Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1992. Fréttir Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri um upprekstur Mývetninga: Afrétturinn illa f arinn og ekki beitarhæf ur - hvorki nú, 4. júní né yfirhöfuð „Mergur málsins er sá að flestir þeir sem fara um afréttinn og um þetta land hijóta að vera sammála um það að í raun og veru eru þessi mellönd ekki beitarhæf, hvorki núna, 4. júní eða 4. júlí eða yfirhöf- uð. Afrétturinn er mjög illa farinn og landið mjög þurrt eftir þurrkana í vetur og vor. Það þarf að vinna að því að friða mellöndin alveg. Það verður hins vegar ekki gert nema með sam- komulagi, valdboðsleiðin kemur ekki tU greina. Það er fræðilega hægt en kemur ekki til greina að mínu mati,“ segir Sveinn Runólfs- son landgræðslustjóri um þá um- deildu ákvörðun bænda í Mývatns- sveit að reka fé sitt á hinn við- kvæma og uppblásna afrétt sinn. „Þar sem um viðkvæmt land- svæði er að ræða er ekki tekin ákvörðun um upprekstur á afrétt fyrr en gróðurvemdamefnd S- Þingeyjarsýslu, landbúnaðamefnd Skútustaðahrepps og sveitarstjóm hafa fariö í skoðunarferð um afrétt- inn og metið ástand gróðurs. Þaö var gert 30. maí og það var sam- dóma álit að gróður væri betur á veg kominn en undanfarin tvö ár a.m.k. Út frá því var ekki talin ástæða til að fresta upprekstri," segir Sigurður Rúnar Ragnarsson, sveitarsfjóri í Skútustaðahreppi við Mývatn. Sigurður Rúnar segir að'Land- græðslan hafi ekki lagt fram ákveðnar dagsetningar varðandi hvenær menn þar vilji heimila upprekstur en stefnan sé sú að fækka beitardögum á afréttinum. Landgræðslan og bændur séu í sameiginlegu átaki um ræktun hei- malanda svo slíkt sé unnt en það mál sé ekki þaö langt á veg komið að hægt sé að fresta upprekstri. Til að fækka beitardögunum á afrétt- inum hafi göngum verið flýtt í fyrra og áformað sé að rétta strax fyrstu dagana í september í haust. Odáðahraun skiptir afrétti Mý- vetninga í suður- og austurafrétt. Það svæði, sem nú er rætt um, er austurafrétturinn og féð sem verið er að ræða um er á bilinu 5-6 þús- und. -pj-GK Frá árekstursstað á mótum Gránufélagsgötu og Laufásgötu. Innfellda myndin er af sendiferðabifreiðinni sem varð fyrir sjúkrabifrelöinnl er flutti mann úr fyrri árekstrinum. DV-símamyndir gk Akureyri: Sjúkrabíllinn lenti í árekstri Gyífi Kristjánssan, DV, Akureyn: Tveir árekstrar uröu á Akureyri með nokkurra mínútna miUibili í gær og ekki voru nema um 150 metr- ar á milli árekstursstaðanna. Fyrri áreksturinn varð á mótum Gránufélagsgötu og Laufásgötu. Þar skullu saman fólksbifreið og lítil sendiferðabifreið. Sendiferðabifreið- in hafnaði utan götu og ökumaður hennar, sem mun hafa kvartaö um höfuðmeiðsh, var fluttur á sjúkra- hús. Ekki tókst betur til en svo að þegar sjúkrabifreiðin var nýlögð af stað með manninn lenti hún í árekstri við aðra sendiferðabifreið. Það var á mótum Gránufélagsgötu og Hjalteyr- argötu. Ökumaður sjúkrabifreiöar- innar ætlaði að aka þar fram úr sendiferðabifreiðinni en ökumaður hennar hugðist beygja til vinstri. Þar uröu ekki meiðsh á fóUd og hélt sjúkrabifreiðin áfram ferð sinni með ökumanninn úr fyrri árekstrinum. Vinna viö fjárlög heldur áfram: Verðum að f á skýringar frá Hafrannsókn - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra „Það verður að fá skýringar á því hvers vegna Hafrannsóknastofnun kemst að svo gjörólíkri niðurstöðu miðað við Fiskveiöiráðgjafanefnd Alþjóðahafrannsóknastofnunarinn- ar. Hafrannsóknastofnun heldur því nú raunar fram að þama sé ekki um svo mismunandi mat að ræða á fisk- stofnunum eins og þeir hafi verið heldur snúist máUð um hvað þurfi að gera til að byggja hrygningar- stofnana upp á nýjan leik. En það er ljóst aö okkur var ekki gefið til kynna að það mætti búast við slíkum tölum núna. Fjarri því. í fyrra var taUð að botninum væri náð og það væri von mn bata. Við munum ræða við fuUtrúa Haf- rannsóknar þegar þeirra tiUögur koma fram því þaðan munu hinar formlegu tfilögur koma,“ segir Davíð Oddsson forsætisráðherra. „Fiskveiðiráðgjafanefnd Alþjóða- hafrannsóknastofnunarinnar gerir ekki tiUögur til okkar um skerðingu á þorskkvóta það er Hafrannsókna- stofnun sem gerir það þann 15. júní. næstkomandi. En ríkisstjórnin hefur verið aö fara yfir myndina eins og hún blasir við tíl aö við getum áttað okkur í tíma. Það má búast við að tiUögur Haf- rannsóknastofnunar verði ipjög í skerðingarátt því það er hún sem hefur unnið undirbúningsvinnuna sem ráðgjafanefndin byggir niður- stööur sínar á. - Munið þið stoppa vinnu við íjárlög á meðan þiö bíðiö eftir tUlögum Haf- rannsóknastofnunar? „Fjárlagagerðin stendur yfir og er komin áleiðis. En það er ljóst að menn verða að setjast niður og hugsa þaö dæmi upp á nýtt efbr þá mynd sem dregin hefur verið upp.