Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1992. Útlönd dv Danir komu á óvart 1 þjóðaratkvæðagreiðslunni um Maastricht-samkomulagið: Ekki nánari samvinnu við Evrópubandalagið Poul Schliiter forsætisráðherra og Uffe Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur, voru afar brúnaþungir þegar þeir ræddu óvænt úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Maastricht-samkomulagið í gærkvöldi. Naumur meirihluti danskra kjósenda sagði stugg og laggott: „Nei“. Símamynd Reuter Tíu manns létust íeldsvoða Tíu manns létust og tveir slös- uðust er eldur varð laus á heitn- ili fyrir fatlaða í Detroit 1 Banda- rikjunum. Húsið var þrigga hæða og bjuggu þ?»r sextán íbúar, flestir á aldrinum 60 til 89 ára. Höfðu sumir íbúanna búið þarna í 30 ár. Flytjaþurftitvoá sjúkrahús en íjórum tókst aö bjarga sér meö því að setja blaut handklæði yíir höfuðið. Arið 1978 var ieyfi heim- ilins afturkaliaö þar sem húsiö uppfyliti ekki skilyrði um eld- varnir. Leigubílsljórar Parísarborgar ætla í sólarhringsverkfall í dag til að mótmæla nýrri reglugerð. Fjögur félög leigubíl8tjóra sögðu aö félagsmenn þeirra myndu ekki vinna í dag en eitt félagið ætlaði at skipuleggja mótmælaaðgerðir. Nýja reglugeröin, sem tekur gildi i næsta mánuði, nær yfir aila þá sem hafa ieyfi til að aka bifreiö og er henni ætlað að auka öryggi á vegum. Allir bilstjórar S& sex stig og fyrir hvert umferð- arlagabrot sem þeir fremia missa þeir eitt til þrjú stig. Þegar búið er aö missa öll sex stigin er öku- skírteinið tekið af viðkomandi og þarf að bíða í nokkra mánuöi áður en hægt er að taka ökupróf- ið aftur. Leigubíistjórarnir, og aðrir þeir sem hafa akstur að at- vinnu fara fram á að fá fleiri en sex stig. fundinn Wgreglan í Rio de Janeiro faim i gær brasilískan prins sem rænt var á dögunum. Var hann haíður í haldi í skápi í úthvcrfi borgar- innar. Prinsinn er 13 ára sonarsonur Ðom Pedro Gastao de Orleans e Braganca sem tilkall gerir til krúnunnar. Keuter Nauðungaruppboð á eftírtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættísins, Strandgötu 52, Eskifirði, miðvikudaginn 10. júní 1992 og hefst kl. 10.00. Miðgarður 3, Egilsstöðum, þingl. eig. Ármann Snjólísson. Uppboðsbeiðandi er Húsnæðisstofiiun ríkisins. Skál, innri hl., Reyðarfirði, þingl. eig. Jón Ómar Halldórsson. Uppboðsbeið- andi er Sigurður G. Guðjónsson hrl. Strandgata 10, Eskifirði, þingl. eig. Eskfírðingur hf- Uppboðsbeiðandi er Guðjón Armann Jónsson hdl. Strandgata 87a, Eskifirði, þingl. eig. AðaJsteinn Valdimarsson. Uppboðs- beiðandi er Eggert B. Ólaisson hdl. BÆJARFÓGETINN Á ESKMRÐI SÝSLUMAÐURINN í SUÐUR-MÚLASÝSLU Nauðungamppboð annað og síðara á eftírtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættísins, Strandgötu 52, Eskifirði, miðvikudaginn 10. júní 1992 og hefst kl. 10.00. Brekka 7, Djúpavogi, þingl. eig. Leigmbúðanefiíd Búlandshr. Upp- boðsbeiðendur eru Magnús M. Norðdahl hdl. og Húsnæðisstofnun ríkisins. Gizur Helgasom, DV, Kaupmannahöfn: Þvert á síðustu skoðanakannanir höfnuðu Danir aukinni þátttöku í Evrópubandalaginu með 50,7 pró- sentum atkvæða í þjóðaratkvæða- greiðslunni í gær en 49,3 prósent sögðu já. Munurinn var ekki meiri. Ríkisstjóm Pouis Schlúters hélt fund undir hádegið til aö ræða þessi óvæntu úrslit. Forsætisráðherrann sagði í gærkvöldi eftir að niðurstöður kosninganna lágu fyrir að ríkis- stjómin myndi ekki segja af sér. Forsætisráðherrar