Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Page 32
44 LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992. Helgarpopp Ronnie James Dio söngvari í einkaviðtali við DV: Framtíð Black Sabbath - er sem óskrifað blað Hljómsveitin Black Sabbath hef- ur verið á hljómleikaferð um heim- inn síðustu sex mánuði og ætlar að halda áfram langt fram á næsta ár. Með hléum að sjálfsögðu. Hljómsveitin tók sér einmitt frí þessa vikuna, frá sunnudegi til laugardags. „Við spiluðum í Groeningen í Hollandi á sunnudaginn og verðum svo næst á Akranesi, á laugardags- kvöld,“ segir Ronnie James Dio, söngvari hljómsveitarinnar, í einkaviðtali við DV. Hann og Vinny Appice trommuleikari notuðu tækifærið til að skjótast heim til Los Angeles til að heilsa upp á fólk- ið sitt. Hið sama gerðu Tony Iommi gítarleikari og Geezer Butler bassa- leikari. Þeir þurftu þó ekki að fara nema til Bretlands til að hitta kon- ur og böm. Það er löng leið frá Los Angeles til Akraness. Vinny og Dio þurfa því að leggja af stað á fimmtudag til að verða komnir tímanlega á hljómleikana. „Maður getur lítið staðið við heima. En það er þess virði að skjótast,“ segir söngvar- inn. Byrjuðu í Brasilíu Hljómleikaferð Black Sabbath til að fylgia eftir plötunni Dehumaniz- er hófst í Suður-Ameríku í apríl. Hljómsveitin kom fram í Brasilíu og Argentínu. Ronnie James Dio segir að viðtökumar hafi veriö ótrúlega góðar. Black Sabbath á þar bersýnilega fjölmarga aðdá- endur. Þá segist Dio hafa orðiö áþreifanlega var við að margir könnuðust við tónlist hans og hljómsveitarinnar Dio sem starfaði á niunda áratugnum. Hann bjóst fyrirfram við því að ástandið þar syðra væri svipað og í löndum þriðja heimsins en segir að sér hafi komið þægilega á óvart hve þróunin í löndunum tveim hafi verið mikil hin síðari ár. Eftir þrjár vikur í Suður-Amer- íku lá leiðin til Bandaríkjanna og þaðan til Bretlands. Síðustu daga hefur Black Sabbath svo spilað á meginlandi Evrópu og ætlar til Kanada og Bandaríkjanna eftir að hún hefur verið hér. Eftir áramótin hggur leiðin síðan til Asíulanda. Hljómsveitin leggur mikið á sig til að kynna sem flestum nýju plöt- una. Enda segir Dio að fjórmenn- ingamir séu allir mjög sáttir við hana. „Útkoman varð mjög góð. En vinnslan var erfið, drottinn minn dýri,“ segir hann. „Við vonun í eitt og hálft ár að fullgera plötuna. Það tafði okkur verulega að trommu- leikaraskipti urðu í hljómsveitinni í miðju kafi. Cozy Powell datt af hestbaki og slasaðist alvarlega. - Þetta hljómar eins og hrakfaUasaga frá hljómsveitinni Spinal Tap en svona er þetta nú samt. - Nú, Vinny Appice kom í hópinn og þá var hljómsveitin allt í einu orðin eins skipuð og þegár ég gekk í hana árið 1979. Ég get alveg játað það að ég var feginn að fá Vinny í hópinn. hann passar miklu betur í Black Sabbath en Cozy Powell. Fyrir bragðdð hljómum við mun nútímalegar en við hefðum ella gert,“ heldur Dio áfram. „Mér fannst engjnn tilgangur í aö endur- reisa Black Sabbath aöeins til þess að fara í hljómleikaferð og fá gamla aðdáendur til að mæta - hafa pen- inga af fólki. Enginn okkar þurfti Black Sabbath. Góður starfsandi í hljómsveitinni en liðsmennirnir umgangast hver annan