Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1992, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1992, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1992. Útlönd Fleirifarafrá Fleiri Bandarikjametin yfirgefa Kafiforníu en flytjast þangað og er þaö í tyrsta skipti sem slikt gerist í nærri tuttugu ár. Þetta kemur fram í tölum frá fjármála- ráðuneyti fylkisins. „Fólk flytur sig til vegna at- vlnnunnar og það eru bara engin störf i Kalifomiu," sagði EJiza- beth Hoag, sérfræðingur fylkis- ins í búferlafiutningum. Efnahagsþrengingar eru mikl- ar í Kalifomíu um þessar nnmdir og hafa ekki veriö meiri síöan í kreppunni mikiu. Aö undanfömu hafa tugþúsundir íbúa fylkisins misst vinnu sína og mikiil uggur er í brjósti hins aimenna neyt- anda. Á síðasta íjárhagsári fluttust 342 þúsund manns tii Kalifomíu en 350 þúsund pökkuöu saman og ireistuðu gæfunnar annars staöar. Dubcekerenn Alexander Dubcek, forsprakki umbótasteihunnar, sem kennd hefur veriö við vorið í Prag árið 1968, liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi í Prag. Hann hiaut alvarlega brjóst- og mænuskaða í bílsiysi á þriöjudag þegar bifreiö sem hann var í fór út af hraö- braut. Læknar á sjúkrahúsinu vildu ekki tala um bata en sögðu þó að ástæða væri til örlítillar bjait- sýni. TrommariToto lést af völdum kókaínneyslu Krufning hefur leitt í Ijós aö Jeff Porcaro, stofnandi og trommari rokksveitarinnar Toto, lést vegna æðaþrengsla af völd- um kókaínneyslu. Hann var 38 ára. Porearo lést í byrjun ágúst þeg- ar hann var að úða skordýraeitri í garðinum sínum og var upphaf- iega taiið að eitrið heföi vaidið hjartaáfalli. Svo reyndist þó ekki vera. Viö krufninguna fannst kókain í blóði hans en ekkert skordýraeitur. Porcaro lætur eftir sig eigin- konu og þrjá unga syni. FinnarogDanir násáttumí brúardeilu Finnsk stjómvöld skýrðu frá því gær aö þau heföu náð sam- komulagi við Dani í deUunni um byggingu brúar yfir Stórabelti og um leið að þau heföí failið frá kæru sinni til alþjóðadómstóis- ins. Smíðin ' á að tengja saman dönsku eyjamar Sjáland og Fjón meö neti brúa fyrir bíla og jám- brautir og jarðganga. Finnar reiddust þar som þeir töldu aö ein brúanna mundi takmarka fluui- ing á olíuborpölium sem þeir flytja út til Norðursjávarins. Samkomulagið feiur í sér að Danir greiöi Finnum rúmar átta hundruð mifljónir íslenskra króna í skaðabætur. hætti lífi sínu í myrkri og ólgusjó í gær til að bjarga 29 spænskum sjómönnum og hundi þeirra úr brennandi togara undan Falk- iandseyjum. Hermaöurinn seig niður í togarann úr þy riu og kom sjóurunum til hiálpar svo hægt væri að hífa þá upp. Heuter Fjórir starfsmenn SÞ létust þegar flutnmgavél fórst við Sarajevo: Skothríðin dundi á björaunarþyrlunni - friðargæsluliðar gruna Króata og íslama um að hafa skotið á þyrluna Franskur yfirmaður í friðargæslu- liði Sameinuðu þjóðanna í Sarajevo segir að Króatar eða íslamar hafi skotið á bandaríska björgunarþyrlu sem send var frá herskipinu Iwo Jima til að leita flaks af flutninga- flugvél