Noregs, Sví- þjóöar og Finnlands hafa látið í ljós furðu sína á úrslitunum en segja jafnframt að þau muni engu breyta um afstöðu viðkomandi landa til Evrópubandalagsins. Þetta hlýtur að vera vatn á myllu andstæðinga Evr- ópubandalagsins á Norðurlöndum. Enginn vafi leikur á því aö ríkis- stjóm Danmerkur á í erfiöleikum eftir úrsht kosninganna. Kjósendur hafa einfaldlega hafnað nánari sam- vinnu við Evrópubandalagið. Fjöl- margir forystumenn. stéttarfélaga segja ríkisstjómina verða að fara frá en sljómmálamenn era því engan veginn sammála. Það em því engar líkur á nýjum þjóðþingskosningum í Danmörku á næstunni. Danir sækja ekki aftur í bili Poul Schlúter, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í nótt að menn skyldu ekki reikna með nýjum um- sóknum og nýjum kosningum í Dan- mörku til að komast aftur inn í hlýj- una hjá Evrópubandalaginu. Kjós- endur hafa svarað. Forsætisráöherr- ann sagði aftur á móti að Danir mundu halda áfram að taka þátt í Búðareyri 15, Reyðarfirði, þingl. eig. Óskar Alfreð Beck og Sveinsína Erla Jakobsdóttir. Uppboðsbeiðandi er Byggðastofiiun. Búðavegur 8, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Birgir Kristmundsson. Uppboðbeið- endur em Sigríður Thorlacius hdl. og Gjaldheimta Austurlands. Búðavegur 12b, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Friðmar Pétursson. Uppboðsbeið- andi er Bjami G. Björgvinsson hdl. Búðavegur 34, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Knstmann E. Kristmaimsson. Uppboðsbeiðandi er Húsnæðisstofiiun ríkisins. Ekra II, Djúpavogi, þingl. eig. Krist- björg' Snjólísdóttir. Uppboðsbeiðandi er íslandsbanki hf. Fjarðarbraut 64, Stöðvarfirði, þingl. eig. Páll Hannesson. Uppboðsbeið- endur em Eggert B. Ólafsson hdl., Magnús Norðdahl hdl. og Búnaðar- baniki íslands. Halhargata 32, Fáskrúðsfrrði, þingl. eig. Pólarsíld hf. Uppboðsbeiðandi er Byggðastofhun. Heiðarvegur 10, Reyðarfirði, þingl. eig. Bjöm Jónsson. Uppboðsbeiðend- ur em Búnaðarbanki Islands og Egg- ert B. Ólafsson hdl. Heiðarvegur 23, Reyðarfirði, þingl. eig. Stefán Þórarinsson. Uppboðsbeið- andi er Gjaldheimta Austurlands Hvammur, Eskifirði, þingl. eig. Gunn- hildur S. Ásmundsdóttir. Uppboðs- beiðendur em Eggert B. Ólafsson hdl. og Húsnæðisstofiiun ríkisins. eins mörgum verkefnum Evrópu- bandalagsins og mögulegt væri þannig að samningar Dana og banda- Lyngás 3-5, Egilsgtöðum, þingl. eig. Gunnar og Kjartan sf. Uppboðsbeið- endur em Sveinn H. Valdimarsson hrl. og Búnaðarbanki íslands. Miðás 11, Egilsstöðum, þingl. eig. Brúnás hf. Uppboðsbeiðandi er Gjald- heimta Austurlands. Skólabrekka 3, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Valur Þórarinsson. Uppþoðsþeið- endur em Gjaldheimta Austurlands, Magnús M. Norðdahl hdl. og Búnað- arbanki íslands. Skólabrekka 9, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Birgir Kristmundsson. Uppboðs- beiðandi er Sigríður Thorlacius hdl. Sólvellir 23, Breiðdalsvík, þingl. eig. Hraðfrystihús Breiðdælmga hf. Upp- boðsbeiðandi er Ólaíúr Gústaísson hrL________________________________ Steinholtsvegur 2, Eskifirði, þingl. eig. Bjami Björgvinsson. Uppboðsbeið- andi er Húsnæðisstoíhun ríkisins. Túngata 2, Eskifirði, þingl. eig. Ragn- ar Þ. Ólason. Uppboðsbeiðendur eru Sigríður Thorlacius hdl., Guðjón Ár- mann Jónsson hdl., Magnús M. Norðdahl hdl. og Ásgeir Thoroddsen hrL________________________________ Tjamarbraut 17, Egilsstöðum, þingl. eig. Guðrún