Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1992, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1992, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992. Viðskipti Fiskmarkaöirnir í síöustu viku: Meðalkílóverð hækkaði um- talsvert á flestum tegundum Meðalverö ýsu, þorsks, ufsa og karfa hækkaöi umtalsvert í síðustu viku. Framboðið minnkaði enn og má rekja það til þess að nú líður að lokum kvótaársins. DV reiknaði út landsmeðalverð fyrrgreindra tegunda á öllum fisk- mörkuöum í síðustu viku. Sam- kvæmt útreikningunum hafði með- alkílóverðið á slægðum þorski hækk- að um rúmar sex krónur og var rúm 91 króna, meðalverðið á slægðri ýsu hafði hækkað mn tæpar sjö krónur og var 122 krónur, meðalverð karf- ans var 45 krónur og hafði hækkað um tæpar 12 krónur. Ufsinn hækkað um tæpar sjö krónur, var í 42 krón- um. Hæsta meðalkílóverö slægðs þorsks, sem finna mátti á mörkuðun- um, var 114,63 krónur og fékkst á Fiskmarkaði Þorlákshafnar þann 25. - framboðið minnkar enn ágúst þegar upp voru boðin rúm 10 tonn. Hæsta meðalverð á slægðri ýsu var 139,57 krónur og fékkst á Faxa- markaði þann 27. ágúst þegar upp voru boðin 2,6 tonn. Hæsta verð á karfa var 54 krónur og náðist á Faxa- markaði þann 27. ágúst þegar upp voru boðin 27 kíló. Ufsinn fór hæst í 49,36 sama dag á Fiskmarkaði Þor- lákshafnar er boðin voru upp 12 tonn. Alls seldust 620 tonn á mörkuðun- um i síðustu viku en það er 229 tonn- um minna en fyrir tveimur vikum og 600 tonnum minna en fyrir þrem- ur vikum. Besti dagurinn, ef litið er til sölu á mörkuðunum öllum, var þriðjudagurinn 25. ágúst því þá seld- ist 161 tonn. Sölumetið í síöustu viku átti Faxamarkaðurinn með 166 tonn. -Ari Fiskmarkaðirnir — meðalverð á landinu öllu í síðastliðinni viku — Þorskur □ Ýsa [3 Ufsi ^ Karfi 140 24. ágúst 25. ágúst 26. ágúst 27. ágúst 28. ágúst Meðalverð Gámafiskur í Bretlandi: Agætt verð fyrir ufsa og ýsu - þrjúskipselduerlendis Alls var selt 431 tonn úr gámum í Bretlandi í síðustu viku. Það er held- ur lakara en fyrir tveimur vikum þegar 688 tonn seldust. 179 tonn seldust af þorski, 86 tonn af ýsu, 12 tonn af ufsa, 13 tonn af karfa, 61 tonn af kola, 10 tonn af grá- lúðu og 68 tonn voru blandaður afli. Meðalkílóverðið fyrir þorskinn lækkaði um eina krónu milli vikna, var í 142 krónum, og ufsinn lækkaði um 4 krónur, var á 61 krónu. Ýsan hækkaði hins vegar um 12 krónur og karfinn um 20 krónur. Meöalverð kolans var nú 134 krónur, sama og í vikunni á undan. Frosti ÞH 229 seldi afla sinn í Grimsby þann 27. ágúst sl., alls 98 tonn. Söluverðmætið var rúmar 10 milljónir og meðalkílóverö aflans 113 krónur. Fyrir þorskinn fengust 129 krónur á kílóið, 154 krónur fyrir ýs- una, 58 krónur fyrir ufsann og 84 krónur fyrir karfann. Tvö skip seldu í Bremerhaven. Hafnarey SU 110 seldi 80 tonn og söluverðmætið var 8 milljónir. Viðey RE 6 seldi 380 tonn og söluverðið var tæpar 26 milljónir króna. -Ari Er Eystrasalt deyjandi haf ? - útdráttur úr reglugerð danska fiskveiðiráðherrans