Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992. 15 LÍN-fyrirhverja? „Ég reyndi í sjálfu sér ekki að koma mér undan þessu ráðuneyti.. Svo mælti Ólafur G. Einarsson, þá nýskipaður menntamálaráðherra, í blaðinu Háskóli í 80 ár síðastliðiö sumar. Þessi orð ráðherra kristalia þann skort á starfslegum metnaði sem einkennt hefur störf hans. Flaust- urslegar skyndiákvarðanir varða því miður veg Ólafs G. Einarssonar í þessu starfi sem er viðamikið og krefst því náins samstarfs við helstu hagsmunaaðila. Raunhæfar tillögur námsmanna í málefnum Lánasjóðs íslenskra námsmanna hafa tilskipanir ráð- herra náð hámarki. í fyrsta sinn í mörg ár hefur lánamálabarátta stúdenta verið málefnaleg og raunsæ með það fyrir augum að hreinsa stúdenta af þeim áhurði að þar fari hópur heimtufrekra dekur- bama. Á þessu starfsári hafa verið teknar upp nýjar baráttuaðferðir, ábyrgur máiflutningur og raun- hæfar tillögur sem m.a. hafa verið kynntar þingmönnum og fulltrú- um launþega. Stúdentar hafa lýst sig reiðubúna til samstarfs um hverja þá hagræðingu og spamað sem létt gæti fjárhagsvandj sjóðs- ins án þess að vega að grundvallar- markmiði hans. Stúdentar hafa sjálfir sett fram tillögur um hvern- ig ná megi fram spamaði hjá LÍN sem nemur allt að 500 milljónum króna. Ráðherra hefur ekki séð ástæðu til að skoða þessar tillögur. Afskræmt velferðarkerfi Lánasjóður íslenskra náms- manna hefur verið ein af stoðum hins íslenska velferðarkerfis og var reistur á þeirri hugsjón að tækifæri manna tfi mennta skuli vera jöfn en ekki háð efnahag. Niðurskurður námslána á síðastliðnu vori og „Stúdentar hafa sjálfir sett fram tillög- ur um hvernig ná megi fram sparnaði hjá LÍN sem nemur allt að 500 milljón- um króna. Ráðherra og fulltrúar hans hafa ekki séð ástæðu til að skoða þess- ar tillögur." fmmvarp tfi laga um LÍN, sem nú liggur fyrir Alþingi, gengur í grundvallaratriðum gegn þessu markmiði. Einfóld dæmi sýna þetta: Samanlögð áhrif skerðingar námslána um 16,7% og lækkaðs tfi- lits tfi tekna úr 75% í 50% vom þau að stúdentar sem höfðu lágar eða miðlungstekjur höfðu úr mun færri krónum að spila en áður en hins vegar var hátekjufólk skyndi- lega komið á spena skattborgar- anna. Sama mynd blasir við okkur af endurgreiðslum námslána skv. umræddu frumvarpi. Þar er tekju- tengt þak á endurgreiöslur, m.ö.o. lögin kveða á um að endurgreiðslur námsmanns verði ekki hærri en 8% af tekjum hans þegar kerfið er að fullu komið tfi framkvæmda. Hækkunin er gríðarleg fyrir flesta því nú er hlutfafiið 3,75%. Jafn- framt er endurgreiðslutími að lág- marki fjórföld lengd eðlfiegs náms- tima í viðkomandi fagi. Þetta býður heim afskræmingu á öllum jöfnunarhugmyndum. Hugs- um okkur nemanda í læknisfræði til sex ára, sem hýr við traustan fjárhag og þarf ekki að taka náms- lán nema eitt skólaár af 6. Þrátt fyrir að námsmaðurinn sé þannig með smávægfiega skuld á bakinu (u.þ.b. 500.000) fær hann 24 ár til að endurgreiða hana. Þeir sem hins vegar verða að treysta á Lánasjóð- inn öll háskólaárin geta lent í veru- legum erfiðleikum. Krafan er réttlæti Alþingi mun á næstunni taka af- stöðu tfi frumvarpsins um LÍN. Þar verða greidd atkvæði um nýmæli á borð við vexti og lántökugjöld sem gerbreyta aðstöðu námsmanna í fyrirsjáanlegri framtíð. Krafa námsmanna er sú að greiðslubyrði af námslánum sé réttlát svo að hátekjumenn komist ekki upp með að greiða smápen- inga í endurgreiðslur meðan aðrir reiða af hendi drjúgan hluta af tekj- um sínum. Röskva í Háskólá ís- lands hefur lagt fram tifiögur sem miða að því að endurreisa hinar félagslegú áherslur í útlánum og endurgreiðslum Lánasjóðsins. Þar er m.a. gert ráð fyrir því að há- tekjufólk greiði námslán sín hraðar tfi haka en aðrir. Baráttufundur I háskólabíói Ég sóttist ekki eftir því að fá Ólaf G. Einarsson í embætti mennta- málaráðherra. Engu að síður hefur framganga hans í embætti nú þegar haft mikil áhrif á aðstöðu mína og