Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992. Veiðivon Flugan sat föst í berginu Nú er veiði lokið í flestum ám en sjóbirtingur er veiddur í einni og einni ennþá. Veiðimenn geta alla vega yljað sér í vetur við minningarnar frá sumrinu. DV-mynd G.Bender Veiðimenn eru misheppnir eins og sá sem við fréttum af fyrir fáum dög- um. Hann var veiða í veiðiá fyrir vestan og veiðin var ágæt. En maök- urinn var af skomum skammti og nú átti að reyna fluguna. En þar sem hylurinn var djúpur og fiskurinn lá djúpt í honum varð að setja nokkrar sökkur á og stóra túpu. Þetta var allt sett á með miklum tilfæringum og ailt var í góðu lagi. Var fyrsta kastið stórglæsilegt, en enginn fiskur tók. En ekki var hægt að segja það sama um næsta kast. Þessi hylur var mikill og djúpur með stórum klettum í kring. Veiðimaður- inn býr sig undir að taka kastið og sveiflar stönginni meistaralega. En þá gerðist slysiö, flugan með öllum sökkunum lenti uppi á klettinum beint á móti og sat þar fóst. Það var ekki nokkur möguleiki að losa hana þama, sama hvaö var reynt og togað, ekkert gekk. En flugan og sökkurnar sitja ennþá á klettinum, þar nær þeim engin. Kristján Gíslason með aðra bók Þessa dagana er verið að vinna á fullu þær veiðibækur sem eiga að koma út fyrir jólin. Kristján Gíslason hefur lokið við sína aðra bók og aftur er það Forlag- ið sem gefur bókina út. Fyrri bók Kristjáns, sem kom út fyrir tveimur árum, var feiknarlega vel tekið af lesendum. Stangaveiðiárbókin kemur út hjá ísafold í fimmta sinn og er verið að vinna hana þessar vikurnar. Bókin um Laxá í Kjós, sem Fróði ætlaði aö gefa út, kemur víst ekki um þessi jól. Hana er búið að salta í bili. Skrif DV um lækkun á veiðileyfum hafa vakið mikla athygli hjá stanga- veiöimönnum, leigutökum og land- eigendum. En þögn annarra fjöl- miðla hefur vakiö ennþá meiri at- hygli. Sumir vilja bara alls ekki ræða málið, það þykir einkennilegt mjög. -G'.Bender Séra Bjami heitinn Jónsson var eitt sinn spurður aö því hvort honum þætti ekki óguðlegt aö menn væru að veiða lax á sunnu- dögum. „Qjú, víst er það,“ svaraði séra Bjarm. „En verra þykir mér þó hvað hinir sömu ljúga miklu á mánudögum." kokkur Eitt sinn er Lási kokkur, sá eini og sanni, hafði verið í löngum viðræðum við stýrimanninn uppi í brú, spurði bátsmaðurinn Lása hvað þeim hefði fariö á milli. „Góði besti," stundi Lási, „hann spurði svo mikið að ég lét það út um annað og inn um hitt." Sýklamir „Veistu það, Pétur minn, að djúpur andardráttur drepur sýkl- ana,“ sagði einn af heimilislækn- unum í Garðabæ viö eldri mann sem leitaö hafði ráða hjá honura við hvimleiðum kviiia. „Er þaö svo,“ andvarpaði Pétur. „En hvemig fáum viö sýklana til aö anda nógu djúpt?“ Áhausnum Ótgerðarmaður nokkur orti þessar visur endur fyrir löngu: Ég er á hausnum hvínandi, hjálp fæst engan veginn. Gapir við mér gínandi, gjaldþrot beggja megin. Skal þó meðan skapa nýt, skulda fylla sekki. Hérna megin hef ég krít, hinuraegin ekki. Finnurþúfimmbreytingai? 172 við? Heimilisfang:.. Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. verðlaun: TENSAI ferðaút- varpstæki með kassettu að verðmæti 5.220 krónur frá Sjónvarpsmiðstöðinni, Síð- umúla 2, Reykjavík. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur að verðmæti kr. 3.950. Bækumar, sem eru í verö- laun, heita: Falin markmið, 58 mín- útur, Október 1994, Rauði drekinn og Víghöfði. Bækumar em gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausnmni: Finnur þú fimm breytingar? 172 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundraö og sjötugustu getraun reynd- ust vera: LPéturSveinsson Akralandi 1,108 Reykjavík. 2. Valgerður Anna Jónas- dóttir Safamýri 11,108 Reykjavík. Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.