Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1992, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992.
Lífsstm
DV kannar verð í matvöruverslunum:
Islenskar kartöflur
á markaðnum
Verðkönnun DV fór fram að venju
í gær í nokkrum matvöruverslunum
á höfuðborgarsvæðinu. Að þessu
sinni var verðið kannað í Fjarðar-
kaupum í Hafnarfirði, Kaupstað í
Mjódd, Miklagarði við Sund, Hag-
kaupi í Kringlunni og Bónusi í
Skútuvogi.
Ekki er enn farið að selja græn-
meti og ávexti í Bónusverslunum eft-
ir vigt eins og áformað er. Þær græn-
metis- og ávaxtategundir, sem lentu
í könnuninni, voru því vigtaöar í
Bónusi til að hægt væri að gera sam-
anburð, en Bónusbúðirnar hafa
hingað til selt slíkt í stykkjatali.
Neytendur
Eftirtahn tylft vörutegunda var
tekin fyrir að þessu sinni: agúrkur,
blá vínber, græn paprika, kínakál,
perur, bananar, Nesquik (400 g), ýsu-
flak, Uncle Ben’s hrísgijón (454 g eða
500 g), Lux handsápa, Gunnars majo-
nes (250 ml) og kartöflur.
Ný uppskera af íslenskum kartöfl-
um er nú loksins komin á markað-
inn. Eru margir því sjálfsagt fegnir
aö geta nú aftur borðað almennilegar
kartöflur. Að venju eru þær dýrastar
á þessum árstíma, enda glænýjar, en
gert er ráð fyrir að verð fari síöan
lækkandi.
Bónus selur kílóið af nýju kartöfl-
unum á 179 krónur, en þær gömlu
seljast í 2 kg pokum á 35 krónur
(17,50 krónur kílóiö). Fjarðarkaup
selja nýjar á 206 krónur kílóiö, en
gamlar í 2 kg pokum á 124 krónur og
5 kg á 254 krónur. Það er Mikligarður
við Sund sem selur nýju uppskeruna
hvað ódýrast eða á aðeins 49 krónur
kílóiö. í Kaupstaði í Mjódd eru nýjar
kartöflur seldar í tveggja kílóa pok-
um á 198 krónur (99 krónur kílóið)
og í Hagkaupum í Kringlunni var
hægt að fá glænýjar kartöflur á 199,50
krónur kílóið en þær voru seldar í 2
kg pokum á 399 krónur. Einnig var
hægt að fá þar 1 kg af gullauga fyrir
96 krónur og 2 kg af Hornafjarðar-
kartöflum fyrir 189 krónur (94,5
krónur kílóið).
Ef miðað er við lægsta kartöfluverð
á hveijum stað og ekki tekiö tillit til
hvort um er að ræða nýja eða gamla
uppskeru er ódýrustu kartöflurnar
að fá í Bónus á 17,50 krónur kílóið
en þær dýrustu í Kaupstað á 97 krón-
ur kílóið. Er munurinn 454 prósent.
Af öðrum vörutegundum var mesti
munurinn á kínakáli. Meðalverð á
Hæsta og lægsta verð
Nesquick
200
195
190
\ 185
180
Fjarðarkaup j
UHagkaup
IL
Hæst Lægst
Handsápa
30 f 7. Kaupstaður
Ýsuflak
Hæst Lægst
Majónes
Kaupstaður
Hæst Lægst
Uncle Ben
Hæst Lægst
Kartöflur
130
100
Kaupstaöur
Enn lækka
agúrkurnar
Agúrkurnar hafa hríöfallið í verði
á undanfomum vikum. Þessa vikuna
er meðalverðið 75,70 krónur á kílóið,
en fyrir tæplega mánuði var þaö 232
krónur. Nú er um að gera að notfæra
sér lága verðið og nota gúrkur í alla
mata. Agúrkur em góðar sem álegg,
í salöt og einnig er upplagt að súrsa
þær fyrir veturinn.
Verðið á bláum vínberjum er nú
aðeins lægra en verið hefur. Meöal-
veröiö nú er 199 krónur en var 216
krónur fyrir mánuði og 191 króna í
lok maí.
Græna paprikan er enn tiltölulega
dýr eftir að hafa lækkað nokkuð í lok
júnf. Þessa dagana er meðalverðið
453,30 krónur eftir að hafa kostað 409
krónur um miðjan júlímánuð. Er
verðið nú svipað og í byrjun maí.
Meðalverð á kínakáli er 150,40
krónur og er hér um að ræða is-
lenska framleiðslu. Kínakáhð var
mun dýrara þann 15. júlí, en verðiö
er svipað nú og fyrir mánuði.
Verðið á pemm er á uppleið. Meðal-
verðið núna er 137,20 krónur en þann
8. júlí var það 121 króna á kílóið.
Meðalverð um miöjan júní var 127
krónur og í maí var það 104 krónur.
Ágætis verð er banönum þessa vik-
una. Meðalverðið núna er 96,20 krón-
ur en var 108 krónur fyrir rúmlega
mánuði. Verðiö var ákaflega svipað
í júní og maí eða 111 og 112 krónur.
-GHK
Kartöfluunnendur ættu að geta tekið gleði sina að nýju því að glæný uppskera er aö koma á markaðinn þessa
dagana.