Fiskveiðiráðherrann danski hefur lagt fram reglugerð um netaveiðar í Eystrasalti. Reglugerðin er að öllu leyti unnin af Dönum. Hún var lögð fyrir undirbúningsfund fyrir fisk- veiðiráðstefnu sem halda á með ríkj- um þeim sem stunda veiðar í Eystra- salti. Undirbúningsfundurinn var haldinn 20. ágúst í Danmörku en ráð- stefnan verður síðan haldin 7. sept- ember 1992. í reglugerðinni kemur meðal annars fram hver veiðin var árið 1984 þar sem segir að á svæðun- um 25-28 hafi veiðin verið 400.000 tonn og á svæðunum 22-24 48.000 tonn. Árið 1991 var veiðin í öllu Eystra- salti aðeins 140.000 tonn. Afleiðing minnkandi veiði er versnandi af- koma útgerðarinnar og til þess að bæta þar um hefur veiðin færst mik- ið í netaveiöar. Þykir mönnum að minni kostnaður sé við þann veiöi- skap en tog- eða línuveiðar. Annarra þjóða fiskimenn hafa einnig snúið sér að netaveiðunum, svo sem Lett- lendingar og Litháar. Þeir selja mikið af afla sínum á Borgundarhólmi og fá greitt í dönskum krónum og geta keypt veiðarfæri og annað þar. Reglugerð um veiðidaga og neta- íjölda í sjó hefur gilt fyrir Dani en Fiskmarkaður Ingólfur Stefánsson aðeins dagafjöldi með net í sjó fyrir aðrar þjóðir. Hefur þaö komið þannig út að aðrir en Danir hafa fjölgað net- um í sjó þá daga sem veiða má í hverri viku. Þetta verður meðal ann- ars rætt á fyrirhugaðri ráðstefnu. Fiskurinn, sem veiddur er, er sífellt smærri og við því hafa menn brugð- ist með þeim hætti að smækka möskvann. Eru erlendu skipin með 105 mm möskva en Danir með 140-180 mm möskva. Chile laxaframleiöandi á heimsmælikvarða Chile hefur á örfáum árum aukið laxaframleiðslu sína í 13.462 þ. t. fram til ársins 1991. Með lágum fram- leiöslukostaði hefur Chilemönnum tekist að verða mikilvægir á heims- markaðnum hvað verð og gæði snertir. Þannig komst prófessor Dag Möller að orði í setningarræðu á fundi í Bergen um laxeldi. Taldi hann að Chile væri eitt þeirra landa sem hægast ætti með samkeppni á heims- markaðnum. Árið 1982 var heims- framleiöslan á eldislaxi 10.000 tonn en árið 1991260.000 tonn. Þar af fram- leiddu Norðmenn 155.000 tonn. Eng- lendingar voru með næstmesta fram- leiðslu eða 40.000 tonn, aðrir minna. Framleiöslukostnaður á hvert kg fisks er í Noregi 200 ísl. kr. til 236 ísl. kr. í Chile er kostnaðurinn 217 ísl. kr. Taldi prófessorinn að næsta mikla verkefnið væri að framleiða heil- brigðan fisk, svo að ekki þurfi að gefa mikið af lyfjum, í eldiskvíum. Sagði hann að mikill vandi væri vegna lyfjagjafar sem nauðsynleg væri þar sem 4 milljónir laxa slyppu árlega úr eldiskvíum og gæti svo far- ið ef engin lyf væru gefin að þessi sýkti lax smitaði villta laxinn og væri þá illt í efni. Hagnaöur á útflutningi Ngrðmanna Útflutningsverðmæti var frá jan- úar til júlí 119,5 milljarðar n. kr. en innflutningur 89,5 milljarðar. Á sama tíma á síöasta ári var mismun- urinn aðeins 4,5 milljarðar, skip og olía ekki meðtahn. Verðmæti út- fluttrar olíu var á sama tíma 56,5 milljaröar og er það