Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1992, Side 14
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91)63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerö:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Unga fólkið og húsnæðið
Eftir aö húsbréfakerfið var tekið upp á fasteigna-
markaðnum hefur verið undarlega hljótt um húsnæðis-
mál. Skýringin er sennilega sú að húsbréfin voru ný
aðferð til að fjármagna íbúðarkaup og sú nýbreytni féll
að mörgu leyti í góðan jarðveg. Fólk hefur verið að átta
sig á gildi og notkun húsbréfa, markaðurinn hefur ver-
ið að laga sig að breytingunum og afleiðingarnar hafa
ekki verið augljósar fyrstu misserin.
Nú er hins vegar fullyrt að gífurlegur samdráttur sé
á markaðnum, bæði í nýbyggingum og fasteignakaup-
um. Með einni undantekningu þó. íbúðabyggingum í
félagsíbúðakerfinu hefur stöðugt farið flölgandi enda
hafa umsóknir hrannast upp og kerfið hefur hvergi
nærri undan að anna eftirspurn. Þróunin virðist með
öðrum orðum vera sú að fólk treystir sér ekki til kaupa
eða byggingar á eigin húsnæði en leitar eftir húsaskjóh
í félagsíbúðakerfi, þar sem lánskjör eru hagstæðari en
eignarhlutinn rýrari. Sérstaklega á þetta við um ungt
fólk. Það hefur ekki lengur bolmagn til sjálfseignar og
húsbréfakerfið hefur því miður reynst því þrándur í
götu.
Formaður Verktakasambands íslands, Öm Kæme-
sted, hefur undanfama daga komið fram í fjölmiðlum
og sett fram málefnalega og alvarlega gagnrýni á ástand
og horfur í húsnæðismálum. Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra hefur vænt Öm um að setja þessa
gagnrýni fram af annarlegum ástæðum, þ.e.a.s. á þeim
forsendum að verktakar í byggingariðnaðinum séu að
hlaupa í pilsfaðm ríkisins með sín eigin vandamál. Vera
má að Öm Kæmested sé að tala máli síns atvinnurekstr-
ar en málstaður hans er ekki verri fyrir það og eftir
stendur að rök hans og sjónarmið eru alls góðs makleg
og eiga vissulega erindi þegar þróun húsnæðismála er
skoðuð. Ef hagsmunir byggingaverktaka og unga fólks-
ins fara saman er allt gott um það að segja.
Öm heldur því nefnilega fram með réttu að sjálfseign-
arstefnan í íbúðarmálum sé í hættu. Hann bendir á að
stór hópur ungs fólk sé utanveltu á íbúðarmarkaðnum.
Hann bendir á gaha í húsbréfakerfinu og leiðir rök að
því að félagsíbúðakerfið mismuni fólki, án þess þó að
afrakstur af greiðslum í því kerfi leiði til eignamyndun-
ar í samræmi við greiðslurnar.
Eitt af því sem Öm bendir á er sú staðreynd að í stað
þess að félagsíbúðakerfið sé hugsað til að skapa félags-
legt öryggi fyrir láglaunafólk, sem hefur htla möguleika
til eignamyndunar, hefur það þróast í það að vera ein-
asta úrræðið fyrir ungt fólk til að leysa húsnæðisvanda
þess. Öm segir:
„Þannig hefur hlutfah ungs fólks (fólks um tvítugt,
bamlaust eða með eitt bam) aukist verulega á sama
tíma og hlutfah láglaunaíjölskyldna (hjón á milh 30 og
40 ára með 2 til 5 böm) hefur dregist saman.“
Fólki, sem er að stofna heimili, er í rauninni att nauð-
ugu til umsókna og kaupa í félagskerfinu með þeim af-
leiðingum að það hefur htla sem enga möguleika í fram-
tíðmni til að nýta það sem stökkpah th sjálfseignar.
Öm Kæmested leggur ekki th að húsbréfakerfið sé
lagt th hhðar. En hann vhl að lánshlutfah þeirra sem
em að eignast sína fyrstu íbúð verði hækkað í 80% af
kaupverði og að þeir sem eignast sína fyrstu íbúð fái
affoh af húsbréfum endurgreidd að fuhu á fyrsta árinu.
