Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1992, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1992.
25
Menning
Saga-bíó - Mambó-kóngamir: ★★ lA
Mambódagar
íNewYork
Um miðja öld var mambó sá dans sem allir á Vestur-
löndum vildu læra. Tónar suður-amerískra hljóm-
sveita hljómuðu í stórum danssölum og fólk sveiflaði
sér í léttri mambósveiflu. Kvikmyndin Mambó-kóng-
amir er að hluta til óður til þessarar tegundar tónlist-
ar og er að því leytinu ekki ósvipuð The Commit-
ments sem var til dýrðar soultónlistinni. Þessar mynd-
ir eiga fleira sameiginlegt, meðal annars eru báðar
gerðar eftir þekktum skáldsögum og fékk Oscar Hijue-
los Pulitzer-verðlaunin fyrir skáldsögu sína, The
Mambo Kings Plays Songs of Love. Tónlistin skipar
háan sess í myndinni en er samt umgjörð um drama-
tíska sögu um tvo óaðskiljanlega en ólíka bræður.
Cesar og Nestor Castillo eru kúbanskir tónlistar-
menn. Cesar er sá sem stjómar ferðinni, hljómsveitar-
stjórinn og söngvarinn, sjálfstæður, sjálfumglaður og
þrjóskur og heillar kvenifólkið. Hann hefur tekið að
sér að vemda litla bróður sinn, Nestor, sem er við-
kvæmur og tilfinningamikið tónskáld og trompetleik-
ari'.
Það er einmitt yngri bróður sínum til verndar, þegar
Cesar ákveður að nú sé tími fyrir þá að fara frá Ha-
vana og leggja New York að fótum sér. í New York
er Cesar ekki lengi að sýna fram á snilli þeirra bræðra
og stofna þeir hljómsveitina Mambó-kóngamir og vek-
ur leikur þeirra mikla hrifningu. En þegar Cesar neit-
ar að leyfa glæpakóngnum Fernando Perez að ráða
ferðinni em Mambó-kóngunum allir vegir lokaðir og
við tekur brauðstrit á daginn sem felst í vinnu við
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
kjötframleiðslu. Draumurinn um frægð og frama er
samt ávallt í augsýn en mörg ljón em í veginum, ekki
síst þegar þau traustu bönd, sem hafa bundið bræð-
uma saman, fara að ghðna.
Mambó-kóngamir er glæsileg og áhrifamikil fyrsta
hálftímann. Ferðalag þeirra bræðra, tónlistin og drif-
krafturinn í eldri bróðumum hrífur áhorfandann með
sér, en smám saman fjarar spennan, tónlistin er samt
jafngóð alla myndina og textinn vel skrifaður og efnis-
mikill. Skuldinni verður að skella á leikstjóránn, Ame
Glimcher, en þetta er fyrsta kvikmyndin sem hann
leikstýrir. Hann nær ekki fullkomlega að fylgja eftir
sterkri byrjun, missir aðeins tökin á viðfangsefninu
þegar söguþráðurinn fer í margar áttir.
Frekar litlaus gripur
The Cure hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem ein
af virtustu rokkhljómsveitum heimsins. Það fer því
ekki hjá því að beðið sé í eftirvæntingu eftir hverri
nýrri plötu sem hún sendir frá sér og að mikils sé
vænst af þeim. Þeir hafa nú gefiö út nýja plötu, Wish,
og varla er hægt að segja að þeir standi undir vænting-
um.
Það er harla fátt merkilegt að finna á Wish og virð-
ist sem krafturinn og dulúðin, sem einkenndi þá hér
áður fyrr, sé þeim nánast alveg horfin. Þaö er helst í
lögunum Cut og End sem tónlistin hrífur mann. Cut
er aö mínu mati besta lag plötunnar, kraftmikið lag
með illskiljanlegum texta. End er líka kraftmikið og
Hljómplötur
Pétur Jónasson
þungt. Bjagaður gítar og annarlegur taktur, sem fellur
vel að stíl Cure, gerir það að einu af eftirminnilegustu
lögunum á annars frekar litlausum grip.
Þaö ber allt að sama brunni með textana, svo virðist
sem andagiftin hafi yfirgefið þá félaga, enda fjalla flest-
ir textamir um ástina að einhveiju leyti. Þeir eru svo
sem vel gerðir, hnyttnir og oft skemmtilegir en inni-
halda lítinn boðskap. Hljóðfæraleikur er að sjálfsögðu
fagmannlegur, enda fagmenn að verki, og það sama
má segja um sönginn en söngstíll Robert Smith verður
þó leiðigjam til lengdar. Þessi plata er aðeins fyrir
Cure-aðdáendur. The Cure. Standa ekki undir væntingum.
Armand Assante og Antonio Banderas leika mambó-
bræðurna tvo sem leita að frægð og frama í New York.
