Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1992, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR '4: SEPTEMBER 1992.
11
Útlönd
Ungverska yngismærin Zita Rajcsanyi segir frá lífi sínu með Bobby Fischer:
Skrifaði eins innilega
til Fischers og ég gat
- meistarinn hringdi ári síðar og bauðst til að aðstoða við skákæfingar
„Ég skrifaði honum bréf fyrir um
tveimur árum og ári síðar hringdi
hann í mig. Ég er mjög hrifin af hon-
um og hef víst lagt hug minn og
hjarta í bréfið. Það var eins innilegt
og ég gat haft það,“ segir ungverska
yngismærin og skákkonan Zita
Rajcsnyi um upphaf kynna sinna af
Bobhy Fischer.
Þau létu ekki bréf og símtöl nægja
því í apríl í vor fór Zita vestur um
haf og heimsótti átrúnaðargoðið.
Með þeim tókust ástir og nú búa þau
saman. Það er mat flestra sem til
þekkja að Zita eigi mikinn þátt í að
Fischer ákvað að koma aftur fram
og mæta Borís Spasskíj í einvígi.
Zita segir að í fyrstu hafi hún að-
eins dáð Fischer sem skákmann. Það
var áður en hún kynntist manninum.
Hún er mikil áhugamanneskja um
Zita Rajcsanyi skrifaði Fischer inni-
legt bréf. Hann beið í ár með að
svara. Simamynd Reuter
skák og vildi fá ráð hjá Fischer. Hún
segir að hann hafi bætt skákstíl sinn
ny ög enda æfi þau reglulega saman.
Zita er nítján ára gömul, fædd árið
1973, ári eftir að Fischer og Spasskíj
mættust í einvíginu í Reykjavík.
Fischer er 49 ára gamall.
Fischer var á árum áður kunnur
fyrir að gera htið úr skákhæfileikum
kvenna. Árið 1961 lýsti hann því yfir
að konur ættu ekki að tefla vegna
þess að þær stæðust aldrei saman-
burð við karla í listinni.
Zita segir að yfirlýsignar af þessu
tagi séu mjög líkar Fischer. Hann sé
enn vantrúaður á skákhæfileika
kvenna og hafi t.d. htla trú á löndu
sinni Judit Polgar þótt hún sé í röð
sterkustu skákmanna heims.
Zita ætlar að tefla á heimsmeistara-
móti unglinga í Argentínu í október.
Hún á ekki von á að Fischer fylgi sér
þangað eins og hún fylgir honum til
Svartljallalands. Nærvera meistar-
ans gæti líka verið þvingandi fyrir
hana.
Reuter
Þrír Danir, sem dæmdir voru
fyrir kjmferöislega misnotkun á
ungum stúlkum fyrir tveimur
árum, hafa verið látnir lausir úr
fangelsi vegna þess aö sannanim-
ar gegn þeim hafe verið hraktar
og lýstar ómerkar.
Mennirnir voru dæmdir á
grundvelli framhurðar stúlkanna
en nú þykir sannað að þær hafi
látið ímyndunaraflið hlaupa með
sig í gönur. Hinir dæmdu héldu
alltaf fram sakleysi sínu.
Dómur gekk í máhnu árið 1990
og hafa mennirnir setið inni upp
frá því. Ekki er ljóst hvort þeir
fara í skaðabótamál á hendur rík-
inu vegna rangra dóma.
4*5
9
Margar gerðir til af skrifborðsstólum
í ýmsum verðflokkum.
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199