Markmiðið er að létta ungu fólki róðurinn th að eignast
sjálft sínar eigin íbúðir. Sú sjálfseignarstefna á fuUan
rétt á sér. EUert B. Schram
FþSTUD^QUIi.4.,SEPTEM^fi 1992.
Nýjasta örþrifaráð Bush Banda-
rílqaforseta, þegar hann horfir nú
upp á sigurinn mikla í Kúveit í
fýira verða að dufti og ösku, er að
lýsa yfir loftferðabanni yfir suður-
hluta íraks undir því yfirskini að
verið sé að vemda ofsótta shia
múslíma þar. Tilgangurinn er vit-
anlega sá einn að ögra írökrnn til
andsvara, sem myndi aftur kalla á
fulla hemaðaríhlutun á ný í írak,
og þar með yrði Bush aftur aö sig-
ursælum stríðsherra, rétt á síðustu
stundu fyrir kosningamar sem
hann virðist vera að tapa.
Þetta ætti ekki að koma á óvart,
lengi hefur verið búist við ein-
hveiju álíka. Lengst af var búist
við að tregöa íraskra stjórnvalda
til að leyfa eftirlitsmönnum Sam-
einuðu þjóðanna að ganga meö
þótta inn í hverja hirslu í öllum
opinberum byggingum landsins,
yrði notuð sem átylla til loftárása
á Bagdad. En síðan runnu tvær
grímur á Bandaríkjamenn þegar í
ljós kom að loftárásir kynnu aðeins
að styrkja stöðu Saddams Hussein „Mannréttindi verða ekki vernduð með herþotum. Ef írakar eru að of-
og snúa almenningsáhtinu honum sækja sjíta gera þeir það á landi", segir m.a. í grein Gunnars.
í hag. Símamynd Reuter.
Hin mátt-
vana bræði
Því var hætt við loftárásir í bih
en treyst á í staðinn að írakar
mundu gefa tilefni th hernaðará-
taka með því aö grípa til vopna
gegn flugferðabanninu í Suður-
Irak. Sú von hefur enn ekki ræst.
- Enginn veit hvað gerast kann, en
ólíklegt er að nokkur breyting
verði á sigurlíkum Bush í kosning-
innum vegna frumkvæðis Sadd-
ams Hussein.
Bitur sannleikur
Sá bitri sannleikur er nú loks að
renna upp fyrir almenningi í
Bandaríkjunum eftir djúpa sigur-
vímu mánuðum saman eftir Eyði-
merkurstorminn, að eini árangur-
inn var sá að koma aftur til valda
emímum af Kúveit, með öllum sín-
um 70 hjásvæfum, hirðfíflum sín-
um, þjónum og öðru hyski, og þar
með afhenda honum á ný einka-
yfirráð yfir 15 prósentum af allri
ohu sem vitað er um á jörðu. Ekk-
ert annað ávannst í stríðinu, sama
hversu staglast er á glæsilegri her-
mennsku Bandaríkj amanna, enda
hafði fjölþjóðaherinn ekki umboö
til neins annars en reka íraka frá
Kúveit.
Nú er þrástagast á því aö Bush
hafi hætt stríðinu of snemma og
þess vegna sé Saddam Hussein enn
við völd. Þeir menn gleyma því að
Sameinuöu þjóðimar gáfu aldrei
heimhd th annars en reka íraka frá
Kúveit. Sérstaklega var tekið fram
í samþykktum Öryggisráðsins að
stríðinu væri ekki beint gegn írak
sjálfu. Engin arabaþjóð, ekki einu
sinni Kúveitar sjálfir, hefðu tekið
þátt í því að reyna að koma upp
bandárískri leppstjóm í Bagdad.
Enginn hefði tekið þá stjóm alvar-
lega, ahur arabaheimurinn, utan
og innan íraks heföi risið upp og
bandaríska hemámshðið í írak
heföi lent í svipaðri aðstöðu og ísra-
elsmenn lentu í í Líbanon eftir inn-
rás sína þar 1982. Samt er nú talaö
af vandlætingu um þá vitleysu
Bush að stöðva stríðiö þegar það
var gert enda þótt því hefði þá ver-
ið haldið áfram tveimur dögum
lengur en ástæða var th því að írak-
ar höfðu gengið að öhum skhyrð-
um Sameinuðu þjóðanna nokkm
áður en Bandaríkjamönnum þótti
tímabært að hætta hemaði. Það
eina sem Bush gerði rétt í þessu
stríöi var að stöðva þaö.
