Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1992, Page 16
16
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992.
FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992.
25
Iþróttir
fþróttir
Hvort virinur Valur eða Keflavík
leikinn á Hlíðarenda í kvöld?
Friðrik Rúnarsson, þjálfari
UMFN: Það er að duga eða drepast
fyrir ÍBK í kvöld, það hefur allt
að vinna en engu að tapa. Það er
samt tnín trú að Valsmenn klári
þetta dæmi.
Gunnar Þorvarðarson, þjálfari
UMFG: Það bendir allt til þess að
Valsmenn hreppi titilinn. Þeir hafa
komið svo sannarlega á óvart. Ég
held að Keflvíkingar hafi nú ekki
sagt sitt síðasta orð og knýi jafnvel
fram fimmta leikinn.
Valur Ingimundarson, þjálfari og
leikmaður UMFT: Ég held að Kefl-
víkingar vinni leikinn i kvöld. Nú
er öll pressan á Valsmönnum en
ef þeir leika af sama krafti verður
siguiinn þeirra. Þaö hlýtur hafa
losnað um spennu hjá Keflviking-
um sem kemur þeim til góða í
kvöld.
Birgir Mikaelsson, þjálfari
Skallagrims: Þetta verðurjafnasti
leikurinn til þessa. Valsmenn eru
farnir að finna lyktina af bikam-
um og vinna þvi leikinn. Þetta
verður mikill baráttuleikur og úr-
slit ráðast ekki fyrr en i lokin.
Guðni Guðnason, leikmaður KR:
1 Ijósi síðustu leikja vinna Vals-
menn leikinn í kvöld. Ég á þó von
á jafhari viðureign en í undan-
fómum leikjum. Valsmenn hafa
leikið af skynsemi og vinna titibnn.
Jafnt í ísrael
- ísland og ísrael gerðu jafntefli, 2-2, í landsleik í gær
íslendingar og ísraelsmenn gerðu 2-2 jafntefli
í vináttulandsleik úknattspymu í Tel Aviv í
gær. Bræðumir Sigurður og Arnar Grétarssyn-
ir skoruðu mörk íslands hvor í sínum hálfleik.
Leikurinn fór fram á aðalleikvangi borgarinnar í 20 stiga
hita en skýjuðu veðri.
íslendingar komust í 0-1. Sigurður skoraði þá úr víta-
spymu eftir að Eyjólfur Sverrisson hafði verið felldur
innan vítateigs en í næstu sókn jöfnuðu ísraelsmennirnir
og þannig var staðan í leikhléi. ísraelsmenn áttu hörku-
skot í stöng úr aukaspymu í fyrri hálíleik.
Arnar kom íslendingum yfir á nýjan leik um miðjan
síðari hálfleik, skoraði þá með lúmsku skoti utan víta-
teigs gullfallegt mark sem markvörðurinn átti ekki mögu-
leika á að verja. ísrealsmenn jöfnuðu metin sjö mínútum
fyrir leikslok. Israelsmenn sóttu nokkuð í síðari hálfleik
og í tvígang varði Friðrik Friðriksson markvörður á
glæsilegan hátt. Friðrik kom inn á um miðjan síðari hálf-
leik í stað Birkis Kristinssonar.
„Ég var bara nokkuð ánægður með strákana í þessum
leik. Fyrri hálfleikur var samt mun betri en sá síðari.
Ég reyndi nýja taktík, 4-5-1, sem ég mun nota í útileikjun-
um í undankeppni heimsmeistarakeppninnar. Þessi leik-
aðferð kom ágætlega út, þótt ýmsa hluti þurfi að fin-
pússa. Þessi leikur var mjög góður undirbúningur fyrir
leikinn gegn Grikkjum," sagði Ásgeir Elíasson, landsliðs-
þjálfari í knattspymu, í samtali við DV eftir leikinn í Tel
Aviv í gær.
Allir fengu að spreyta sig í leiknum, að undanskildum
Baldri Bjarnasyni úr Fram sem var veikur. -JKS/GH
Arnar Grétars-
son skoraði gull-
fallegt mark.
Binda Valsmenn enda á íslandsmótið í kvöld?
