Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1992. Menning Ný málverk og bók um Kristján Davíösson: Færist nær náttúrunni - segir Kristján um málverkin á sýningunni Á laugardagirm verður opnuð mál- verkasýning í listhúsinu Nýhöfn viö Hafnarstræti á nýjum málverkum eftir Kristján Davíösson. Sama dag mun koma út bók á vegum Nýhafnar og Máls og menningar sem ber ein- faldlega heitið Kristján Davíðsson. Bókin er í stóru broti og inniheldur mikinn fjölda litmynda af málverk- um Kristjáns, auk þess sem Aðal- steinn Ingólfsson listfræðingur fjall- ar um feril listamannsins. Sýning þessi og útkoma bókarinnar er öðr- um þræði til að heiðra listamanninn en senn liður að sjötíu og fimm ára afmæli hans. Kristján er meðal okkar kunnustu listmálara og er ávallt viðburður þegar hann heldur sýningu og er ekki að efa að listunnendur taka sýn- ingu hans fagnandi, en á henni eru um það bil tuttugu ný málverk: „Það er orðinn einhver tími síðan ég sýndi ný málverk hér á landi. Síö- ast var ég með í sýningu 1 Kaup- mannahöfn í fyrra. Málverkin á sýn- ingunni eru því öll ný, máluð í ár og í fyrra, en ég reikna með að vera einnig með nokkrar teikningar sem gerðar voru 1958 um sama leyti og ég myndskreytti ljóðabók eftir Jón Óskar,“ segir Kristján þegar hann er spurður um verkin á sýningunni í Nýhöfn. - Verða sýningargestir varir við ein- hveijar breytingar hjá þér? „Kannski er sú breyting, eða það sýnist mér sjálfum, að ég er að fær- ast aðeins nær því að gera náttúru- myndir, náttúran er allavega aug- ljósari en verið hefur undanfarið, en ég tel nú að þessi verk séu samt í beinu framhaldi af því sem ég hef verið að gera alla tíö og er ég mjög sáttur við að ég skuli nálgast náttúr- Kristján Daviðsson við tvö af málverkum sínum sem munu prýða sýningarsal i Nýhöfn næstu vikurnar. DV-mynd BG una á þennan hátt. - Það kemur einnig út bók um þig og list þína um leið og sýningin verð- ur opnuð. „Fyrst þegar ákveðiö var að ég myndi halda sýningu í Nýhöfn var ætlunin að gera vandaða sýningar- skrá en hlutirnir þróuðust þannig að úr varð bók. Mér skilst að þessi bók sé í flokki sem Mál og menning er að gefa út um listir, en það er eigin- lega þakklátt framtak stjórnenda Nýhafnar sem er meöútgefandi ef þessi bók verður að veruleika." - Hvað tekur við að lokinni þessari sýningu? „Það' fylgir ávallt mikiö stúss í kringum sýningu og þaö stúss verður enn meira þegar bók er einnig í spil- inu. Þegar þessu lýkur þá verö ég feginn næðinu og tek til við að mála aftur.“ -HK Nokkrir listamennirnir ásamt börnum við eitt verkið sem nú prýðir Kringluna. DV-mynd ÞÖK Bannað að hlæja á listahátíðinni 1 Bergen: Leikbrúðuland sýndi fyrir fullu húsi á fimm sýningum Leikbrúðuland sýndi síðastliðinn vetur við góðar undirtektir áhorf- énda senl og gagnrýnenda brúðuleik- ritiö Bannað að hlæja. 1 framhaldi var Leikbrúðulandi boðið að sýna leikritið á Listahátíðinni í Bergen sem nýlega lauk. Þar sýndi leikhóp- urinn verkið á norsku og voru sýn- ingar í litla sal Grieghallarinnar og var fullt á öllum sýningum. Var leik- ritinu mjög vel tekið og voru dómar í norskum blöðum lofsamlegir. Einn gagnrýnandinn segir meðal annars að hann hafi aldrei séð jafn áhrifa- mikiö og myndrænt leikbrúðuleik- hús. Hann klykkir út með að segja að leikhópurinn hefði átt það skilið aö fara með sýninguna á umhverfis- ráðstefnuna í Brasilíu sem nú fer í hönd. „Við sýndum í Grieghöllinni á sama tíma og íslandsvikan stóð yfir en vorum samt hluti af listahátíð- inni,“ segir Helga Amalds, einn að- standenda Leikbrúðulands. „Við- brögð áhorfenda voru ánægjuleg og dómar mjög góðir og í heild var þessi ferð mjög vel heppnuð. Það var virki- lega gaman að sýna í Bergen og vera þar, mikið um að vera og margt að sjá. Meðan á dvöl okkar stóð kynnt- umst við leikhópi frá Dramaten í Svíþjóð sem sýmli um leið og við og var Max von Sydow meðal leikara. Við ætiuðum að sjálfsögðu að sjá sýningu þeirra en uppselt var á þær allar. Við fórum aftur á móti út að borða með Max von Sydow og fleiri leikurum úr hópnum og áttum ánægjulega stund." - Leikbrúðland er á leiðinni í aöra langferð? Kringlan: Ungir myndhöggv- arar með sýningu Ungir og hugmyndaríkir myndlist- armenn hafa ávallt átt það til að umbreyta viðteknum hugmyndum manna um listina og hlutverk henn- ar