Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1992, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992.
LiífSsstHI______________________________________> _________________________________dv
DV kannarverð í matvöruverslunum:
Munur á hæsta og
lægsta verði eykst
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verö í eftirtöldum verslunum;
Bónusi í Skútuvogi, Fjarðarkaupi í
Hafnarfirði, Hagkaupi í Kringlunni,
Kaupstað í Garðabæ og Miklagarði
við Sund.
Veröstríð stórmarkaða kemur
einna greinilegast fram á grænmeti
og ávöxtum. Afleiðingamar má með-
al annars sjá á því að verðsveiflur á
meðalverði verða meiri milli vikna.
í tveimur tilfellum, á gulrótum og
gulri papriku, í könnun vikunnar
eru sveiflumar með ólíkindum.
Meðalverð tómata hefur verið á
uppleið undanfamar vikur og var
komið upp í 230 krónur í lok mars.
Nú bregður svo við að það hrapar
niður í 168 krónur. Meðalverð á kart-
öflum hefur veriö stöðugt undan-
fama mánuði en nú gæti orðið þar
breyting á. Meðcdverðið var rúmar
60 krónur í lok mars en er nú komið
niður í 50 krónur.
Gul paprika var á hagstæðu verði
fyrir neytendur eftir áramót og var
komið í meðalverö rétt um 300 krón-
Bónusbúðimar selja sitt grænmeti
í stykkjatali á meðan hinar saman-
burðarverslanirnar selja eftir vigt.
Til þess að fá samanburð þar á milli
er grænmeti í Bónusi vigtað og um-
reiknað eftir meðalþyngd yfir í kíló-
ur í byrjun mars en hefur hækkað
gífurlega á einum mánuði. Meðal-
verð hennar er nú hvorki meira né
minna en 692 krónur en geta verður
þess að hún fékkst ekki nema í þrem-
ur samanburðarverslananna.
Meðalverð á gulrótum stefndi hratt
upp á við frá lokum janúarmánaðar
til loka marsmánaðar en hríðféll í
könnuninni nú. Það er nú aðeins 72
krónur. Meðalverð á grænum vín-
berjum hefur verið á niðurleið frá
áramótum og hefur lækkað um tæp-
ar 100 krónur á því tímabili. Ekki er
séð fyrir endann á þeirri lækkun.
Meðalverð á appelsínum hefur verið
heldur stöð'ugra, ýmist hækkað eða
lækkað. Það hækkaði lítillega frá síð-
ustu könnun um miðjan marsmánuö
ogernúðlkróna. -ÍS
verð.
Að þessu sinni var kannað verð á
tómötum, grænum vínberjum, gulri
papriku, kartöflum, gulrótum, appp-
elsínum, hvítkáli, Ota haframjöli, 950
g, kjúklingum, Þvol uppþvottalegi,
kók í hálfs Utra plastflöskum og við-
bitinu Léttu.
Það er athyglisvert við könnunina
nú að svo virðist sem munur á hæsta
og lægsta verði aukist töluvert í flest-
um tilfellum. Aukin harka er að fær-
ast í verðstríð stórmarkaðanna og
eiga breytingarnar hjá Miklagarði
eflaust sinn þátt í því.
Munur á hæsta og lægsta verði á
tómötum mæhst vera 143% sem þýð-
ir aö næstum 2'A tómatur fæst fyrir
hvem einn ef verslað er á ódýrasta
stað í stað þess dýrasta. Mikligarður
var með lægsta verðið, 86 krónur, en
síðan komu Kaupstaður með 177,
Fjarðarkaup 179, Bónus 188 og Hag-
kaup 209 krónur. Hagkaup var einn-
ig, eitt verslana, með nýja íslenska
tómata sem seldir eru á 499 krónur
kílóið.
Græn vínber voru á lægsta verðinu
í Miklagarði, 112 krónur, en verðið
var 198 í Kaupstað, 239 í Hagkaupi
og 245 í Fjarðarkaupi. Munur á hæsta
og lægsta verði er 119%. Þau fengust
ekki í Bónusi aö þessu sinni. Gul
paprika fékkst ekki í Miklagarði né
Bónusi en verðið var 390 í Fjarðar-
kaupi, töluvert hærra eða 688 í Hag-
kaupi og langhæst, 999 krónur kílóiö,
í Kaupstað. Það er hæsta kílóverð á
gulri papriku sem sést hefur í nokkur
ár í stórmörkuðunum. Munur á
hæsta og lægsta verði er 156%.
Kartöflur era á 25 krónur kílóið í
Bónusi þar sem verðið var lægst, 28
í Miklagarði, 59 í Hagkaupi, 62 í
Fjarðarkaupi og 75 í Kaupstað. Mun-
ur á hæsta og lægsta verði er 148%.
