Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1992, Qupperneq 26
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1992.
Afmæli
Torfi Hjartarson
Torfi Hjartarson, fyrrv. tollstjóri og
fyrrv. sáttasemjari ríkisins, Flóka-
götu 18, Reykjavík, er níræður í dag.
Starfsferill
Torfi fæddist á Hvanneyri í Borg-
arfirði. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR1924, embættisprófi í lögfræði
frá HÍ1930 og dvaldi í London við
framhaldsnám 1930-31.
Torfi var starfsmaöur við skrif-
stofu Alþingis 1926 og 1927, mál-
flutningsmaður í Reykjavík 1931-32,
settur sýslumaður og bæjarfógeti á
ísafirði 1932-33, fulltrúi hjá sýslu-
manni og bæjarfógeta á Akureyri
1933, sýslumaður og bæjarfógeti á
ísafirði 1934, skipaður tollstjóri í
Reykjavík 1943-72, skipaður vara-
sáttasemjari ríkisins 1944 og sátta-
semjari ríkisins 1945-79.
Torfi var formaöur SUS frá stofn-
un 1930-34, bæjarfulltrúi á ísafirði
1940-43, sat í stjómskipuðum nefnd-
um sem önnuðust endurskoðun
laga um skemmtanaskatt, um hvíld-
artíma sjómanna á togurum, um
söluskatt og um tollskrá. Hann var
fulltrúi íslands á tollafundum Norð-
urlanda 1957-72og formaður Nor-
diska Tulladministrativa Rádet
1960-61 og 1967-68. Þá var hann odd-
viti yfirkjörstjómar við bæjar-
stjómarkosningarnar í Reykjavík
1949-62. Torfi er heiðursfélagi Dóm-
arafélagsins frá 1972 og hefur verið
sæmdur fjölda heiðursmerkja, ís-
lenskra og erlendra.
Fjölskylda
Torfi kvæntist 1.2.1934 Önnu
Jónsdóttur, f. 23.7.1912, d. 25.1.1992,
húsmóður. Foreldrar hennar voru
Jón Sigurðsson, vélfræðingur og
útgerðarmaður í Hrísey, og kona
hans, Sóley Jóhannesdóttir, Davíðs-
sonar, útvegsb. í Syðstabæ.
Böm Torfa og Önnu: Hjörtur, f.
6.7.1934, d. 17.3.1935; Hjörtur, f. 19.9.
1935, hæstaréttardómari í Reykja-
vík, kvæntur Nönnu Þorláksdóttur,
húsmóður og læknaritara, og eiga
þau þrjú börn; Ragnheiður, f. 1.5.
1937, menntaskólakennari í Reykja-
vík, gift Þórhalli Vilmundarsyni
prófessor og eiga þau þrjú börn;
Sigrún, f. 23.10.1938, d. 21.12.1991,
húsmóðir i Kanada, var gift dr. Ro-
bert Kajioka Ph.D. og eignaðist hún
þijár dætur; Helga Sóley, f. 13.9.
1951, hjúkrunarfræðingur í Reykja-
vík.
Bræður Torfa vom Snorri, f. 22.4.
1906, d. 27.12.1986, skáld og bóka-
vörður, ogÁsgeir, f. 21.11.1910, d
28.7.1974, kennari og bókavörður.
Foreldrar Torfa voru Hjörtur
Snorrason, f. 29.9.1859, d. 1.8.1925,
skólastjóri á Hvanneyri og síðar b.
á Skeljabrekku og í Arnarholti í
Borgarfirði og alþingismaður, og
kona hans, Ragnheiður Torfadóttir,
f. 17.6.1873, d. 27.12.1953, húsfreyja.
Ætt
Hjörtur var sonur Snorra, b. á
Skerðingsstöðum og víðar í
Hvammsveit, bróður Sigríðar,
langömmu Jóns M. Samsonarsonar
handritafræðings. Snorri var sonur
Jóns, b. í Glerárskógum, Sigurðs-
sonar og Sigríðar Daðadóttur.