Upplausn
Upplausnin sem á eftir fór í Norð-
KjaUaiinn
Gunnar Eyþórsson
fréttamaður
ur- og Suður-írak kom svo öhum í
opna skjöldu þótt ábyrgir aöhar
hefðu átt að vita betur. Allur heim-
urinn fékk samviskubit út af
hremmingum Kúrda með alkunn-
um afleiðingum og gleymdi þvi að
erfðafjendur þeirra em Tyrkir en
ekki írakar, þrátt fyrir hefndarað-
gerðir írakshers 1988 í refsingar-
skyni fyrir samvinnu sumra Kúrda
við íran í stríðinu 1980 th 88. Sjít-
amir gleymdust, enda erfiðara að
afla frétta af þeim, en þeirra upp-
reisn var bæld niður af ekki minni
hörku en Kúrda.
Kúrdar og sjítar em oft nefndir í
sömu'andrá eins og þetta séu sérs-
takir kynþættir. Svo er um Kúrda,
sem em ekki arabar, en shia mú-
slímar í Suður-írak em arabar af
ýmsum ættbálkum og trúgreinum.
Því er haldið fram að þeir vilji
stofna sitt eigið ríki en það eru get-
gátur einar.
Fram að stríðinu hafði aldrei
leikið vafi á því að mestur hluti
sjíta í Basra og öðrum svæðum
Suður-íraks taldi sig vera íraka.
Nú á Saddam að vera að útrýma
þeim. Fyrir því em engar heimildir
aðrar en bandarískar flugufregnir,
og bandarískar fréttir frá írak eru
álíka áreiðanlegar og fréttir græn-
friöunga af hvalveiðum íslendinga.
Fenjasjítar
Enginn efast um hörku og mis-
kunnarleysi Saddams. Meira að
segja nýtur hann talsverðrar að-
dáunar meðal margra araba ein-
mitt vegna þess. í þeim heimshluta
em menn ekki öðm vanir. Fárán-
legt er að dæma araba á skandinav-
ískan mælikvarða. Átökin á fenja-
svæðunum syðst í írak eiga sér
upptök í því að íraska stjómin hef-
ur lengi ætlað að þurrka upp fenin
og gera þau að nýtanlegu landi, en
um 50 þúsund fenjabúar, sem hafa
hafst þama við í margar aldir, vilja
ekki breyta sínum lífsháttum.
Þetta er sá flugufótur sem er fyr-
ir ofsóknum Saddams á hendur
sjítum, og þetta er nú sú átyha sem
notuð er til að ögra Saddam th að
gefa Bush tækifæri th að sýna
hemaðaryfirburði Bandaríkjanna.
En þetta er einhliða ákvörðun sem
styöst ekki við samþykktir Samein-
uðu þjóðanna, eins og ahar aðrar
aðgerðir gegn írak hafa þó gert.
Þetta er ólöglegt í alþjóðalögum og
að auki bæði thgangslaust og að
líkindum ástæðulaust.
Mannréttindi verða ekki vemduð
með herþotum. Ef írakar eru að
ofsækja sjíta gera þeir það á landi.
Herflugvélar hafa þar engin áhrif.
Að auki hafa írakar boðist th að
hleypa alþjóölegri eftirhtsnefnd
suður eftir tíl að kynna sér ástand-
ið, en því hafna Bandaríkjamenn.
Það er nefhhega hugsanlegt að í
Ijós komi að engar skipulegar of-
sóknir eigi sér stað. Aðeins sé um
að ræða þá venjulegu harðýðgi í
samskiptum sfjómenda við þegna
sem einkennt hefur íbúa Mesópót-
amiu aht frá dögum Nebúkadnes-
ars. - Og Nebúkadnesar er einmitt
sá herkonungur fom sem Saddam
Hussein vhl láta líkja sér við.
Gunnar Eyþórsson
„Það er nefnilega hugsanlegt að í ljós
komi að engar skipulegar ofsóknir eigi
sér stað. Aðeins se um að ræða þá
venjulegu harðýðgi 1 samskiptum
stjórnenda við þegna sem einkennt
hefur íbúa Mesópótamíu allt frá dögum
Nebúkadnesars.“