svipað og var á síðastliðnu ári. Kúrekastígvél úr steinbítsroði Gerard Kerr hefur nú hafiö fram- leiðslu á kúrekastígvélum úr stein- bítsroði. Hann hefur fengið sérlega sútun á roði og hefur Texasbúunum litist vel á stígvélin. Framleidd hafa verið nokkur pör af handsaumuðum stígvélum og eru Ameríkanamir stórhrifnir af þeim. Einnig telur hann að selja megi ýmsar vörur úr sútuðu þorskroði. Gerir hann ráð fyrir aö hafa 17 manns við þessa framleiðslu til að byija með. Einnig er talað um að framleiða bikini úr sömu efnum. Fiskmarkaðimir Faxamarkaðurinn 31. ágúa seidusi alls 3,657 lonn Magn í Verðíkrónum tonnum Meóal Lægsta Hæsta Blandað 0,115 19,37 16,00 20,00 Háfur 0,017 12,00 12,00 12,00 Skarkoli 0,060 75,00 75,00 75,00 Steinbítur 0,015 95,00 95,00 95,00 Þorskur, sl. 1,684 79,26 75,00 87,00 Ufsi 0,317 33,23 30,00 34,00 Ýsa, sl. 1,349 98,91 80,00 131,00 Fiskmarkaður Hafnarfjarðar 31. ágúst wldust «Hs 23,916 tonn. Gellur 0,009 370,00 370,00 370,00 Háfur 0,088 15,91 15,00 17,00 Ýsa 9,175 112,01 104,00 124,00 Smáýsa 4,961 80,00 80.00 80,00 Þorskur 4,993 98,91 88,00 99,00 Smárþorskur 0,322 76,00 76,00 76,00 Ufsi 3,603 42,00 42,00 42,00 Steinb./Hlýri 0,040 97,00 88,00 103,00 Skötubörð 0,004 20,00 20,00 20,00 Karfi 0,159 34,81 30,00 52,00 Blálanga 0,050 70,00 70,00 70,00 Lúða 0,462 317,17 290,00 405,00 Keila 0,047 34,00 34,00 34,00 Fiskmarkaður Suðurnesja 31. ágúst seldust atls 7,900 tonn. Þorskur 1,078 95,67 85,00 108,00 Ýsa 1,554 112,32 100,00 124,00 Ufsi 4,274 40,89 40,00 43,00 Lýsa 0,022 20,00 20,00 20,00 Karfi 0,812 46,00 46,00 46,00 Steinbítur 0,034 85,00 85,00 85,00 Skötuselur 0,027 220,00 220,00 220,00 Kinnar 0,099 165,30 90,00 195,00 Fiskmarkaður Þorlákshafnar 31. ágúst sefdust alls 3,544 tonn. Háfur 0,033 9,00 9,00 9,00 Karfi 1,474 50,64 50,00 55,00 Keila 0,502 42,00 42,00 42,00 Langa 0,034 55,00 55,00 55,00 Lúða 0,064 331,71 320,00 365,00 Lýsa 0,196 16,00 16,00 16,00 Skata 0,084 70,00 60.00 95,00 Skötuselur 0,619 190,00 190,00 190,00 Sólkoli 0,004 30,00 30,00 30,00 Steinbítur 0,022 76,00 76,00 76,00 Þorskur, sl. 0,117 87,00 87,00 87,00 Ufsi 0,004 30,00 30,00 30,00 Ýsa, sl. 0,391 105,70 100,00 112,00 Fiskmarkaður Vestmannaeyja 31. ágúst seldust atls 26987 tonn. Þorsicur 7,060 96,85 82,00 99,00 Undirmáls- 0,057 40,00 40,00 40,00 þorskur Ufsi 15,327 45,00 45.00 45,00 Langa 0,275 50,00 50,00 50,00 Karfi 0,0262 37,00 37,00 37,00 Ýsa 3,896 99,85 75,00 107,00 Fiskmarkaður Breiðafjarðar 31. águst seldiKt alls 2,716 tonn. Þorskur 2,372 77,54 74,00 82,00 Ýsa 0,194 90,00 90,00 90,00 Karfi 0,134 36,00 36,00 36,00 Steinbítur 0,010 30,00 30,00 30,00 Blandaður 0,006 10,00 10,00 10,00 Fiskmarkaður Isafjarðar 31. égúst seldust atls 8.012 tonn Þorskur 5,672 86,64 69,00 96,00 Ýsa 1,978 98,63 97,00 100,00 Lúða 0,362 267,35 255,00 300,00 Fiskmarkaður Patreksfiarðar 31. ígúst seldust olls 0,349 tonn Gellur 0,020 305,00 305,00 305,00 Þorskur, sl. 0,329 86,00 86,00 86,00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.