Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1992, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1992.
9
Þrír ungir drengir í Hastings í
Englandl hlutu alvarleg brunasai-
þegar sprenging varö) kveikjara-
bensíni sem þeir voru aö sniffa.
Drengirnir voru viö iðju sína í bíl.
Einum þeítTa datt í hug aö
kveikja sér í sígarettu þegar þeir
höfðu andaö að sér bensíninu um
nokkum tnna. Mikið gas var þá
komið í bílinn og sprakk hann í
loft upp um leíð og kveikt var 1
sígarettunni. Mildi þykir að þeir
skyldu lifa sprenginguna af.
Lánda Duberley, fréttakona hjá
bresku gervihnattastöðinni Sky,
birtist óvænt á skjánum á dögun-
um sem aðalfréttalesari eftír að
hafa verið nærri ár frá störfum.
Forveri hennar i starfi hafði þá
viíóð úr sæti fyrir henni.
Á sama tíma bárust fréttir um
að Linda væri ólétt eftír John
O’Loan, fréttastjóra hjá Sky.
Linda sagði eftir aö þetta varð
uppvíst að hun væri í sjöunda
himni og alsæl með lífið. Eigin-
kona fréttastjórans er farin til
Ástralíu.
mánaða ieit
Togarinn Bolama, sem upphaf-
lega var í eigu danskra aðila, hef-
ur fundist á hafsbomi úti fyrir
höfninni í Lissabon í Portúgal.
Togarhin hvarf þann 4. desember
í reynsluferð eftír viðgerö í Lissa-
bon. Þar tóku nýjir eigendur frá
Guinea-Bissau við honuro.
Enginn skýring hefur fundist á
því hvers vegna togarinn sökk og
raunar var raönnum hulin ráð-
gáta hvar hann væri niðurkom-
inn. í áhöfninni var 31 maður og
fómst þeir allir. Þar á meðal var
danski útgeröarmaöurinn Niels
Johnstad-Meller.
á 5500 krónur
Fyrsta gúrkan af framleiðslu
ársins í Danmörku var seld fyrii-
skömmu á uppboði í Óðinsvéum.
Fyrst vom boðnar upp 32 gúrkur
saman og; var verðið á hverri
þeirra S93 danskar krónur. Lætur
nærri að það séu 5500 íslenskar
krónur.
Upphaf gúrkutíðarinnar í Dan-
mörku hefst jafhan með uppboði
og þykir nokkurs um vert að
eignast fyrstu gurkuna. Fastlega
er reiknað með að verðiö faili
jafnt og þétt eftir því sem líður á
áriö.
Japönskmann-
Japanir eiga vart orð til að lýsa
hrifhingu sitrni á listmálaranum
Issei Sagawa sem orðiö hefur
uppvis aö mannáti og nú lýst til-
finningum sínum á málverki.
Myndir af verki hans hafa birst
í japönskum blöðura.
Áríð 1981 bjó Issex í París og át
þá vhxkonu sína af hollenskum
uppruna. Hann var úrskurðaöur
geð\'eikur og sendur heim. Fyrh*
skömmu réö Issei til sín hol-
leixska fyrirsætu til að rifja upp
reynslu sína og festa á léreft.
Fyrirsætan flúði af hólmi þegar
hún sá verkið. Hún tók fyrstu vél
heim tU Holiands.
Útlönd
Færeyingar að komast í þrot vegna langvarandi skuldasöfnunar:
Gjaldþrota í júní?
- meiri erlend lán ófáanleg og ekkert samkomulag um niðurskurð
Jens Dalsgaaid, DV, Færeyjum:
Færeyingar búa sig xmdir erfiða
tíma því að ekki er fyrirsjáanlegt að
landssjóður þeirra geti staðið við
skxxldbindingar sínar nema tíl vors-
ins. Gerist ekkert nýtt í fiármálum
sjóðsins næstu mánuði verðxxr hann
gjaldþrota og Færeyingar verða að
treysta á að Danir hlaupi xmdir
bagga.
Litlu munaði að ekki tækist að
greiða út laun xxm síðustu mánaða-
mót og xxrðu sxxmir opinberir starfs-
meim að bíða tíu daga eftir að fá lau-
naumslagið sitt. Þá tókst að leysa
vandaim til bráðabrigða með erlendu
láni en nú eru litlar líkur taldar á
að meiri lán fáist í útlöndum.
Erlendar skuldir eru orðnar jafii-
miklar þjóðarframleiðslunni og ekki
er lengxxr hægt aö standa í skilum
með afborganir og vexti. Erfiðustu
lánin eru h)á danska seðlabankan-
um. Talið er að í heild skuldi Færey-
ingar.um 4 milijarða danskra króna
í útlöndum. Það svarar til 35 til 40
milljarða íslenskra króna.
Dönsk ráðgjafamefnd hefúr ítrek-
að bent landsstjóminm á að með
óbreyttri stefnu hljóti landssjóður-
hm að komast í þrot. Innan stjómar-
iimar er ekki samkomulag um að
grípa til niðurskurðar enda stendur
stjómin illa að vígi með aðeins eins
sætis meirihluta á Lögþinginu. Því
er búist við að hún falli þegar í stað
ef gripið verður til harkalegra að-
gerða tU að draga úr útgjöldum.
Nú síðast var stjómin nærri fallin
þegar Wilhelm Johaimessen, þing-
maður frá Klakksvík, var óánægður
með að stjómin gerði ekkert til aö
hindra sölu á kvóta frá heimabæ
hans. Wilhelm skrifaði þingforseta
bréf þar sem hann sagðist hættur að
styðja stjóm Atla Dam.
Bréfið hefur þó ekki verið lagt fram
á Lögþinginu enn því að Atli Dam
og Wilhelm náðu sáttum um áfram-
haldandi stuöning við stjómina. Get-
gátur em uppi um að Wilhelm hafi
fengið eitthvað að launum en ekki
vitað hvaö það var.
OKKAR VINSÆLA
afsláttur
sem beðið hefur verið eftir er byrjuð
Blomberg
bvottavél
Blomberg ofnar úr
útstillingareldhúsi
Vaskar, N
margar gerðir
Blomberg kæliskápar
úr útstillingareldhúsi
Ponu uppbvottavélwé^ Tatung kæliskápar
Franskir pottar
örbylgjuofnar
Töfrapottar
fyrir örbylgjuofn
Buxnapressur,
svarlar og hvítar
Tatung sjónvörp
CTftl tnTCj ■ ■ ■ w Þú flerir x fll At ekki betri kaup
OlUf lUldi riLH \ flnt að 80%
Staðgreiðsluafsláttur - afborgunarkjör
10% sérstakur afsláttur af
öllum öðrum vörum meðan
útsalan stendur yfir.
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚNI 28, SÍMI 622900 - NÆG BÍLASTÆÐI