“ - Ríkissljómin boðaði fimm milij- arða niðurskurð í ríkisbókhaldinu á næsta ári nú blasir við stórfeUd skeröing á þorskkvótanum? „Það er erfitt að átta sig á þessum tölum strax en það er ljóst að vandi ríkissjóðs ef ekkert verður að gert mun aukast um tæpa þijá mUljarða, miðað við þær tölur sem ráðgjafa-' nefndin hefur sett fram. Vinnan við fjárlögin heldur áfram en það er ljóst að viö neyðumst til að taka tilUt tU þessa í framtíðinni. Það væri hins vegar út í bláinn fyrir mig að velta því fyrir mér á þessari stundu hvar við komum tíl með að skera niður útgjöld vegna minnkandi tekna ríkis- sjóðs." -J.Mars Aldreifleirináms- mennáatvinnu leysisskrá Dla horfir meö sumarvinnu hjá námsmönnum og hafa aldrei fleiri stúdentar verið áður á skrá hjá At- vinnumiðlun námsmanna. Þessa dagana eru um 1300 manns á skrá en á sama tíma í fyrra voru 800 stúd- entar án atvinnu. Að sögn Ástu Snorradóttur hjá Atvinnuniiðlun- inni eru mun færri störf í boði fyrir námsmenn í ár en síðustu daga hefur þeim eitthvaö veriö að fjölga. „Með tilliti til væntanlegra breyt- inga hjá Lánasjóðnum er staðan rnjög erfið hjá námsmönnum. Þeir verða að treysta á sumarhýruna og eins og staöan er núna ráölegg ég fólki aö taka nánast aUt sem býöst,“ sagði Ásta en stúdentar hafa einkum verið að leita að vinnu tengdri sínu námi. -bjb Hafrannsóknastofnun: Niðurstaðan á ekki að koma á óvart - fögnum því að fá mat erlends sérfræðings segir Jakob Magnússon „Fyrir þá sem lásu skýrslu Ha- frannsóknastofhunar af athygli í fyrra ætti niðurstaða Fiskveiðiráð- gjafanefndarinnar ekki að koma á óvart. í henni stendur meðal ann- ars að; á undanfómum árum hafi sóknin í þorskstofninn verið aUt of hörð. Þrátt fyrir ítrekaðar ráð- leggingar Hafrannsóknastofnunar hafi ekki tekist aö byggja upp þorskstofninn þannig að fleiri ár- gangar verði að veiðistofni og hrygningarstofnar vaxi. Þetta er nú sagt sagt í skýrslunni. Það kem- ur og fram að veiöistofninn hefur að verulegu leytí byggst á nýUðun- un og hrygningarstofninn hefur verið í lágmarki. TiUögur Alþjóða- hafrannsóknastofnunarinnar miða aö því að byggja stofninn upp. Nú eru að koma sex lélegir árgangar inn í veiðina og það gefur augaleið að það er erfitt að byggja upp stofn- inn við slíkar aðstæður," segir Jak- ob Magnússon, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunar. „Menn þurfa að gera sér grein fyrir því að ef á að halda áfram sömu þorskveiði og á þessu ári, sem menn gera ráð fyrir aö verði 250 þúsund tonn, þá ná þeir ekki sama magni eftír nokkur ár. Það gengur svo ört á stofninn. Þá er spursmál- ið hvort ekki eigi aö reyna að spoma við. Ég minnist þess ekki að því hafi verið haldið fram af stofnuninni í fyrra að botninum hafi verið náð. Ráðgjöf stofnunarinnar hefur ekki verið fylgt varðandi þors- kveiðamar, að jafnaði hefur verið farið fram úr tiUögum okkar um 30 prósent. Það hlýtur að koma fram í minnkandi stofni. Það erum ekki bara við sem erum vondu karlamir. - Nú hafið þið fengið á ykkur gagn- rýni vegna rangra reiknilíkana og sjávarútvegsráöherra hefur ákveð- ið að fá óháðan sérfræðing frá Fis- heries Laboratory í Lowestoft í Bretlandi til að leggja mat á niður- stöður Hafrannsóknastofnunar. „Ég veit ekki betur en við séum með einn besta reiknimeistara sem tíl er í þessu fagi á okkar snæmm. Það em þá fleiri en við sem kunn- um ekki aö reikna. Það er mál sjáv- arútvegsráðuneytisins að fá til sín erlendan sérfræðing ef þeir trúa okkur ekki eða Ráðgjafamefnd Al- þjóðahafrannsóknaráðsins. Þá er það aUt í lagi að fá þriöja aðUa inn í dæmið. Við fógnum því. Ég segi fyrir mína parta að ég á ekki von á að það breyti neinu en þaö veröur að koma í ljós,“ segir Jakob. -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.