Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1992, Blaðsíða 52
á-—«£" Frjálst,óháð dagblað LaxáíKjós: Leigan lækk- ar verulega - seglr Árni Baldursson „Málið er komið í höfn, eftir margra vikna samningaviðræður milli mín og bænda í Kjósinni, frá því var gengið í fyrrinótt. Landeig- endur og leigutaki Laxár í Kjós náðu samkomulagi um að ríða á vaðið meö verulega verðlækkun og kjarabætur til stangaveiðimanna með þessum samningum," sagði Ami Baldursson, leigutaki Laxár í Kjós, í gær en Laxá í Kjós er fyrsta áin sem hefur verið gengið frá samningum um þetta haustið af þeim veiðiám sem eru leigðar til eins árs í einu. „Lækkunin er veruleg en viö get- um ekki gefið upp hve hún er mikil eins og er. Það kemur í ljós á næstu dögum. En Kjósarbændur hafa kom- ið verulega til móts við stangaveiöi- menn með lækkun veiðileyfa með þessum breyttu samningum," sagði Ámi Baldimsson ennfremur. DV hefur heimildir fyrir því að leigan á ánni var 29 milljónir í smnar og að þetta er töluverð lækkun. Þetta gæti hreyft við öðmm leigu- tökum þvi að einhver þurfti að byija og það hafa landeigendur við Laxá í Kjós og leigutaki gert með þessum tímamótasamingi sem lækkar leig- unaenhækkarhanaekki. -G.Bender É ™ ab iamhiíba nifl Æk IhbbaAi Jftu Alumax / / Fyrstu sex mánuöi þessa árs tap- aöi Amax, aöaleigandi Alurnax, 25,3 miUjónum dollara sem jafii- gildir rúmiega 1300 milijónum is- lenskra króna. Á sama tímabih 1991 var hagnaðurinn bins vegar 37 milljónir doliara eða rumlega 2000 mÚJjónir króna. Haft var eftir Allen Bom, stjómarformaxmi Am- ax, í sumar að rekja rnætti tapið til lækkandi verðs á ílestum tegund- um máhna sem fyrirtæki Amax vinna úr. Hann sagði að nú væri öll áhersla lögö á að mlnnka kostn- að með því að loka verksmiðjum og fresta framkværadum eins og við nýtt álver í Harrisonburg. Síð- astíiðið ár hefði Aiumax til dæmis lokað sex framleiðslustööum og fækkað starfsfólki um fimm og hálft prósent. í viðskiptatímaritinu Porbes er einnig viðtal við Allen Born, stjórn- arformann Araax, þar sem hann segír Alumax-fyrirtækið hafa fjár- fest of raikið undanfarið og gagn- rýnir forstjóra fyrirtækisins, Paul Drack. „Margir telja að þessar miklu fiárfestingar muni skila sér á end- anum og þetta séu í raun góðar fjár- festingar þó þær séu ekki á alveg réttum tíma. Þetta skýrir það hins vegar af hverju þeir viíja fara sér hægar í uppbyggingu heldur en menn áður vonuðu. Það er bersýni- legt að það er ekki bara markaðs- vcrðið sem hefur áhrif á vifja þeirra,“ sagði Davfð Oddsson for- sætisráðherra þegar hann var spurður hvort miklar fjárfestingar fyrirtækisins og slæm staða þýddi það ekki að hætt yröi við frara- kvæmdir á Keilisnesí. Davíð sagði að sérfræðingar væru ahnennt séð sammála um að framboð frá austantjaldslöndum mundi fara minnkandi og þvi væru bjartari tímar framundan í álheim- inum. í úttekt sem Paul A. Reardon og Robert H. Ray, tveir sérfræðingar ráðgjafafyrirtækisins Moody, iiafa gert á ál- og nikkelframleiöslu í Samveldi sjálfstæöra ríkja er nið- urstaðan Mns vegar sú að fram- . leiðslugetan sé það mikil í fyrrum