Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1992, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1992.
25
Tilkyimingar
Húnvetningafélagiö
Félagsvist laugardaginn 5. sept kl. 14 í
Húnabúð, Skeifunnl 17.
Félag eldri borgara I Rvík
Opið hús í Risinu í dag £rá kl. 13-17.
Barnakór Grensáskirkju
tekur á ný til starfa eför sumarhlé laug-
ardaginn 5. sept. kl. 11. Þar með hefst
þriðja starfsár kórsins. Kórfélagar eru
um fjörutíu talsins, á aldrinum átta til
þrettán ára. í vetur verður boðið upp á
sérstakan kórskóla fyrir byijendur.
Eirrnig verður valið í sérstakan úrvals-
hóp. Stofnandi og stjómandi kórsins er
Margrét Pálmadóttir söngkona.
Jóga fyrir eldri borgara
í Jógastöðinni Heimsljósi verður boðið
upp á jógakennslu fyrir eldri borgara í
vetur. Kennari verður Hulda Sverrisdótt-
ir sem stundað hefur jóga í 30 ár. Jóga-
stöðin er til húsa að Skeifunni 19,2. haeð.
Drengjakór Laugarneskirkju
er að heQa 3ja starfsár sitt og standa inn-
tökupróf nú yfir. f drengjakómum em
11-14 ára drengir en í undirbúningsdeild
verða 8-10 ára drengir. Stjómandi kórs-
ins er Ronald Vilhjálmur.
Leikhús
ÞJOÐLEIKHUS©
Sími 11200
Sala aðgangskorta er hafin
Aðgangskortin gilda á eftirtalin
verk á Stóra sviðinu:
'HAFIÐ eftir Ólaf Hauk Simonarson.
*MY FAIR LADY eftir A.J. Lerner
og F. Loewe.
‘DANSAÐ Á HUSTVÖKU
eftir Brian Friel.
'ÞRETTÁNDA KROSSFERÐIN
eftir Odd Björnsson.
•KJAFTAGANGUR eftir Neil Simon.
Auk þess veita þau verulegan
afstátt á sýningar á Smíðaverk-
stæði og Litla sviði.
VERÐ KR. 7.040,-
Frumsýningarkort, verð kr. 14.100,-
á sæti.
Elli- og örorkulifeyrisþegar, verð
kr. 5.800,-
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga frá 13-20 á meðan á kortasölu
stendur.
Miðapantanirfrá kl. 10 virka daga i sima
11200.
Greiðslukortaþjónusta -Græna linan
996100.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sala aögangskorta
hefst í dag.
i áskrift eru sex leiksýningar, fjórar sýn-
ingar á stóra sviði og tvær aö eigin vali
á stóra eða litla sviði.
Verkefni vetrarins eru á stóra sviði:
Dunganon eftir Björn Th. Björnsson
Heima hjá ömmu eftir Neil Simon
Ronja ræningjadóttir
eftir Astrid Lindgren
Blóðbræður eftir Willy Russell
Tartuffe eftir Moliére og á lltla sviði:
Sögur úr sveltinni: Platonof og Vanja
frændi
eftir Anton Tsjékov.
Dauðlnn og stúlkan eftir Ariel Dorf-
man.
Verð á aðgangskortum kr. 7.400,-
Á frumsýningar kr. 12.500,-
Elll- og örorkulifeyrisþegar, kr. 6.600
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 á meðan kortasalan stendur
yfir, auk þess er tekið á móti miða-
pöntunum í sima 680680 alla virka
dagakl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta.
Faxnúmer 680383.
Silfurlínan
sími 616262. Síma- og viðvikaþjónusta
fyrir eldri borgara alla virka daga frá kl.
16-18.
Fyrirlestur um áhugahvöt og
vinnugleði
Prófessor Marianne Frankensheuser
heldur fyrirlestur í Norræna húsinu 2.
sept. kl. 17. Fyrirlesturinn nefnist Er
hægt að skipuleggja áhugahvöt og vinnu-
gleði? Fyrirlesturinn er fluttur í tilefni
vinnuvemdarársins. Öllum er heimill
aðgangur að fyrirlestrinum í Norræna
húsinu sem verður fluttur á sænsku.
Dansskóli Jóns Péturs og
Köru
hefm- sitt fjórða starfsár nú í haust og
mun bjóða upp á danskennslu fyrir alla
aldurshópa. Almennar dansæftngar
verða reglulega á fóstudagskvöldum í
vetur undir stjóm danskennara. Ýmsir
erlendir gestakennarar munu heimsækja
skólann og aðstoða keppendur fyrir dans-
keppni vetrarins. Kennarar í vetur verða
Jón Pétur Úlfljótsson, Kara Amgríms-
dóttir, Hinrik Norðfjörð Valsson og Auð-
björg Amgrímsdóttir. Innritun á dans-
námskeiö skólans stendur yfir dagana
1.-8. sept. kl. 12-19. Kennsla hefst mið-
vikudaginn 10. sept.
Litli tónlistarskólinn
Hlóðver/Stúdíó, Fumgrund 40, Kópavogi.
Skólinn býður upp á tónlistamám fyrir
almenning, jafnt byijendur og þá sem
lengra em komnir. Kennt er í 10 vikna
námskeiðum, einn 45 mín. tími á viku,
sem em einkatímar, nema um annað sé
samið. Kennt er á hljómborð, píanó, org-
el, hljóðgervla, skemmtara, gítar og
bassa. Tölvuvinnsla er einnig ríkur þátt-
ur af því sem í boði er. Samhliða tölvutón-
listinni er farið út í útsendingar á lögum
og boðið upp á hljóðupptökur af verkefh-
um nemenda í lok námskeiðanna.
