Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Síða 15
LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992. 15 Wy 3 ■ '■'£xs* Æk Þingmenn kjósa oftast fremur að verða „hetjur" ákveðins hóps en að hugsa um hag þjóðarheildarinnar. DV-mynd GVA Sjóðasukk áfram í dag er ég ríkur, í dag vil ég gefa demanta, perlur og skínandi gull. Gakk þú í sjóðinn og sæktu þér hnefa, unz sál þín er mettuð og barmafull... Þeir voru örlátir - á peninga ann- arra, það er skattborgaranna - ráð- herramir og þingmennimir, sem komu á sjóðasukkinu fyrir mörg- um árum. Þeir, sem hlutu náö, svo sem dyggir stuðningsmenn í kosn- ingum, gátu gengið lítið hindraðir og tekið fé hjá opinberum sjóðum, meira og minna niðurgreidd lán. Þetta var oft ekki greitt - og er svo enn. Ráðherrar núverandi ríkis- stjómar hafa sagt margt ljótt um sjóðasukkið, þótt margir þeirra hafi borið ábyrgð á því ásamt ráða- mönnum í öðrum flokkum. Það átti að stöðva sjóðasukkið, og eitt- hvað hefur verið gert í þá átt. En sumpart heldur sukkið áfram, og við erum að fá reikninga fyrir nú- tíöarvanda og „fortíðarvanda“, sem leiðir af þessu glapræði. Steininntókúr Mikill halli hefur verið undanfar- in ár á lánasjóðum atvinnuveg- anna, og í fyrra tók steininn úr að sögn tímaritsins Vísbendingar. Þetta em, eins og menn vita, sjóð- ir, sem útvega fyrirtækjum lang- tímalán. Halli helztu sjóðanna, sem ritið skoðaði, var rúmir tveir millj- arðar króna í fyrra og um sjö milij- arðar króna, þegar ríkisframlögum er bætt við hallann, eins og sjálf- sagt er. Þetta er gífurleg upphæð, til dæmis er þessa dagana talað um, að ríkiö „auki framkvæmdir" á næsta ári um tvo milljaröa króna og er taiin mikil aukning. Eitt pró- sent af allri framleiöslu í landinu er um 3,8 milljarðar króna, svo að sjö milijarðar samsvara nærri tveimur prósentum af framleiðsl- unni. Þetta kostar sjóöasukkiö okkur um þessar mundir. Langmestur hluti ríkisframlag- anna í sjóðina fer til að bæta út- lánatap þeirra. í fyrra seig á ógæfu- hliöina, en meira munar þó í reikn- ingnum, að tap sjóðanna frá hðnum tíma hefur verið viðurkennt, með - 7 milljarða halli á lánasjóðum atvinnuveganna því að sjóðimir leggja í afskrifta- sjóð fyrir töpuð útlán. Þannig lögðu sjóðimir hátt á sjöunda mifijarð króna í slíka afskriftasjóði á síðasta ári. í þessum afskriftasjóðum em 7 prósent eigna sjóðanna, en til sam- anburðar má nefna, að í afskrifta- sjóðum banka em 2-3 prósent eigna. Sjóðimir viðurkenna þannig meira en áður það mikla tap út- lána, sem þeir standa frammi fyrir. Bein útlán sjóðanna vora 70 milij- arðar króna um áramót, en þá vom útlán banka og sparisjóða samtals 190 milijarðar króna. Á þessu sést, hvílíkt bákn þessir sjóðir hafa ver- ið samanborið við bankakerfið. Ríkisstjómin hefur staðið fyrir því að vinda nokkuð ofan af þess- um sjóðum, þótt hvergi nærri sé nóg. Þannig er mikilvægt, aö útlán- um Framkvæmdasj óðs hefur nú verið hætt og stjóm hans lögð nið- ur. Lánasýsla ríkisins hefur tekið að sér að innheimta útlán sjóðsins, sem nema yfir 20 milljörðum króna. Þar af er gífurlega hátt hlut- fall örugglega tapað, reikningur, sem berst skattgreiðendum næstu árin. Lögum um Byggðastofnun, ann- an slíkan „sjóð“, var breytt fyrir rúmu ári. Stofnunin á að verða „þróunarstofnun, sem fylgir eftir stefnu stjómvalda í atvinnu- og byggðamálum". Hætt er við, að þessi breyting dugi hvergi. Þvert á móti sýnir reynsla að undanfomu, að Byggðastofnun hefur ekki brugðið vana sínum. Hún er við sama heygarðshomið. Draumur sukkaranna Alltof litáð hefur verið gert til að stöðva sjóðasukkið, og stór hluti þjóðarinnar virðist líta á það sem gott og blessað. Varla líður svo dag- ur, aö ekki berist fréttir af einhveij- um hópi, sem æpir á meira af því tagi. Það er samdráttur í efnahags- málum. Margir fara á höfuðið. Landsbankinn gengur í miklu rík- ara mæli en áður fram gegn tap- fyrirtækjunum. Sum pláss eiga í Laugardags- pistilliiui Haukur Helgason aðstoðarritstjóri vanda af þessum sökum. Hvað ger- ist? Menn kalla eftir framlagi úr ríkissjóði. Ríkiö eigi beinlinis aö bera tapreksturinn á herðum skattborgaranna í landinu. Svona var þetta, og svona viija margir