Sovétríkjunum og landið svo rikt af málmumað líklegt sé að framboð þaðan á heimsmarkaðinn muni ekki minnka á næstunni heldur þvert á móti aukast næstu árinu. Aö mati lvan Propokov, tals- manns rússnesku álútflytjend- æma, verður útflutningurinn á : þessu ári sá sami að magni tilogi fyrra, það er 843 þúsund tonn, en getur jafnvel orðið 100 þúsund tonnum mebi. -Ari LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 1992. Veörið á sunnudag ogmánudag: Skúrir víða um land Suðaustlæg átt verður og víða strekkingsvmdm-, skúrir víða um land, síst á Norðurlandi. Hiti verð- ur víðast hvar á bilinu 5-10 stig, hlýjast norðanlands. Veðrið í dag er á bls. 61 Húsavík: Heilsuböð í boriioluvatni Jóhannes Siguxjónsson, DV, Húsavik: Á undanfomum áriun hefur oft verið rætt um það hvort ekki mætti nota heitt vatn úr gömlum borholum á Húsavík í heilsubótarskyni. Aðilar í ferðamálum hafa velt þessu fyrir sér og síðustu árin Félag psoriasis- sjúkhnga. Könnuð var gömul borhola á Höfð- anum en þegar borað var þar fyrir löngu fannst nóg heitt vatn. Það þótti ekki heppilegt fyrir hitaveitu, m.a. vegna þess hvað það var ríkt af ýms- um snefiiefnum. Félag psoriasissjúklinga lét opna þessa holu og setti upp einfaldan út- búnað til heilsubaöa þama á Höfðan- um fyrr í sumar. Plastlögn er rennt niður í borholuna og er lítil dæla fremst á henni. Vatnsyfirborðið er á 17 metra dýpi en vatninu er dælt upp af 27 metrum og er 65 gráða heitt. Þaö seytlar í heljarmikið ostakar sem fengið var úr Mjólkursamlagi KÞ. r Hitiþarerþægilegur,um35gráöur. Þessi aðstaða hefur verið í notkun . ínokkumtímaogteljaþeirsemhana hafa reynt að hún hafi skilað nokkr- um árangri. Húsviskir psoriasissjuklingar i „ostakarinu" góða. LOKI Mættum við biðja Alumax um dulitla offjárfestingu? Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. ■ Áskrift - Dreifing: Simi Röntgentæknar: Engar viðræður eruframundan „Þetta vom ekki samantekin ráö heldur em þetta allt persónulegar uppsagnir,“ sagði Dagný Sverrisdótt- ir, röntgentæknir á Borgarspítala, en um mánaðamót láta flestir röntgen- tæknar viö spítalann af störfum og er fyrirsjáanlegt að þaö mun hafa mikil áhrif, ekki síst á slysadeildina. Eftir mánaöamót verða fimm röntgentæknar starfandi á Borgar- spítala sem er um þriðjungur þeirra sem þar starfa núna. Dagný sagöi aö nú væri undirmannað á deildinni. Hún sagði að þaö vantaði röntgen- tækna í sex stöðugildi á Borgarspít- ala. Nú er skortur á röntgentæknum og ekki er von á nýju fólki fyrr enn eför rúmt ár. Dagný sagði að. ekki væm neinar viðræður í gangi við forráðamenn spítalans og hún sagðist ekki vita til að óskað hefði verið eftir samræðum. Hún sagði fyrirsjáanlegt að starf röntgendeildarinnar myndi lamast og aðeins hægt að veita lágmarks- þjónustu. „Ég reikna ekki með að nokkur röntgentæknir, sem hér er að hætta, fari á aðra spítala upp á sömu kjör og við erum að hætta út af. Ég er ekki búin að gera upp við mig hvað ég geri, “ sagði Dagný. -sme QFennei Reimar og reimskífur Vauisen SuAurtandsbraut 10. S. 68M99.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.