Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1992, Qupperneq 28
44
MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 1992.
Andlát
Sigurgeir Vilhjálmsson vélstjóri,
Boðahlein 22, Garðabæ, lést þriðju-
daginn 7. apríl.
Jarðarfarir
Guðlaug Pétursdóttir, Hjúkrunar-
heimibnu Skjóh, er lést 1. apríl sl.
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík fimmtudaginn 9. apríl
kl. 15.
Marta Pétursdóttir, Víðimel 38,
Reykjavík, sem lést 2. apríl, verður
jarðsungin frá nýju kapellunni í
j.Fossvogi fimmtudaginn 9. apríl kl. 15.
Ingibjörg Dóróthea Ólafsd. Thorar-
ensen, húsmóðir og þýðandi, varð
bráðkvödd á heimili sínu 24. mars.
Útfor hefur farið fram í kyrrþey.
Inge-Liss Jacobsen, Sóleyjargötu 13,
Reykjavík, sem andaðist 31. mars,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 9. apríl kl. 13.30.
Árni Erling Sigmundsson frá Suður-
eyri, Súgandafirði, Stillholti 11,
Akranesi, sem lést af slysforum 1.
apríl sl., verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju fimmtudaginn 9.
apríl kl. 11.
Ánna Frieda Kummer frá Leipzig,
sem lést í Borgarspítalanum 28. mars
sl., verður jarðsungin frá Fossvogs-
, kapellu í dag, 8. apríl, kl. 15.
Margrét Björnsdóttir Ármann, er
andaðist 30. mars, verður jarðsungin
frá Dóinkirkjunni í dag, 8. apríl, kl.
15.
Safriaðarstarf
Áskirkja: Starf 10-12 ára bama í safnað-
arheimilinu 1 dag kl. 17. Föstumessa kl.
20.30.
Bústaðakirkja: Starf aldraðra. Fótsnyrt-
ing funmtudag kl. 10-12. Tímapantanir í
38189. Félagsstarf aldraðra í dag kl.
13-17.
Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10 í
kirkjunni. Léttur hádegisverður á kirkju-
loftinu á eftir. Samvera aldraðra í safnað-
arheimilinu í dag kl. 13.30-16.30. Tekið í
sph. Kaffiborð, söngur, spjah og helgi-
stund.
Elliheimilið Grund: Föstuguðsþjónusta
kl. 18.30. Stefán Karlsson guðfræðinemi.
Leiðrétting
í vLðtah við bandaríska uppeldis-
fræðinginn Brian Gail í DV á mánu-
dag misritaðist tímasetning á fyrir-
lestri sem hann heldur. Fyrirlestur-
inn verður á Hótel Lind kl. 19 á
/ímmtudag. Þar tala Brian og Marta
Ellis Hardin. Þau verða síöan með
námskeið fyrir leiðbeinendur á sam-
skiptanámskeiðum bama og foreldra
í Síðumúla 33 frá föstudegi til mánu-
dags. Beðist er velvirðingar á misrit-
uninni.
Myndgáta
Hallgrímskirkja: Opið hús fyrir aldraða
kl. 14.30. Helgistund kl. 20.30. Sr. Sigurður
Pálsson prédikar.
Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyrirbæn-
ir í dag kl. 18.
Neskirkja: Opið hús fyrir aldraða kl.
13-17. Hár- og fótsnyrting í dag kl. 13-17.
Æfmg kirkjukórs aldraðra kl. 16.30.
Föstuguðsþjónusta kl. 20. Sr. Frank M.
Hahdórsson.
Seltjarnarneskirkja: Kyrrðarstund kl.
12. Söngur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur hádegisverður í safnaðarheimil-
inu. Samkoma kl. 20.30 á vegum Seltjam-
ameskirkju og sönghópsins „Án skil-
yrða“ undir stjóm Þorvaldar Halldórs-
sonar. Söngur, prédikun, fyrirbænir.
