ræstir hætti að snjóa og áttu göngumennimir þá von á að sólin myndi bræða snjóinn en þeim varð ekki að ósk sinni. Þeir Haukur og Rögnvaldur notuðu linan áburð til að smyija skíðin, í samráði við þjálfara sinn, Svíann Bo Ericsson, og bættu síðan köld- um við. Rögnvaldur smurði þremur lögum af köldum áburði á skíði sín en Haukur aðeins einu og það gerði gæfumuninn, enda fraus snjórinn undir skíðum Hauks svo að hann varð að hætta keppni. „Þetta vai' leiöinleg óheppni. Veðrið gerði okkur nokkum grikk og ég hafði lít- inn tíma til að undirbúa smurninguna, enda var ég ræstur með fyrstu mönnum. Rögnvaldur hafði hins vegar meiri tíma og það varð honum til láns að smyrja þremur lögum af köldum áburði,“ sagði Haukur Eiríksson við DV í gær. Eins og kunnugt er unnu Norðmenn þrefaldan sigur í göngimni. Norðmenn era atvinnumenn í greininni. Til marks um það höfðu göngumennimir fjórir 20 að- stoðarmenn á sínum snærum og sérstaka smursérfræðinga og hver skíðamaður hafði úr 20 pörum af skíðum aö velja. ís- lensku göngumennimir era aðeins með tvö pör af skíðum hver og aðstoðarmaður þeirra er þjálfarinn Bo Ericsson. „10 kílómetra gangan leggst mun betur í okkur. Við erum famir að vepjast lofts- laginu, við erum 1600 metra yfir sjávar- máli, og þaö munar um hvem dag sem við erum hér. Við erum reynslunni ríkari frá því á mánudaginn og nú ætlum við að gefa okkur meiri tíma til aö spá í rétta smumingu á skíðin," sagði Haukur. -GH Páll Ólafsson úr leik hjá Haukum: Mikið áfall - segir Viggó Sigurðsson þjálfari 1. deildar liö Hauka í hand- knattleik hefur orðiö fyrir gífur- legri blóðtöku en emn af burða- rásum liðsins, Páll Ólafsson, leik- ur að öllum líkindum ekki meira með liðinu í deildinni. Eftir leik- inn gegn Eyjamönnum í deildar- keppninni í Hafnarfirði á sunnu- dagskvöldið kvartaði Páll undan verkjum í herðunum. Páll fór í skoðun á sjúkrahúsi og kom þá í ijós að annað lungað hafði fallið saman. Páll dvelur á sjúkrahúsi og verður þar að minnsta kosti fram að helgi. í umræddum leik gegn Eyjamönnum var Páll iðinn við kolaim og skoraöi 11 mörk. Á versta tíma fyrir okkur „Þetta kemur upp á versta tíma fyrir okkur. í fljótu bragði sé ég ekki að Páll leiki meira með okk- ur í deildarkeppninni. Það era aðeins flórir leikir eftir í for- keppninni og eins og staðan er í dag erum við í baráttunni að tryggja okkur sæti i úrslita- keppninni. Þetta er mikið áfall fyrir okkur en nú er bara að vona að mannskapurinn þjappi sér saman og klári dæmiö,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, í samtali við DV í gær. Viggó sagði að Páll hefði harkað af sér leikinn gegn Eyjamönnum. Eftir leikinn fór hann að kvarta undan verkjum í herðunum. Af röntgenmyndum kom í ljós að annað lungað hafði failið saman. Páll Ólafsson hefur leikið vel með Haukaliðinu í vetur og þó aiveg sérstaklega upp á síðkastið. Páll er þriðji markahæsti leik- • maður liðsins á tímabilinu, skor- að 82 mörk í 17 leikjum. Átta lið tryggja sér sæti í úrslitakeppn- inni en um þessar mundir er liðið í sjálfu baráttusætinu. -JKS Margirfrægir féllu úr keppni Margir frægir skíðamenn féllu úr keppni, Marc Girardelli frá Lúxemborg og Gunther Mader frá Austurríki strax í bruninu og Paul Accola hlekktist þar á þannig að hann átti aldrei möguleika í sviginu. Heimsmeistarinn Stefan Eber- harter frá Austurríki náði ekki aö Ijúka svigkeppninni. -VS Knattspyma: Skotar vilja koma - og leika gegn íslenska landsliðinu Viðræður era í gangi um að skoska landsliðið í knattspymu komi hingað tii lands og leiki gegn íslendingum ef af verður seinni partinn í ágúst. í fyrstu ætluðu Skotar að koma til íslands áður en úrshtakeppni Evrópumótsins hæf- ist í júní en við þau áform hættu Skotar. Nú era viðræður við þá um landsleik komnar í gang aftur. „Skotar höfðu samband við okk- ur í síðustu viku og könnuðu möguleika á landsleik seinni part- inn í ágúst. Skotar líta á það sem góðan undirbúning fyrir fyrsta leik þeirra í undankeppni heimsmeist- aramótsins sem verður gegn Sviss 9. september. Það er mikið að ger- ast