sem fórst nærri Sarajevo í gær. Ekki fæst þó staðfest hverjir gerðu árásina en viðurkennt er að skotið var af landsvæði sem Króatar og ísl- amar ráða yfir. Flutningavélin, sem fórst, var á leið til Sarajevo með hjálpargögn - fimm tonn af teppum - þegar hún hrapaði af ókunnum orsökum. Fjórir voru um borö og fórsut þeir allir. Enn er eftir að skera úr um hvað olli því að vélin hrapaði. Grunsemdir hafa eðfilega vaknað um að hún hafi verið skotin niður en nokkur tími kann að líða áður en orsakir slyssins koma í ljós. Björgunarþyrlan skemmdist ekki mikið í skotárásinni. Hún var í fór með þremur öðrum þyrlum og var ferðinni haldið áfram þrátt fyrir árásina. Flugi með hjálpargögn til Sarajevo hefur þó verið hætt um sinn meðan rannsókn á málavöxtum stendur yfir. Reuter Fischer næstum búinn að vinna - Spasskíj bjargaði taflinu með meistaralegri vöm 2. einvígisskákin í Sveti Stefan: Skákin í gær rennir enn stoðum undir það að Fischer sé vel undir það búinn að fara að tefla aftur. Símamynd Reuter „Borís fékk góða stöðu,“ sagði Bobby Fischer eftir 2. einvigisskák- ina í Sveti Stefan í gær, „en hánn gerði nokkur mistök og ég fékk nokkra vinningsmöguleika, “ bætti kappinn við. Skákinni lauk með jafn- tefli eftir 59 leiki og var flókin og skemmtileg þrátt fyrir að drottning- amar hyrfu af borðinu í sjöunda leik. Undir lok setunnar var Spasskíj hætt kominn en með meistaralegri vöm tókst honum að bjarga taflinu. Spasskíj viðurkenndi að hafa teflt veikt um miðbik skákarinnar en á hinri bóginn hrifust áhorfendur af taflmennsku Fischers. „Þetta er sá Fischer sem við þekktum fyrir 20 árum,“ sagði Alexander Nikitin, fyrrverandi þjálfari Kasparovs og nú einn aðstoðarmanna Spasskíjs. Fischer beitti kóngsindverskri vöm og endurbætti gamla skák sína við rúmenska stórmeistarann Ghe- orghiu. Spasskíj sýndi hugkvæmni er hann fómaði peði í 18. leik en fylgdi ekki rétt eftir. Skákin sigldi hraðbyri í jafntefli er honum urðu á alvarleg mistök og Fischer náði und- irtökunum. í lokin mátti Spasskíj prísa sig sælan fyrir að halda jafn- tefli en í spennandi endataíli smaug vinningurinn úr greipum Fischers. Skákin í gær rennir enn stoöum undir það að Fischer sé vel undir það búinn að fara að tefla aftur og hafi í raun engu gleymt frá því hann var upp á sitt besta. í dag eiga meistar- amir frí en þeir tefla aftur á laugar- dag og sunnudag. Báða dagana verð- ur Skáksamband íslands með opið í Faxafeni frá kl. 14. Hvitt: Borís Spasskíj Svart: Bobby Fischer Kóngsindversk vörn. 1. d4 RfB 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 Kóngsindverska vömin átti ekki upp á pallborðið hjá Fischer í heims- meistaraeinvíginu 1972. Hún var eft- irlætisbyrjun hans á yngri áram og síðari ár hefur Garrí Kasparov hald- ið merki hennar á lofti. 4. e4 d6 5. f3 c5 Fischer hafði þennan háttinn á í skák við Gheorgiu á ólympíuskák- mótinu í Siegen 1970 og nú lumar hann á endurbót. 