Neytendur
Gulrætur kosta 44 krónur kílóið í
Miklagarði, 64 í Bónusi, 78 í Kaup-
stað, 85 í Hagkaupi og 89 krónur í
Fjaröarkaupi. Þar mælist munur á
hæsta og lægsta verði vera 102%.
Appelsínur voru á hagstæðasta verð-
inu í Miklagarði, 38, en verðið var 58
í Bónusi, 63 í Fjarðarkaupi, 69 í Kaup-
staö og 79 í Hagkaupi. Munur á hæsta
og lægsta er 108%.
Munur á hæsta og lægsta verði var
mestur á hvítkáli, 172%, af tegundum
í könnuninni. Lægsta veröið var að
finna í Fjarðarkaupi, 47 krónur kíló-
ið, en verðið var 66 í Miklagarði, 87
í Hagkaupi en 128 í Kaupstað. Mun-
urinn á hæsta og lægsta verði á Ota
haframjöli var öllu eðlilegri eða 19
af hundraði. Pakkinn var á 125 í
Miklagarði, 129 í Bónusi, 135 í Hag-
kaupi, 142 í Kaupstað og 149 í Fjarð-
arkaupi.
Kjúklingar voru á kílóverðinu 427
í Miklagarði þar sem verðið var
lægst. Rétt á eftir kom verðið í Bón-
usi, 431, og síðan 489 í Kaupstað og
566 í Fjarðarkaupi og Hagkaupi.
Munur á hæsta og lægsta verði er
32 af hundraði. Þvol uppþvottalögur-
inn er á 90 krónur í Miklagarði, 95 í
Hagkaupi og 99 í Kaupstað og Fjarð-
arkaupi en fékkst ekki í Bónusi.
Munurinn á hæsta og lægsta verði
er 10%.
Kók í hálfs htra plastflöskum var
ódýrast í Bónusi á 59 stykkið en verð-
iö var 61 í Miklagarði, 69 í Hag-
kaupi, 79 í Fjarðarkaupi og 88 í Kaup-
stað. Munurinn á hæsta og lægsta
verði er töluverður eða 49 af hundr-
aði. Viðbitið Létta reyndist vera á
lægsta verðinu í Miklagarði á 96 en
kostaði 101 í Bónusi, 112 í Hagkaupi,
119 í Fíarðarkaupi og 127 í Kaupstað.
Munur á hæsta og lægsta verði er
þar 32%.
-ÍS
Sértilboð og afsláttur:
Gróður-
mold og
blóma-
áburður
Meðal tilboðsvara í Bónusi eru
Duni gular servíettur, 75 stk. i
pakka á 139, Antik gul kerti, 10
stykki i pakka, á 149, London
lamb, sem var á 686 krónur kíló-
iö, og súkkulaöikanína frá Mónu,
sem kostar aöeins 127 krónur.
í Hagkaupi í Kringlunni voru
að byrja vikutilboð á Libby’s
blönduðum ávöxtum í hálfdós á
59, fersk jarðarber, 250 gramma
askja kostar 99, MS ekta hátíðar-
rjómaís, 11, er á 439 og SS rauð-
vínslegið lambalæri á afsláttar-
veröinu 799 krónur kílóiö.
í Kaupstað í Garðabæ er Maar-
ud sticks partísnakkið í 150
gramma pokum á 119 krónur,
skötuselur, tilbúinn á grillið, á
695 krónur kílóið, danskt rauðkál
í krukku, 720 g, á aöeins 89 kr.
og Hy Top grænar baunir á 49
krónur dósin, 482 grömm.
Meðal þess sem Fiarðarkaup er
með á tilboði þessa vikuna er
reyktur lax á kílóveröinu 1.298
krónur, unghænur á 159 krónur
kílóið og súpukjöt á 198 krónur
kílóið. Merki um verðstríð á
brauðum sjást i versluninni þvi
að þar er hægt að fá Samsölu- eða
Myllubrauð á góðum afslætti á
verðinu 74-89 krónur, flestar teg-
undir.
í Miklagarði við Sund var hægt
að fá margar vörur á afsláttar-
verði fyrir þá sem áhuga hafa á
gróðurrækt. Hreppagróðurmold,
36 lítrar, kostar 545 krónur pok-
inn og gróðurmold, 100 lítrar, frá
Pindstrup er á 1.480 krónur. Pot
og plante blómaáburður, 2 iítrar,
kosta 399 krónur og 30 lítra leir-
pottur er á 655 krónur. -ÍS
, Hæsta og lægsta verð
Kjúklingar
Ota haframjöl
170*
Hvítkál
Aukin harka hefur greinilega færst í verðstrið stórmarkaðanna og afleiðing-
arnar eru meðal annars þær að munur á hæsta og lægsta verði hefur aukist.
DV-mynd Hanna
Miklar verð-
sveiflur á græn-
meti og ávöxtum