Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1992, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1992, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1992. Úflönd_____________________ Kinverji þykist geta réttskakka tuminn í Pisa Kínverskur verkfræöingur, Cao Shi2hong, segist geta rétt viö skakka turninn í Pisa á Ítalíu á tíu mánuöum. í erlendu útgáfu Dagblaðs al- þýöunnar í Peking í gær sagði aö verkfræðingion heföi dreymt um þaö í tuttugu ár aö koma turnín- um á réttan kjöl. Shizhong tókst í fyrra að rétta viö gamla pagóðu frá valdatíma Ming ættarinnar i suöurhluta Kína. Blaðiö sagði aö hann vildi ekki koma tuminum í fulla lóðrétta stöðu þar sem þá missti hann aðdráttarafl sitt fyrir ferðamenn. Heldur vili hann koma turninum í stöðuna sem hann var í árið 1350. Kínversk stjórnvöld hafa fallist á áætlanir vekfræðingsins en ekki er vitað um viöbrögö ítala. Tölvuvæddar ruslatunnur minnka sorpið íbúar hollensku borgarinnar Hoofddorp losa sig við minna sorp eftir að þeir fengu nýjar rusiatunnur sem í er tölvukub- bur sem mælir hversu mikið fer í þær. Bæjaryfírvöld fylgjast grannt með hverri íðtu og þau heimili, sem iiafa dregið úr losun sorps um þrettán prósent, fá endur- greiðslur úr bæjarsjóði. Embættismenn áætla að tveir þriðju hlutar þeirra sem taka þátt í 26 vikna tilrauninni með nýju tunnurnar hail áunniö sér rétt til að fá greiðslurnar. Hollensk heimili fVamleiöa mest sorp allra innan Evrópu- bandalagsins og nú er svo komið að landrými vantar til að losa það. Skæruliðarloka barnum á besta hótelinu í SCabúl Afganskir skæruliðar lokuðu barnum á Intercontinental hótel- inu í Kabúl, því besta í borginni, á mánudag þegar þeir innleiddu íslömsk iög í landinu eftir fjórtán ára valdatíð guðlausra kommún- ista, Sijórnendur hótelsins reyndu að tala um fyrir skæruliöum og bentu á að aöeins útlendingar gistu það. En allt kom fyrir ekki, skæruliðum varö ekki haggaö. Ströng lög islams setja nú æ meiri svip á Kabúl og á götum borgarinnar sjást t.d. ekki lengur konur í vestrænum fótura. Bannaðað þynna messu- Bindindismannafélagið Þraut- seigjan sigrar í sænska bæjarfé- laginu Álvkarleby og Skutskár telur að ungar stúlkur og drengir eigi ekki aö hefja áfengisneyslu sína þegar þau ganga tíl altaris eftir ferminguna. Þess vegna fengu stúkumenn kirkjuráðiö í hð með sér og ákveöið var að þynna messuvíniö með vatni. Kona nokkur í bænum vildi ekki una þessari afskiptasemi og kærði bindindisfélagið. Dómur hefur nú f'allið í málinu og þar segir að sfjórnmálamennimir i kirkjuráðinu eigi ekki að vera aö skipta sér af guðlegum málefn- um. Dómstóllinn vísaði í kirkju- lög frá 1686 máli sínu til stuön- ings. I úrskurömum sagöi að þaö væri prestsins aö ákveða hversu mikið áfengismagn værí í messu- vininu og einskis manns annars. Reuter og TT Mikið öngþveiti skapaðist á knattspyrnuleikvanginum í Bastía í gærkvöldi þegar bráðabrigðastúka fyrir nær tíu þúsund manns hrundi. í morgun var enn unnið að björgunarstörfum og þyrlur frá franska hernum notaðar til að flytja hina slösuðu á sjúkrahús. Simamynd Reuter Sextán látnir og yfir 700 sárir eftir hrun áhorfendastúku á Korsíku: Fólkið stappaði þar til pallurinn hrundi smiðir voru að lappa upp á stúkuna allt þar til knattspymuleikurinn hófst „Þetta var eins og jörðin opnaöist skyndilega undir fótum okkar,“ sagöi einn áhorfenda á knattspyrnu- leikvanginum í Bastía á Korsíku þar sem hann lá brotinn á báðum fótum eftir að áhorfendastúka fyrir nær tíu þúsund manns hrundi í gærkvöldi. Áhorfendastúkan var reist til bráðabrigða til aö taka á móti öllum þeim sem hefðu áhuga á að sjá Frakklandsmeistarana frá Marseifle leika við lið heimamanna. Leikurinn var rétt að hefjast þegar ógæfan dundi yfir. Mikil stemning var á leikvanginum og stappaði fólkið í stúkunni í takt þar til allt hrundi. Kallað var til fólksins