TiUcynningar
Eigendaskipti á
hárgreiðslustofu
Eigendaskipti hafa orðið á hárgreiðslu-
stofunni við Hrísateig 47 sem nú heitir
Hármiðstöðin. Boðið er upp á alhliða
hársnyrtiþjónustu. Á stofunni vinna eig-
andi stofunnar, Erla Aðalgeirsdóttir hár-
greiðslumeistari, og Valdís Ehsdóttir.
Hármiðstöðin ér opin aha virka daga kl.
10-18 og laugardaga kl. 9-13. Nýtt síma-
númer er 682720.
Sýnikennsla
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
verður með sýnikennslu í félagsheimil-
inu að Baldursgötu 9 fimmtudaginn 9.
apríl kl. 20. Hahdór Snorrason mat-
reiðslumeistari annast kennsluna. Allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Stór dagur Óperusmiðju-
söngvara á morgun
Allt frá stofnun Óperusmiðjunnar
hef ég sem söngkennari fylgst með
starfi þessa" sönghóps af miklum
wáhuga. Hann kom mjög á óvart fyrir
tveimur árum þegar hann flutti Sour
Angelica úr þriggja þátta óperu
Puccinis í fátæklegu húsnæði leik-
húss Frú Emelíu í Skeifunni. Sviðið,
leikuppsetning, hljómsveit og annar
ytri aðbúnaður gat ekki verið minni
en flutningur þessara ungu og vel
menntuðu söngvara fékk verðskuld-
aða viðurkenningu, jafnt frá tónhst-
arfólki sem og íslenskum óperuunn-
endum.
Nú rætist draumur sönghópsins
um að stíga stærri skref inn í óperu-
heiminn með flutningi á La Boheme
eftir Puccini. Þetta heimsfræga verk
ífem er sívinsælt meðal miUjóna
áheyrenda um allan heim gerir mikl-
ar kröfur til flytjenda. Af miklum
kjarki og dugnaði hafa félagar
Óperusmiðjunnar unnið sleitulaust
vikum saman.
Fyrir nokkrum dögum var mér
boðið að vera viðstaddur á aðalæf-
ingu. Þetta var í fyrsta skipti sem
einsöngvarar, kór og hljómsveit
æfðu saman. Stóri salurinn í Borgar-
leikhúsinu var troðfullur af fólki og
loftið þrungið eftirvæntingu. Frá
fyrstu setningu Marcellos „Questo
mar rosso“ til síðasta örvænting-
aróps Rodolfos „Mimi.. .Mimi“ gekk
allt eins og í sögu undir öruggri
stjórn Guðmundar Óla Gunnarsson-
ar. Hiö fræga háa c í aríu Rodolfos,
„Che gelita manina", fékk verðskuld-
að hrifningarklapp frá áheyrendum.
Öll byrjun er erfið. Sérstaklega er
eríitt í þessu tilfelh að kljúfa hinn
mikla kostnað sem er óperuflutningi
samfara eins og flestum mun kunn-
ugt.
Ég vona að sýning Óperusmiðjunn-
ar á La Bohéme í Borgarleikhúsinu
fái sérstaklega góða aðsókn og ungir
sem aldnir njóti þessa fagra verks
Puccinis.
Minn kæri vinur, Kristján Jó-
hannsson, sem „deputeraöi" glæsi-
lega í La Boheme í Þjóðleikhúsinu
fyrir nokkrum árum og er nú einn
af fremstu söngvurum í heimi, verð-
ur á meðal áheyrenda á frumsýn-
ingu. Ég er viss um að hann mun
rneö klappi sínu hvetja flytjendur tíl
áframhaldandi starfs.
Hittumst annað kvöld kl. 20.00 í
Borgarleikhúsinu.