Hvort liðið hef ur
Tómas Holton hefur gert frábæra hluti með lið Vals. Hér er hann brosandi fyrir miðri mynd. Spurningin er hvort
Tómas brosir jafn breitt í kvöld eftir leikinn gegn Keflvíkingum. DV-mynd GS
Eirikur Önundarson, IR-ingur, með knötfinn en til varnar er Biikinn Hjörtur Am-
arsson. DV-mynd GS
IR jaf naði metin
á heimavelli UBK
IR-ingar unnu mikiivægan sigur á liöi Breiöabliks í úrslitakeppni 1. deildar í
körfuknattieik i gærkvöldi í miklum baráttuleik á heimavelli Breiðabliks í Digra-
nesi. Lokatölur urðu 64-66, ÍR í vil, og liðin hafa nú unnið einn leik hvort og
mætast þriðja sinni á heimavelli ÍR-inga í Seljaskóla.
Fyrri hálíleikur í gærkvöldi var mjög jafn og staöan 85-34, ÍR í vil, í leikhléi. í
síðari hálfleik náði IR góðu forskoti sem Blikum tókst að minnka en ekki að ógna
ÍR verulega i lokin.
_ Stigahæstur hjá ÍR var Jóhannes Sveinsson með 22 stig og Björn Steffensen og
ívar Webster voru með 10 stig. Lloyd Sergent skoraði 21 stig fyrir UBK og Eiríkur
Önundarson kom næstur mfeð 14 stig.
Gísli Halldórsson, forseti ólympíunefndar íslands:
„Lyfjapróf dýr og þungur
baggi á sérsamböndum"
„Ég viðurkenni að það er erfitt að
haga lyfjaprófum eins í öllum grein-
um, en reglurnar eru þær að sérsam-
böndin þurfa að láta þá sem ná
ólympíulágmörkum gangast undir
lyfjapróf innan 24 tíma. Þetta vita
sérsamböndin og það er þeirra mál,
við fylgjumst ekki með einstökum
mótum sem væhtanlegir ólympíufar-
ar taka þátt í,“ sagði Gísli Halldórs-
son, forseti ólympíunefndar íslands,
í samtali við DV í gær.
Vésteinn Hafsteinsson náði lág-
markinu í kringlukasti á móti í
Bandaríkjunum um síðustu helgi,
eins og sagt var frá í DV á mánudag.
Engin lyfjapróf voru tekin eftir mót-
ið, hann komst ekki í slíkt innan 24
tíma, og þar með telst hann ekki
hafa náð lágmarkinu, samkvæmt
reglum ólympíunefndarinnar.
Setjum reglurnar sjálfir
„Við setjum þessar reglur sjálfir og
förum að erlendri fyrirmynd, en
þetta eru ekki kvaðir frá Alþjóða
ólympíunefndinni," sagði Gísli þegar
hann var spurður um hvaðan regl-
urnar væru komnar.
En er íþróttamönnum gert mishátt
undir höfði, eftir því hvaða íþrótta-
grein þeir stunda? Gísli staðfesti að
það væri erfitt að koma prófunum
við, eftir því hvaða grein væri um
að ræða.
Misjafnt eftir íþróttagreinum
Hvað um skíðamennina sem fóru á
vetrarólympíuleikana í Albertville?
„Þeir fóru allir í lyfjapróf en þar var
ekki hægt að hafa sama háttinn á,
því þeir náðu lágmörkunum ekki
beint heldur voru þeir valdir til aö
fara og gengust þá undir próf. Ég
þori þó ekki að segja nákvæmlega tii
um hvernig það var.“
Júdómennirnir? „Það er erfitt, þeir
vinna sig upp og ekki hægt að segja
að þeir nái lágmarki á tilteknum
tíma. En þeir fara í próf þegar kallað
verður á þá af lækni.“
Badmintonmennimir? „Það er
svipaifog með júdóið, en þeir fara
þó á lokamót í apríl og gangast þá
undir lyfjapróf innan 24 tíma.“
Sundfólkið? „Það á að vera eins,
prófað strax eftir að lágmörkum hef-
ur verið náð.“
Dýrt og sérstaklega
erfitt í Bandaríkjunum
Lyfjapróf eru dýr og því þungur
baggi á sérsamböndunum, sérstak-
lega þégar lágmörkum er náð erlend-
is. „Ég viðurkenni að þetta er vont
að ráða við, og það hefur verið sér-
staklega erfitt að koma prófum við í
Bandaríkjunum. Þess vegna er mað-
ur hræddari við þann árangur sem
næst þar. Árið 1984 sendum við lækni
til að lyfjaprófa keppnisfólkið okkar
sem þá var í Bandaríkjunum, þaö var
mjög kostnaðarsamt og tókst ekki
nógu vel. Það þarf að reyna eitthvað
annað, þetta er í athugun og verður
skoðað vel á næstu dögum," sagði
Gísli Halldórsson.
