Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992.
41
Menning
Sjómennska og leiklist
- Þröstur Leo Gunnarsson stundaöi sjómennsku í rúmt ár en er nú í stóru hlutverki í Þrúgum reiðinnar:
Þröstur Leo Gunnarsson í hlutverki Tomma í Þrúgum reiðinnar. Með honum á myndinni er Hanna María Karls-
dóttir sem leikur móður hans. DV-mynd GVA
Einn af þekktari ungum leikurum
landsins, Þröstur Leo Gunnarsson,
leikur eitt veigamesta hlutverkiö í
Þrúgum reiðinnar sem er leikgerð
eftir hinni frægu skáldsögu Johns
Steinbeck. Það er Leikfélag Reykja-
vikur sem setur verkið á svið undir
stjóm Kjartans Ragnarssonar. Þröst-
ur Leo hefur ekki leikið á leiksviði
hér í höfuðborginn í tæp tvö ár. Hann
ákvað vorið 1990 að nú væri kominn
tími til að taka sér hlé frá leiklist-
inni, fékk ársfrí frá störfum hjá Leik-
félagi Reykjavíkur og flutti vestur á
BOdudal þar sem hann gerðist sjó-
maður.
Þrúgur reiðinnar verður frumsýnt
á Stóra sviði Borgarleikhússins 27.
febrúar næstkomandi. Til að forvitn-
ast um hlutverkið sem Þröstur Leo
leikur og hvað hefði á daga hans drif-
ið fyrir vestan var hann fenginn í
stutt spjall.
- Það er orðið nokkuð um liðið síð-
an þú lékst á sviði hér í borginni?
„Eg lék síðast í Kjöti eftir Ólaf Hauk
Símonarson á sviði Borgarleikhúss-
ins. Þegar sýningum á leikritinu lauk
í apríl 1990 flutti ég til Bíldudals og
fór að stunda sjómennsku. Var ég á
dragnót fyrsta sumarið, fór svo á hnu
um haustið, síðan á grásleppu og aft-
ur á dragnót.
Ástæðan fyrir þessari hvíld frá
leiklistinni var að kominn var hálf-
gerður leiði í mig og þráði ég tilbreyt-
ingu, svo var ég með snert af heim-
þrá. Ég fékk ársleyfi frá Leikfélagi
Reykjavíkur þar sem ég er á samn-
ingi og fór heim til Bíldudals. Eftir á
er ég ipjög feginn að ég tók mér þetta
frí. Ég hafði gott af þessu og kom
endumýjaður til baka. Að vísu tók
ég mér smáfrí frá sjómennskunni
síðastliðið sumar og lék í stutfinynd
Sigurbjöms Aðalsteinssonar, Ókunn
dufl, og hafði gaman af.“
Held að þetta verði
góð sýning?
- Er um að ræða nýja leikgerð af
Þrúgum reiðinnar?
„Upphaflega er þetta bandarísk
leikgerð en Kjartan Ragnarsson hef-
ur yfirfarið hana og tekið út það sem
honum fannst ekki eiga að vera og
sumt var ekki hægt að gera. Má eig-
inlega segja að hann hafi að nokkm
leyti búið til nýja leikgerð."
- Kemst þessi mikla skáldsaga
Steinbecks til skila í leikritinu?
„Ég hef lesið skáldsöguna sem er
mjög viðamikið verk og auðvitað
verður að sleppa heilmiklfi þegar
leikrit er gert eftir jafnlangri sögu,
en ég held samt að sagan komist vel
til skila innan ramma leikhússins og
ég held að þetta verði góð sýning.
Maður fær tilfinningu fyrir þegar vel
gengur og sú tilfinning er fyrir hendi
nú. Sýningin á auðvitað eftir að slíp-
Memúngarverðlaim D V:
Fimm tilnef ningar í tónlist
Menningarverðlaun DV fyrir 1991
verða afhent 27. febrúar í hádegis-
verðarboði að Hótel Holti. Nefndim-
ar sjö sem hafa þann starfa að velja
verðugan verðlaunahafa í hverium
flokki fyrir sig hafa setið að störfum
Blásarakvintett Reykjavíkur.
undanfarið og í dag byrium við að
birta tilnefningar og fyrst em það
tilnefningar til verðlauna í tónlist. í
tónlistamefndinni eiga sæti Finnur
Torfi Stefánsson, tónskáld og tónhst-
argagnrýnandi DV, formaður, Bald-
ur Símonarson lífefnafræðingur og
Sigurður Ingvi Snorrason tónlistar-
maður. Nefndin hefur orðið ásátt um
að nefna eftirtalda fimm aðila til
Menningarverðlauna DV í tónlist.
Þeir em í stafrófsröð:
Blásarakvintett Reykjavíkur, sem
er tilnefndur fyrir frábæran tónlist-
arflutning í mörg ár og ekki síst fyr-
ir tónleikahald sitt í vetur í tilefni
af 10 ára starfsafmæli kvintettsins.