Sigurður V. Demetz söngkennari
Leikhópur FSU
sýnir Vojtsek
Leiklistarhópur Fjölbrautaskóla Suður-
lands ákvað rétt fyrir jól að ráöast í upp-
setningu á hinu sígilda verki Vojtsek eft-
ir Georg Buchner. Áætlað er að frumsýna
það 9. apríl á Hótel Selfossi. Leikstjóm
er í höndum Ingu Bjamason en æfingar
hafa staðið yfir frá í janúar. Þessi upp-
setning er án efa ein sú metnaðarfyllstat
sem leikhópur FSU hefur tekist á hend-
ur. í leikritinu er margt um söngva og
dansa en öll tónlist er frumsamin af Há-
koni Leifssyni og dansar samdir af Auði
Bjarnadóttur. U.þ.b. 35 manns taka með
einum eða öðmm hætti þátt í sýningunni.
Árshátíð Grikklands-
vinafélagsins
Grikklandsvinafélagið Hellas heldur árs-
hátið sína laugardaginn 11. apríl í Rúg-
brauðsgerðinni, Borgartúni 6. Hún hefst
með borðhaldi kl. 20.30 en húsið verður
opnað kl. 19. Aðgangseyrir er kr. 2500.
Fólk er beðið aö tilkynna þátttöku til
formanns í síma 21749 sem fyrst en í síð-
asta lagi daginn fyrir árshátíð. Hafdís
Árnadóttir býður upp á kennslustund í
grískum dönsum fimmtudaginn 9. apríl
kl. 21 í Kramhúsinu, Skólavörðustíg 12.
Safnaðarfélag Áskirkju
Hið árlega páskaeggjabingó verðim hald-
ið í safnaöarheimilinu fimmtudaginn 9.
apríl og hefst kl. 20.30.
Leikfélag Húsavíkur sýnir
Gaukshreiðrið í Hafnarfirði
Á þriðja þúsund manns hafa séð sýningu
Leikfélags Húsavíkur á leikritinu Gauks-
hreiðrinu eftir Dale Wassermann í leik-
stjóm Maríu Sigurðardóttur. Nú er stefn-
an tekin suður yfir heiðar með þetta róm-
aða verk. Gaukshreiðrið verður sýnt í
Bæjarbíói í Hafnarfirði dagana 9., 10. og
11. apríl. Það er mikið fyrirtæki að fara
með þessa sýningu suður. Leikmyndin
verður öll flutt og alls fara um 30 manns
í tengslum við sýninguna.
Heyrn og tal mælt
á Hornafirði
Móttaka verður á vegum Heymar- og
talmeinastöövar íslands á Heilsugæslu-
stöðinni Höfn, Homafirði, dagana 24., 25.
og 26. apríl. Þar fer fram greining heym-
ar- og talmeina og úthlutun heyrnar-
tækja. Tekið er á móti viðtalsbeiðnum á
Heilsugæslustöðinni á Höfn.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur á vegum Stofnunar
Sigurðar Nordals
Dr. Birgir Þór Runólfsson lektor flytur
opinberan fyrirlestur um endalok ís-
lenska þjóöveldisins í boði Stofnunar Sig-
urðar Nordals fimmtudaginn 9. apríl kl.
17.15 í stofu 101 í Odda, hugvisindahúsi
Háskóla íslands. Fyrirlesturinn nefnist
„Reddusókn og rikjamyndun: Hmn þjóð-
veldisins frá sjónarhomi stofnanhag-
fræði".
Opinn fyrirlestur um Norður-
löndin og Evrópubandalagið
Fimmtudaginn 9. apríl heldur Rutger
Lindahl, prófessor í stjórnmálafræði við
Gautaborgarháskóla, fyrirlestur í boði
Alþjóðamálastofnunar Háskóla íslands
um efnið „Norðurlöndin og Evrópu-
bandalagiö". Fyrirlesturinn hefst kl. 18 í
stofu 101 í Lögbergi og er öllum opinn
meðan húsrúm leyfir. Fyrirlesturinn fer
fram á ensku.
Fundir
Vinalína Rauða
krossins
Kynningarfundur fyrir þá sem vilja ger-
ast sjálfboöaliðar Vinalínunnar verður
haldinn nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30 að
Þingholtsstræti 3. Undirbúningsnám-
skeið verður síðan haldið helgina 25.-26.
apríl.