Tryggvadóttir. Uppboðs- beiðendur em Ámi Halldórsson hrl. og Búnaðarbanki íslands. Verkstæðishús v/V allarveg, þingl. eig. Dagsverk sf. Uppboðsbeiðandi er Byggðastofnun. BÆJARFÓGETINN Á ESKLFTRÐI SÝSLUMAÐURINN í SUÐUR-MÚLASÝSLU lagsins væru áfram eins nánir og hægt væri, enda þótt kosningarnar hefðu farið eins og þær fóru. Utanríkisráðherra Danmerkur, Uffe Ellemann-Jensen, segir að hann efist um það að það hafi nokkum tíma gerst í Danmörku að áht svo stórs hluta þingmanna í þjóðþinginu hafi verið hafnaö af hinum almenna kjósanda. Til að mynda hafi um 60 prósent kjósenda jafnaðarmanna sagt nei við aukinní aðild. Þetta hljóti að vekja þingflokka til umhugsunar. Poul Nyrop Rasmussen, hinn nýi formaður jafnaðarmanna, segir jafn- aðarmenn verða að taka alla Evrópu- póhtíkina til endurskoðunar. For- maður SF, Sósíalíska þjóðarflokks- ins, sem alltaf hefur verið á móti aukinni aöild Dana í Evrópubanda- laginu, segist ekki munu krefjast af- sagnar ríkissfjómarinnar. Hvaö gerist í Evrópu? Ríkisstjómir aðiidarlanda Evrópu- bandalagsins hafa tilkynnt að þær muni síðar í dag senda frá sér yfirlýs- ingar um áhrif niðurstaöna kosning- anna í Danmörku. Það leikur samt enginn vaíi á því að það eru erfiðleik- ar framundan hjá Evrópubandalag- inu vegna úrslitanna. Þjóðverjar sögöu í morgunsárið að trúveröug- leiki Evrópubandalagsins væri í hættu og að sennilega yrðu niður- stöður margra Evrópubandaiags- landa svipaðar ef fólkið fengi sjálft að ráða. Eftir úrslit dönsku kosninganna hækkaði dollarinn í verði í kauphöll- inni í New York vegna þess að nú efast menn um að Evrópa nái að mynda sameiginlegan sterkan gjaldmiðil sem gæti oröið keppinaut- ur dollarans. Hvað gerist nú? Enginn vafi leikur á því að danska þjóðþingið mun 1 dag reyna aö sann- færa hin Evrópubandalagslöndin um að Danir muni halda áfram eins mik- illi samvinnu og unnt sé. Stjórnmála- sérfræðingar telja og líklegt að Evr- ópubandalagslöndin ellefu muni halda sínu striki þrátt fyrir afstöðu Dana og það em Danir frekar óhress- ir með, enda hafa áróöursmenn á móti aukinni samvinnu sagt dönsku þjóðinni að Evrópubandalagslöndin mundu nú stokka spilin á ný. Þetta er talið afar ólíklegt og Frakkar og Þjóðveijar hafa þegar lýst því yfir að þeir æth að keyra sameiningar- máhn áfram á fullu. Atvinnumál og fjármál í kreppu Helstu forystumenn efnahags- og atvinnumála í Danmörku segja aö Danir haldi nú á vit erfiðra tíma. Framleiðsla muni minnka, atvinnu- leysi aukast og hætt sé við að þeir 300 þúsund Danir, sem í dag séu at- vinnulausir, verði það áfram. Fjöl- mörg dönsk fyrirtæki muni hætta við fyrirhugaðar fjárfestingar og ef til vill muni stór fyrirtæki flytjast af landi brott. Danska krónan fellur Menn reikna nú með því að danska krónan muni falla í verði. Svo sagði fomstumaður dönsku viðskipta- málastofnunarinnar í morgun. Krónan hefði nú þegar sigið. Vextir muni hækka og hlutabréf hafi nú þegar faUið í verði sem nemur fimm prósentum. Tahð er að eigendur dan- skra veröbréfa muni tapa um 300 milljörðum íslenskra króna vegna nei-sins, eða svo sagði í kauphallar- tíðindum í morgun. Áhrifanna gætir um ókomna framtíð Forystumenn já-flokkanna em sammála um að nú muni verða erfið- ara að lifa í Danmörku. Áhrifa af afstöðu Dana muni gæta í öllum þátt- um atvinnulifsins og því þurfl að taka allt þjóðarbúið til endurskoðun- ar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.