Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1992, Page 2
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1992.
2
Fréttir
Lögin um Lánasjóð íslenskra námsmanna samþykkt á Alþingi í gær:
Stjórnarandstæðingar
létu stór orð falla
þegar þeir gerðu grein fyrir atkvæði sínu við afgreiðslu frumvarpsins
Frumvarpið um lánasjóð náms-
manna var afgreitt sem lög frá Al-
þingi í gær. Samkvæmt upplýsing-
um sem komu fram á Alþingi í gær
hefur umræða um málið staöiö í
42 klukkustundir.
Fullyrða má aö það eru ár og
dagar síðan jafn mikil átök hafa átt
sér stað á Alþingi um lagafrumvarp
og um þetta frumvarp. Enda fór
það svo þegar frumvarpið hafði
verið afgreitt að algert spennufall
varð meðal þingmanna. Margir yf-
irgáfu húsið en aðrir settust hijóðir
inn í kaffistofu þingsins enda þótt
þingstörf héldu áfram.
Það bar til tíðinda aö Ingi Bjöm
Albertsson, þingmaður Sjáifstæð-
isflokksins, greiddi atkvæði meö
breytingartillögu stjómarandstöð-
unnar um 6. grein frumvarpsins.
Tillagan var þess efnis að greiöa
út tvo þriðju hluta venjulegra
námslána í haust. Breytingartillag-
an var felld með 28 atkvæöum gegn
25. Össur Skarphéðinsson, þing-
flokksformaöur Alþýðuflokksins,
sat hjá.
Krafist var nafnakalls um allt
sem viðkom afgreiðslu frumvarps-
ins. M)ög margir þingmenn stjóm-
arandstöðunnar gerðu grein fyrir
atkvæði sínu við afgreiðslu frum-
varpsins. Þeir létu flestir stór orð
falla. Margir sögðu að með sam-
þykkt frumvarpsins væri jafnrétti
til náms á íslandi afnumið. Það
væri enn ein aðfórin að velferðar-
kerfi landsins. Verið væri að ráðast
að efnalitlu fólki í landinu. Verið
væri að svipta íslenska námsmenn
framfærslueyri næsta haust. Þetta
væri upphaf þess að leggja lána-
sjóðinn niður og afhenda bönkun-
um og þar með kolkrabbanum það
vald að segja til um hverjir mættu
læra og hverjir ekki. Margt annaö
í svipuðum dúr sögðu þingmenn
sem gerðu grein fyrir atkvæði sínu.
Össur Skarphéðinsson var eini
stjórnarþingmaðurinn sem gerði
grein fyrir atkvæði sínu. Hann var
óánægður með 6. grein frumvarps-
ins en greiddi fmmvarpinu samt
atkvæöi. Hann sagði að gerðar
hefðu verið fjölmargar breytingar
á frumvarpinu sem allar væm til
verulegra bóta. Hann sagðist, þrátt
fyrir 6. greinina, standa að sam-
komulagi stjómarflokkanna í mál-
inu. En komi í ljós að lögin skeröi
möguleika einhverra til náms,
áskilji hann sér allan rétt til að fá
fram breytingar á lögunum. Það
heyrðist hlátur og kurr í hópi
námsmanna á þingpöllum þegar
Össur flutti ræöu sína.
-S.dór
Námsmenn stóðu fyrir sorgarathötn á Austurvelli i gær eftir að lögin um Lánasjóð íslenskra námsmanna höfðu
verið samþykkt. Þeir lögðu blómsveig aö leiði Jóns Sigurðssonar og siðan lagði hver og einn úr hópnum blóm
við fótstallinn. DV-myndGVA
Námsmenn troðfylltu þlngpalla 1 gær í mótmælaskyni:
Þuldu yfir þingmönnum
úr verki Jóns forseta
lögðu síðan blómsveig að styttu hans á Austurvelli
Mjög stór hópur námsmanna fyllti
þingpalla og ganga Alþingishússins
í gær þegar atkvæðagreiðsla fór fram
við afgreiðslu framvarpsins um
Lánasjóð íslenskra námsmanna. Um
leið og þingforseti tók máhð á dag-
skrá hófu námsmenn upp raust sína
og lásu í einum kór úr verki Jóns
Sigurðssonar forseta um skólamál.
Salome Þorkelsdóttir þingforseti
reyndi að stöðva kórinn en gat það
ekki.