og eru myndlistarmennimir sem sýna verk sín í Kringlunni engin undantekning en þar stendur nú yfir sýning á verkum eftir unga íslenska myndhöggvara og kennir þar margra grasa. Sýningin, sem haldin er í samvinnu við Kjarvalsstaði, er yfirlitssýning á verkum eftir yngstu kynslóð mynd- höggvara þar sem listamönnunum hefur verið úthlutað ákveðnu rými í verslunarmiðstöðinni til að glíma við. Eins og þeir sem hafa lagt leið sína í Kringluna undanfama tvo daga hafa séð þá er hér um frumlega og forvitnilega sýningu að ræða. -HK Aðstandendur Leikbrúðulands í Noregi, talið frá vinstri: Helga Arnalds, Bryndís Gunnarsdóttir, Hallveig Thorlacíus, Þórhallur Sigurðsson og Erla Guömarsdóttir. Á myndina vantar Báru Lyngdal. „Eftir tvær vikur forum við til Júgóslavíu þar sem við munum sýna Bannað að hlæja þrisvar og nú verð- ur það flutt á ensku. Fyrst fomm við til Slóveníu þar sem allt er með kyrr- um kjörum og sýnum verkið tvisvar, en síðan forum við til Zagreb í Króa- tíu þar sem okkur hefur verið tjáð að allt sé nú með friði og spekt. Þar munum við sýna einu sinni. Sýning okkar í Júgóslavíu er hluti af mikilli leikbrúöuhátíð, nokkurs konar ólympíuleikum leikbrúöuleik- húsa sem haldin er á fjögurra ára fresti og er þetta í fyrsta skiptið sem Leikbrúðuland er boðið á slíka hátíð. Við höfum fengið fleiri boð um að koma á brúðuleikhúshátíðir, en óvíst er um þátttöku vegna mikils kostn- aðar sem fylgir slíku.“ -HK DV Uppseltá mörgatriðiá listahátíð Að sögn Hávars Siguijónsson- ar, blaðafulltrúa listahátíðar, er uppselt á nokkur atriði og nánast uppselt á mörg önnur og hefur miöasala í heild gengið vel. Fyrst varö uppselt á tónleika Ninu Sím- one sem eru annaö kvöld. Upp- selt var á tónleika James Galway sem voru í gærkvöldi. Af öðrum liðum sem uppselt er á eða nán- ast uppselt, má nefha báöar sýn- ingar á Mozart au Chocolat, þá er nánast uppselt á báðar sýning- ar á Rigoletto, Hamlet, aðra sýn- inguna á Draumleik, Undraböm- in frá Rússlandi, May B, ballett- sýningu Maguay Marin, Fritjof Fomless og á tónleika Grace Bunbry er nánast uppselt. Hverfærleik- skáldaverðlaun Norðurlanda Leikskáldaverðlaun Norður- ianda verða veitt í fyrsta sinn á Norrænum leiklistardögum sem hefjast í Reykjavík á morgun. Fimm leikskáld hafa verið til- nefnd og verða þau öll viðstödd afhendinguna. Þau eru Jess Ömsbo frá Danmörku fyrir De forkerte (Vitlaust fólk), Björg Vik frá Noregi fyrir Reisen til Venezia (Ferðin tii Feneyja), Barbro Smeds frá Sviþjóð fyrir Sol och vár (Sól og vor), Juha Siltanen frá Finnlandi fyrir Foxtrot og Hrafh- hildur Hagalín Guömundsdóttir fyrir Ég er meistarinn. Verðiaun- in em 50.000 danskar krónur. Bandamanna- sagafrumflutt Frumflutt verður í Norræna húsinu á laugardaginn Banda- mannasaga, en Sveinn Einarsson hefur snúið þessari gamansömu fomsögu í sjónleik sem verður frumfluttur af leikflokknum Bandamönnum. I leikhópnum em 6 leikarar, Borgar Garðars- son, sem nú leikur aftur á íslandi eftir átta ára dvöl erlendis, Ragn- heiður Elfa Arnardóttir, Jakob Þór Einarsson, Stefán Sturla Sig- uijónsson, Felix Bergsson og Guðni Franzson sem jafnframt semur tónlist við leikinn. Sveinn Einarsson leikstýrir. Þess má geta að fulltrúi frá Vasa-leikhús- inu í Finnlandi sá æfingu og hef- ur sýningunni þegar verið boðið til Finnlands í haust, en þá á að vígja nýtt leikhús þar. Bamaheillfær ágóðaafnýnf hljómplötu í vikunni kom út hljómplatan Þegar þið emð nálægt, en hún er gefin út i samráði við félagið Barnalieill sem fer allan ágóöa af sölunni sem verður varið til ýmissa verkefna á vegum félags- ins. Piötunni verður ekki dreift í búöir en seld í gegnum síma og hafa viðtökur fyrstu dagana verið mjög góöar og hafa um þúsund eintök þegar selst. Öll lögin á Þegar þið emð nálægt eru samin af Ingva Þór Kormákssyni og em lögin við ljóö sem flestöll fjalla um eða tengjast bömum á ein- hvem hátt. Ljóðin eru meðal ann- ars eftir Hannes Pétursson, Þór- arin Elcfjárn, Steinuimi Sigurðar- dóttur og ísak Harðarson. Úr- valsliö söngvara og hljóðfæra- leikara kemur fram á plötunni auk leikskóla- og grunnskóla- bama. Egill Ólafsson, Guörún Guxmarsdóttir og BergJind B. Jónasdóttir sjá um sönginn en útsetningar og upptökusfjóm annaðist Stefán S. Stefánsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.