Kennsla hefst mánudaginn 14. sept. Inn-
ritun fer fram til 12. sept. í síma 43611.
Tapaðfundið
Búbbulína tapaöist
nýlega frá Öldugranda. Hún er svört með
hvíta bringu og hvitar loppur, ómerkt og
11 ára. Finnandi er vinsamlegast beðinn
um að hringja í Elínu í síma 25208.
Hundurinn Tíla tapaöist
frá Kjarrmóum 5, Garðabæ, sunnudag-
inn 23. ágúst sl. Hún er með sperrt eyru
og lafandi skott, ljós á bringu og dökkleit
í framan. Hún er með hálsól og svipar til
lítils scháfers og er mjög gæf og blið.
Finnandi eða þeir sem hafa séð hana eru
vinsamlegast beðnir um að hafa samband
við Eirík, s. 656004 eða 627222, Atla, s.
96-22582, eða Ástu, s. 51031.
Veiðivon
Allt í yeiðiferðina
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751
SJÁIST
með
endurskini
• Þessi mynd lýsir staðháttum vel við Mýrarkvíslina en hérna renna veiðimenn viö Stokkinn. Veiðst höfðu 288 laxar
í ánni í gærkvöldi. DV-myndir HS
„Aldrei séð svona mikið
af laxi í Breiðdalsánni"
- segir Gunnlaugur Stefánsson
„Veiðin gengur vel þessa dagana í
Breiðdalsánni og á þessari stundu er
áin að skríða í 200 laxa. i fyrra voru
þetta 118 laxar,“ sagði Gunnlaugur
Stefánsson, alþingsmaður og klerk-
ur, í gærkveldi.
„Ég renndi stuttan tíma um helgina
og fékk fjóra laxa, frá 5 upp í 7 pund,
í Tinnudalsá. Þetta voru allt ný-
gengnir laxar. Veiðimenn hafa veitt
vel í ánum í Breiðdalnum og veiði-
menn sem voru þar fyrir fáum dög-
um veiddu 13 laxa. Aðrir veiddu 7
laxa. Það er ótrúlega mikið af laxi,
ég hef aldrei séð svona mikið. Með
sama áframhaldi ætti þetta að enda
nálægt 300 löxum. Við veiðum í
Breiðdalsánni til 20. september og
veiðileyfið er ekki dýrt miðað viö
veiðivon, 2500 tU 7000 þúsund," sagði
Gunnlaugur ennfremur.
Sama mokveiöin í Laxá á
Refasveit
„Á þessari stundu er Laxá á Refa-
sveit að skríða í 240 laxa sem er
meiriháttar veiði,“ sagði Sigurður
Kr. Jónsson á Blönduósi er við
spurðum frétta í gærkveldi.
„Veiðimenn, sem voru þar fyrir
fáum dögum, veiddu 16 laxa og þá
flska veiddu þeir flesta á tveimur
tímum. Það kom rigning og áin var
aðeins lituð, það gerði gæfumuninn.
Flestir af þessum 16 löxum veiddust
í Göngumannahyl. Ég kíkti í hylinn
nýlega og þama hafa verið á milli
40 og 50 laxar. Blanda er alveg dauð
þessa dagana og veiðimenn nenna
ekki að renna þar lengur. 390 laxar
hafa veiðst þar,“ sagði Sigurður Kr.
í lokin.
Stærsti laxinn í Mýrarkvísl
19,5 pund
„Mýrarkvislin hefur gefið 288 laxa
og sá stærsti er 19,5 pund,“ sagði
Helgi Sigfússon í gærkveldi er við
spurðum um Mýrarkvíslina.
„Kristján Jónsson á Dalvík og fleiri
voru að koma úr kvíslinni, þeir
veiddu 10 laxa og var sá stærsti 10
pund,“ sagði Helgi.
Hofsá í Vopnafirði komin meö
1977laxa
„Við erum komnir með 140 laxa
eftir tveggja daga veiði og það er
mjög gott,“ sagöi Eiríkur Sveinsson
á bökkum Hofsár í gærkveldi. En þá
var holl þeirra noröanmanna komið
með 140 laxa eftir tveggja daga veiði
í Hofsá í Vopnafirði.
„Áin hefur gefið 1977 laxa og marg-
• Þeir eru vigalegir við Mýrarkvíslina, þeir Helgi Sigfússon og Guðni Sig-
þórsson, með tvo 6 punda laxa.
ir okkar hafa veitt kvótann en það
eru 8 laxar á dag. Þaö er bara spónar
sem gefa okkur þessa veiði, einn
flugulax er kominn á land í þessu
holli. Það er kalt héma, norðanátt
og fimm gráða hiti. Besta hollið í
sumar hefur fengið 152 laxa og viö
ætlum að reyna að veiða meira núna,
ég held að það takist á næstu klukku-
tírnum," sagði Eiríkur.
Fréttirfrá Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur
Elliðaámar em aö komast í 1200 laxa
og það er í góðu lagi. Úr Brynjudalsá
í Hvalfirði era komnir kringum
170-180 laxar á land. í Laxá í Leirár-
sveit hafa veiðst næstum 600 laxa.
Gljúfurá í Borgarfirði hefur gefið 220
laxa. Miðá í Dölum 160 laxa og 500
bleikjur. í Stóra-Laxá í Hreppum hafa
veiðst 320 laxar og hefiir svaeði eitt og
tvö gefið best, 160 laxa. Hvítá í Borgar-
firði hefúr gefið 50 laxa. -G. Bender