Það er algerlega bannað að lesa
svona yfir alþingismönnum af þing-
pöllum. Það mun ekki hafa verið
gert síðan Össur Skarphéðinsson,
þáverandi formaöur stúdentaráðs en
núverandi formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, gerði þaö á sínum
tíma. Þá var hann varinn á þingpöll-
um af hópi námsmanna svo þing-
verðir gætu ekki íjarlægt hann. Eng-
in tilraun var gerð til að fjarlægja
þennan stóra hóp námsmanna úr
Alþingishúsinu í gær vegna kór-
flutningsins. Textinn sem náms-
menn lásu yfir alþingismönnum er
svo hljóðandi:
„Með tilliti til þjóðarinnar verður
sá tilgangur skólans: Að búa svo
undir hverja stétt, að hver þeirra í
sinni röð styðji að framfór alls lands-
ins, allrar þjóðarinnar, svo að vér
gætum smám saman komist þannig
á fót, að vér gætum fylgt með fram-
fórum hinna menntuðu þjóða á sér-
hverri öld, eftir því sem kostur er á,
og sigrað sem flestan tálma, sem þar
verður á vegi vorum, en alþingi verö-
ur ljósastur vottur, hvort þetta
heppnast eða ekki. Til þess að ná
þessum tilgangi ættum vér allir að
stuðla með kostgæfni og alúö og ekki
skirrast við þeim kostaðarauka, sem
kljúfandi væri, því að engum pening-
um er varið heppilegar en þeim, sem
keypt er fyrir aldeg og líkamleg fram-
fór, sem mest að verða má. Vér eigum
aö hefja hugann hátt. (Jón Siurðsson,
Um skólamál á íslandi.)
Eftir að lögin höfðu veriö samþykkt
gengu námsmenn aö styttu Jóns Sig-
urðssonar forseta á Austurvelli og
framkvæmdu þar sorgarathöfn með
því aö leggja blómsveig að fótstalli
styttunnar. Síðan lagði hver og einn
úr hópnum eitt blóm við fótstallinn.
Allt fór þetta kurteislega fram og
með miklum alvörublæ.
-S.dór
Starfsfólk sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva:
Hótað átökum til
að koma í veg fyrir
kjaraskerðingu
Bæði Alþýðusambandið og BSRB
urðu að hóta því að ekki yrði skrifað
undir nýju kjarasamningana nema
gengið yrði að kröfum þessara aðila
um að laun starfsfólks á sjúkrahús-
um og heilsugæslustöðum yrðu ekki
skert eins og til stóð.
Forsaga málsins er sú að um ára-
mótin 1990/1991 yfirtók ríkið rekstur
sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva af
sveitarfélögunum. Á þeim tíma voru
í gildi kjarasamningar milli bæjar-
starfsmannafélaga um allt land og
Launanefndar sveitarfélaga. Rikið
gerðist aðih að þessum samningi þeg-
ar það yfirtók rekstur sjúkrahús-
anna og heilsugæslustöðvanna.
Þann 26. apríl síðastliðinn var
gengið frá því að það starfsfólk sem
fyrir væri á þessum stofnunum héldi
sínum kjörum. Hins vegar varð að
samkomulagi að nýráöningar yrðu á
allt öðrum og lakari kjörum, sam-
bærilegum þeim sem ríkisstarfs-
menn hafa. Þetta olh mikilli
óánægju, enda gat munurinn á jafn
menntuöu fólki við sömu störf á
sömu stofnun verið aht að 15 þúsund
krónur á mánuði.
Farið var í að fá þessu breytt og
gekk það erfiðlega í fyrstu. Það var
ekki fyrr en því var hótað að ekki
yrði skrifað undir nýjan kjarasamn-
ing að samningamenn ríkisins féhust
á að út kjarasamningstímabihð yrðu
nýráðningar með sama hætti og ver-
ið hefur, nýráðnir verða ekki fyrir
kjaraskerðingu. -S.dór
Hald lagt á kinda-
byssu og fíknief ni
Fíkniefnadeild lögreglunnar lagði
hald á eins skots kindabyssu viö
húsleit í Reykjavík á fimmtudag.
Leitin var framkvæmd eftir að upp-
lýsingar bárust um aö byssan væri í
tilteknu húsi.
Á fimmtudagskvöld og aðfaranótt
fostudags voru framkvæmdar þrjár
aörar húsleitir. Samtals 12 aðhar
voru handteknir. Lagt var hald á 16
grömm af amfetamíni, um 10 grömm
af hassi og áhöld til fíkniefnaneyslu.
Allir þeir sem handteknir voru eru
kunnugir fikniefnalögreglunni. Ekki
var um að ræða bein tengsl á milh
húsleitannaþriggja. -ÓTT
Djasssöngvarinn Jon Hendricks & Company komu til landsins i gærmorgun
og halda tónleika í Háskólabíói kl. 14.30 í dag. Kappinn minnti helst á fransk-
an herramann frá síðustu öld er hann kom út úr Leifsstöð ásamt konu sinni
og dóttur. Tónlistin, sem hann syngur, er ekta tuttugustu aldar djass, ættað-
ur frá Armstrong, Ellington, Basie, Parker og Miles Davis. „Útsýnið héðan
á engan sinn lika,“ sagði Jon er hann kom í svítu sína á Hótel Esju. Sam-
nefnt fjall og fegurð Reykjavíkur blasti við augum. „Það verður stórkostlegt
að syngja í þessari borg.“ Það er Vernharður Linnet sem hér tekur á
móti Hendricks.