með varúð, segir Ronnie James Oio songvari. á því að halda að standa þannig að málum. Því var miklu skynsam- legra að reyna að búa til eitthvað sem stenst samanburð við það sem fremstu. rokksveitir heimsins eru að gera um þessar mundir. Ég tel að okkur hafi tekist það og ég held að hinir þrír séu sama sinnis. De- humanizer er nútíma plata. Hljóm- urinn er nútímalegur og við erum í árásarhug og reiðir. Þannig eiga menn líka að hljóma meðan ástandið í heiminum er eins og það er um þessar mundir." Tværplöturíeinu Um svipað leyti og Dehumanizer með Black Sabhath kemur út er gefin út plata með safni bestu laga hljómsveitarinnar Dio. Hún heitir Diamonds - Best Of Dio. Ronnie James Dio telur að það skipti engu máli að báðar plötumar komi út í einu. „Þetta snýst allt um markaðs- setninguna," segir hann. „Ég hafði ekkert með Diamonds... að gera nema að samþykkja lögin sem voru valin á hana. Útgefandinn annast þá útgáfu alfarið. Enda vissi hann fyrirfram að ég myndi eingöngu sinna Black Sabbath og Dehum- anizer plötunni. Auðvitað hef ég ekkert á móti því að Diamonds... seljist vel. Mér fmnst bara að mér komi útgáfan ekkert við. Ég held að nafnið mitt sé ekki einu sinni nefnt á plötuumslaginu! Hins vegar hef ég áfram minn plötusamning við Wamer sem ég undirritaði fyrir tólf árum og held áfram aö vinna fyrir þaö fyrirtæki einhvem tíma síðar. Nú er ég hins vegar í Black Sabbath og sinni þá engu öðm á meðan, með fullu sam- þykki útgefandans, sem reyndar dreifir plötum Black Sabhath í Bandaríkjunum. Ég hef ekkert ákveðið hvað tpkur við.þegar við ljúkum því að fylgja Dehumanizer eftir. Hvort það verður sólóplata eða önnur plata með Black Sabbath verður tíminn að leiða í ljós. Útgef- andinn er ekki farinn að krefjast þess að ég fari að gera eitthvað í nýrri plötu svo að ég sef rólegur hennar vegna. En ég lofa því að ef okkur tekst að þrauka á þessari plánetu, sem við föram svo illa með, kemur sólóplata frá mér fyrr eða síðar. Kannski fyrr en síðar,“ segir Dio og hlær. Nável saman Ronnie James Dio söng með Black Sabbath á ámnum 1979 til Umsjón Ásgeir Tómasson 1983. Þá var hann rekinn úr hljóm- sveitinni. Hann segir að átökin, sem þá urðu, skipti engu máh leng- ur. „Þegar við héldum okkar fyrstu hljómleika var eins og þessi tíu ár þurrkuðust út í einu vetfangi," seg- ir hann. „Við náðum mjög vel sam- an frá fyrstu stundu. Að því leytinu að hljómsveitin nær mjög vel sam- an hefur ekkert breyst. Okkur hef- ur hins vegar öllum farið fram sem tónlistarmönnum síðan í gamla daga. Breytingin, sem orðið hefur, er fyrst og fremst sú að nú era allir eldri og þroskaöari en fyrir tíu áram. Við horfum til gömlu áranna og viðurkennum það fúslega að við vorum þá ungir, villtir og vitlausir. Nú höfum við allir stofnað heimili og þar af leiðandi fer fritíminn í að sinna fjölskyldunum. Áður eydd- um við öllum okkar tíma saman, bæði í vinnunni og utan hennar. Og auðvitað fór ekki hjá því að við færam stundum hver í taugamar á öðrum. En taktu ekki orö mín svo að við séum orðnir gamlir og ráðsettir núna,“ bætir Dio við og hlær. „Þótt við séum komnir nokkuð við aldur og höfum þroskast með allri þeirri lífsreynslu sem við höfum aflað okkur eigum við okkar „óþroskuðu stundir" núna. En þegar á heildina er litið era öll viðhorfin til hljóm- sveitarinnar og hver til annars önnur en áður. Eðlilega.