í knattspymunni hér heima á þeim tíma sem Skotar vilja koma en engu að síður er áhugi hjá okkur aö fá Skotana hingað. Við bíðum þessa dagana eftir endanlegu svari frá skoska knattspymusamband- inu hvort af þessum landsleik verð- ur eða ekki,“ sagði Snorri Fiirn- laugsson, framkvæmdastjóri KSÍ, í samtaliviðDVígær. -JKS Þátttaka íslands í B-keppninni í handbolta: Kostar HSÍ 3 milljónir - heildarkostnaður um 6 miUjónir Haukur Eiríksson ætlar ekkf aö láta smuminguna verða sér aö falli á morgun. Þátttaka íslenska landshðsins í handknattleik í B-keppninni kostar HSÍ um þijár miiljónir króna. í þess- ari upphæð era ferðir, uppihald og dagpeningar til landshðsmanna. Kostnaður vegna landsleikja hér heima fyrir keppnina og annar und- irbúningur landshðsins mun nema rösklega þremur milljónum þannig að heiidarkostnaöur vegna B-keppn- innar losar sex milijónir króna. Þetta kom fram í samtali við Jón Hjaltalín Magnússon, formann HSÍ, í gær. „Eins og dæmið htur út í dag stend- ur fjárhagsætlunin vel gagnvart B- keppninni. Samningurinn við Vífil- feh á dögimum hjálpar okkur mikið til áð ná endum saman. Þessa dagana eigum við í viðræðum við tvo aðra stuðningsaðila,“ sagði Jón Hjaltalín Magnússon. Sjö landsleikir fram að B-keppni Nú er oröið Ijóst aö íslenska landshð- ið mun leika sjö landsleiki hér á landi fyrir B-keppnina í Austurríki. Lithá- ar leika tvo landsleiki 2.-3. mars, Portúgalir þijá leiki 6.-9. mars og Slóvenar tvo leiki 11.-12. mars. Landshðið heldur utan í keppnina 17. mars en hún hefst 19. mars. Jón Hjaltalín sagði ennfremur að búið væri að heita á leikmenn ákveðnum bónus ef hðið hreppir eitt af fjórum efstu sætunum í keppn- inni. Fiögur efstu sætin tryggja keppnisrétt í A-heimsmeistara- keppninni í Svíþjóð 1993. -JKS Dick Advocaat hefur veriö ráðinn þjálfari hoflenska landshðsins 1 knattspymu til tveggja ára og hann stýrir hðinu í undankeppni HM. Advocaat er aðstoðarmaður Rinus Michels sem lætur af störfum eftir úrsht Evrópukeppninnar í Svíþjóð f sumar. Takist Hoflendingum aö komast í úrshtakepprú HM i Bandaríkjunum 1994 mun Johan Crayff, núverandi þjálfari Barce- lona, taka viö hðinu að undan- keppninni lokinni. Fram-Stjaman Leik Fram'ög Stjöm- unnar í l. deild karla 1 handknattleik, sem fraro átti að fara i kvöld, hefur verið frestað um einn sólarhring og verður hann leikinn annað kvöld klukkan 20. Ástæðan er sú að Björgvin Ehas Þórsson, sem lék með 2. flokki Fram, verður jarðsunginn í dag en hann lést af slysfóram fyrir skömmu. Fimm í 1. deild karla Það verða þvi fimm leikir; í 1. deild karla í kvöld og hefjast allir kiukkan 20. HK og Haukar leika í Digranesi, Valur og FH að Hhð- arenda, ÍBV og Breiðabhk i Eyj- um, Grótta og Víkingur á Sel- tjarnamesi og Selfoss mætir KA á Selfossi. Umferð i 1. deild kvenna í L deild kvenna er leikin heil umferö í kvöld og þar ber hæst viðureign Víkings og Fram í Vík- inni klukkan 18. A sama 'tíma Jeika Haukar og Ármahn í Strandgöttihúsinu í Hafnarfiröi, Valur og ÍBV leika að Hlíðarenda klukkan 18.15, FHogKRí Kapla- krika klukkan 19 og loks mætast Keflavík og Grótta í Keflavík klukkan 20. Heimsmetstilraunir Sergei Bubka, stangar- stökkvari frá Úkraínu, og Heike Henkel, há- stökkvari frá Þýska- tilraunir til að bæta heimsmet sín: á innanhússmóti í Osaka í Japan'1 í gær. Bubka náöi ekki aö fara fyrir 6,13 metra og Henkel fehdi 2,08 metra. Bæöi unnu þó sinar greinar af öryggi Ohc þjálfar SH Klaus-Jörgen Ohc frá Þýskalandi er þjálfari Sundfélags Hafnar- fjarðar, ekki Friðrik Ólafsson eins og sagt var í frétt DV um íslandsmet Arnþórs Ragnarssonar á mánudaginn. Karitas í IA Karitas Jónsdóttir knattspymu- kona hefur ákveðið aö leika með ÍA í 1. deild kvenna nk. sumar. „Það er að sjálfsögðu gífuriegur hösstyrkur fyrir okkur að fá Karitas enda er hún ein af 5 bestu knatt- spymukonum landsins," sagði Smári Guðjónsson, þjálfari ÍA, við DV. -ih ISLANDSMÓTIÐ í HANDKNATTLEIK 1. DEILD STORLEIKUR SELFOSS - KA I ÍÞRÓTTAHÚSINU Á SELFOSSI ' I KVÖLD KL. 20.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.