-VS
Islandsmótið í handknattielk kvenna:
Stjarnan komst í úrslitin
- eftir sigur gegn FH. Þriðji leikur Fram og Víkings
Framiengingu þurfti í leik Fram
og Víkings í Höllinni í gær og voru
það Víkingsstúlkur sem fóru með
sigur af hólmi, 16-17.
Jafnræði var með liðunum allan
fyrri hálfleikinn en Framstúlkur þó
alltaf fyrri til að skora og var staðan
í leikhléi jöfn, 8-8. Framstulkur skor-
uöu fyrstu 3 mörkin í síðari hálfleik
og voru þær með yfirhöndina þar til
um 13 mínútur voru eftir þá náöu Vík-
ingsstúlkur að jafna, 12-12. Víkings-
stúlkur komust yfir 1 fyrsta skiptið í
síðari hálfleik þegar 6 mínútur voru
eftir og bættu þær öðru marki við,
14-16, og virtust þær vera með pálm-
ann í höndunum. Framstúlkur voru
ekkert á því að gefast upp og með ótrú-
legri baráttu náðu þær .að jafna og
þurfti því að framlengja leikinn. Að-
eins eitt mark var skorað í framleng-
ingunni og var það Heiða Erlingsdótt-
ir, Víkingi, sem tryggöi sínum mönn-
um sigurinn og verður þriðji leikurinn
spilaður í Víkinni á föstudag.
Mörk Fram: Inga Huld 6, Auður 4,
Díana 3/1, Hafdís 1, Ósk 1, Hulda 1.
Mörk Víkings: Inga Lára 5, Halla
5/2, Heiða 2, Svava 2, Svava Ýr 1, Vald-
ís 1, Andrea 1.
• Stjaman tryggði sér sæti í úrslit-
um með því að sigra FH 1 Kaplakrika
14-1. Stjömustúlkur tóku leikinn
strax í sínar hendur og voru þær með
gott forskot í leikhléi, 11^4. Héldu þær
uppteknum hætti 1 seinni hálfleik og
uppskáru sigur samkvæmt því.
Mörk FH: Jólita 4, Rut 4/3, Sigurborg
2, Amdís 2, Hildur 1, María 1.
Mörk Stjömunnar: Harpa 7/3, Ragn-
heiöur 4/1, Sigrún 4, Margrét 3, Herdís
1. -BÓ
KNATTSPYRNUFELAG AKUREYRAR
1.-5. JÚNÍ ESSOMÓT 1992
Þau félög, sem óska eftir að taka þátt í knattspyrnu-
móti KA fyrir A-B-C og D lið í 5. flokki karla, til-
kynni þátttöku á símrita KA (96) 11839 eða í póst-
hólf 16 á Akureyri fyrir 14. apríl nk.
Staðfestingargjald, kr. 15.000 á hvert lið viðkomandi
félags, greiðist í síðasta lagi 21. apríl nk.
Siguröur T. Sigurösson, FH,
setti íslandsmet í 35 ára flokki á
meistaramóti öldunga í stangar-
stökki sem fram fór í Hafnarfirði
um helgina. Sigurður, sem keppti
í fyrsta skipti á öldungamóti,
stökk 4,80 metra en annar varð
Kristján Gis’surarson, UMSE,
stökk 4,70 metra. Kristján átti
fyrra metið, 4,75 metra. Valbjörn
Þorláksson sigraði í 55 ára ílokki,
stökk 3 metra.
Heimsmet Vaibjörns?