Móðir Hjartar var María Magnús-
dóttir, hreppstjóra í Magnússkóg-
um, Magnússonar, skálds og hrepp-
stjóra á Laugum, Jónssonar
(Lauga-Magnúsar), langafa Friðjóns
Jenssonar, læknis á Akureyri, og
Bjama Jenssonar, hreppstjóra í Ás-
garði, fóður Torfa, læknis á Sauðár-
króki. Móðir Maríu var Guðlaug
Brandsdóttir, b. í Dagverðamesi,
Jónssonar, bróður Steinunnar og
Þuríðar, ættmæðra Ormsættarinn-
ar.
Meðal systkina Ragnheiðar var
Ásgeir efnaverkfræðingur, faðir
Torfa hagfræðings, Markús, b. í Ól-
afsdal, faðir Ásgeirs verkfræðings
og Sverris dýralæknis, og Áslaug,
móðir Ragnars H. Ragnars tónlist-
armanns og amma Hjálmars tón-
skálds og Magnúsar Torfasonar
hæstaréttardómara. Ragnheiður
var dóttir Torfa, skólastjóra í Ól-
afsdal, Bjarnasonar, b. í Bessa-
tungu, Bjarnasonar, b. á Ytri-
Hrafnabjörgum, Tjörfasonar.
Móðir Ragnheiðar var Guðlaug
Zakaríasdóttir, b. á Heydalsá, Jó-
hannssonar, prests í Garpsdal,
Bergsveinssonar, prests á Stað í
Grunnavík, og konu hans, Halldóru
Snæbjamardóttur (Mála-Snæbjarn-
ar), Pálssonar, sýslumanns í ísa-
fiarðarsýslu, Torfasonar. Móðir
Torfi Hjartarson.
Guðlaugar var Ragnheiður ljósmóð-
ir, dóttir Einars dbrm. í Kollafiarð-
amesi, Jónssonar. Bræður Ragn-
heiðar vom alþingismennirnir Ás-
geir á Þingeyrum og Torfi á Kleifum
og Magnús, varaþingmaður í Klift.
Móðir Ragnheiðar lj ósmóður var
Þórdís Guðmundsdóttir, systir Guð-
rúnar, langömmu Ásmundar
Sveinssonar myndhöggvara.
90 ára 50 ára
Daníel Daniclsson, Árgerði, Dalvík. Hrefna H. Hagalín, Bakkasíðu 5, Akureyri. Kristín Bjarkan, _ Kvistalandi 20, Reykj avík.
85 ara
Dagmar Snjólfsdóttir, Borgargarði I, Búlandshreppi. Gunnar Sveinsson, Faxabraut 38 A, Keflavík. - w ara
Víglundur Þorsteinsson, Háukinn 10, Hafnarfiröí. Viglundur er aö heiman á aímælis- daginn en tekur á móti gestum að _ Höföa í Biskupstungum laugardag-
80 ára inn 23.5. nk„ éftir klukkan 20.00. Björg Jónasdóttir,
Jón Ingvar Jóhannesson, HjaUabraut 33, Hafnarfirði. Flyðrugranda8, Reykjavík. Haraldur Guðmundsson,
Bj arni Ágústsson, Skipholti 28, Reykjavík. Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir, Tunguseli 3, Reykjavík. Páll Gunnlaugsson, Eiðismýril3, Selfiarnamesi.
Brúðkaup á næstunni
Freydís J. Freysteinsdóttir og
Sigurgrímur Skúlason, til heimilis
að Hringbraut 119, Reykjavík, verða
gefin saman í Dómkirkjunni laugar-
daginn 23. maí, kl. 14, af séra Jakob
Hjálmarssyni.
Foreldrar Freydísar: Edda Júlía
Þráinsdóttir og Freysteinn Þor-
bergsson. Foreldrar Sigurgríms: El-
ín Tómasdóttir og Skúli Sigurgríms-
son.
Magnea Ingigerður Harðardóttir
og Viggó Magnússon, til heimilis að
Kjarrhólma 4, Kópavogi, verða gefin
saman í Kópavogskirkju laugardag-
inn 23. maí, kl. 15, af séra Hjálmari
Jónssyni.
Foreldrar Magneu Ingigerðar:
Bára Þórðardóttir og Hörður
Sveinsson. Foreldrar Viggós: Guð-
björg Viggósdóttir og Magnús Jóns-
son.