Armand Assante leikur Cesar af miklum krafti og
öryggi en ekki kannski af nógu mikilh dýpt. Assante
hefur greinilega lært vel heima, trommuleikur hans
er sannfærandi, mambódans hans ágætur og ef hann
syngur ástaróðinn til Maríu sjálfur þá hefur hann
ágæta söngrödd. Hlutverk Nestors er ekki eins gef-
andi, en spánski leikarinn Antonio Banderas, sem
hefur gert garðinn frægan í myndum Pedro Almodo-
vars, sýnir næman skilning á hlutverkinu.
Mambó er ekki í tísku í dag en tónhstin í Mambó-
kóngunum er vel þess virði að heyra aftur. Aldurinn
er farinn að færast yfir mambóhetjur fyrri ára en tvær
þeirra, Tito Puente og Ceha Cruz, koma fram í mynd-
inni í litlum hlutverkum.
MAMBÓ-KÓNGARNIR (THE MAMBO KINGS)
Leikstjóri: Arne Gllmcher.
Handrit: Cynthia Cidre eftir skáldsögu Oscar Hijuelos.
Kvikmyndun: Michael Ballhaus.
Aðalhlutverk: Armand Assante, Antonio Banderas, Cathy
Moriarty og Maruschka Detmers.
Starfsmaður óskast
til almennra verslunarstarfa.
Heildverslun Eiríks Ketilssonar, Vatnsstíg 3.
Hús til brottfiutnings, Suðurgata 40, Hafnarfirði
Kauptilboð óskast í timburhúsið að Suðurgötu 40, Hafnarfirði,
án lóðarréttinda, og skal flytja húsið af lóðinni eigi síðar en 1.
september 1992. Húsið verður til sýnis í samráði við Árna Sverris-
son, framkvæmdastjóra St. Jósepsspítala, Hafnarfirði. Skriflegum
tilboðum skal skila á skrifstofu vora að Borgartúni 7, Reykjavík,
merkt: Útboð 3832/2, fyrir kl. 11.00 þann 15. júní nk„ þar sem
þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
IIMNKAUPASTOFNUÍM RÍKISIIMS
BORGARTUNI 7. 105 RFYKJAVIK
Verzlunarskóli íslands
Innritun 1992-1993
Innritun í nám skólaárið 1992-1993 fer fram 3. til
5. júní. Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu skól-
ans frá kl. 9-18.
Grunnskólanemendur
Umsókn skal fylgja staðfest Ijósrit af prófskírteini.
Innritaðir verða 250 nemendur í 3. bekk.
Verzlunarprófsnemendur
skulu skila umsókn sinni eigi síðar en 5. júní. Þeir
sem hafa verzlunarpróf úr öðrum skólum en Vl þurfa
að skila staðfestu Ijósriti af prófskírteini.
Öldungadeild
Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu skólans 3.-5.
júní gegn greiðslu innritunargjalds, kr. 5.750.
Ökuleikni BFÖ og DV
15 ára í sumar
I
Agætu lesendur!
tilefni afmælisins verða birtar 8 stuttar greinar um
umferðaröryggi og úr þeim verða allar krossaspurningar
Ökuleikni 92. Ótti við umferðarspumingar Ökuleikninnar
er því ástæðulaus. DV og BFÖ óska ykkur góðs gengis í
sumar.
__ Gleðilegt suma
Ökuleikni 92 - DV
Hemlun - Stöóvunarvegalengd
Við stöðvun ökutækis er margs að gæta og margir
óvissuþættir geta haft áhrif á stöðvunarvegalengdina.
Stöðvunarvegalengd er sú vegalengd sem ökutækið
fer frá því að ökumaður skynjar að hann þurfi að stöðva.
Henni er skipt í viðbragðs- og hemlunarvegalengd.
Viðbragðsvegalengd er sú vegalengd sem ökutækið
fer þar til byijað er að hemla. Þættir sem hafa áhrif á
hana eru; hraði ökutœkis og ástand ökumanns. Astand
ökumanns ræðst meðal annars af þreytu, aldri og
líkamlegu ástandi. Sé ökumaður ekki með allan hugann
við aksturinn eykst viðbragðsvegalengdin.
Hemlunarvegalengd er vegalengdin sem ökutækið
fer frá því byrjað er að hemla og þar til ökutækið
stöðvast. Hér hafa áhrif þættir eins og hraði, halli vegar,
yfirborð vegar (þurrt eða blautt), bundið eða óbundið
slitlag. Ástand hjólbarða spilar hér stórt hlutverk.
Munstur á hjólbörðum er til að bæta grip þeirra þannig
að mikið slitnir hjólbarðar auka hemlunarvegalengdina.
Tvöfióldun hraða fijórfaldar hemlunarvegalengdina.