Valbjöm setti að öllum iíkindum
heimsmet í hástökki án atrennu
i 55 ára flokki á móti hjá ÍR á
dögunum. Þar stökk hann 1,56
metra og ekki hefur frést af betri
árangri, að sögn Ólafs Unnsteins-
sonar, öldungaleiðtoga. Þetta er
jafnframt 7. besti árangur íslend-
mgs í ár. Jón Þ. Ólafsson setti á
sama móti met í 50 ára ílokki,
stökk 1,60 metra. Jón bætti metið
í gærkvöldi, stökk þá 1,65 metra.
Úrslitaleikur um fallið
Það verður hörkuleikur á Sel-
tjarnarnesi í kvöld. Grótta og HK
leika þá hreinan úrslitaleik um
það hvort liðíð fellur í 2. deild.
Liðin hafa leikiö tvo ieiki, HK
vann fyrri leikinn á Nesinu,
21-20, og Grótta þann síðari,
19-18, en í kvöld fellur þaö lið sem
biður lægri hlut. Leikurinn hefst
klukkan 20.
Tyrkir unnu Dani
Tyrkir unnu sigur á Dönum, 2-1,
í vináttulandsleik í knattspyrnu
í Ankara í Tyrklandi í gær. Hami
og Hakan gerðu mörk heima-
manna en Bengt Christiansen
skoraði eina mark Danmerkur.
Opið i Grafarholti
Eitt stærsta golfmót atvinnu-
manna í heiminum ár hvert, US
Masters, hefst í dag og lýkur
mótinu á sunnudaginn. Þeir kylf-
ingar islenskir sem áhuga hafa á
aö fylgjast meö mótinu í beinni
útsendingu geta gert það í golf-
skálanum í Grafarholti alla
keppnisdagana. Útsendingar
verða kl. 20 á fimmtudag, föstu-
dag og laugardag en 19.80 á
sunnudagskvöldið,
Borgarstjóri beitir sér
fyrir stækkun Hallarinnar
Borgarstjórinn i Reykjavík hefur
sent Handknattleikssambandi Is-
lands bréfþar sem hann lýsir því
yfir að hann muni beita sér fyrir
því að Laugardalshöllin verði
stækkuð, svo hún geti hýst úr-
slitaleiki HM 1995. Þar kemur
fram aö slökkviliðsstjórinn í
Reykjavík hafi lýst því yfir að
aögangur fyrir allt að 4.200 gesti
verði heimiiaður í Höllinni, að
uppfylltum ákveðnum skilyrð-
Enska knattspyman:
Liverpool tapaði
á Anf ield Road
Liverpool beið ósigur á heimavelli
sínum í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar í gærkvöldi gegn Wimbledon,
2-3. Michael Thomas skoraði fyrst
fyrir Liverpool, Lawrie Sanchez jafn-
aði metin en Ronny Rosenthal kom
Liverpool yfir á síðustu mínútunni
fyrir leikhlé. í síöari hálfleiknum
skoruðu þeir Andy Clarke og John
Fashanu fyrir Wimbledon.
Arsenal sigraði í leik sínum á
heimavelh Norwich. Arsenal komst
í 0-2 með mörkum Ians Wright (víti)
og Kevins Campbell áður en Ian
Butterworth náði að minnka muninn
fyrir Norwich-. Wright skoraði síðan
öðru sinni í síðari hálfleik og lokatöl-
ur 1-3.
Southampton tapaði heima gegn
Nottingham Forest og skoraði Tiler
sigurmarkið. Loks gerðu Coventry
og Sheffield Wednesday markalaust
jafntefli. í 3. deild sigraði Peterboro
liö Bournemouth, 2-0. _SK
sterkari taugar?
- flórði leikur Vals og ÍBK kl. 201 Valsheimilinu
„Ekkert hef ur gerst í
mínum málum ennþá“
- hætta Júlíus og Geir á Spáni?
Valsmenn geta í kvöld bundið enda
á íslandsmótið í körfuknattleik. Þá
mæta Valsmenn Keílvíkingum í
fjórða úrslitaleik liðanna um íslands-
meistaratitilinn en staðan fyrir leik-
inn í kvöld er 2-1, Val í vil.
Það er til mikils að vinna fyrir
bæði liðin í kvöld. Valsmenn urðu
síðast íslandsmeistarar árið 1983 og
hafa sýnt það í síðustu tveimur leikj-
um að þeir hafa fullan hug á titlinum.