Þórhallur Tryggvason
Þórhallur Tryggvason, fyrrverandi
bankastjóri, Reynimel26, Reykja-
vík, er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Þórhallur er fæddur í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1933.
Þórhallur var starfsmaður í Bún-
aðarbanka íslands frá 1933, skrif-
stofusfióri 1941-65, bankastjóri
1965-71 og aftur 1974 og 1976-83.
Hann var framkvæmdastjóri stofn-
lánadeildar landbúnaöarins
1971-73.
Þórhallur var í sfióm Sambands
íslenskra bankamanna 1949-50 og
formaður þess 1953-55. Hann var
sæmdur gullmerki Sambands ís-
lenskra bankamanna 1967.
Fjölskylda
Þórhallur kvæntist 1.6.1946 Est-
her Pétursdóttur, f. 27.12.1922. For-
eldrar hennar: Pétur Björnsson
skipsfióri, síðast á Gulífossi, og kona
hans, Ellen K. Björnsson.
Böm Þórhalls og Esther: Þóra El-
len, f. 22.6.1954, dósent við HÍ, maki
Helgi Bjömsson jarðeðlisfræðingur,
sonur þeirra er Þórhallur; Anna
Guðrún, f. 28.5.1957, sérfræðingur
hjá Landgræðslu ríkisins; Tryggvi,
f. 20.6.1962, nemi við HÍ og myndhst-
armaður, maki Steinunn Stefáns-
dóttir, dætur þeirra era Helga, Anna
ogHalla.
Systkini Þórhalls: Klemens, f. 10.9.
191.4, fyrrv. hagstofustjóri, maki
Guðrún Sigríður Steingrímsdóttir;
Valgerður, f. 21.1.1916, fyrrv. skrif-
stofusfióri Þjóðleikhússins, maki
Hallgrímur Helgason, prófessor og
tónskáld; Agnar, f. 10.2.1919, fyrrv.
framkvæmdastjóri hjá SÍS, maki
Hildur Sólveig Þorbjarnardóttir,
böm þeirra eru Anna, Björn, Sigríð-
ur og Tryggvi. Dóttir Agnars og
Önnu Kr. Kristinsdóttur er Guðrún
Helga; Þorbjörg, f. 25.9.1922, fyrrv.
framkvæmdastjóri, maki ívar Daní-
elsson lyfsali, þau skildu, börn
þeirra era Tryggvi, látinn, Guðrún
Ina og Anna Guðrún; Björn, f. 13.5.
1924, aðstbankastjóri í Seðlabank-
anum, kona hans var Kristjana
Bjarnadóttir, látin, böm þeirra era
Anna Guðrún og Bjarni Þór; Anna
Guðrún, f. 14.6.1927, húsmóðir og
kennari, maki Bjami Guðnason
prófessor, börn þeirra era Tryggvi,
Gerður, Auður og Unnur.
Foreldrar Þórhalls: Tryggvi Þór-
hallsson, f. 9.2.1889, d. 31.7.1935,
prestur á Hesti og síöar forsætisráð-
herra og bankastjóri, og kona hans,
Anna Guðrún Klemensdóttir, f. 19.6.
1890, d. 27.1.1987, húsfreyja.
Ætt
Faðir Tryggva var Þórhallur bisk-
up, bróðir Vilhjálms, afa Finnboga
Guðmundssonar landsbókavarðar.
Þórhallur var sonur Björns, pró-
fasts og skálds í Laufási, Halldórs-
sonar, prófasts í Sauðanesi, Bjam-
arsonar, prests í Garði í Keldu-
hverfi, Halldórssonar, bróður Áma,
prests á Tjöm, langafa Davíðs Stef-
ánssonar frá Fagraskógi. Móöir
Halldórs í Sauðanesi var Þóra
BjömsdóttirThorlacius, systir Kar-
enar, formóður Buchættarinnar.