“— Óráðin framtíð Ronnie James Dio segir að platan Dehumanizer hafi fengið mjög góð- ar viðtökur gamalla Black Sabbath aðdáenda og vænn hópur nýrra hafi bæst við. Hann segir fjórmenn- ingana ekkert kippa sér upp við slæma dóma sem platan hefur fengið í tónlistartímaritum, aðal- lega breskum. „Það er svo sem ekkert nýtt að Black Sabbath fái slæma dóma í breskum blöðum. Það er frekar regla en undantekning," segir hann. „í bandarískum blöðum hef- ur okkur verið betur tekiö. Þar er platan skoðuð í samhengi við ann- að sem Black Sabbath hefur gert og hljómsveitin nýtur sannmælis fyrir að hafa verið til í hér um bil 25 ár. Það er heilmikið afrek út af fyrir sig. Það sem okkur finnst best er að það flykkist fólk á öllum aldri á hljómleikana okkar, ungir og gamhr, og það þekkir tónlistina á Dehumanizer alveg jafn vel og Iron Man, Paranoid og fleiri sígild lög sem hljómsveitin hefur sent frá sér. Platan hefur selst vel. Hún þýtur ekki upp í efstu sæti vin- sældalista og hrapar svo niður aft- ur. Þvert á móti selst hún vel og öragglega og á áreiðanlega eftir að gera svo lengi,“ segir söngvarinn. Hann vfil lítíð ræða framtíð hljómsveitarinnar eftir að hljóm- leikaferðinni, sem nú stendur yfir, lýkur í Japan næsta sumar. „Við tökum okkur áreiðanlega gott frí frá Black Sabbath eftir að ferðinni lýkur. Síðan verðum við einfaldlega að skoða hug okkar. Hvort við viljum halda áfram að vinna saman. Við náum vel saman músíklega. En við geram okkur líka grein fyrir að við erum í erfiðu starfi. Það gekk illa að koma plöt- unni saman. Og við erum ákaflega varkárir í samskiptunum hver við annan. Það gekk ýmislegt á í gamla daga og við viljum ekki láta það gerast aftur. Þess vegna ræðum við hlutina ekki hreinskilnislega, ég játa það hreinskilnislega. Við útkljáum ekki máhn augliti tíl aug- litis. Tony Iommi hefur sagt í viðtölum að á næsta ári verði Black Sabbath áreiðanlega til en kannski með allt öðrum mannskap," heldur Ronnie James Dio áfram. „Við skulum ganga út frá að hann eigi ahtaf eft- ir að verða í hljómsveitinni. Hvað mig varðar þá tek ég sjálfstæðar ákvarðanir og reikna með að hinir geri það líka. Ég tel mig ekki þurfa á Black Sabbath að halda í framtíð- inni til að koma mér og tónhst minni á framfæri. Ég er ákaflega ánægður í hljómsveitinni eins og sakir standa en lifi það ákaflega vel af þótt ég verði ekki með þegar hljómsveitin kemur næst saman. Ég er farinn að eldast og veit ekki hvaö ég endist í hljómsveit mikið lengur.“ Hann hlær. „Sem sagt, ég vildi að ég gæti sagt að Black Sabbath eigi eftir að verða ahtaf til. En svarið er að ég veit það hreinlega ekki. Stefnan hér áður fyrr var að taka upp nógu mikið af plötum og spha á hljóm- leikum þar th menn voru orðnir dauðleiðir hver á öðram og gátu ekki unnið saman lengur. Nú ákváðum við að taka upp eina plötu, fylgja henni eftir og sjá svo th. Svona htur máhð út. Þetta er heiðarlegasta svarið sem ég get gefið um framtíð Black Sabbath.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.