Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1992, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1992.
9
Utlönd
Arafat lifði af
f lugslys í Líbíu
- flugvél hans fannst óskemmd í eyðimörkinni
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu, fannst heill á húfi í líbýsku
eyðimörkinni í morgun. Flugvél hans nauðlenti þar i slæmu veðri í gær-
kvöldi. Simamynd Reuter
Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissam-
taka Palestínu, PLO, fannst á lífi í
Saharaeyðimörkinni í morgun eftir
að flugvél hans nauðlenti í sandbyl
í sunnanverðri Líbíu í gærkvöldi.
Arafats, niu samferðamanna hans
og þriggja manna áhafnar, var sakn-
að í fimmtán klukkustundir áður en
bandarískur gervihnöttur fann vél-
ina.
„Flugvélin er fundin. Arafat, sam-
ferðamenn hans og áhöfn eru allir
heilir á húfi og véhn er óskemmd,"
sagði embættismaður PLO við Reut-
ers-fréttastofuna og réð sér ekki fyrir
kæti.
Embættismaður PLO sagði að
bandarískur gervihnöttur hefði
fyrstur komið auga á vélina um 70
kílómetra frá Sarra þar sem hún
ætlaði að lenda í gær áður en hún
lenti í sandbylnum. Leitarvélar mið-
uðu út staðarákvörðunina og fundu
Arafat og félaga hans við góða heilsu.
Arafat var á leið frá Súdan til Líbíu
til að heimsækja palestínska skæru-
hða í búðum nærri Sarra þegar flug-
véhn lenti í sandbylnum, missti sam-
band við flugumferðarstjóra og hvarf
af ratsjá.
„Hann er núna í Sarra og við erum
búnir að hafa símasamband við
hann,“ sagði embættismaðurinn. í
Sarra búa um 1500 palestínskir
skæruUðar og fjölskyldur þeirra.
Bassam Abu Sharif, aðstoðarmað-
ur Arafats í Túnis, sagði að George
Bush Bandaríkjaforseti hefði fallist á
að bandarískir gervihnettir yrðu not-
aðir við leitina. Sharif sagði að hann
hefði beðið Jimmy Carter, fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta, um að koma
beiðni þar að lútandi áleiðis.
Sharif sagði við bandarisku sjón-
varpsstöðina CNN að síðustu boð frá
flugmanninum hefðu verið þau að
vélin væri að verða bensínlaus. Ann-
ar háttsettur maður innan PLO sagði
að Anotonov-vél Arafats hefði aðeins
fjögurra klukkustunda flugþol.
Embættismaður PLO í Kaíró sagði
að vélin hefði reynt að nauðlehda við
Sarra, um 1400 kílómetra fyrir suð-
austan TrípoU, en ekki tekist og þá
hefði verið reynt að lenda í eyði-
mörkinni. Upphaflega stóð til að vél-
in lenti við al-Khufrah, 300 kólómetr-
um norðar, en hún varð frá að hverfa
vegna sandbyls.
Reuter
Blll Clinton haföi sigur í forkosningum demókrata:
Flestir kjósendur vilja
fá nýjan frambjóðanda
BUl Clinton fór með sigur af hólmi
í forkosningum demókrata í New
York, Kansas, Minnesota og Wis-
consin í gær. Hann getur þó vart
verið ánægður með úrsUtin þvi flest-
ir kjósendur vUja aö nýr frambjóð-
andi blandi sér í leikinn.
Jerry Brown er ekki sá maður sem
demókratar vUja senda í Hvítahúsið.
í New York varð hann í þriðja sæti
á eftir þeim CUnton og Paul Tsongas
sem þó er ekki í framboði. Tsongas
fékk 30% atkvæða og verður nú að
íhuga hvort hann eigi að skella sér í
slaginn á ný.
•CUnton fékk nærri 40% atkvæða í
New York og Minnesota en í Kansas
náði hann yfir 50% fylgi. í Kansas
er hann nærri heimaslóðum og þar
á hann jafnan mest fylgi.
Kjörsókn var fremur slök og enn
verður að bíða forvals í vesturríkjun-
um til að fá úr því skorið hver verð-
ur forsetaefni demókrata.
í Bandaríkjunum eru menn sam-
Bill Clinton sigraði í forkosningum
demókrata i gær. Árangur hans var
þó ekki glæsilegur og kjósendur
flokksins eru enn að bíða þess að
nýr maður blandi sér í slaginn.
Símamynd Reuter
mála um að Demókrataflokkurinn
hafi ekki verið í jafn alvarlegri
kreppu í 12 ár eða frá þvi Jimmy
Carter mistókst að fá útnefningu
flokksins fyrir endurkjör í forseta-
embættið eftir að hafa setið þar í eitt
kjörtímabU.
CUnton á stöðugt erfiðara með að
verjast áleitnum spumingum and-
stæðinga sinna. Síðustu daga hefur
athyglinni einkum verið beint að
hvort hann hafi í raun og veru per-
sónulegan styrk tíl að vera forseti.
Sigur í gær sýnir þó að hann er seig-
ur viö erfíðar aðstæður en á það er
líka bent að keppinautamir séu ekki
burðugir.
George Bush vann öruggan sigur á
Pat Buchanan, keppinaut sínum um
útnefningu repúblikana. Við því var
búist enda hefur lengi verið íjóst að
Buchanan á ekki möguleika á að feUa
forsetann þótt hann hafi náð að valda
honum eríiðleikum í kosningabar-
áttunni. Reuter