Liðið hefur verið að styrkjast und-
anfarnar vikur og er firnasterkt um
þessar mundir. Lykilmenn Vals eru
mjög sterkir leikmenn og því ætti það
ekki að koma neinum á óvart þótt
íslandsmeistaratitillinn færi að Hlíð-
arenda þetta árið.
Keflvíkingar hafa ekki
sagt sitt síðasta orð
Sigur Valsmanna í kvöld er fjarri því
að vera öruggur. Lið Keflvíkinga er
mun betra en það hefur sýnt í síð-
ustu leikjum. Þeir eru margir sem
trúa því ekki að Keflvíkingar nái
ekki einum góðum leik í úrslitaleikj-
unum gegn Val. í kvöld er síðasta
tækifæri Keflvíkinga og munu þeir
örugglega gefa allt í þennan stórleik.
Keílvíkingar hafa að öllum líkindum
ekki sagt sitt síðasta orð og ef liðið
vinnur í kvöld hefur staðan í úrslit-
unum gerbreyst á einu kvöldi. Þá fer
fimmti leikurinn fram í Keflavík á
laugardag.
Bæði lið í vandræðum
Hvorugt liðanna getur mætt til leiks.-
ins í kvöld með sitt sterkasta lið.
Guðni Hafsteinsson, Val, verður í
leikbanni vegna brottrekstrarvillu
sem hann fékk í síðasta leik og þá
hefur Tómas Holton verið veikur og
gat lítið sem ekkert beytt sér í Kefla-
vík á þriðjudaginn.
Hjá Keílavík hefur Sigurður Ingi-,
mundarson verið fjarri góðu gamni
en hann á við bakmeiðsli að stríða.
Óvíst er hvort hann leikur í kvöld.
Fjarvera Sigurðar hefur auðvitað
haft mjög slæm áhrif á lið Keflvík-
inga enda hefur hann um árabil ver-
ið einn besti leikmaður liðsins.
Búist við 1500 áhorfendum
Gífurlegur áhugi er fyrir leiknum í
kvöld og búast Valsmenn við um 1500
áhorfendum. Búið er að bæta aðstöðu
áhorfenda nokkuð og bæta við áhorf-
enda bekkjum úr Laugardalshöll. Það
verður hroðaleg spenna á Hlíðarenda
í kvöld og víst er að það hð sem
mætir til leiks í kvöld með upplagðari
leikmenn og sterkari taugar mun fara
meðsigurafhólmi. -SK
Sigurður
Grétarssnn
skoraði "r
vítaspyrnu.
Júlíus Jónasson skoraði 3
mörk fyrir Bidasoa þegar
Uðiö tapaði fyrir Barce-
lona, 26-19, í úrslitakeppn-
inni um spænska meistaratitilinn í
handknattleik í fyrrakvöld. Börsung-
ar eru þar með komnir með aðra
höndina á titilinn en liðið hefur enn
ekki beðið ósigur, unnið alla leiki
sína utan eitt jafntefli í úrslitakeppn-
inni. Barcelona er með 19 stig, Gran-
ollers 14, Teka 12 og Avidesa 9. Bida-
soa er meðal neðstu liða með 4 stig.
Eins og fram hefur komið í DV lenti
Júlíus í útistöðum við forráðamenn
félagsins áður en B-keppnin hófst í
Austurríki.
„Það hefur ekkert gerst í mínum
málum ennþá. Eins og staðan er í dag
reikna ég með að leika annars staðar
á næsta keppnistímabili. Ég á fund
með forráðamönnum félagsins nú á
næstu dögum og eftir þann fund ættu
mín mál að komast á hreint,“ sagði
Júlíus í samtali við DV í gær.
Geir með tilboð
Geir Sveinsson lék með með Avidesa
og skoraði 2 mörk í jafnteflisleik,
21-21, gegn Granollers. Forráða-
menn Avidesa hafa boðið Geir að
framlengja samning sinn um 1 ár.
Ætlar Geir að taka því boði? „Það
veltur allt á því hvað þeir ætla að
gera með útlendingana á næsta tíma-
bili. Ef leyft verður að nota 3 í hveij-
um leik er ég alveg eins til í að leika
áfram en ég er ekki eins spenntur
með óbreyttu fyrirkomulagi, það er
að nota tvo í deildinni og þrjá í Evr-
ópukeppninni," sagði Geir i samtali
viðDV. -GH