og það beðið að hafa sig hægt en enginn sinnti því. Viður- kennt er að stúkan var mjög ótraust og unnu smiðir við að lappa upp á hana allt til þess að leikurinn hófst. Þegar síðast fréttist voru sextán menn látnir og um 700 höföu leitað sér læknishjálpar vegna meiðsla sem þeir hlutu við hrun stúkunnar. Lög- reglan á staðnum segir að margir séu alvarlega sárir. Um 70 áhorfendur slösuðust það iha að þeim er vart hugað líf. ÍTALÍA * Bastía KORSIKA SARDINIA Paul Quilles, innanríkisráðherra Frakklands, flaug til Bastía þegar í nótt og tilkynnt að sett yrði upp rannsóknamefnd til að kanna tildrög slyssins. Ljóst er aö ekki var gengið svo tryggilega frá áhorfendastúkunni sem skyldi. Forráðamenn knatt- spyrnuliðsins í Bastía verða því væntanlega látnir svara fyrir ákvörðunina un að reisa stúku til bráðabrigða fyrir þennan leik. Stúk- an hafði áður verið notuð á vetrar- ólympíuleikunum í Aibertville og þá reynsttraust. Reuter Bush heimsækir Los Angeles: Þjófar f á samviskubit og skila þýf inu aftur George Bush Bandaríkjaforseti heldur til Los Angeles í kvöld til aö ræða við leiðtoga borgarinnar og kanna skemmdimar sem urðu í óeirðunum þar á dögunum eftir að ijórir hvítir lögregluþjónar vom sýknaöir af ákæru um að ganga í skrokk á svörtum ökumanni. Búist er við að heimsókn forsetans muni hrinda af stað heitum umræðum um félagsmála- og efnahagsstefnu stjómvalda sem margir segja að eigi sök á verstu kynþáttaóeirðum í Bandaríkjunum á þessari öld þar sem 58 létu lífið. Heimsókn Bush var fyrir löngu ákveðin en henni var flýtt um einn dag. Kalifomíubúar hafa verið eink- ar haröir í gagnrýni sinni á stefnu stjóma Ronalds Reagan og Bush og saka þá um að hafa horft fram hjá þörfum fátækra íbúa stórborganna í meira en áratug. Stjóm Bush hefur á hinn bóginn skellt skuldinni á mistök velferðar- kerfisins sem demókratar innleiddu á sjöunda og áttunda áratugnum. í Los Angeles sjálfri héldu menn einnig áfram að benda á sökudólgana og þar var Daryl Gates lögreglustjóri sakaöur um að hafa brugðist seint og illa við óeirðunum. Mikið var um gripdeildir í borginni en margir þjófanna virðast hafa fyllst samviskubiti og era famir að skila þýfinu aftur. Sófar og sjónvarpstæki vom skilin eftir á götum í nokkrum hverfúm þar sem lögreglan haíði látið það berast út að menn ættu ekki ákæm yfir höfði sér fyrir stuldinn. Reuter Mike Tyson hótaði að berja f angaverðina Mike Tyson hnefaleikakappi hef- ur verið settur í einangmn þar sem hann afplánar sex ára fangavist í ríkisfangelsinu í Indiana fyrir aö nauðga 19 ára gamalli fegurðar- drottningu. Tyson hótaði að berja fangaverð- ina og því þótti tryggast að taka hann úr umferð um tíma. Mál þetta er hið versta fyrir Tyson því hann gat búist við að fá að sleppa eftir þriggja ára veru í fangelsinu ef hann hagaði sér skikkanlega. Nú í lok vikunnar á að taka brot hans fyrir hjá aganefnd fangelsis- ins og er búist við að niöurstaða hennar verði Tyson í óhag því hart er tekið á hótunum viö fangaverði. Tyson verður að sætta sig við að vera aöeins fangi númer 922335 í fangelsinu. Þaö em mikil viðbrigði fyrir mann sem um árabil var í fremstu röð í íþrótt sinni og heims- meistari þegar veldi hans var mest. Þetta er í annað sinn sem Tyson brýtur reglur í fangelsinu. Hann hafði áður neitað að gangast undir próf sem sýndi hvemig menntun hans væri háttað. Kappinn sá þó að sér og fór í prófið enda var hon- um bent á að hann yrði úrskurðað- ur skrifandi en ekki meir. Tyson hafði þá gefið fjölda samfanga sinna eiginhandaráritanir. Lögmenn Tysons reyna enn að fá mál hans tekiö fyrir að nýju. þeir vilja aö honum verði sleppt gegn tryggingu meðan á nýrri rannsókn stendur en yfirvöld hafa ekki viljað ljá máls á þessu. Þá hefur og ekk- ert nýtt komið fram sem sannað gæti að Tyson væri sýkn saka. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.