Jón Stefánsson, stjómandi Kórs
Langholtskirkju, er tilnefndur fyrir
ágætt starf með kór sínum undanfar-
in ár og einkum fyrir flutning á verk-
um Jóhanns Sebastians Bach.
Jónas Ingimundarson píanóleikari
er tilnefndur fyrir píanóleik sinn um
land allt á undanfornum árum og
einkum fyrir undirleik sinn með
söngvurum á ljóðatónleikum í
Gerðuhergi.
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari er
tilnefnd fyrir framúrskarandi fiðlu-
leik á mörgum tónleikum á síðasta
ári en einkum fyrir flutning hennar
á fiðlukonsert Brahms með Sinfóníu-
hljómsveit íslands.
Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona er
tilnefnd fyrir frábæran söng sinn viö
ýmis tækifæri á árinu. Þyngst vegur
frammistaða hennar með íslensku
óperunni sem hún kórónaði í hlut-
verki Nætiu-drottningarinnar í
Töfraflauhmni í fyrra.
Það mun svo koma í ljós fimmtu-
daginn 27. febrúar hver þessara aðila
verður handhafi Menningarverð-
launa DV 1991 fyrir tónlist.
-HK
Jón Stefánsson.
Jónas Ingimundarson.
Sigrún Eóvaldsdóttir.
ast, það er enn hálfur mánuður í
frumsýningu, en ég held að þetta
verði góð sýning."
- Hvemig persóna er Tommi?
„Tommi er ákveðinn, hreinn og
beinn og lætur ekki vaða yfir sig.
Hann lenti í fangelsi fyrir manndráp
þar sem hann var að veija sjálfan
sig. Hefði Tom ekki gert það hefði
hann verið drepinn. Tom var fiögur
ár í fangelsi. Heimkoman er mikið
áfall fyrir hann. Þegar hann var sett-
ur í fangelsi var allt í sómanum. Nú
er allt í niðumíðslu og fiölskyldan
að flytja til Kalifomíu sem er
draumalandið í huga hennar. Tom
er fljótur að taka að sér stjómina
enda faðirinn niðurbrotinn maður
og það er Tom sem reynir að halda
fiölskyldunni saman.“
Var á báðum áttum
- Varstu allaf ákveðinn í að fara í
leiklistina aftur?
„Ég var að vísu aöeins í ársleyfi,
en ég verð að viðurkenna að ég var
á báðum áttum um hvort ég ætti að
fara suður aftur enda líkaði mér vel
fyrir vestan.
Ég mætti til leiks síðastliðið haust
hjá Leikfélagi Reykjavíkur og byrjaði
að æfa í Ljóni í síðbuxum, en á fót-
boltaæfingu sleit ég hásinina í mér
og varð að hætta æfingum í leikrit-
inu. Ég fór því ekki að æfa í leikriti
fyrr en í desember. En ég get ekki
kvartað yfir hlutskipti mínu hér.
Þetta er spennandi verkefni og gott
hlutverk. Én heimabyggð mín á sterk
ítök í mér og þau ár sem ég hef starf-
að sem leikari hef ég ávallt þotið
vestur um leið og síðustu leiksýn-
ingu, sem ég tek þátt í, lýkur og á
því verður engin breyting.
-HK
i
draumaflðluna?
Sigrún Eövaldsdóttur hefur
; fifcidið sína draumafiölu, en hún
hefur ekki enn eignast hana. Eins
og kunnugt er var stofnaður sjóð-
ur rétt fyrir jól sem hefur það
markmið að gera Sigrúnu kleift
að eignast góða fiðlu. Hingað til
hefur hún notast við gömlu skóla-
fiðluna sína. Undanfarið hefur
Sigrún verið erlendis að leita að
fiðlu sem hæfir henni og i London
fann hún fiðluna stna, Guarner-
ius fiðlu sem smíðuð var á Ítalíu
fyrir tæpum 300 árum. Margir
aðilar hafa lagt fé í fiðlusjóð Sig-
rúnar og hafa safhast og fcngist
loforö fyrir 3 milljónum króna.
Enn er þó langt í land að Sigrún
getí eignast fiðluna sina því hún
kostar um 9 milljónir króna. í dag
stendur fiðlusjóðurinn fyrir sér-
stöku söfnimarátaki. Tekið verö-
ur á móti fiárfranxlögum í Gulu
línunni i síma 626262 klukkan
18-23 en einnig er hægt að leggja
inn á tékkareikning fiðlusjóðsins
nr. 2400 I aöalbanka Búnaöar-
bankans.
Ténleikarfyrir
Nú standa yfir Tónmenntadag-
ar Ríkisútvarpsins og er mikið
imi aö vera í tónlistardeild út-
varpsins. Meðal þess sem boðið
verður upp á eru tónleikar fyrir
almenning í Útvarpshúsinu við
Efstaleití 1 kvöld. Þar koma fram
Kolbeinn Bjamason flautuleikari
og Páll Eyjóllsson gítarleikari.
Mrfiytjafógæta tónlist úr öllum
suður-ameríska, þýska og ís-