Idnakáh er nú 150,40 krónur kílóið.
í Bónus var kílóið á 80 krónur en á
199 krónur í Kaupstað. Er því hvorki
meira né minna en 148 prósent mun-
ur þar á milli. Kínakálið var á 135 í
Fjarðarkaupum, og 169 í Hagkaupi
og Miklagarði.
Ýmsar vörar fengust ekki á öllum
stöðunum. Til dæmis var ekki hægt
að fá Nesquik í 400 g pakkningum í
Bónus, Miklagarði og Kaupstað.
Munurinn á verðinu í Hagkaupi og
Fjarðarkaupum var aðeins 3,7 pró-
sent. Uncle Ben’s hrísgijón í 454 g
eða 500 g pökkum fengust heldur
ekki í Bónus og Miklagarði. Munur-
inn á þyngd hggur í því að 454 g pakk-
amir eru í annarri mæheiningu,
þ.e.a.s. pundum. Var svipað verð á
hrísgrjónunum þar sem þau fengust.
í Kaupstað vom þau á 78 krónur (500
g) en 72 krónur í Fjarðarkaupum og
Hagkaupi (454 g).
Mesti verðmunur á nýjum ýsuflök-
um var 15 prósent. Kílóið er á 404
krónur í Bónusi en 465 í Fiarðar-
kaupum. Auk þess veitir Bónus 5
prósent afslátt af ýsunni við kassann.
I Hagkaupi eru flökin á 449 krónur
kíóið, í Kaupstað á 455 krónur kílóið
og í Miklagarði á 462 krónur kílóið.
Lux handsápa kostaði 16 kónur í
Bónus, 19 krónur í Miklagarði, 21
krónur í Fiarðarkaupum, 22 krónur
í Hagkaupi og 28 krónur í Kaupstað.
Gunnars majones var ódýrast í Bón-
usi, á 48 krónur. í Miklagarði kostar
það 55 krónur, 59 krónur í Hag-
kaupi, 63 krónur í Fjarðarkaupum
og 76 krónur í Kaúpstað. Munurinn
á hæsta og lægsta verði er 58,3 pró-
sení.
Agúrkurnar voru á 52,5 krónur
kílóið í Bónusi, 69 krónur í Hag-
kaupi, 79 krónur í Fíarðarkaupum
og Miklagarði og 99 í Kaupstað. Bláu
vínberin seljast á 169 krónur kílóið í
Miklagarði, 199 í Kaupstað og Hag-
kaupi, og 229 í Fiarðarkaupum.
Græn paprika fékkst ekki í Bónusi
eða Miklagarði. í Fiarðarkaupum
var hún ódýrust, á 390 krónur kílóið,
en á 485 krónur kílóið í Hagkaupi og
Kaupstað. Perumar vom á 169 krón-
ur kílóið í Miklagarði og Kaupstað,
129 í Fjarðarkaupum, 120 krónur í
Bónusi og 99 krónur í Hagkaupi.
Aðeins fengust annars flokks banan-
ar í Miklagarði og voru þeir seldir á
55 krónur kílóið. í Fiarðarkaupum,
Hagkaupi og Kaupstað voru banan-
arnir á 125 krónur en á aðeins 51
krónu í Bónusi og er verðmunurinn
145 prósent.
' -GHK
Sértilboö og afsláttur:
Rækjur og
frampartur
Ýmis konar sértilboð em í
gangi þessa vikuna eins og venj an
er. I Kaupstað í Mjódd eru í boði
500 g af rækjum á 298 krónur. Þar
er einnig hægt aö fá 500 g pakka
af Hy-Top komflexi á 129 krónur,
200 g af Póló kexi á 89 krónur og
Nopa þvottaduft (75 dl) á 259
krónur.
í Bónusí er 500 g af Guld kaffl
á sértilboði eða á 169 krónur. Aet
II örbylgjupopp kostar 189 krónur
og eru sex pokar saman í pakka.
Einnig er Krtiger cappucino kaffi
á 254 krónur.
Fíarðarkaup era með sértílboð
á grihsöguðum framparti og er
hann á 398 krónur. Einn og hálfur
litri af Þrifi með sítrónuilmi er á
192 krónur, McVites Homewheat
súkkuiaðikex (300 g) er á 129
krónur og 567 g af Dole ananas-
hringjum er á 69 krónur. Auk
þess er hægt að kaupa Bonduehe
niðursoðnar smágthrætur á 56
krónur dósina.
í Miklagarði em Ijalddýnur
seldar með miklum afslætti þessa
dagana og ef til vill vert aö athuga
það fyrir næsta sumar. Em dýn-
urnar nú seldar á 2.695 og 2.995
krónur. Þar er einnig hægt að fá
gammósíur á 395 krónur og fimm
ITV myndbandsspólur á 1950. Er
hver spóla 195 mínútur að lengd.
Hagkaupsverslanirnar em með
Daloon vorrúllur, þrjár saman í
pakka, á 199 krónur, tvær flöskur
af Weha hárnæringu á 279 krónur
og Formula 77 uppþvottalög á 59
krónur. Auk þess eru svokallaöar
Flórídana mjónur á sértilboði.
Fást þær nú þijár saman í pakka
á 99 krónur, en um fjórar tegund-
ireraðræða. -GHK