Tónleikar
Selkórinn með tónleika
Selkórinn á Seltjamarnesi heldur sína
árlegu vortónleika í Seltjarnarneskirkju
fimmtudagskvöldið 9. apríl. Efnisskrá er
fjölbreytt að vanda, íslensk verk og er-
lend, öll flutt án undirleiks. Stjómandi
Selkórsins er Jón Karl Einarsson. Félag-
ar 1 kómum em 27 og er kórinn að ljúka
tuttugasta og fjórða starfsári sínu.
Myndgátan hér að ofan
lýsir nafnorði.
Lausn gátu nr. 300:
Málar skratt-
ann á vegginn
Leikhús
9jð
icon *
LEIKFELAG
REYKFAVÍKUR
Simi680680
ÞRÚGUR REIÐINNAR
Byggt á sögu
JOHNS STEINBECK
Leikgerð: FRANK GALATI
STÓRA S VIÐID KL. 20.
Fimmtud. 9. april.
Uppselt.
Föstud. 10. april.
UppselL
Laugard. 11.april.
Uppselt.
Miðvikud. 22. apríl.
Uppselt
Föstud. 24. april.
Uppselt.
Laugard. 25. april.
Uppselt.
Þriðjud. 28. april.
Uppselt.
Fimmtud. 30. april.
Uppselt.
Föstud. 1. maí.
Uppselt.
Laugard. 2. maí.
Uppselt.
Þriðjud. 5. mai.
Uppselt.
Fimmtud. 7. maí.
Uppselt.
Föstud. 8. maí.
Uppselt.
Laugard. 9. mai.
Uppselt.
AUKASÝNING: Þriðjud. 12. mai.
Fimmtud. 14. mai.
Fáein sæti laus.
Föstud. 15. maí.
Uppselt.
Laugard. 16. maí.
Uppselt.
Fimmtud. 21. maí.
Föstud. 22. mai.
Uppselt.
Laugard. 23. mai.
Uppselt.
Fimmtud. 28. maí.
Föstud. 29. mai.
Fáein sæti laus.
Laugard. 30. maí.
Uppselt.
Þriðjud. 2. júní.
Miðvikud. 3. juni.
Föstud. 5. júni.
ATH. SÝNINGUM LÝKUR
20. JÚNÍNK.
MIÐAR ÓSKAST SÓTTIR 4 DÖGUM
FYRIR SÝNINGU - ANNARS SELDIR
ÖÐRUM.
OPERUSMIÐJAN
sýnir i samvinnu við Leikfélag
Reykjavikur:
LA BOHEME
eftir Giacomo Puccini.
Frumsýning í kvöld.
Fáein sæti laus.
Sunnud. 12. april.
Þriðjud. 14. apríl.
Annan páskadag, 20. apríl.
SIGRÚN ÁSTRÓS
eftirWilly Russeli.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20.
Föstud. 24. april.
Laugard. 25. apríl.
Sunnud. 26. apríl.
ATH. ADEINS10 SÝNINGAR.
Miðasala opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl.
13-17. Miðapantanir í síma alla
.virka daga frá kl. 10-12.
Sími 680680.
Faxnúmer: 680383.
Leikhúslínan 99-1015.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavíkur.
Borgarleikhús.
Leikfélag Akureyrar
íslandsklukkan
eftir Halldór Laxness
Föstud. 10. april kl. 20.30.
Laugard. 11. april kl. 20.30.
Miðvfkud. 15. apríl kl. 20.30.
Ffmmtud. 16. april, skírdagur, kl.
20.30.
Laugard. 18. april kl. 20.30.
Mánud. 20. apríl, 2. i páskum, kl.
20.30.
Miðasala er i Samkomuhúsinu,
Hafnarstræti 57. Miðasalan er opin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram aö sýn-
ingu. Greiðslukortaþjónusta.
Síml i mlðasölu: (96) 24073.