þúsunda námsmanna í þessu landi. Háttvirtur ráðherra hefur enn tóm til að snúa af villu síns vegar og tryggja sér vænlegan sess í sögu íslenskra stjómmála. Á morgun, fimmtudag, gefst honum tækifæri tfi að koma tfi móts við raunhæfar tillögur námsmanna á baráttu- fundi gegn aðfór að menntakerfi landsins sem haldinn er að frum- kvæði námsmannahreyfmganna í Háskólahíói. Skúli Helgason Allt er í heiminum hverf ult „Þetta er Þjóðviljinn, sagði þá vinur minn og þegar hann sagði þetta ótta- lega orð Þjóðviljinn varð röddin eins og í okkur þegar við sögðum dömu- bindi eða eitthvað enn ljótara.“ „Oft entist Þjóðviljinn ekki nema eina brauðsneið. Þá daga var hann rýr í roðinu.“ Ein fyrstu kynni mín af Þjóðvilj- aniun blaði voru þessi: Það var á rakarastofu. Ég var átta ára eða um það hfi. Ég var að fara tfi rakara í þriðja sinn á stutt- um tíma, móður minni tfi mikillar armæðu: Því þarftu að fara svona oft til rakara, drengur? Hún skfidi nefnfiega ekki að burstaklipping stóð ekki undir nafni nema hún væri mjög snögg, helst þannig að syngi í broddunum ef maður strauk yfir þá hendi. Lítið vissum við þá að fáum árum seinna hefði heimur- inn tekið slíkum breytingum að móðir mín sagði trekk í trekk pirr- uð: Ætlarðu ekki að fara að láta khppa þig, drengur? En hvaö um það, rakarastofan var í Lönguhlíð, við hliöna á Árna- búð þar sem við í blokkinni unnum eitt mesta afrek æsku okkar. Það var að fara inn í búðina hans Árna og spyrja sakleysislega: Ertu með dömubindi, Ámi? Og svo hlupum við öskrandi af hlátri og geislandi af stolti og að springa af hugrekki alla leið heim. Það var sem sagt á þessari rak- arastofu. Ég var ekki einn, með mér var vinur minn af efri hæð. Eins og vanalega á rakarastofum sátum við þegjandi og horfðum á hina klippta, glugguðum í blöð sem við skfidum ekkert í enda voru þau flest á dönsku. Allt í einu hnippir vinur miim í mig. Sérðu manninn þama? spurði hann og benti á mann sem sat í stól og beið eftir klippingu. í minn- ingunni er þessi maðm- voðalega stór en líklega hef ég bara verið svona lítfil. Kjallarinn Eiríkur Brynjólfsson rithöfundur Já, sagði ég. Þetta er vondur maður, hvíslaöi vinurinn. Þekkirðu hann? spurði ég með varimar uppi í eyranu á honum. Nei, sagði hinn. Hvemig veistu þá hvort hann er vondur? sagði ég. Sérðu ekki hvað hann er að lesa? spurði hann. Jú, og hvað með það? spurði ég. Þetta er Þjóðviljinn, sagði þá vin- ur minn og þegar hann sagði þetta óttalega orð Þjóðvfijinn varö rödd- in eins og í okkur þegar við sögðum dömubindi eða eitthvað enn ljót- ara. En allt leggst af Nú hefur allt hreyst. Þjóðvfijinn er hættur að koma út, Áimabúö er ekki lengur tfi, vinur minn orðinn varaborgarfulltrúi Sjálfstæðis- fiokksins í Reykjavík og vondi maðurinn líkast tfi dáinn. Tveggja brauðsneiða blað Vitaskuld sakna ég Þjóðviljans. Frá blautu bamsbeini hef ég vanist því að lesa blað með morgunverð- inum en nú er sú sæla úti. Reyndar þurfti oft útsjónarsemi tfi að láta Þjóðviljann endast hefian morgunverð. í mínum huga þarf blað að þola tvær ristaðar brauð- sneiðar og upphaf að fyrstu pípu dagsins. Oft entist Þjóðvfijinn ekki nema eina brauðsneið. Þá daga var hann rýr í roðinu. En nú borða ég morgunverðinn blaðalaust og les í æðamar á viðn- um í furuborðinu sem er afar þurr lesning. Nærri því lentur I óláni Tómleikinn gekk svo langt að mér flaug í hug að gerast áskrif- andi að Morgunblaðinu en reyndar hét ég því ungur maöur að gera slíkt aldrei. Eftir mikfi hefiabrot og innri bar- áttu datt mér í hug að ég gæti skráð Moggann á hömin. Þá fengi ég eitt- hvað að lesa og losnaði jafhframt við að vera áskrifandi. Ég birti þessa niðurstöðu heima hjá mér hróðugur en hún féll í grýttan jarðveg. Fjölskyldan brosti góðlátlega og tók þannig frá mér þennan beiska kaleik. Og ég fann að ég roðnaði örlítið 1 kinnunum fyrir þennan veikleika minn. Eiríkur Brynjólfsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.