hafa það, kannski langflestir, með- an þeir reikna dæmið ekki til enda. Sukkaramir era fjölmargir, og þeir hafa lykilvöld í þjóðfélaginu. Sljómmálamenn verða byggða- heljur með þvi að styða kröfur um, að ríkið beri tapreksturinn uppi - enn einu sinni. Ríkissijómin hefur ekki stöðvaö þetta. Hún fer sjálf svipaðar leiðir, , oghúnsehu-fýrirgreiðslumönnun- um ekki stóliim fyrir dymar. Ríkis- stjómin segist á næsta ár ætla að leggja tvo miljjarða aukalega í „við- bótarframkvæmdir". Þetta verður auðvitað gert með erlendum lán- um. Lánasjóðir atvinnuveganna em einmitt þannig gerðir, að þeir útveguðu fyrirtækjum lánsfé, sem var að miklu leyti erlent. Þetta hef- ur farið eins og fólk veit, ef það hugsar málið. Lítum á Fram- kvæmdasjóð sem dæmi. Framkvæmda- sjóður drepinn Framkvæmdasj óður er til kom- inn vegna Marshafi-aðstoðarinnar 1948. Hann tók lán erlendis og miðl- aði þeim til annarra sjóða atvinnu- veganna. Vegna spilhngar stjórn- málamanna fór þetta úrskeiðis. Framkvæmdasjóðúr tók að lána Álafossi á sjöunda áratugnum. Þar fór eins og fólk þekkir. Eftir endur- skipulagningu 1985 var farið að veita fleiri bein lán úr sjóðnum, einkum til fiskeldis. Þar fór einnig eins og fólk veit. Þetta drap sjóðinn. Tap sjóðsins nam í fyrra rúmum tveimur mifijörðum króna. Eigið fé hans var aðeins hálfur milljarður. Ríkið greiddi því afganginn af tap- inu. Það er þú og ég. Byggðastofnun lagöi í fyrra tvo milijarða króna í afskriftasjóð tap- aðra útlána, en það samvaraöi fimmtungi heildarútlána Byggða- stofnunar. Ríkið lagði lengi vel fé til rekstrar stofnunarinnar og sér- stakra þróunarverkefna, og var ætlazt tU, að útlánin stæðu undir sér að öðm leyti. í fyrra varð ríkið þó að reiða fram 1450 milijónir króna úr vasa skattborgranna. Rekstrartap Byggðastofnunar ásamt styrkjum var þá rúmir tveir milijarðar króna. Mikið af þessu var vegna fyrir- tækja í fiskeldi, enn einu af gælu- verkefnum stj ómmálamanna. Lán stofnunarinnar til fiskeldis vom 900 milljónir króna um ára- mót. Megniö af því er tapað fé. Hér hefur verið drepið á hluta af kostnaði landsmanna vegna þess, sem sett hefur verið í glötuð verk- efni úrþessum sjóðum. Nefiit hefur verið Alafoss og fiskeldiö. En hér hefur aðeins verið minnzt á kostn- að, sem kemur út úr reikningum síðasta árs. Lengi má rekja þessa sorgarsögu. Til dæmis hefur einn „sjóðurinn", Stofnlánadeild land- búnaðarins, lagt 1,7 milljarða króna í loðdýrarækt, aðeins sam- kvæmt reikningi síðasta árs, eða tæp 20 prósent af öllum útlánum sjóðsins. Fólk kannast við fall þess- arar greinar. Endurgreiðslum af skuldum loðdýraræktar við sjóð- inn var frestað í nokkur ár. Sígur á ógæfuhlið Framlög sjóða til taprekstrar era miklu meiri en þetta. Fjárhagur sjóðanna verður vafalaust slæmur nú í ár. Aflakvótar minnka og framleiðslukvóti í sauðflárrækt. Þar mun koma fram, að þessir op- inbera sjóðir hafa verið að halda gangandi taprekstri um langt ára- bil, sumpart vonlausum taprekstri. Hafa þessir sjóðir orðið til ein- hvers gagns? Þegar á allt dæmiö er htið, hefur ógagnið verið miklu meira. Reikningurinn, sem skatt- borgarinn fær sendan nú og á næst- unni, segir þá sögu. í fjölmörgum tilvikum hefur vonlausum fyrir- tækjum verið haldið gangandi, þannig að dauöastríð þeirra hefur bara lengzt. Ekki þýðir að tala í þessu tilviki um, að „atvinnu hafi verið haldið uppi“. Allir sjá, aö ekki stoðar sú „kleppsvinna" að sóa fjármunum til vonlauss rekstr- ar, bara til þess að halda uppi at- vinnu. Vinnuaflið væri betur kom- ið við önnur verkefiii. Austur fiár til þessa rekstrar hefur verið óarö- bær með öllu. Hann hefur þvert á móti hindrað, að annar rekstur hafi getað fengið flármagn, rekstur, sem skilaði þjóðinni arði. Þetta sjá allir, þegar þeir hugsa til þess, að verið er að spila með takmarkað fjármagn, svo að ekki hefur verið mikið til skiptanna. Gæludýrum ráðamanna hefur verið hyglað og þá á kostnað annarra landsmanna. Þetta hefur skapað ósanngjamar samkeppnisaðstæður. Fleiri en áður skfija þetta glataöa sjóðasukk. En gallinn er sá, aö það heldur áfram - og margir vfija áfram sjóðasukk. Haukur Helgason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.