6. dxc5 dxc5 7. Dxd8+ Kxd8 8. Be3 Rfd7 9. Rge2 Spasskíj tefldi djarfar gegn þessum sama Gheorghiu í Moskvu 1971 - lék 9.0-0-0 og síðan fó-f4 og setti riddar- ann á fó. Kærði sig kollóttan þótt svartur léki -Bxc3 og tvístraði peða- stöðunni. 9. - b6 10. 0-0-0 Ra6! Hugsanlega traustara en að setja riddarann á c6, eins og Fischer gerði í Siegen. 11. g3 Rc712. f4 e613. Bh3 Ke714. Hfl h6! Mikilvægur vamarleikur því að eftir 14. - Bb7 15. f5! strandar 15. - Skák Jón L. Árnason Re5 á 16. fxe6 fxe617. Bg5 + og hvítur s betra 15. e5 Bb7 16. g4 Had8 17. Rg3 f6 18. Rce4! fxe5 19. f5! Bxe4! 20. Rxe4 gxf5 21. gxf5 Rfl6 Fischer bregst rétt við hættulegri peðsfóm Spasskíjs og reynir að ein- falda stöðuna. Hér kemur 22. Rg3!? eða 22. Hxd8 til álita - einhvers stað- ar í næstu leikjum koðnar frum- kvæði Spasskíjs niður. 22. Hgl Hxdl+ 23. Kxdl Bf8 24. Rxf6 KxfB 25. Hfl exf5 26. Hxf5+ Kg7 27. Hxe5 Bd6 28. He4 Einfaldaraer28. Bf4! meðjafntefli. 28. - Bxh2! Þessu fræga peði gein Fischer við í fyrstu einvígisskákinni 1972 og varð bumbult. En nú er engin hætta á að biskupinn lokist inni. Þótt svartur hafi unnið peð ætti hann ekki að geta unnið skákina og allra síst ef Spasskíj léki nú 29. Bd2! eins og t.d. afbrigðið 29. - Hd8 30. Kc2 h5 31. Hh4 Kg6 32. Bf5 + ! Kxí5 33. Hxh5+ Kg6 34. Hxh2 gefur til kynna. Leikur Spasskíjs er lakari en samt er engin hætta á feröum. 29. Ke2? h5 30. He7+ Kfl6 31. Hd7 Be5 32. b3 h4 33. Kfó Hg8 34. Bg4? Alvarleg mistök. Til jafnteflis leiðir 34. Bf4 eða jafnvel 34. Bf2 Bg3 35. Hh7. 34. - h3! 35. Hh7 Ekki 35. Bxh3? Hg3+ og vinnur mann. 35. - h2 36. Bf4 Fischer á laglegt svar við þessum leik en án hans væri Spasskíj einnig illa beygður. 36. - Hf8! 37. Bxe5+ Hann á ekki aðra leiki. Ef 37. Hh5 þá hl = D + ! 38. Hxhl Kg6 og hvítur missir mann. Nú verður Spasskíj að vona það besta. 37. - Kg6+ 38. Ke4 Ekki 38. Kg2 Kxh7 39. Bxc7 Hg8 og vinnur. 38. - Kxh7 39. Bxh2 He8+ 40. Kf5!? Kannski er þetta besti möguleik- inn, þrátt fyrir hrakspár áhorfenda í Faxafeni er hér var komið sögu. Eftir 40. Be5 Kg6 er hvítur lentur í klemmu á miðborðinu sem hann losnar ekki svo auðveldlega úr. 40. - Re6 41. Kf6 Rd4 42. Bd6 He4 43. Bd7 He2 44. a4 Hb2 45. Bb8 a5 46. Ba7 Hxb3 47. Ke5 Þótt svartur eigi skiptamun og peði meira í stöðunni era jafnteflisaf- brigðin glettilega mörg! 47. - Rfí+ 48. Kd6(?) Rd2 49. Be6 Ekki 49. Bb5? Hxb5! 59. cxb5 c4 60. Bxb6 c3 og peðið verður ekki stöðvað - riddarinn skákar biskupinn alls staöar af. 49. - Hb4 50. Kc6 50. - Rb3? Ekki verður betur séð en að 50. - Rxc4 51. Bxc4 Hxc4 52. Bxb6 Hxa4 53. Kxc5 Ha2 54. Kh5 a4 leiði til vinnings á svart. 51. Bd5 Hxa4 52. Bxb6 Hal 53. Bxc5 a4 54. Bb4! a3 55. c5! Rd4+ 56. Kd7 Hdl Líklega getur svartur ekki lengur unnið. Ef 56. - a2 gæti svarið orðið 57. Bxa2! Hxa2 58. c6 Ha7+ 59. c7 Rb5 60. Ba5 og heldur jöfnu. 57. Bxa3! Rc2 58. c6! Hxd5 59. Bd6 - Og eftir þennan leik sættust kapp- amir á jaftitefli en sú verður niður- staðan eftir t.d. 59. - Rd4 60. c7 Hxd6+ 61. Kxd6 Rb5 + 62. Kd7 Rxc7 63. Kxc7 og kóngamir era einir eftir á borð- inu! -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.