Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1992, Síða 13
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992.
Svidsljós
Brúðkaup úti á sjó
Óvenjuleg hjónavígsla fór fram um
borð í Djúpbátnum Fagranesi á ísa-
íjarðardjúpi laugardaginn 1. ágúst.
Þar gengu í hjónaband Dýrfinna
Torfadóttir, gullsmiður og sjón-
tækjafræðingur, og Guðjón Brjáns-
son, félagsráðgjafi og skakari. Ólafur
Helgi Kjartansson, sýslumaður á
ísafirði, gaf þau saman.
Það var síðdegis á laugardaginn
sem Fagranesið lagði úr höfn á
ísafirði og hélt inn Djúpið. Skipstjóri
var samkvæmt venju Hjalti M.
Hjaltason en í þessum túr var faðir
brúðarinnar, Torfi Bjömsson, eins
konar fiskiskipstjóri. hann er gamal-
reyndur skipstjóri og hundkunnugur
miðunum. Að ráði Torfa var haldið
á Kirkjumiðin út af Unaðsdal þar
sem er úrvals rækjuslóð á 40 faðma
dýpi og þar fór athöfnin fram.
Eftir að sýslumaður hafði gefið
Dýrfinnu og Guðjón saman var geng-
ið til brúðkaupsveislu í bílaflutn-
ingalest skipsins og var eingöngu
boöið upp á sjávarrétti. Veislugestir
voru um 100. Þegar Fagranesið var
aftur lagst við bryggju á ísafirði um
kvöldið var slegið upp balli og dansað
í skipinu fram á rauða nótt.
Það er af hjónunum nýbökuðu aö
segja að Guðjón er þessa dagana á
forum til Bandaríkjanna þar sem
hann hyggst leggja stund á fram-
haldsnám í félagsráögjöf næstu árin.
Dýrfinna fylgir manni sínum um
áramótin og mun stimda skúlpt-
úmám við myndlistarskóla.
Brúðhjónin ásamt feðrum. T.v. er Torfi Bjarnason skipstjóri, faðir Dýrfinnu,
og lengst til hægri er Brjánn Guðjónsson, faðir Guðjóns.
Að athöfn lokinni var veisla í bílaflutningalest skipsins. í miðið má sjá Júl-
íus Brjánsson leikara og konu hans, Ástu.
Brúðarbíllinn var ekki af verri endanum. Hann er i eigu Torfa Bjarnasonar en var áður bifreið forsetaembættis-
ins. Þess má geta að Dýrfinna og Guðjón eiga bil sem ekki er siður frægur, jeppa fyrrum umhverfisráðherra,
Júlíasar Sólnes.
WAtSSuáóWJ®
CROWN
M AÍS í D0S
482 G
WELLA
ÁÐU K
349,-
FORMULA ’77
ÁÐUK
79,-
ÁÐUR
299,-
HAGKAUP
- allt í einni ferd
Hlynur Þór Magnússon, DV, fsafirði: