Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1992. 5 Fréttir Tilraun gerö með þorskeldi á Stöðvarfírði: Ég er bjartsýnn á þetta - segir Birgir Albertsson trillukarl Kiistján Ari, DV, Stöðvaifiiði: „Hvort þorskeldið svarar kostn- aði ætti að koma í ljós á næstu tveimur árum. Komi í ljós að þorskurinn vill ekkert nema dýr- indis krásir og vaxi að auki hægt þá er það sjálfgefið að þessari til- raun verður hætt. Ég er hins vegar bjartsýnn á áð þetta borgi sig og er reyndar sannfærður um að þorskeldi á eftir að verða mikil- vægur þáttur í íslenskum sjávarút- vegi,“ segir Birgir Albertsson, trillukarl á Stöðvarfirði. Birgir hefur í samvinnu við Byggðastofnun, sjávarútvegsráðu- neytið og fiskútflytjendur á Stöðv- arfirði hafið þorskeldi í sjókvíum. Slíkt eldi hefur ekki áður verið stundaö hér á landi. Slíkt er mikils- vert ef vel tekst til þar sem þorsk- kvóti hefur verið skertur mjög. Eldisfiskinn fær Birgir við sínar hefðbundnu veiðar en í stað þess að sleppa eða henda undirmálsfiski safnar hann honum í ker. Aö lok- inni veiðiferð er fiskinum síðan sleppt í sjókvíamar. Samkvæmt samkomulagi við sjávarútvegs- ráðuneytið dregst þessi fiskur ekki frá kvóta Birgis. „Ég hef ætíð sleppt öllum undir- málsfiski lifandi frá borði í stað þess að vigta hann með aflanum. Fyrir vikið hef ég orðið af umtals- verðum kvóta. Æth ég hafi ekki kostnaðinn. DV-mynd GVA tapaðumtveimurmilljónumkróna til baka af þessum peningum með Alls eru sjókvíarnar hjá Birgi á þessu. Vonandi næ ég einhveiju eldisstarfinu.“ fjórar talsins og geta þær rúmað allt að 15 þúsund þorska eða 10 þúsund tonn. Um er að ræða kvíar sem áöur voru notaðar til laxeldis á Fáskrúðsfirði. Mánuður er síðan þetta brautryðjendastarf hófst og eru nú þegar komnir um 500 fiskar í kerin. Fram til þessa hefur fiskur- inn verið fóðraður á síld, loðnu og öðru gómsæti og þrífst vel. Að sögn Birgis verður matseðlinum hins vegar breytt á næstunni. Hver upp- skriftin verður segir Birgir vera hernaðarleyndarmál en upplýsir þó aö nýverið hafi hann fest kaup á hakkavél og markmiðið er að lækka verðið á matseðlinum. Birgir segir mörg óvænt vanda- mál hafa komið upp í sambandi við þorskeldið sem þó hafi reynst auð- velt að yfirstíga. Sem dæmi nefnir hann að iðulega sé þorskurinn það uppþemdur af lofti þegar hann er veiddur að hann hreinlega fljóti þegar í sjókvíamar sé komið. Til að bjarga fiskinum frá árásum fugla og bæta líðan hans segist Birgir einfaldlega stinga gat á kvið- inn. . „Þá sekkur hann sprellfjörugur til botns,“ segir triilukarlinn sposk- ur. Að sögn Birgis verður þorskin- um slátraö upp við bryggju um það leyti sem hann verður kynþroska en þá hefur hann náð kjörþyngd. Aflann á síðan að senda í gámum á markað í Evrópu þegar verðið er sem hæst þar. Toppmynd með toppleikurum Grand Canyon Steve Martin, Danny Glover og Kevin Kline koina hér saman í einni bestu invnd ársins. Grand Canvon, mynd sem hittir í mark. Grand Canyon, gaman og alvara með toppfólki. Grand Canvon vann gullna björninn í Berlín í febr. sl. Grand Canvon er besta V myndin í bænum. *. Þær gerast ekki inargar eins og þessi. Aðalhlutverk: Dannv * Glover, Steve Martin, Kevin Kline, Mary McDonnell Leikstjóri: Lavvrence Kasdan DANNY GLOVER Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.20. ATH. Sýnd í sal 3 kl. 7. 9 9 Diecccol. -thx SÍMI 11384 - SNORRABRAUT 37 ------ KEVIN STEVE MARY MARY-LOUISE KLINE MAIUFIN M( DONNELL RARKER ALFRE WOODARD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.