Móðir Bjöms var Sigríður Vigfús-
dóttir, systir Björns, langafa Þórar-
ins, fóður Krisfiáns Eldjáms for-
Þórhallur T ryggvason.
seta. Móðir Tryggva var Valgerður,
systir Halldórs, langafa Þórs White-
head prófessors. Valgerður var dótt-
ir Jóns, b. á Bjamarstöðum í
Bárðardal, Halldórssonar, b. á
Bjarnarstöðum, Þorgrímssonar, af
Hraunkotsættinni. Móðir Valgerðar
var Hólmfríður Hansdóttir, b. í Nes-
löndum, Þorsteinssonar.
Faðir Önnu, móður Þórhalls, var
Klemens, landritari og ráðherra,
bróðir Finns prófessors. Klemens
var sonur Jóns, lögregluþjóns og
fræðimanns í Rvík, Borgfirðings, og
konu hans, Önnu Eiríksdóttur, b. á
Vöglum í Eyjafirði, Sigurðssonar,
b. í Engey, Jóhannssonar, bróður
Torfa í Ánanaustum. Móðir Önnu
var Þorbjörg Stefánsdóttir, sýslu- -
manns á ísafirði, Bjarnarsonar.
Móðir Stefáns var Þorbjörg Stefáns-
dóttir Scheving, langamma Björns,
föður Ólafs, fv. alþingismanns og
prófessors.
Þórhallur er að heiman.
Hallmar Sigurðsson
Hallmar Sigurðsson leikhúsmað-
ur, Nönnugötu 14, Reykjavík, er fer-
tugurídag.
Starfsferill
Hallmar er fæddur á Húsavík og
ólst þar upp. Hann gekk í barna- og
gagnfræðaskóla í heimabæ sínum
og fór síðar í Menntaskólann á Ak-
ureyri en þaðan útskrifaðist hann
sem stúdent árið 1972. Hallmar fór
til Svíþjóðar 1973 og var þar í nokk-
ur ár við nám í leikhúsfræðum og
leiksfióm.
Hallmar vann ýmsa vinnu á ungl-
ingsáram og var t.d. trillukarl. Eftir
stúdentsprófið vann hann við leik-
húsið á Ákureyri og kenndi í Odd-
eyrarskóla á sama stað. Hann var
leikstjóri í Svíþjóð um tíma eftir að
námi þar lauk. Hallmar hefur aðal-
lega verið leikstjóri hjá atvinnuleik-
húsum eftir heimkomuna. Hann var
t.d. leiksfióri hjá Leikfélagi Akur-
eyrar, Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi
Reykjavíkur og var ennfremur leik-
hússtjóri hjá síðasttalda félaginu í
nokkur ár, fyrst í Iðnó en síðar
Borgarleikhúsinu. Hallmar var
fastráðinn starfsmaður Ifiá leikhst-
ardeild RÚV um tíma.
Hallmar á sæti í stjóm Leiksfióra-
félagsins en hann var formaður þess
um tíma. Aðaláhugamál Hallmars
erhestamennska.
Fjölskylda
Eiginkona Hallmars er Sigriður
Sigþórsdóttir, f. 30.6.1953, arkitekt.
Foreldrar hennar: Sigþór Þórarins-
son, látinn, bóndi og hreppstjóri, og
Sigríður Guðmundsdóttir, hús-
freyja, þau bjuggu í Einarsnesi í
Borgaríirði, Sigríður er nú búsett á
Nönnugötu 14 í Reykjavík.
Dóttir Hallmars og Sigríðar er
Herdís, f. 10.9.1972, nemi í VÍ.
Systkini Hallmars: Katrín, f. 1.9.
1957, söngkona og söngkennari,
maki Stefán Guðmundsson, söngv-
ari og söngkennari, sonur þeirra er
Viðar, Katrín átti áður Sigurð
Magnússon; Aðalbjörg, f. 23.2.1964,
læknaritari, maki Ragnar Emilsson
rafvirki, dætur þeirra eru Katrín og
Kristín.
Foreldrar Hallmars eru Sigurður
Hallmarsson, f. 24.11.1929, fyrrv.
skólastjóri og fræðslustjóri, og Her-
dís Kristín Birgisdóttir, f. 15.7.1926,
húsfreyja, þau eru búsett á Húsavík.
Hallmar Sigurðsson.